Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Qupperneq 8
8
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000
Útlönd
Stuttar fréttir i>v
Óvænt úrslit í forkosningunum í New Hampshire:
John McCain valtaði
yfir Bush ríkisstjóra
Óháðir kjósendur gerðu
gæfumuninn þegar öldungadeildar-
þingmaðurinn John McCain valtaði
yfir George W. Bush, ríkisstjóra í
Texas, i forkosningum repúblikana
fyrir forsetakosningarnar i New
Hampshire i gær.
„Dásamlegri kosningabaráttu i
New Hampshire er nú lokið en fram
undan er mikil herferð um allt
land,“ sagði McCain í eldíjörugri
sigurveislu sem stuðningsmenn
hans héldu í borginni Manchester.
Þegar 92 prósent atkvæða höfðu
verið talin hafði McCain fengið
stuðning 49 prósenta kjósenda en
Bush aðeins stuðnings 31 prósents.
A1 Gore varaforseti sigraði keppi-
nautinn Bill Bradley í forkosning-
um demókrata. Gore fékk 52 prósent
aðkvæða en Bradley 48 prósent.
Ósigurinn var mikil niðurlæging
fyrir ríkisstjórann í Texas sem til
þessa hefur verið talinn nær örugg-
ur um útnefningu Repúblikana-
flokksins. Búast má við að baráttan
John McCain og Cindy, eiginkona hans, fagna sigri í forkosningum
Repúbiikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar sem haldnar voru í New
Hampshire í gær. Al Gore varaforseti sigraði í forkosningum demókrata.
innan flokksins eigi eftir að harðna
á komandi vikum.
Þrátt fyrir ósigurinn í New
Hampshire hét BUl Bradley því að
halda baráttunni fyrir útnefningu
Demókrataflokksins áfram. Bradley
tapaði einnig fyrir Gore í kjömefnd-
arvalinu í Iowa fyrir rúmri viku.
Forkosningarnar sem ráða munu
úrslitum um áframhaldandi þátt-
töku Bradleys verða haldnar þann
7. mars, meðal annars í Kaliforniu,
New York og Ohio.
A1 Gore var mjög ánægður í sig-
urræðu sinni í nótt.
„Ég mun berjast fyrir ykkur,“
sagði varaforsetinn og viðurkenndi
að baráttan við Bradley hefði verið
erfið.
McCain, sem er öldungadeildar-
þingmaður fyrir Arizona, vann hug
og hjörtu kjósenda með hreinskilni
sinni og loforði um að binda enda á
ægivald fjármagnsins í bandarísk-
um stjórnmálum. Bush sór þess
dýran eið að berjast tO sigurs.
Flugmaðurinn
hélt að hann
gæti nauðlent
Flugstjóri farþegaþotunnar frá
Alaska-flugfélaginu, sem hrapaði
í sjóinn undan ströndum Suður-
Kaliforníu með 88 manns um
borð, hélt fram á síðustu stundu
að hann gæti nauðlent vélinni á
flugvellinum í Los Angeles. Þotan
skall í hafið úr sautján þúsund
feta hæð.
Rúmum sólarhring eftir slysið
höfðu aðeins fjögur llk fundist.
Búist er við að björgunarmenn
hætti formlega allri leit að lifandi
fólki í dag.
Merki frá öðrum svarta kassan-
um hafa heyrst og verður lítill
kafbátur sendur til að leita að
honum á rúmlega tvö hundruö
metra dýpi.
Uppreisnarmenn
burt frá Grozní
Rússneski herinn býr sig undir
að sækja lengra inn í Grozní, höf-
uðborg Tsjetsjeníu, í dag. Upp-
reisnarmenn tilkynntu í gær að
þeir hefðu hörfað frá borginni.
Rúsneskir ráöamenn tóku til-
kynningu uppreisnarmanna með
varúð. Harðir götubardagar hafa
verið háðir í Grozní í heilan mán-
uð og er borgin lítið annað en
rústir einar eftir.
