Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2000, Page 18
Hann opnaði sitt
eigið tívolí í
Breiðholtinu 10 ára
gamall. Síðan þá
hefur hann verið
viðriðinn ýmíss
konar atvinnurekst-
ur og í dag á hann
fyrirtæki sem ber
höfuð og herðar
yfir veitingarekstur
í miðbænum,
Magnús Ármann er
26 ára og stendur
á bak við Astró,
Rex og Wunderbar.
Hann segist þó
geta gert miklu
betur,
„Ég er bara einn af starfsmönn-
unum,“ segir Magnús Ármann þeg-
ar blaðamaður Fókus hittir hann í
Mafluherberginu á Rex og titlar
hann skemmtanakóng miðbæjar-
ins. „Ég er enginn kóngur. Svona
rekstur gengur ekki án góðs sam-
starfsfólks," segir Maggi, eins og
hann er kallaður af vinum sínum.
Drengurinn er ótrúlega hógvær og
ætlaði varla að vilja koma í viðtal.
Það er samt ekkert launungarmál
að það er hann sem er gæinn á bak
við Astró, Rex og Wunderbar og
getur því borið titilinn skemmt-
anakóngur miðbæjarins með
rentu.
Með 10 bása í
Kolaportinu
Þrátt fyrir ungan aldur hefur
Magnús verið viðriðinn ýmsan
rekstur á þessum 26 árum sem
hann hefur lifað. Fyrsta fyrirtæki
hans var tivolí sem hann opnaði í
Breiðholtinu ásamt félaga sínum,
þá 10 ára gamall.
„Við fengum timbur gefins frá
húseigendum í hverfinu sem verið
var að byggja upp og úr því smíð-
uðum við tívolí með 38 tækjum.
Þar var m.a minígolf, lukkuhjól,
hringekju og alls konar skotbása
með glæsilegum vinningum að
finna. Vinningana fengum við gef-
„Það sem ég hef
werið hvað heppn-
astur með er að ég ►
hef verið vinna
með duglegu
góðu og ekki síst
reglusömu fólk
sem hefur tekið
starfið mjög
alvarlega. Það tel
ég vera mína
mestu velgengn' "
ins frá fyrirtækjum og flottustu
vilmingarnir voru E.T. kallar. Öll
tækin voru drifin áfram með
handafli þannig að ég var með 15
manns í vinnu. Síðan var selt inn i
tívolíið heilt sumar,“ segir Magnús
og minnist þess að það hafi verið
stuð í Breiðholtinu þetta sumar.
Eftir tívolíævintýrið lá leiðin
bara upp á við hvað viðskipti
Magnúsar varðar. Hann var viðrið-
inn ýmislegt og var m.a. með allt
að 10 bása í einu í Kolaportinu þeg-
ar hann var 17 ára gamall þar sem
„Ég hitti svo mikið af fólki í gegnum vinnuna að mér finnst voða gott að siappa af heima á kvöldin og jafnvel horfa á góða videomynd."
hann seldi alls kyns heildsöluvör-
ur sem hann hafði keypt á uppboð-
um.
Fyrsti alvöru veitingarekstur
Magnúsar hófst á Egilsstöðum
sumarið 1995 þegar hann ásamt
vini sínum, Jóhanni Erni Þórar-
inssyni, stofnaði Pizza 67. Pitsuæv-
intýrið varði í eitt sumar því strák-
unum barst tilboð frá sveitarstjór-
anum á Reyðarfirði, tilboð sem
þeir gátu ekki hafnað og því seldu
þeir staðinn.
Frá Egilsstöðum lá leið Magga í
Kringluna þar sem hann opnaði
verslunina Maraþon og árið 1996
tók hann ásamt félaga sínum Jó-
hanni við Astró. Síðan þá hefur
Magnús opnað staðina Wunderbar
og Rex. Hann keypti einnig nýlega
Samvinnuferðar-Landsýnar-húsið
í Austurstræti og er með plön um
að opna þar kaffihús.
Gott samstarfsfólk er rót
velgengninnar
Magnús er fæddur og uppalinn í
Breiðholtinu. Hann á eina systur
f Ó k U S 14. janúar 2000
18