Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2000, Page 19

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2000, Page 19
sem er í lögfræðinámi en foreldr- ar hans stunda atvinnurekstur. Eftir grunnskólapróf fór hann tvo vetur I Verslunarskóla Islands og öðrum tveim eyddi hann á skóla- bekk í Menntaskólanum á Egils- stöðum. Vegna viðskiptaákafa síns lauk hann ekki stúdentsprófi en hann vantar aðeins nokkrar einingar upp á stúdentinn. Maggi, nú hefur þú átt mikilli velgengni að fagna i starfi. Hver er uppskriftin? „Það sem ég hef verið hvað heppnastur með er að ég hef verið vinna með duglegu og góðu og ekki síst reglusömu fólki sem hef- ur tekið starfið mjög alvarlega. Það tel ég vera mína mestu vel- gengni, að vera með traust og gott fólk sem hefur bakkað mann upp, sama hvað á hefur gengið. Mitt mottó hefur líka alltaf verið að það sé alltaf hægt að gera betur. í öllum rekstri skiptir líka miklu máli að vera alltaf á tánum og koma með nýjar og ferskar hug- myndir og vera dálítið ferskur i þvi sem maður er að gera. Maður verður einnig að vera tilbúinn að taka áhættu og það hef ég gert. Þú verður að þora til þess að skora,“ segir Magnús með svona bisness- rödd. Margir halda aö velgengni þín i dag sé foreldrum þínum að þakka, er það rétt? „Samband okkar hefur aldrei verið viðskiptalegs eðlis. Aftur á móti er ég alinn upp í kringum rekstur og það hefur örugglega eitthvað að segja um að maður sé í þessu í dag.“ Rex er opinn fyrir alla í október 1998 opnaði Magnús veitingastaðinn Rex. Mikið var lagt í staðinn og enginn annar en k „Ég hef aldrei írið í neinum vandræðum rrií að losa mig'við pehinga þannig að ég get ekki sa ég sé ríkur.“ hinn frægi hönnuður Sir Terrance Conrad var fenginn til að hanna staðinn. Þrátt fyrir þetta virðist hann alltaf vera tómur. Voru það mistök að opna Rex? „Það tel ég ekki vera. Það er gíf- urleg traffík hér fimmtudaga, föstudaga og laugardag og yfirleitt fullbókað í mat. Það er hins vegar alveg rétt að við höfum verið að reyna að efla miðvikuna. Við höf- um verið mjög sáttir hvað varðar gang mála á Rex og sjáum ekki neitt annað en að reksturinn sé að fara upp á við. Við höfum trú á því sem við erum að gera og komum til með að halda okkar striki. Það tekur bara smátíma fyrir fólk að venjast okkur og skilja það sem við erum að gera.“ Staóurinn var krítiseraöur mikið þegar hann var opnaöur: „Þetta er nú allt of flott, þetta er nú svo of- boðslega mikið snobb, “ heyrði mað- ur... ..en það var alls ekki ætlun okkar sem slík. Við vildum bara vera með smart stað sem byði upp á breiðari línu en það sem gengur og gerist í veitingahúsamenning- unni í miðbænum. Við vorum að bjóða fólki upp á nýja hluti, t.d hvað matargerð varðar og fengum alls ekki góða dóma fyrir það en ég held að fólk sé að taka okkur í sátt. Fólk hefur verið hrætt vð okkur af því að við höfum verið að gera nýja hluti og það treystir sér ekki hingað inn. En það eru allir vel- komnir á Rex og þurfa ekkert að vera neitt merkilegri en aðrir til þess að koma hingað inn,“ segir Magnús meö áherslu á allir. Miklar breytingar á Astró Það sem er efst í huga Magga þessa dagana er þó ekki Rex held- ur Astró því þar standa fyrir dyr- um miklar breytingar. Staðnum hefur verið lokað í bili og mun hann verða opnaður gjörbreyttur um mánaðamótin febrúar-mars. „Það er margra mánaða aðdrag- andi að þvi að staðnum hefur ver- ið lokað. Upphaflega var Astró hannaður sem matsölustaður en nú verður honum breytt í klúbb. Við höfum fengið hönnuðinn Mich- ael Young til liðs við okkur og staðurinn mun taka algjörum stakkaskiptum," segir Magnús og lofar ekki bara breytingum á útliti staðcirins heldur lika hvað tónlist- ina og hljóðkerfið varðar. Það verður einnig heldur betur hægt að sletta úr klaufunum þegar stað- urinn verður opnaður á ný því þar verða hvorki meira né minna en tvö dansgólf. „Já, og svo ætla