Uppreisnarmenn sögðu einnig
að þrír æðstu foringjar þeirra
hefðu fallið í bardögum og að Sja-
míl Basajev, eftirlýstasti maður
Rússlands, hefði særst.
Albright og Pútín
hylla Jeltsín á
afmælisdaginn
Vladimír Pútín, starfandi for-
seti Rússlands, og Madeleine Al-
bright, utanríkis-
ráðherra Banda-
ríkjanna, gerðu
hlé á viðræðum
sínum um Mið-
Austurlönd í
Moskvu í gær til
að óska Borís
Jeltsín, fyrrum
Rússlandsforseta, til hamingju
með 69 ára afmæliö.
Pútín heimsótti Jeltsín á
sveitasetrið hans og fékk fisk og
bakkelsi að borða en Albright lét
sér nægja að hringja í forsetann
fyrrverandi. Hún gat þó rætt við
hann á rússnesku.
Almenningur f Indónesíu notar gjarnan járnbrautarlestir til að komast í og úr vinnu, enda lestir afskaplega ódýr ferða-
máti þarna austur frá. Að venju er þröngt á þingi, eins og í þessari lest á leið til höfuðborgarinnar Jakarta í morgun.
Að jafnaði deyja sex manns í mánuði þegar þeir detta af lestunum, að sögn yfirvalda.
Þýska leyniþjónustan
gaf flokkunum milMónir
Helmut Schmidt, fyrrverandi
kanslari Þýskalands, viðurkenndi í
viðtali við þýska blaðið Súd-
deutsche Zeitung í gær að leyniþjón-
ustan í Þýskalandi, BND, hefði
greitt háttsettum þýskum stjóm-
málamönnum, bæði jafnaðarmönn-
um og kristilegum demókrötum, fé
sem nota átti til að styðja lýðræði á
Spáni og Portúgal eftir að einræðis-
stjórnimar þar féllu. Leyniþjónust-
an greiddi stjórnarflokkunum, með
Schmidt í fararbroddi, á milli 30 og
40 milljónir marka í reiðufé.
Schmidt, sem var kanslari 1974 til
1982, er nú orðinn 81 árs. Hann
kvaðst í viðtalinu ekki muna eftir
öllum smáatriðum málsins.
Þar sem miiljónimar voru greidd-
ar út i reiðufé var í raun ekkert eft-
irlit með hversu miklu var eytt og í
hvað. Súddeutsche Zeitung benti í
gær á að ekki væri útilokað að mik-
ill hluti fjárins hefði hafnað í leyni-
sjóðum flokkanna og á bankareikn-
ingum í Sviss. Samkvæmt Súd-
deutsche Zeitung lagði Kristilegi
demókrataflokkurinn sinn hluta af
milljónunum frá leyniþjónustunni
inn á reikninga í Lúxemborg og
Sviss. Þykir það benda til að pening-
amir hafi verið teknir út af reikn-
ingunum þar þegar á þurfti að
halda fyrir kosningabaráttu.
Flokksdeildin í Hessen hefur við-
urkennt að hafa lagt inn stórar fjár-
hæðir á reikninga í Sviss og
Liechtenstein. í gær greindi sjón-
varpsstöðin ZDF frá því að í gögn-
um sem tekin voru við húsleit hjá
Horst Weyrauch, fyrrverandi fjár-
málaráðgjafa Helmuts Kohls, fyrr-
verandi kanslara Þýskalands, hefði
komið fram að stjórn flokksins á
landsvísu hefði einnig átt leyni-
reikninga i Sviss og Liechtenstein.
ZDF hafði það eftir Weyrauch að
jafnvel öll Evrópa ætti eftir að
skjáifa vegna málsins. Kohl hefur
vísað því á bug að hann hafi tekið
við fé frá Frangois Mitterrand
Frakklandsforseta.
