Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2000, Page 12
Rocco Síffredi er frægasta klámmyndastjarna Evrópu. Hann hafði aldrei leikið í
alvöru bíómynd þegar franskur kvikmyndaleikstjóri bað hann um að fá standpínu
fyrir listræna kvikmynd. Rocco stóð sig með prýði en hefur ekki ennþá fundið
hjá sér hvöt til að hætta í kláminu. Saga hans varpar Ijósi á hvers vegna.
Rocco Siffredi í |
fögrum félagsskap '
í Cannes síðastliöið
vor, skömmu fyrir
afhendingu
Gullhitans-Hot d’or.
Eiginkonan Rosa
virðist ekkert annað
en stolt af samfara-
kónginum.
stor og snnnur en mannlegur
Þátttaka klámmyndastjömunnar
Rocco Siffredi í kvikmyndinni
Romance eftir Catherine Breillat,
sem nú er verið að frumsýna í
Sambíóunum, átti stóran þátt í því
að vekja athygli á myndinni í
heimalandi hennar, Frakklandi.
Fyrir Rocco var athyglin sem hann
fékk ekki eingöngu til góðs, því
Romance var næstum því búin að
eyðileggja orðstír hans sem klám-
myndastjörnu. Eitt slúðurblaðanna
gerði heiðarlega tilraun til að koma
á hann „raðmorðingja“-stimpli og
gaf þá skýringu að það vildi berjast
gegn „hnattvæðingu klámsins“.
Þetta sló Rocco út af laginu, því
hann tekur starf sitt alvarlega.
Hann hafði aldrei leikið í venju-
legri kvikmynd áður en hann fékk
hlutverkið í Romance, hvað þá höf-
undarmynd leikstýrðri af kven-
manni. Þegar hann mætti í tökur
vildi hann ekki bregðast þeim
væntingum sem til hans eru gerðar
og lagði metnað sinn í að hafa lim-
inn í stanslausri stinningu. Á end-
anum þurfti leikstýran hreinlega
að útskýra fyrir honum að það
væri ekkert bráðnauðsynlegt og
eiginlega alveg óþarfi. Þrátt fyrir
þennan smámisskilning var
Catherine Breillat hæstánægð með
frammistöðu klámmyndastjörn-
unnar. En hver er Rocco Siffredi?
Langur limur
Hann er einfaldlega einhver
frægasti klámmyndaleikari síðasta
áratugar í Evrópu. Hann hefur
leikið í yfir þúsund slikum, sem
þýðir að hann hefur átt mök við
um fjögur þúsund konur. Hann hef-
ur tvisvar sinnum unnið Gullhit-
ann (Hot d’or) fyrir leik sinn á
kvikmyndahátíðinni í Cannes og
einu sinni sem leikstjóri. Fyrir
tveimur árum sneri hann sér að
framleiðslu klámmynda og þénar
þokkalega sem slíkur.
Rocco á frægðina ekki síst að
þakka löngum limi sínum, enda
varla um annað talað þegar stjam-
an er nefnd á nafn. Hann ku vera
26 sentímetrar, „en ef mér líkar vel
við bólfélagann þá getur hann
lengst um einn til tvo sentímetra."
Þó böllurin á Rocco komi við sögu
í Romance ættu tilvonandi bíógest-
ir þó ekki að gera sér of miklar
vonir, leikur hans takmarkast við
eina eða tvær senur.
Limurinn margumtalaði var
Rocco litla lengi vel til trafala.
Hann er líka helsta umræðuefni
eigandans, sem leggur ekki í vana
sinn að tala um hluti sem hann hef-
ur ekkert vit á. „Án hans hefði ég
ekki getað orðið að þeirri goðsögn
sem ég er en hún er líka tilkomin
vegna þess að ég bókstaflega elska
að elskast. í mínum huga er kynlíf
það mikilvægasta af öllu. í starfi
mínu hef ég alltaf reynt að leita
sannleikans í samförunum. Það er
samt satt að stundum er ógeð í
kringum þetta og það er líka satt að
það eru til ógeðslegir framleiðend-
ur,“ segir Rocco hreinskilinn.
Hélt ég væri veikur
Þeir sem til þekkja segja að Rocco
Siffredi sé engum líkur. „Manni finnst
stelpumar vera til þegar hann tekur
þær,“ segir einn þeirra. Catherine
Breillat horfir öðravísi á málið og lýs-
ir honum sem „glæsilegum manni
með sál“. „Hann hefur leikið í klám-
myndum en lítur ekki út fyrir að vera
einn af þeim. Hann er innblásinn af
ástinni og hann er aldrei fáránlegur
eða grófur." Hann birtist líka í öðrum
stellingum í Romance en í venjulegri
klámmynd. „Það er munur á því að
þykjast eða gera það í alvörunni. Ég er
með,“ segir sá sem hefur aldrei þurft
að fróa sér áður en tökur hefjast. Það
gerist allt sjálfkrafa.
