Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Page 2
2
MEÐVKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000
Fréttir
Niðurstaða geðlæknis sem rannsakaði Þórhail Ölver Gunnlaugsson á Litla-Hrauni:
Telur fíkniefnaneyslu
helstu skýringu morðsins
Þegar dómurinn var kveöinn upp sáust lítil svipbrigði á sakborningnum,
Þórhalli Ölver Gunnlaugssyni. Viö hliö hans er Hilmar Ingimundarson hrl.
DV-mynd Hilmar Þór
Fjölskipaöur og einróma dómur
Héraðsdóms Reykjavíkur kemst að
þeirri niðurstöðu að enginn annar
en Þórhallur ölver Gunnlaugsson
haíi getað komið til greina við
morðið á Agnari W. Agnarssyni
sem framið var á einstaklega hrotta-
legan hátt á heimili hins látna að
Leifsgötu 28 aöfaranótt 14. júlí sið-
astliðið sumar - hann hafi stungið
manninn 11 holstungum og fleiri
grynnri stungum bæði framan og
aftan frá. Ekki var fallist á breyttan
framburð Þórhalls sem hélt því
fram við réttarhöldin að Agnar heit-
inn hefði verið látinn þegar hann
kom á staðinn. Þórhallur haföi fyrst
viðurkennt að hafa lent í átökum
við húsráðanda sem enduðu með
því að Agnar lá látinn á eftir.
Miðað við sakfellingu og að Þór-
hallur Ölver er dæmdur sakhæfur
verður að teljast miðað við dóma-
hefð að 16 ára fangelsisdómur komi
alls ekki á óvart. Á hinn bóginn
hafði verið sýnt fram á að sakbom-
ingurinn hefur búið við ,jað-
arsturlunareinkenni". Hann eigi við
skapgerðarbresti að stríða og noti
geðlyf í dag. Ekkert af þessu var
honum virt til refsilækkunar. Hins
vegar bendir dómurinn á þá stað-
reynd að upplýst hafi verið að mik-
ið magn amfetamíns og kókaíns,
sem hafi verið í blóði ÞórhaUs þeg-
ar hann framdi morðið, valdi dóm-
greindarleysi og hugsanabrenglun
sem geti leitt til ofbeldis.
Einnig var vísað til geðheilbrigð-
isrannsóknar þar sem tekið var
fram að Þórhallur hafl síðastliðin 15
ár átt við mikla flkn að stríða í ró-
andi lyf og örvandi efni:
„Merki persónuleikaröskunar
koma fram og virðast hafa byrjað á
bamsaldri en þróast hratt til hins
verra vegna neyslunnar, sérstak-
lega síðustu 15 árin. Telja verður að
fíkniefnaneysla hans, samverkandi
með persónuleikarösklun þeirri
sem hann þjáist af sé helsta skýring
þess glæps sem Þórhallur Ölver er
sekur um og hefur viðurkennt að
hafa framið," sagði m.a. í niður-
stöðu Sigurðar Páls Pálssonar geð-
læknis sem rituö var í sumar á
þeim tíma sem sakbomingurinn
viðurkenndi verknaðinn.
Styrkur morövilji
Sigurður Páll geðlæknir segir
ennfremur:
„Það er niðurstaða mín að Þór-
hallur Ölver sé sakhæfur því hann
hafl verið að fullu fær á þeim tíma
er verknaðurinn er framinn að
stjóma gerðum sínum þrátt fyrir
það að hann var undir miklum
áhrifum amfetamíns og kókains."
Héraðsdómur tók sérstaklega
fram í niðurstöðum sínum að engin
atriði í málinu styrktu þann fram-
burð Þórhalls að Agnar heitinn
hefði átt nokkur upptök að átökum
þeirra. Árásin var ekki einungis tal-
in hrottaleg heldur hafi hún borið
merki um einbeittan og styrkan
vilja Þórhallar til að ráða Agnari
bana.
Sakborningurinn ákvað að áfrýja
dóminum um leið og hann hafði
verið kveðinn upp. Hann var síðan
úrskurðaður í áframhaldandi
gæsluvarðhald vegna áfrýjunartím-
ans. Búist er við að Hæstiréttur
fjalli um mál Þórhalls Ölvers á
næstu mánuðum. -Ótt
íslensk erfðagreining:
15 þúsund úr
gagnagrunninum
Nú hafa 15 þúsund manns sagt sig úr
gagnagrunni íslenskrar erfðagreining-
ar og að sögn starfsmanna Landlæknis-
embættisins er ekk-
ert lát á úrsögnum.
„Það kom veruleg-
ur kippur í þetta eft-
ir að íslensk erfða-
greining fékk rekstr-
arleyfið og okkur
telst til að um
hundrað manns segi
sig úr grunninum á
degi hverjum," sagði Auður Halldórs-
dóttir hjá embætti landlæknis.
