Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Qupperneq 17
16
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000
25
Sport
Blcand i poka
Gianluca Vialli, knatt-
spyrnustjóri Chelsea,
[ hefur ekki lagt knatt-
■ spyrnuskóna endanlega
mb á hilluna. Kappinn þótti
sýna mjög góöa takta
r J meö varaliöi Chelsea í
fyrrakvöld þegar liðiö
L|----------- geröi 2-2 jafntefli gegn
Leicester. Vialli lék ailan leikinn og
var þetta hans fyrsti leikur síöan í
maí á síðasta ári.
Vialli vildi ekki svara blaðamönnum
því hvort hann ætlaði aö spreyta sig
með aðalliðinu en framherjar Chel-
sea þurfa svo sannarlega að vera á
tánum ef þeir ætla ekki að láta karl-
inn í brúnni taka stöðu sína.
1* DEILD KARLA
Afturelding 13 11 1 1 341-305 23
KA 13 8 1 4 352-296 17
Fram 13 7 2 4 335-323 16
Stjarnan 13 7 1 5 316-301 15
Valur 13 7 0 6 305-303 14
FH 12 6 2 4 271-269 14
Haukar 13 5 2 6 335-324 12
ÍR 13 5 2 6 313-318 12
HK 13 5 1 7 314-314 11
ÍBV 12 5 1 6 283-292 11
Víkingur R. 13 2 3 8 318-355 7
Fylkir 13 1 0 12 277-360 2
Forráóamenn þýska stórliðsins
Bayern Múnchen hafa greint frá því
að þeir hafi verið mjög spenntir fyrir
því að reyna að krækja í Roy Keane,
fyrirliða Manchester United, áður en
hann gekk frá nýjum samningi við
United. Uli Höness, framkvæmda-
stjóri Bæjara, segist hafa verið reiðu-
búinn að greiða mjög háa upphæð
fyrir Keane og ef hann hefði ákveðið
að klára sinn samning við United,
sem átti að renna út í sumar, hefði
verið lítið mál fyrir Bayem að greiða
honum góð laun.
Góðar fréttir berast úr
herbúðum Arsenal en
þeir Tony Adams fyrir-
liði og Dennis Berg-
kamp eru byrjaðir að
æfa eftir meiðsli sem
hafa verið að hrjá þá í
nokkrar vikur. Þeir gætu
báöir verið klárir í slag-
inn gegn Bradford um næstu helgi.
George Graham, knatt-
\ spyrnustjóri Tottenham,
g- hefur mikinn áhuga á aö
-f kaupa ítalann Roberto
l''V-4. tfg Baggio sem leikur með
Inter. Graham er tilbúinn
OoBMK að borga 250 milljónir
■L króna fyrir Baggio sem
■ hefur lítið fengið að
spreyta sig með Inter á leiktíðinni.
Sjálfur hefur Baggio sagt að hann
vilji spila í það minnsta eitt tímabil á
Englandi og þá með liði frá London.
Danny Wilson, knattspyrnustjóri
hjá Shefíield Wedneday, var í gær út-
nefndur stjóri janúarmánaðar í
ensku A-deildinni. Undir hans stjórn
komst Wednesday í fyrsta sinn á leik-
tíðinni úr botnsætinu með því að
vinna Bradford og Tottenham og gera
jafntefli gegn Arsenal. ÍB-deildinni
varð Alan Curbishley, stjóri
Charlton, fyrir valinu en Charlton
vann allan fjóra Ieiki sína á janúar og
tyllti sér á topp deildarinnar.
Daninn Thomas Sörensen skrifaöi í
gær undir nýjan fjögurra og hálfs árs
samning við enska A-deildarliðið
Sunderland. Sörensen er 24 ára gam-
all markvörður sem kom til Sunder-
land frá Odense fyrir tímabilið og
hefur hann staðið sig feikivel á milli
stanganna hjá nýliðunum.
Portúgalski landsliðsmaðurinn
Paulo Sosa var í gær lánaður frá Int-
er til Parma út þessa leiktíð en mark-
aðnum fyrir félagaskipti á Ítalíu var
lokað í gær. Venezia fékk þrjá leik-
menn frá AC Milan að láni, sóknar-
manninn Maurico Ganz, miðju-
manninn Pierluigi Orlandini og
varnarmanninn Bruno N’Gotty.