ég sjálfur að standa í dyrunum. Ég ætla að ráða mig sem yfirdyravörð," segir Maggi og er ekki að grínast enda ekkert slor að standa í dyrunum á einum flottasta klúbbi Evrópu því í þann hóp á Astró að komast eftir breytingamar. Dónalegir söngtextar Að Magnús hafl viðskiptanef er eitthvað sem enginn efast lengur um. En að drengurinn geti sungið og hafi plumað sig nokkuð vel sem söngvari í hljómsveitinni Döðl- urnar er nokkuð sem kannski ekki allir vita. Þetta var á mennta- skólaárum Magga og gaf sveitin út einn geisladisk sem seldist margoft upp. „Hugmyndin á bak við hljóm- sveitina var sú kenning að það væri hægt að selja allt. Til að sanna þessa kenningu ákváðum við nokkrir strákar í Menntaskól- anum á Egilsstöðum að stofna hljómsveit sem væri eins ömurleg og eins hallærisleg og mögulegt væri. Fæstir í sveitinni kunnu nokkuð á hljóðfæri og ég er líka vita laglaus," segir Magnús og minnist þessa tímabils með hinni mestu ánægju. „Þetta gaf manni vissa útrás og kikk og ég er alveg hissa á því hvað við urðum vinsælir. Sveitin varð mjög vinsæl skólahljómsveit og svo spiluðum við líka einu sinni á þrusuballi í Tunglinu." Tekstar sveitarinnar voru nú frekar dónalegir og grófir. Hvað sögðu eiginlega foreldrar þíniryfir því aó þú stœóir í útgáfu á svona dónadiski? „Ekkert. Ég er ekki einu sinni viss um hvort þeir hafa hlustað á diskinn en textamir voru miklu meira list heldur en dónalegir. Er ekki hægt að túlka állt sem list í dag?“ segir Magnús og út brýst heljarinnar umræða um tilveru- rétt og listfengi nektarstaða í Reykjavík. Magnús segist alla vega ekki ætla að setja upp súlur, hvorki á Astró né á Rex. En svo við snúum okkur aftur að poppinu. Það að verða poppari var þaó einhver leyndur draumur hjá þér? „Nei, síður en svo. Þegar ég var lítill ætlaði ég að verða slökkvi- liðsmaður en ég get engan veginn séð mig í því hlutverki í dag. Aft- ur á móti á ég mér þann draum að hljómsveitin Döðlurnar taki comeback á þessu ári og verði með eitt hjómsveitargikk." Áttu fleiri drauma en þennan sem eru óuppfylltir? „Ég reyni nú yfirleitt að fram- kvæma drauma mína í hvelli, ég er svo óþolinmóður. Það er náttúr- lega nóg að gerast í fyrirtækinu og markmiðið er auðvitað að efla það og styrkja. Stefnan er náttúrlega að gera enn betur og við ætlum að vera bestir. Annars er ég mjög ánægður þar sem ég er í dag og hef gaman af því sem ég er að gera.“ Þú ert sem sagt hamingjusamur maður? „ Já, það er gaman að vera til og ég er mjög hamingjusamur," segir Magnús og gæti ekki endað þetta viðtal betur. -snœ Það er skammgóður vermir að pissa í skóinn sinn, segir máltækið. Það er alveg rétt. En að eiga almennilegan skó til að pissa í hefur ekkí alltaf talist sjálfsagt mál. Við íslendingar ættum að kannast við það. Hér gengu menn í sauðskinnsskóm fram á 20. öld en þá komu gúmmítútturnar til sögunnar og loksins þornuðu tær landsmanna. Saga skósins er þó litríkari en þetta, eins og kemur fram í bókinni Skór eða „Shoes“ eftir Lindu O’Keffe. m m m réttu fram löppina f " v*# Nýlega kom út bókin „Shoes“ eft- ir bandaríska blaðamanninn og tískuspekúlantinn Lindu O’Keffe. Bókin er fróðleg í meira lagi þvi þar er saga skósins rakin og birt um 1000 litrík dæmi af skóm frá hinum ýmsu tímum og hvaðanæva úr heiminum. Skórinn hefur nefni- lega, eins og aðrir hlutir, gengið í gegnum umtalsverðar breytingar I aldanna rás og er enn að breytast. Saga skósins Elsti skórinn sem fundist hefur er leðurskór frá því 2000 fyrir Krist og fannst hann í Egyptalandi. Fyrstu gerðirnar af skóm voru annaðhvort sandalar eða einfaldur vafningur úr leðri sem minnti á mokkasínur. Fólk fléttaði sér einnig skó úr ýmsum jurtum. Sandalar, mokkasínur og einföld stígvél voru síðan aðalfótabúnað- urinn alveg fram á miðaldir. Tré- klossar voru einnig mikið notaðir, aðallega af fátækara fólki. Það var ekki fyrr en á 18. öld að farið var að fjöldaframleiða