„Ég hafði mínar fyrstu samfarir 13
ára en þá var ég fyrir löngu byrjaður
að fróa mér,“ segir hann og ekkert að
monta sig. Það er frekar að hann sjái
eftir því að hafa byrjað snemma.
„Þetta gerði út af við bamæsku mína,“
fullyrðir hann.
Catherine Breillat brá á það ráð að
leita til klámmyndastjörnunnar
Roccos Siffredi til að fara með við-
kvæmt hlutverk í kvikmynd sinni,
Romance. Rocco hafði aldrei leikið í
„venjulegri bíómynd" áður og var
næstum búinn að missa áruna.
Rocco Siffredi fæddist árið 1964 í
bænum Ortano Mare í Abruzzes-hér-
aði á Ítalíu. Foreldrar hans voru
„mjög kaþólskir" og hann hlaut
„klassískt uppeldi". Hann segist
meira að segja hafa verið „kórstrák-
ur“. En hann vissi að hann var öðru-
vísi en hinir. „Ég var alltaf að runka
mér. Ég hélt á tímabili að ég væri
veikur. Ég var meira að segja lagður
inn á spítala í heila viku. Þeir sögðu
að kynfæri min væru of eftirsótt."
Stakk sér stinnur í sjóinn
Hann riflar upp unglingsárin og
sumarfríin á ítalskri strönd. „Það var
nóg fyrir mig að heilsa stelpu með
handabandi, þá stóð mér. Þegar það
gerðist stakk ég mér til sunds og kom
ekki upp úr sjónum aftur.“ Hann fór
ekki hjá sér en fannst þetta „ferlega
óþægilegt“. Sextán ára fór hann að
heiman og fékk sér vinnu á kafbát.
Hann var fljótlega rekinn. Af kafbátn-
um fór hann til Parísar, til bróður
síns sem rekur pitsustaðakeðju og
ræddi við hann um „vandamálið".
Það leystist daginn sem Rocco datt
niður á tímaritið Supersex. Þar var
sagt frá „geimveru sem kemur til
jarðarinnar til að ríða öllum konun-
um“. Rocco kannast við sjálfan sig í
geimverunni og framtiðin er ráðin.
Klámið bjargar honum. „Ég hef aldrei
hugsað um peninga; aðalmálið var að
komast yfir stelpur til að elskast. Ég
hef lært að þekkja konur. Þær eru
eins og flókin úr „Rocco safnar
úrum“. Síðan ég byrjaði að leikstýra
sjálfur nota ég þeirra hugmyndir. Ég
hef verið ásakaður um að hafa stung-
ið höfðinu á konu ofan í klósettskál
en það var hún sem vildi það.“
Dýrkar eiginkonuna
Rocco byrjaði að leikstýra sjálfur
fyrir fimm árum, því hann fann
ekki hamingjuna í klámiðnaðinum,
„þar sem klofið á stelpunum er
ónýtt“. Hann starfar sjálfstætt og
vinnur með áhugafólki „sem enn á
til tilfinningar". Honum finnst
klámiðnaðurinn vera orðinn allt of
harður og fagmannlegur, þar skortir
ástríðuhitann. Sjálfur hefur hann
verið sakaður um ofsafengni og
hörku en hann á svar við því: „Þetta
er það sem þær vilja frá mér,
kannski vegna þess að þær vita að
ég fer með sterkan lim, þær eru skil-
yrtar,“ segir hann og þykist vita allt
um þarfir rekkjunautarins, sem yfir-
leitt biður um meira. Rocco útskýrir
það þannig að þær konur sem laðast
aö honum og hann laðast að (með
straumum) séu aldrei kynkaldar.
Svo væri hann heldur ekki konung-
ur samfaranna ef hann vissi ekki
hvernig á að bera sig að! í einkalíf-
inu er Rocco Siffredi giftur Rosu,
fyrrverandi ungfrú Ungverjalandi,
sem hann dýrkar hjá einfaldleikann
og á með henni einn son.
Rocco Siffredi hafði aldrei ímynd-
að sér að einhver kona ætti eftir að
biðja hann um að slaka á standpín-
unni. Senan sem Catherine Breillat
leikstýrði „var sú erfiðasta sem
hann hefur leikið í“. Hann hreinlega
vissi ekki hvemig hann átti að haga
sér. Mótleikari hans, Caroline
Ducey, fullyrðir að þau hafi ekki
„gert það“ en Rocco neitar að tjá sig
um málið. Romance var „stórslys"
en eftir stendur hreinskilni og vin-
skapur Catherine Breillat og viður-
kenning kvikmyndabransans.
Boðiö í bíó
í næstu viku verður lesendum Fókus boðið í bíó á Romance, kvikmynd
frönsku leikstýrunnar Catherine Breillat. Romance er sérstök mynd eftir
sérstæðan kvikmyndaleikstjóra og hefur bæði farið sigurför um
Frakkland og Bandaríkin. Fylgist með í Fókusi.
„
I
12
f Ó k U S 14. janúar 2000