Franski landsliðsmaöur-
inn Frank Leboeuf, sem
leikur með Chelsea í
ensku A-deildinni, var í
gær úrskurðaður í
tveggja leikja bann fyrir
að traðka ofan á fótum
Harry Kewells, leik-
manns Leeds, i leik lið-
anna í desember. Leboeuf tekur bann-
ið út í bikarleik gegn Gillingham og í
deildarleik gegn Watford en í þeim
leik verður Dennis Wise einnig i
banni.
Manchester United
getur í kvöld náð þriggja
stiga forskoti i ensku A-
deildinni vinni liðið
sigur á Sheffleld
Wednesday. Góður
möguleiki er á að Paul
Scholes taki sæti í
byrjunarliði United á
kostnað Nicky Butts.
Jónatan Magnússon, hinn sterki
vamarmaður KA, hefur náð sér af
meiðslum og verður með í fyrsta leik
liðsins eftir fríið. Heyrst hefur að Jón
Kristjánsson, þjálfari ÍR, sé klár í
slaginn og það myndi svo sannarlega
styrkja liðið ef hann væri að leika
með.
-GH/JKS
Fyrsti leikur nýja ársins fer fram i
kvöld í Eyjum þegar ÍBV fær FH í
heimsókn en leiknum var frestað
fyrir jól.
Staða liðanna
í Nissandeildinni
m Afturelding
Arangur: .........88,5% (1. sæti)
Skemmtun: . 6,6 í meðaleinkunn (3.)
Sóknarleikur: ....26,2 mörk (2.)
Vamarleikur: ... 23,5 mörk á sig (5.)
Markvarsla:...........41,8% (2.)
Vítanýting: .........90,9% (1.)
Vítamarkvarsla: .....19,2% (5.)
Prúðmennska:.....8,6 mínútur (5.)
KA
Árangur:............65,4% (2. sæti)
Skemmtun: 6,15 í meðaleinkunn (5.)
Sóknarleikur: ......27,1 mörk (1.)
Vamarleikur: ... 22,8 mörk á sig (2.)
Markvarsla: ............39,8% (5.)
Vítanýting: ............71,7% (8.)
Vítamarkvarsla: ........18,6% (7.)
Prúðmennska:.......8,9 mínútur (7.)
Fram
....61,5% (3. sæti)
Skemmtun: . 5,9 í meðaleinkunn (7.)
Sóknarleikur: .....25,8 mörk (3.)
Vamarleikur: ... 24,8 mörk á sig (9.)
Markvarsla:............37,0% (9.)
Vítanýting:...........65,7% (11.)
Vítamarkvarsla: .......18,4% (8.)
Prúðmennska:......7,7 mínútur (2.)
Árangur:
Stjarnan
Árangur: ..........57,7% (4. sæti)
Skemmtun: . 62 í meðaleinkunn (4.)
Sóknarleikur: .....24,3 mörk (6.)
Vamarleikun . . . 23,2 mörk á sig (3.)
Markvarsla:............44,1% (1.)
Vítanýting: ...........78,7% (5.)
Vítamarkvarsla: ......13,7% (11.)
Prúömennska: .... 8,15 mínútur (4.)
Valur
Árangur: ..........53,8% (5. sæti)
Skemmtun: . 6,8 í meðaleinkunn (1.)
Sóknarleikur: .....23,5 mörk (10.)
Vamarleikur. ... 23,3 mörk á sig (4.)
Markvarsla:............37,4% (8.)
Vítanýting:...........59,5% (12.)
Vítamarkvarsla: ......16,1% (10.)
Prúðmennska:......9,1 minútur (8.)
FH
Árangun . 58,3% í 12 leikjum (6. sæti)
Skemmtun: 5,4 í meðaleinkunn (10.)
Sóknarleikur: .....22,6 mörk (11.)
Vamarleikur: ... 22,4 mörk á sig (1.)
