Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000
9
Utlönd
Xanana Gusmao, frelsisleiötogi A-Tímor, fékk hlýjar kveöjur er hann var á ferð í fátækrahverfi Bangkok í Taílandi í
gær. Gusmao, sem er í fjögurra daga heimsókn í Taílandi, þakkaði Bangkokbúum fyrir aöstoð þeirra viö íbúa A-Tímor
í hörmungum þeirra í kjölfar þjóðaratkvæöagreiöslunnar i fyrra. Simamynd Reuter
Neyðarfundir um
afvopnun IRA
Leiðtogar frá Bretlandi, írlandi
og Bandaríkjunum funda I dag með
n-írskum stjórnmálamönnum til að
leita nýrra leiða til að binda enda á
deiluna um afvopnun IRA, írska
lýðveldishersins. í gær sagði ír-
landsmálaráðherra bresku stjómar-
innar, Peter Mandelson, að hann
myndi verja 1 eða 2 dögum til að
gera lokatilraun til að bjarga n-
írsku stjórninni.
Ástæða stjómarkreppunnar á N-
írlandi er innihald skýrslu afvopn-
unarnefndarinnar sem breskum og
írskum yfirvöldum var afhent á
mánudagskvöld. Samkvæmt skýrsl-
unni hefur IRA, sem kveðst standa
við friðarsamkomulagið, ekki hafið
afvopnun.
David Trimble, fyrsti ráðherra n-
írsku stjórnarinnar, kvaðst í gær
telja að stjórnin yrði leyst upp eftir
nokkra daga.
David Trimble á fundi með frétta-
mönnum í gær. Símamynd Reuter
Ömmur Elians
segja hann hafa
verið bældan
ömmur kúbverska drengsins
Elians Gonzalez greindu í gær frá
fundi sínum með honum i Miami
á Flórída í síðustu viku. Sögðu
þær drenginn hafa verið dapran
og bældan í upphafi en svo hafi
hann orðið hressari. Ömmurnar
sögðu það hafa verið erfitt að
dylja eigin sorg til að koma ekki
drengnum í uppnám.
„Við þjáðumst. Það var hræði-
legt,“ sagði Mariela Quintana,
fóðuramma Elians.
Ömmunum var fagnað eins og
hetjum á Kúbu er þær sneru heim
síðastliðinn sunnudag eftir 9 daga
dvöl í Bandaríkjunum.
í sjónvarpsviðtali á Kúbu í gær
réðust ömmur Elians á nunnuna,
Jeanne O’Laughlin, sem var gest-
gjafi er þær fengu að hitta litla
drenginn. Eftir fund Elians með
ömmum sínum sagðist nunnan
ekki lengur vera hlutlaus. Það
væri skoðun sín að Elian ætti að
dvelja áfram hjá ættingjum sínum
í Bandaríkjunum.
UNESCO vill fá
konur í fréttirnar
Visinda- og menningarmálastofn-
un SÞ (UNESCO) hvatti karlkynsrit-
stjóra í fjölmiðlum um heim allan
að vikja fyrir konum í einn dag, á
kvennadaginn 8. mars, og leyfa
þeim að skrifa allar fréttir.
Ef það gerist yrði það í fyrsta
sinn sem konur skrifa allar fréttir í
fjölmiðlum heimsins, sagði fram-
kvæmdastjóri UNESCO.
Stjórnarsáttmálinn tilbúinn í Austurríki:
Austurrískir ráðamenn
Jörg Haider aö baki Wolfgangs
Schussels. Peir gera sér vonir um
að mynda nýja stjórn í Austurríki.
pöntuðu viðbrögð ESB
Viktor Klima, fráfaransi kanslari
Austurríkis, og Thomas Klestil for-
seti áttu stóran þátt i því að við-
brögð hinna fjórtán aðildarlanda
Evrópusambandsins urðu jafnhörð
og raun bar vitni við hugsanlegri
þátttöku hægriöfgamannsins Jörgs
Haiders og flokks hans í nýrri sam-
steypustjórn Austurríkis. Evrópu-
ríkin hótuðu að setja Austurríki í
pólitíska einangrun ef Haider færi í
stjóm.
Danska blaðið Jyllands-Posten
greinir frá þessu í gærkvöld og hef-
ur eftir fjölda heimildarmanna.
Heimildarmenn blaðsins segja að
Klima og Lionel Jospin, forsætisráð-
herra Frakklands, hefðu rætt við
aðra jafnaðarmenn á helfararráð-
stefnunni í Stokkhólmi í síðustu
viku þegar ljóst var að austurrískir
kratar gætu ekki haldið lengur um
stjórnartaumana.
íhaldsflokkurinn í Austurríki og
Frelsisflokkur Haiders ætla að leita
formlegS' samþykkis Klestils forseta
fyrir samsteypustjórn flokkanna í
dag. Hætta er á Austurríki einangr-
ist á alþjóðavettvangi ef af verður.
Bandarísk stjórnvöld hafa hótað
svipuðum aðgerður og Evrópuríkin.