Ákvörðun um hvenær hætt verður
að taka við úrsögnum ætti að liggja fyr-
ir innan skamms. Afhenda þarf úrsagn-
ir úr gagnagrunninum á séstökum
eyðublöðum sem fást á skrifstofu land-
læknis, á heilsugæslustöðvum, í apó-
tekum og svo á heimasíðu Landlæknis-
embættisins. -EIR
Kári Stefánsson.
Snörp utandagskrárumræða um starfsleyfi fyrir gagnagrunni á heilbrigöissviöi fór fram á Alþingi í gær. Ingibjörg
Pálmadóttir heilbrigðisráöherra, í ræðustól, sagöi aö þegar menn heföu kynnt sér öryggiskröfur sem geröar eru
muni draga stórlega úr gagnrýni. Ögmundur Jónasson, VG, hóf umræöuna. Sagöi verslun með heilsufarsupplýsing-
ar heillar þjóöar vera ósiðlega og stríöa gegn mannréttindum. DV-mynd Teitur
Dýraverndunarfélagið um fækkun á flækingsköttum:
Bréf Fjármálaeftirlitsins til íslandsbanka:
Gróft brot á lögum
um dýravernd
- dýraverndarsjónarmið, segir Helgi Pétursson
„Það sem við erum með í huga
hér er dýravernd en það eru bæði
flækingskettir og merktir heimil-
iskettir sem eru á flækingi og það
er inn í þá þróun sem við munum
grípa,“ segir Helgi Pétursson, for-
maður heilbrigðisnefndar Reykja-
vtkur, en í gær hófst átak borgar-
yfirvalda um að fækka flæk-
ingsköttum í Reykjavík. Átakið
tekur viku í senn í hverjum hluta
borgarinnar og hefst það í vestur-
bænum en það fer fram með þeim
hætti að agn er sett í búr sem
fangar kettina. „Við erum bara að
reyna að koma köttunum i hús.
Búrin voru sett út í gærmorgun
og það er vitjað um þau með
reglulegu millibili, eða með u.þ.b.
sex klukkustunda millibili, því
gæta verður þess að dýrunum
verði ekki kalt,“ segir Helgi Pét-
ursson. Dýravemdunarfélag
Reykjavíkur ritaði Helga bréf í
fyrradag og skoraði á hann að
átakinu yrði frestað þar til hlýn-
aði í veðri þar sem nú sé kaldasti
timi ársins og óvíst hvemig kött-
unum reiði af. „Enda þótt kettir
hafi feld er hann afar misjafnlega
þéttur og að áliti dýralækna, mun
fyrirhuguð innilokun í búrunum
verða mikil þolraun fyrir kettina.
Enda þótt kettimir kynnu að tóra
í einn til tvo sólarhringa, yrði líð-
an þeirra afar slæm og því er ljóst
að fyrirhugaðar kattaveiðar ... eru
gróft brot á lögum um dýravernd,"
segir í bréfi Dýraverndunarfélags
Reykjavíkur. Þá bendir félagið á
að engar heimildir séu í lögum
um að veiða megi merkta ketti og
krefjast lausnargjalds fyrir þá og
megi búast við að þetta veröi
skoðað sem brot á ákvæðum al-
mennra hegningarlaga og skapi
bótaskyldu á hendur Reykjavík-
urborg. -hdm
Endurskoða
þarf reglurnar
- segir Kristján Ragnarsson, formaður bankaráðs
„Við leggjum áherslu á að við
ætlum aö fylgja þeim reglum þó
þær séu kannski ekki alveg í takt
við nútímann. En við telj-
um hins vegar að það hafi
ekkert gerst í þessum und-
anþágum sem geti hafa
valdiö því að einhver ann-
ar hafi liðið fyrir þar sem
við höfum veitt þær,“ seg-
ir Kristján Ragnarsson,
formaður bankaráðs ís-
landsbanka hf., en banka-
ráðið fjallaði í gær um
bréf Fjármálaeftirlitsins
varðandi framkvæmd verklags-
reglna um verðbréfaviðskipti
starfsmanna og stjórnenda bank-
ans. Komst ráðið að þeirri niður-
stöðu að öll atriði málsins varð-
andi íslandsbanka séu upplýst og
þær undanþágur sem veittar voru
hafi ekki stangast á við megin-
markmið reglnanna og því ekki
valdið hagsmunaárekstrum.
„Þetta virðist vera sam-
dóma álit allra þessara verð-
bréfafyrirtækja að þessar
reglur þurfi að endurskoða
og endurmeta með hliðsjón
af breyttum aðstæðum. Það
merkir ekki að við ætlum
neitt að lina afstöðuna eða
breyta áherslum heldur
erum við fyrst og fremst að
leggja áherslu á að við höf-
um sett okkur reglur og ætl-
umst til að okkar menn fylgi þeim,
þótt þær séu ekki í takt við tímann,
eins og við ætlumst til þess að Fjár-
málaeftirlitið taki tillit til sameigin-
legra tillagna þessara fjármálafyrir-
tækja um endurskoöun," segir
Kristján. -hdm
Kristján
Ragnarsson.