skó á Vestur- löndum. Áður höfðu þeir verið búnir til inni á heimilunum eða af handverksmönnum. En framfarir í skóframleiðslu á Vesturlöndum urðu ekki að ráði fyrr en á 19. öld. Árið 1818 voru gerð mót úr tré fyr- ir bæði hægri og vinstri fót sem skómir voru formaðir eftir. Næsta mikilvæga skref í skóframleiðsl- unni var að saumavélin kom til sögunnar árið 1846 og með henni jukust bæði afköst og gæði fram- leiðslunnar. Með því hófst fjölda- framleiðslan fyrir alvöru og hinn almenni borgari gat loksins eignast almennilega skó. íslandsmetið 103 skópör Hin týpíska ameríska kona á minnst 30 pör af skóm en forfallinn skóaðdáandi á a.m.k hundrað. Skó- metið hér á íslandi, sem vitað er um, á stúlka á þrítugsaldri að nafni Katla Einarsdóttir. Hún á yfir 100 pör af skóm og segir þá alla vera í notkun. Skór hafa lengi endur- speglað stöðu og ríkidæmi þess sem skóinn ber. í Tyrklandi gat maður t.d. lengi séð hvar fólk stóð í þjóðfélagsstiganum með því að at- huga hversu löng táin á skónum hjá þeim var. Ýmis hjátrú er einnig tengd skóm. Sú algengasta hvað varðar skó er líklega að ekki megi setja skó upp á borö. Það getur valdið vandræðum, ósætti eða al- Indverskir skór úr tré og silfri, frá 19. öld. * r varlegum óhöppum. Einnig er sagt * að þeir sem fyrst ganga gat á skó- hæl séu latir en þeir sem fyrst ganga gat á tá séu duglegir. Sál- fræðingar hafa lengi leitað aö hinni duldu meiningu skósins. Sumir segja að kona sem safni skóm sé friðlaus ferðamaður á meðan aðrir halda því fram að hún leiti að uppljómun. Því minni fætur því betra Þegar kemur að skóm er ekki alltaf verið að hugsa um praktísku hliðina eða þægindin því þá hefðu háhæluðu skómir aldrei orðið vin- sælir. Sagt er að 88% allra kvenna kaupi skó sem eru í rauninni einu númeri of litlir á þær. Þetta gera þær til þess að virðast vera með minni fót en það er talið mjög að- laðandi í mörgum löndum heims, sbr. Kina, þar sem fætur kvenna hafa verið reyrðir öldum saman til að koma í veg fyrir að þeir yrðu stórir. Þetta kemur t.d. glögglega fram í ævintýrinu um Öskubusku þar sem vondu stjúpsysturnar fóma bæði tám og hæl til þess að komast í litlu, nettu skóna hennar Öskubusku. En þar sem Ösku- buska var fegursta snót landsins hafði hún nettustu fætuma. Ævintýralegir skór Þrátt fyrir að fótlaga skór eins og Birkcenstock og Ecco séu þægilegir þá eru þeir alls ekki eins sexí og há- hælaðir skór og flestar konur, sama hvort þeim finnst hælar vera algjört bull eða ekki, eiga a.m.k eitt par af háhæluðum skóm til að nota við sér- stök tækifæri. Skór hafa einnig oft miklu meira gildi en notagildið eitt. Það em ófá heimilin sem eiga brúð- arskó niðri í kassa eða bronsaða barnaskó uppi í hillu minninganna vegna. Ófáar sögurnar hafa verið skrifaðar um leyndardóma skónna og örlög eigenda þeirra. Hver man ekki eftir sælkeramáltíðinni sem Hans klaufi galdraði fram í trékloss- ann sinn, flottu leðurstígvélunum sem Stígvélaði kötturinn notaði til að koma sér og eiganda sínum til metorða og siðast en ekki síst sjö mílna skónum sem risinn ógurlegi átti og gátu farið sjö mílur í hverju skrefi. Já, hann leynir á sér, skór- inn. Kíkið endilega í bókina Shoes ef þið viljið fræðast meira um fótafatn- aðinn og sögu hans. Bókin fæst í Máli og menningu og kostar 1.690 krónur. -snæ 20. aldar töfflur frá Pakistan. Tyrkir eru þekktir fyrir skó meö uppbrettri tá. Þessa hönnun má rekja allt til 12. aidar en þá gat maður séö á því hvaö táin var löng hversu efnaö fólk var. Kínversk hönnun frá seinnihluta 19. aldar. Skórnir eru ætlaðar konum meö óreyröa fætur. Þessir kínversku skór i frá 19. öld eru varla i geröir tll þess aö ganga á. V°v Líbanskir kvenskór frá 1904. Skór meö tvo fætur. Hannaölr áriö 1996 af Bonnaire. Þeir eru úr kálf- skinni og gíraffamunstrið er hand- málað á þá. 14. janúar 2000 f ÓkUS 19 í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.