Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Page 4
4
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000
Fréttir
Sá sem útvegaði e-töflumar 1 Þórscafémálinu - vinur annarrar fatafellunnar:
Bar vitni gegnum síma frá
lögreglustöð í Hollandi
Cornelia Pietrnella Vogellaar lengst til hægri var fatafella í Þórscafé í sumar.
Hún hefur setið í 7 mánuöi í gæsluvarðhaldi og viðurkennir aðild sína að því
og að hafa fengið 1000 e-töflur sendar til íslands. Hún ber að fyrrum fram-
kvæmdastjóri Þórscafé hafi fengið hana til innflutningsins. Hollenskur dóm-
túlkur situr við hlið Corneliu. Ljóshærða konan í hvítu peysunni, sem sömu-
leiöis var fatafella í Þórscafé, er frá Eistlandi. Hún er í farbanni og er ekki út-
séð um hvort sekt mun sannast á hana. Lengst til vinstri situr Ellen Ingva-
dóttir, dómtúlkur hennar. DV-mynd Teitur.
Sá óvenjulegi atburður gerðist í
Héraðsdómi Reykjavíkur við Lækj-
artorg i gær að tæplega þrítugur hol-
lenskur karlmaður bar vitni í saka-
máli með því að sitja við hliðina á
lögreglumanni á lögreglustöð úti í
Hollandi. Héraðsdómari hér heima,
fulltrúi ríkissaksóknara og verjend-
ur sakborninga vom uppi við dóm-
araháborðið og beindu spumingum,
einni í einu, til Hollendingsins i
gegnum dómtúlk.
Hér var um mikilvægt vitni að
ræða fyrir ríkissaksóknaraembættið.
Hollendingurinn var boðaður fyrir
dóm með fyrirvara en á síðustu
stundu kvaðst hann ekki komast þar
sem hann hefði ekki fundið vegabréf-
ið sem hann þurfti til fararinnar til
íslands.
Maðurinn, sem útvegaði fíkniefni
í Hollandi fyrir vinkonu sína sem
hér var fatafella í Þórscafé í sumar,
viðurkenndi reyndar að hafa ráðfært
sig við fólk ytra um hvort hann ætti
að fara til íslands til að bera vitni -
fólkið ráðlagði honum frá því.
Ástæðan fyrir því að maðurinn kom
ekki var talin augljós - ótti manns-
ins við að vera handtekinn og
í DÓMSALNUM
Óttar Sveinsson
ákærður eins og þau fjögur sem
svöruðu til saka í Þórscafémálinu
fyrir dómi í gær. Þau sem eru ákærð
eru tvær fatafellur, önnur Hollensk,
hin frá Eistlandi, og tveir íslending-
ar, fyrrum framkvæmdastjóri
Þórscafé og dyravörður.
Hver er Olly?
Hollenska fatafellan og fyrrum
framkvæmdastjóri eru ákærð fyrir
að hafa staðið saman að því að flytja
976 e-tötlur til Islands. Fatafellan
segir að framkvæmdastjórinn hafi
beðið hana um að útvega efnin. Hún
kvaðst hafa hringt í vin sinn svo-
nefndan Wimpy, framangreindan
mann, sem bar vitni í gegnum sím-
ann. Unga konan kvaðst hafa átt að
fá 300-400 þúsund krónur fyrir við-
vikið. Hún viðurkennir því að
mestu það sem henni er gefið að sök
í ákæru. í fórum hennar fundust út-
reikningar meðal annars með nafn-
inu Olly og upphæðin 150 þúsund
krónur - innkaupsverð efnanna.
Dómarar, sækjandi og verjendur
spurðu konuna mikið út í þetta.
Hún sagðist ekki vita hvernig ætti
að skrifa Óli, gælunafn fyrrum
framkvæmdastjóra Þórscafé sem er
ákærður. Þess vegna hefði hún
skrifað Olly samkvæmt hollenskri
málvitund.
í málinu í gær var athygli m.a.
beint að því hvort ákveðinn maður
í Reykjavík, sem var fastagestur hjá
Þórscafé í sumar, héti ekki einmitt
Olly. „Ég benti lögreglunni á þetta,“
sagði framkvæmdastjórinn fyrrver-
andi sem ávaUt hefur neitað allri
sök í málinu. í rauninni hefur það
eina sem bendlar hann beinlínis við
málið verið framburður hollensku
stúlkunnar gegn honum. Þar hefur
þó orð þótt standa á móti orði.
Spenna í salnum
Þegar hringt var í hollenska vitn-
ið í gær myndaðist óneitanlega
ákveðin spenna. Þar var þeim spurn-
ingum beint að Hollendingnum
hvort hann hefði rætt við fyrrum
framkvæmdastjóra Þórscafé og hvort
þeir hefðu talað um kaup á fíkniefn-
um, verð, magn o.s.frv.
Þegar rætt hafði verið við mann-
inn í talsverða stund spurði Ingi-
björg Benediktsdóttir dómsformaður
ákveðið og beint hvort hann hefði
rætt um verð og magn á fíkniefnum
við fyrrum framkvæmdastjóra
Þórscafé. „Já,“ sagði þá maðurinn
skýrt og greinilega.