Núverandi leiðtogi Kristilega
demókrataflokksins, Wolfgang
Scháuble, hefur veitt Weyrauch
frest þar til í dag að greina frá vit-
neskju sinni. Lögmaður Weyrauchs
sagði hann ekki reiðubúinn til að
leysa frá skjóðunni. Þegar hann
gerði það kynni Kristilega demó-
krataflokknum að mislíka það sem
hann fengi að vita. Sjálfur neitar
Scháuble að segja af sér vegna máls-
ins. Hann hefur viðurkennt að hafa
fundað með vopnasalanum sem gaf
kristilegum demókrötum fé.
Hundruð handtekin
Lögreglan í Mexíkóborg hand-
tók í gær hundruð námsmanna
sem lent höfðu í átökum við
starfsmenn háskólans. Að
minnsta kosti 37 særðust i átök-
unum.
Leitað að flaki
Leitað var í gær á bátum að
flaki Airbusvélarinnar frá Kenya
Airways sem fórst við Fdabeins-
ströndina á sunnudagskvöld.
Wiranto neitar að víkja
Wiranto hershöfðingi neitaði í
gær að fara frá vegna rannsóknar
á ofbeldinu á A-
Tímor í kjölfar
þjóðaratkvæða-
greiðslunnar
þar i fyrra. í
morgun hvatti
Wiranto sam-
ráðherra sína
til að láta sem
ekkert væri þó hann sætti rann-
sókn.
Líst ekki á Þjóðverjann
Bandaríkjunum líst ekki á
frambjóðanda Þýskalands i stöðu
yflrmanns Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins. Þjóðverjar vilja að aðstoðar-
fjármálaráðherra þeirra, Caio
Koch-Weser, fái starfið.
Sendiherra heim
ísrael ætlar að kaUa heim
sendiherra sinn i Austurríki.
Ástæðan er þátttaka Frelsisflokks
Jörgs Haiders í stjórnarmyndun-
arviðræðum.
Sígarettusmygl
Næststærsta tóbaksfyrirtæki
heims, British American
Tobacco, hvatti til smygls á millj-
örðum sígarettna til að auka sölu
sína. Þetta kemur fram í blöðun-
um Guardian og Los Angeles
Times.
Fangaverðir sendir heim
Tveir bræður, fangaverðir í
fangelsinu þar sem breski læknir-
inn Harold
Shipman situr,
hafa verið send-
ir heim þar sem
eitt meintra
fórnaidamba
hans var móðir
þeirra. Ship-
man var á
mánudaginn dæmdur í lifstíðar-
fangelsi eftir að hafa verið fund-
inn sekur um morð á 15 sjúkling-
um. Hann er grunaður um 150
morð til viðbótar. Heilbrigðisyflr-
völd í Bretlandi hafa nú hrint af
stað rannsókn til að kanna hvers
vegna ódæðisverk Shipmans upp-
götvuðust ekki fyrr.
Biskup sætir rannsókn
Yfirvöld í Frakklandi hafa fyr-
irskipað rannsókn á því hvers
vegna rómversk-kaþólskur bisk-
up lét ekki lögreglu vita af því að
einn presta hans hefði misnotað
drengi kynferðislega.
Fékk ekki barnið sítt
19 ára bresk stúlka tapaði fyrir
rétti í gær máli sem hún hafði
höfðað til að afturkalla ættleið-
ingu nýfædds sonar síns.
Portillo fagnað
íhaldsflokkurinn i Bretlandi
bauð Michael Portillo velkominn
í skuggaráðu-
neyti sitt í gær.
Portillo, sem er
andvígur því að
Bretar taki upp
sameiginlega
mynt Evrópu-
bandalagsins,
verður fjár-
málaráðherra skuggaráðuneytis-
ins. Væntir íhaldsflokkurinn þess
að hann láti til sín taka á þingi
gegn Gordon Brown fjármálaráð-
herra.
Áfram friðarviðræður
ísraelar hétu því í gær að láta
árásir Hizbollah ekki hafa áhrif á
friðarviðræður við Sýrland þó
leitað yrði hefnda.