Stuttar fréttir i>v
Hydro hótað
Starfsmönnum Norsk Hydro var
hótað lífláti ef þeir kæmu hingað til
lands í bréfi sem fyrirtækinu barst í
siðustu viku. Hydro hafði samband
við íslensku lögregluna sem var með
öryggisgæslu á blaðamannafúndi sem
var hér á vegum fyrirtækisins. í bréf-
inu, sem var frá íslandi, var skemmd-
arverkum einnig hótað ef fyrirtækið
hæfi starfsemi hér á landi. Sjónvarp-
ið greindi frá.
Whittaker mættur
Söngvarinn
Roger Whittaker er
kominn til Islands
og mun hann halda
fema tónleika hér á
landi næstu daga.
Whittaker segist
hafa mikirrn áhuga
á íslandi. Stöð 2 greindi frá.
Miðlungsþjóð
Með 7,9% vergrar landsfram-
leiðslu í heilbrigðisútgjöld 1997
(rúmlega 670.000 kr. á hveija 4ra
manna fjölskyldu í landinu) voru ís-
lendingar miðlungar meðal OECD-
ríkja, samkvæmt tölum samtak-
anna. Dagur sagði frá.
Nætureftirlit
Akraneskaupstaður ætlar að sjá
til þess að engar skemmdir verði
unnar á stofnunum bæjarins eða að
innbijótsþjófar komist inn í þær en í
gær vora undirritaðir samningar við
Öryggisþjónustu Vesturlands um
nætureftirlit á stofnunum bæjarins.
20 atvinnulausir
20 manns misstu atvinnu sína í
Hrísey í gær þegar útgerðarfyrirtæk-
ið Snæfell lagði niður vinnu. Um 200
manns búa í eynni. Búist er við því
að um 10 manns fái störf hjá íslenskri
miðlun þegar fyrirtækið hefur starf-
semi sína í eynni. RÚV greindi frá.
Hættur hjá
Ragnar Aðal-
steinsson hrl. hefúr
látið af störfúm hjá
LOGOS lögmanna-
þjónustu en hann
var einn af eigend-
um stofunnar. Ragn-
ar hyggst sinna
færri verkefnum en fyrr og einkum á
sérstökum áhugasviðum sínum.
Bjargað úr Mánárskriðum
Tveimur ungum mönnum frá
Siglufirði var bjargað í nótt en bifreið
þeirra var fóst milli tveggja lítilla
snjóflóðá sem fallið höfðu á veginn í
Mánárskriðum á Siglufjarðarleið.
Piltamir gátu látið vita af sér í sima í
neyðarskýli skammt frá og fóra menn
úr Björgunarsveitinni Strákum á
vettvang og sóttu þá, en skilja varð
bifreiðina eftir á staðnum.
Handtekinn við innbrot
Lögreglunni í Reykjavík var seint í
nótt tilkynnt um grunsamlegar manna-
ferðir við hús á mótum Bankastrætis
og Skólastrætis. Tveimur mínútum síð-
ar hafði lögregla handtekið mann á
staðnum og var hann þá uppi á þaki
hússins aö bjástra við að opna glugga
þar. Ekkert varð af innbrotinu og var
maðurinn fluttur á lögreglustööina.
Rán í Hlíðakjöri
Lögreglan leitar nú karlmanns sem
framdi rán í sölutumi í Hlíðakjöri við
Eskihlíð í gærkvöld. Ránið var til-
kynnt til lögreglu um klukkan 22.30 en
það var framið 40 mínútum fyrr. Sam-
kvæmt upplýsingum lögreglu bað mað-
urinn afgreiðslustúlku að skipta fyrir
sig peningaseðli. Um leið og hún hafði
opnað peningakassann hrinti maður-
inn henni frá og hrifsaði til sin alia
peningana í kassanum og hvarf á
braut. Tugir þúsunda króna voru í pen-
ingakassanum. Lögreglan segir málið í
rannsókn og ránsmannsins leitað.
Ungfrúin týndist
Kvikmynd
Guðnýjar Halldórs-
dóttur, Ungfrúin
góða og Húsið fannst
ekki þegar sýna átti
hana í Gautaborg.
Sýningarsalurinn
var þegar fúllur af
fólki þegar tilkynnt var um þetta.
Myndin fannst svo seinna í geymslu á
flugvelli. Hún var svo sýnd i minna
kvikmyndahúsi. Sjónvarpið greindi
frá- -gk/hdm
LOGOS