Hilmar Ingimundarson, verjandi
framkvæmdastjórans, spurði Hol-
lendinginn fljótlega hvort hann hefði
rætt við Comeliu, sem hann sagði
vera vinkonu sína, í gegnum síma á
síðustu mánuðum - á meðan hún
hefur setið í gæsluvarðhaldi. Hann
viðurkenndi að hafa rætt við konuna
og kvaðst hafa útvegað efnin vegna
vinskapar, en minnst 3 mánuðir
væru liðnir frá því að það gerðist.
Verjandinn var greinilega með þessu
að sýna fram á að Cornelia og um-
ræddur Hollendingur, sem bæði við-
urkenna að vera vinir, hafi getað
sammælst um framburð hans.
Notfæröi sér bágindi eftir
brjóstastækkunaraðgerö?
Tvítugri eistneskri fyrrum fata-
fellu í Þórscafé er gefið að sök að hafa
farið í bíl með þeirri hollensku að
fjölbýlishúsi í Yrsufelli og náð þar í
pakka með fíkniefnum. Hún neitar
sök um að hafa vitað hvað hún var að
ná í. Sú hollenska bar að hún hefði
boðið þeirri eistnesku að dvelja í íbúð
hjá sér eftir að sú síðamefnda hafði
gengist undir brjóstastækkunarað-
gerð. Þannig gæti hún séð um hana
betur í stað þess að sú eistneska yrði
hjá „öllum hinurn" fatafellunum og
fengi ekki umönnun. Báðum stúlkun-
um ber saman um þetta. Þegar sú
eistneska var á mjög sterkum verkja-
lyfjum vegna aðgerðarinnar bað sú
hollenska hana um að gera sér greiða
gegn 100 þúsund króna greiðslu.
Koma með sér að ná í pakkann í
Yrsufelli. Sú eistneska samþykkti en
ágreiningur er um hvort hún vissi
yfir höfuð hvað hún væri að ná í. Hol-
lenska stúlkan kvaðst hafa verið mjög
hrædd þegar þarna var komið sögu.
Þess vegna hefði hún beðið um aðstoð
og í raun hefði verið reiknað með
þóknun til aðstoðarmanns eða -konu
sem sækti pakkann.
Gísli Gíslason, verjandi eistnesku
stúlkunnar, lét að því liggja i spurn-
ingum sinum að sú hollenska hefði
notfært sér bágindi skjólstæðings
síns eftir aðgerðina - beðið hana þá,
sárkvalda á verkjalyfjum, að ná í
pakka fyrir sig.
Dyravörðurinn sem er ákærður í
málinu er gefið að sök að hafa látið
hollensku stúlkunni i té heimilisfang-
ið í Yrsufelli - stað sem hægt var að
senda fikniefnin á í pósti eins og raun
bar vitni. Hann er ákærður fyrir að
hafa fengið annan tveggja húsráð-
enda þar til að samþykkja að pakkinn
yrði sendur á heimilið gegn greiðslu.
Dyravörðurinn neitar nánast allri
sök í málinu. Hann ber að sér hefði
ekki verið kunnugt um hvaða ráða-
brugg hollenska stúlkan hafði í huga
þegar hún ætlaði að fá pakka sendan
til Islands.
Villikattaveiðar
Um 20 búrum til að veiða flæk-
ingsketti var komið fyrir í vestur-
bæ Reykjavíkur í gærmorgun. í
þau á að veiða flækingsketti sem
gert hafa mannskepnunum lífið
leitt. Aðgerð þessi miðar öll að
því að draga úr fjölda úti-
gangskatta í borginni. Eitt hverfi
verður tekið fyrir i einu og birtar
um það auglýsingar i blöðum til
að kattaeigendur geti haft vara á
og haldið köttum sínum inni á
meðan á átakinu í þeirra hverfi
stendur. Átakinu er nefnilega
ekki beint gegn merktum heimil-
isköttum. En þar sem allir kettir
eru jafn vitlausir, eða vitrir svo
fullrar sanngimi sé gætt í garð
kattavina, verður vart hjá því
komist að heimilisköttur á flæk-
ingi rati inn í eitthvert búranna.
En aðgerðin gerir ekki ráð fyrir
að heimiliskettir séu á flækingi,
allra síst um hánótt þegar veður
eru válynd og klær Kára læsa sig
í allt kvikt. Kattaeigendur sem hleypa köttum
sínum út meðan villikettir eru veiddir verða því
að gera ráð fyrir að þeir séu svo klárir og svo
saddir að agn borgarinnar hafi ekki tilætluð
áhrif.
Margir taka þessu átaki fagnandi enda lang-
þreyttir á ferðum flækingskatta í görðum og
kjallaratröppum, hlandi og margrómaðri lykt
sem því fylgir, skit og meðfylgjandi örveruflóru í
sandkössum sem óvitamir éta með sandinum svo
ekki sé minnst á lætin þegar kettirnir breima á
nóttunni og halda vöku fyrir hálfu og heilu hverf-
unum. Þá eru ótalin taugaáfoll bama og kvenna
sem komast hafa í kynni við það frumeðli katta
að verjast áreiti mannskepnunnar
með kjafti og klóm.