Haider reyndi í gær að afneita
fyrri umdeildum ummælum sínum
sem skilja mátti sem svo að hann
gerði lítið úr glæpum nasista.
„Frelsisflokkurinn og leiðtogar
hans eru lýðræðissinnar. Það er
langt frá því að þeir séu hallir und-
ir alræðisstjómir, langt frá því að
þeir séu hallir undir nasisma,"
sagði Haider á blaðamannafundi
sem hann hélt með Wolfgang Schús-
sel, leiðtoga Þjóðarflokksins.
Haider hélt áfram og sagðist ekki
geta ímyndað sér hvernig nokkur
maður sem bæri ábyrgð á landinu
gæti samsamað sig mestu glæpum
gegn mannkyninu á 20. öldinni.
Schússel verður kanslari hinnar
nýju ríkisstjórnar, ef Klestil fellst á
stjórnarsamstarfið. Haider mun
hins vegar ekki taka sæti í stjórn-
inni, heldur gegna áfram embætti
fylkisstjóra í Carinthiu.
Schússel, sem hefur verið utan-
ríkisráðherra síðustu fimm árin,
sagði að Austurríkismenn yrðu að
leggja hart að sér að eyða ótta þjóða
heimsins. Hann sagði aftur á móti
að landið gæti ekki leyft sér að
verða einangrað á alþjóðavettvangi.
„Við tökum þessa gagnrýni alvar-
lega,“ sagði Schússel.
Suzuki Vitara JLX, skr. 7/95, ek.
58 þús. km, bsk., 3 dyra.
Verð 990 þús.
Suzuki Vitara JLX, skr. 4/96, ek.
67 þús. km, ssk., 3 dyra.
Verð 1160 þús.
Suzuki Vitara JLX, skr. 11/94,
ek. 113 þús. km, ssk., 5 dyra.
Verð 1070 þús.
Suzuki Swift GL, skr. 3/92, ek.
80 þús. km, ssk., 5 dyra.
Verð 360 þús.
Suzuki Samurai, skr. 7/91, ek.
116 þús. km, bsk., 3 dyra.
Verð 450 þús.
Suzuki Jimny, skr. 2/99, ek. 13
þús. km, bsk., 3 dyra.
Verð 1320 þús.
Toyota Ccorolla, skr. 4/98, ek.
8 þús. km, ssk., 3 dyra.
Verð 1125 þús.
Ford KA, skr. 12/97, ek. 14 þús.
km, bsk., 3 dyra.
Verð 825 þús.
Toyota Corolla XL, skr. 4/97, ek.
28 þús. km, ssk., 4 dyra.
Verð 1120 þús.
Nissan Almera, skr. 11/98, ek.
10 þús. km, ssk., 4 dyra.
Verð 1370 þús.
Hyundai Coupé, skr. 11/97, ek.
34 þús. km, bsk., 2 dyra.
Verð 970 þús.
MMC Carisma, skr. 1/98, ek.
42 þús. km, ssk., 4 dyra.
Verð 1560 þús.
Suzuki Swift GLS, skr. 9/98, ek.
28 þús. km, bsk., 3 dyra.
Verð 830 þús.
Daihatsu Applause, skr. 12/91,
ek. 107 þús. km, bsk., 4 dyra.
Verð 470 þús.
Plymouth Neon Sport, skr. 1/99,
ek. 98 þús. km, ssk., 4 dyra.
Verð 780 þús.
Nissan Almera, skr. 10/99, ek.
2 þús. km, bsk., 5 dyra.
Verð 1220 þús.
Suzuki Baleno GLX, skr. 11/96,
ek. 36 þús. km, 4 dyra. bsk.
Verð 830 þús.
Lykilatriði al-
heimsvæðingar-
innar ekki rædd
Forystumenn frjálsra félaga-
samtaka frá Norður-Ameríku,
Evrópu og Asíu voru sammála
um það í gær að lykilatriöi al-
heimsvæðingarinnar og alþjóða-
viðskipta hefðu ekki verið rædd á
fundi þjóðarleiðtoga og viðskipta-
jöfra í skíðabænum Davos í Sviss.
Þeir voru hins vegar sammála um
fátt annað.
Vestrænir verkalýðsleiðtogar
lýstu yflr áhyggjum sínum að þró-
unarlönd hefðu ekki hlýtt kalli
Clintons Bandaríkjaforseta og
Blairs, forsætisráðherra Bret-
lands, um að ræða vinnuskilyrði
um leið og samið er um viðskipti.
Lýðsleiðtogarnir vilja meðal ann-
ars koma í veg fyrir barnaþrælk-
un. Virt stofnun í málefnum
þriðja heimsins sagði að ekki
hefði verið rætt um raunveruleg
vandamál sem fátækari þjóðir
glímdu við ef þær færu of geyst í
að opna markaði sína.
$ SUZUKI
—✓/4*------
SUZUKIBÍLAR HF.
Skeifunni 17 • Sfmi 568 5100
www.suzukibilar.is