Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2000, Qupperneq 24
#
Þú þarft ekki að hafa innbyrt mikið
áfengi á Skuggabarnum þegar þér
virðist sem barþjónninn hafí þrefaldað
sig. Barþjónarnir Gunni, Kiddi og
Binni renna óneitanlega saman í eitt
enda svipur með þeim bræðrum.
^iir bræð
á bamum
Bræðurnir Gunnar, Kristinn og
Brynjúlfur Guðmundssynir geta
kallast barbræður með rentu.
Fyrir utan það að þeir vinna í dag
allir bak við barborðið á Skugga-
barnum hafa þeir allir þrír einnig
unnið á Vitabar, Tunglinu,
Næstabar og Casablanca. Systk-
inarignum er ekki fyrir að fara
hjá strákunum og eru þeir ailir
góðir félagar og skiptast meira en
gjarnan á kokkteiluppskriftum.
Strákarnir eru úr Langholtshverf-
inu, enginn af þeim lærður þjónn
en allir eru þeir einhleypir
þannig að það er eðlilegt að spyrja
þá hvort þeir sem barþjónar séu
ekki afskaplega vinsælir hjá hinu
kyninu.
„Ég held að þetta með vinsæld-
ir barþjóna sé nú frekar gömul
lumma,“ svarar Binni.
„Dyraverðimir hafa eiginlega
meiri sjensa,“ segir Kiddi sem tal-
ar af eigin reynslu þar sem hann
er aðra hverja helgi i dyrunum.
„Það gefast fleiri tækifæri til þess
að tala við stelpumar þar heldur
en á barnum þvi þar er alltaf
brjálað að gera,“ segir hann og
bætir glottandi við að sumar
stelpur geri allt til þess að komast
inn.
Stelpurnar láta
bjóöa sér í glas
„Maður höslar ekki kvenfólk á
bamum, ekki þeim megin sem við
stöndum," segir Gunni en segist þó
ekki alltaf fara einn heim.
Kvenfólk er líka pikkað stíft upp
hinum megin við barborðið, að
sögn strákanna.
„Það er alveg ótrúlegt hvað
strákar bjóða stelpum endalaust í
glas,“ segir Gunni.
„Sumar stelpur gera hreinlega út
á þetta,“ bætir Binni við
Bræöurnir Kiddi, Gunni og Binni blanda kokkteila ofan í gesti Skuggabarsins um helgar.
Já, hvernig lœtur maður eigin-
lega bjóöa sér í glas, mér veitti nú
ekkert af því að lœra það?
„Þú labbar bara á barinn og bið-
ur um vatnsglas. Svo kveikirðu þér
í sígarettu og bíður róleg. Ef þú ert
þokkalega myndarleg þá dúkkar
fyrr eða síðar einhver karlmaður
upp og býður þér í glas. Þú þarft
bara að brosa,“ segir Gunni.
En ef karlmaður cetlar aö láta
bjóða sér í glas?
„Það er ekki hægt,“ segja strák-
amir einum rómi. „Ekki nema þeir
hitti einhvem gamlan félaga sem
splæsir á þá skoti. Stelpur bjóða
ekki í glas.“
Orgy on the beach
Annað ráð sem gott er að læra af
strákunum er að frekja borgar sig
ekki á barnum. Allir fá afgreiðslu og
hróp og köll flýta ekki fyrir.
„Gæjar sem standa og veifa gull-
kortinu og smella fingrunum eru
bara látnir bíða. Stælar borga sig
ekki,“ segir Binni. Bræðurnir segjast
hafa gaman af starfmu þó enginn af
þeim hugsi þetta sem sitt framtíðar-
starf. Binni ætlar að verða iðnrekstr-
arfræðingur, Gunni vill verða ham-
ingjusamur og Kiddi sér flugmanninn
í hiUingum.
En hvað drekkið þið helst sjálfir?
Binni: „Southem Comfort í sprite."
Kiddi: „Tvöfaldan kaptein í
sprite."
Gunni: „Kók. En ég mæli oftast
með kokkteilnum Orgy on the
beach sem er ný útgáfa af drykkn-
um Sex on the beach.“
„Það eru helst stelpur sem ekki
vita hvað þær vilja drekka og koma
á barinn og biðja um „eitthvað
ógeðslega gott“,“ segir Binni og
bætir við að það sé oft erfitt að vita
hvað ókunnugu fólki finnist ógeðs-
lega gott en hann geri að sjálfsögðu
sitt besta eins og góðum barþjóni
sæmir og hinir bræðurnir eru
sama sinnis.
-snæ
»
*-
\
Þetta var ekki í fyrsta skiptið. Stundum held ég hreinlega að bragðlaukarnir séu sjálfstæð lífvera. Það útskýrir líka heilmargt.
24
f Ó k U S 14. janúar 2000