Hið skynsamlega átak, sem mið-
ar að jafnvægi í sálarlífi þeirra
borgarbúa sem ekki er gefið um
ketti og stuðlar að vexti og við-
gangi fuglsunga að vori, vekur
hrifningu þeirra sem sjá hvorki
skynsemina né skynja fegurðina í
náinni sambúð manns og kattar.
En andúð hinna, sem segja mann-
skepnuna hina verstu skepnu að
fara svona með blessaðar skepn-
urnar.
Mikil er mannvonskan. Þá stað-
reynd ættu borgaryflrvöld að hafa
hugfasta og muna að margt er líkt
með flækingsköttum og villikött-
um í mannsliki sem fara um borg
og bý um kvöld og nætur, valda
ófriði, umhverfisspjöllum og lim-
lestingum á friðsömu fólki. Sem
reyndar er stundum á flækingi
um nætur eins og villikettimir en
búa yfir viti og siðferðisþreki sem
skilur þá frá villiköttunum. Láta ekki ginna sig
inn í búr um hánótt eins og misvitrir heimilisk-
ettir. Dýrslegt eðli viUikatta i mannslíki réði hins
vegar blindri för þeirra að agninu með augljósum
árangri sem vekti hrifningu þeirra sem skynja
skynsemina og fegurðina í sambúð manna.
Dagfari
sandkorn
Myrkraverk
íslenskir kvikmyndagerðar-
menn hafa gert það ágætt á ýmsum
kvikmyndahátíðum víða um heim,
fengið lof gesta þó ekki hafi þeir
endUega borið heim
býsn af góðmálmum
eða listmunum.
Guðný Halldórs-
dóttir, Duna, fór
með mynd sína á
kvikmyndahátíð-
ina í Gautaborg á
dögunum. Eftir-
vænting hátíðar-
gesta var mikil
og fyUtu 700 manns salinn þegar
frumsýna átti myndina. Þegar
stóra stundin var að renna upp
skreiddist framkvæmdastjóri há-
tíðarinnar, Gunnar Bergdahl,
upp á svið og tUkynnti gestum að
ekkert yrði af sýningu myndarinn-
ar þar sem spólurnar hefðu týnst.
Sagði hann dagblaðinu Gauta-
borgarpóstinum að þetta væri
neyðarlegasta atvikið á 13 ára ferli
sínum sem framkvæmdastjóri há-
tíðarinnar. Var einhver að tala um
myrkrahöfðingja?
Ekki allir með
Jóhann Páll Valdimarsson,
fýrrum Forlagsmaður, sem nú er í
tygjum við ættfræðinga og veitir
fyrirtækinu Genealogia Islandor-
um, eða Genis, for-
stöðu, lætur að því
liggja 1 síðasta helg-
arblaði DV að höf-
undar sínir hjá
Forlaginu fylgi
honum yfir. í
þeim hópi eru
m.a. Guðbergur
Bergsson, Ólaf-
ur Gxmnarsson
og Fríða Á. Sigurðardóttir. Jó-
hann Páll lét þess þó getið að tveir
Forlagshöfundar hefðu óskað að
vera um kyrrt. Þannig hefúr Sand-
korn fregnað að einn besti söluhöf-
undur Forlagsins mun ekki fylgja
yfir til Genis, hinn ástsæli bama-
bókahöfundur og myndlistarmað-
ur, Sigrún Eldjám . . .
Bolludagur
Lengi hefur rikt sátt um tímatal
okkar og almanak. Alvarleg atlaga
þótti hins vegar gerð að því síðast-
liðinn simnudag þegar Gaui litli
steig fram fyrir
skjöldu og kynnti
stofnun nýs félags
sem heitir Félag
feitra og á að stuðla
að mannréttinda-
bót til handa feitu
fólki. Mikilvægi
slíks félags er
óumdeilt enda
eru íslendingar að verða ein
þyngsta þjóð heims vegna sykur- og
fituáts. Gárungar hafa þó stigið
fram og sagt að þessi stoihfundur
krefjist þess að almanak okkar
verði leiðrétt og 30. janúar gerður
að hinum nýja bolludegi...
Þórarinn í LSÍ
Hörkuslagur er nú á Internet-
markaðnum á milli Landssíma ís-
lands og Íslandssíma. Allar flóð-
gáttir opnuðust með hinni nýju
WAP-tækni sem ger-
ir GSM-símann að
fartölvu. íslands-
sími brást skjótt
við og stofhaði ís-
landsnet til að
sópa til sín kúnn-
um. Nokkrum
mánuðum seinna
brást Landssim-
inn við og stofhaði Veftorg og
réð Mörtu Eiríksdóttur til starfa.
Íslandssímamenn gera gys að sam-
starfsaðilanum fyrir að bregðast
seint og illa við. Segja gárungar á
bandi Íslandssíma að Þórarinn
Þórarinsson forstjóri, sem lengst
af var kenndur við VSÍ, sé nú Þór-
arinn í LSÍ...
Umsjón: Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkorn @ff. is