Markvarsla:............40,2% (4.)
Vítanýting: ...........82,5% (2.)
Vítamarkvarsla: .......25,4% (3.)
Prúðmennska: .... 9,7 mínútur (12.)
Haukar
......46,2% (7. sæti)
Skemmtun: . 6,8 í meðaleinkunn (2.)
Sóknarleikun .....24,9 mörk (10.)
Vamarleikur: ... 23,5 mörk á sig (5.)
Markvarsla: ..........38,0% (7.)
Vítanýting: ..........77,9% (6.)
Vítamarkvarsla: ......28,6% (1.)
Prúðmennska:.....8,9 mínútur (6.)
DV DV
Sport
Afríkukeppnin:
Egyptar og
Senegal áfram
Egyptaland og Senegal bættust í
gær í hóp Kamerún og Ghana til aö
að komast í átta liða úrslit Afríku-
keppninnar í knattspyrnu. Egyptar
unnu Búrkína Fasó, 4-2, og Senegal
náði jafntefli við Sambíu, 2-2. Eg-
yptar unnu alla leikina með marka-
tölunni 7-2. -ÓÓJ
Valdimar Grimsson hand-
knattleiksmaður, sem leikur
með Wuppertal í þýsku A-
deildinni, hefur leikið sinn
síðasta landsleik. Hann verð-
ur því ekki með íslenska
landsliðinu í leikjunum
tveimur gegn Makedóníu-
mönnum í júní sem skera úr
um hvor þjóðin kemst á
heimsmeistaramótið i Frakk-
landi á næsta ári.
Möguleiki að vera
áfram úti ef gott tilboð
berst
„Ef ég kem heim í sumar
eins og allt stefnir í er ljóst að
landsleikjaferillinn er búinn.
Það eina sem getur breytt því
að ég komi heim er að ég fái
gott tilboð erlendis frá. Ég
ætla ekki að fara út í þjálfun
Markahæstir:
Ragnar Óskarsson, ÍR ......102/36
Bjarki Sigurðsson, UMFA . . . 102/47
Miro Barisic, ÍBV (12 leikir) . . 98/38
Hilmar Þórlindsson, Stjömunni 80/27
Þröstur Helgason, Víkingi . .. 79/21
Guömundur Pedersen, FH ... 69/45
Bo Stage, KA ...............67/16
Guðjón Valur Sigurðsson, KA . 64/1
Þ. Tjörvi Ólafsson, Fylki .... 61/15
Gunnar Berg Viktorsson, Fram 61/17
Óskar Elvar Óskarsson, HK . . 61/24
Konráð Olavson, Stjörnunni . . 60/12
Kjetil Ellertsen, Haukum .... 59/24
Sverrir Björnsson, HK.........54
Arnar Pétursson, Stjörnunni .... 53
Eymar Krúger, Fylki ........54/16
Magnús Már Þórðarson, UMFA . . 51
Ólafur Sigurjónsson, ÍR.......50
David Kekiija, Fylki.......49/11
Guðmundur Helgi Pálsson, Fram 47/3
Flest mörk utan af velli
Ragnar Óskarsson, ÍR .........66
Guðjón Valur Sigurðsson, KA . . . 63
Miro Barisic, ÍBV (12 leikir) .... 60
Þröstur Helgason, Vikingi.....58
Bjarki Sigurðsson, UMFA.......55
Sverrir Björnsson, HK.........54
Arnar Pétursson, Stjörnunni .... 53
Hilmar Þórlindsson, Stjömunni. . 53
Bo Stage, KA..................51
Magnús Már Þórðarson, UMFA . . 51
... af skyttum
Miro Barisic, ÍBV (12 leikir) .... 60
Bjarki Sigurðsson, UMFA ......55
Sverrir Bjömsson, HK..........54
... af leikstjórnendum
Ragnar Óskarsson, ÍR .........66
Þröstur Helgason, Víkingi.....58
Arnar Pétursson, Stjörnunni .... 53
... af línumönnum
Magnús Már Þórðarson, UMFA . . 51
Alexander Arnarson HK ........43
Aliaksandr Shamkuts, Haukum . . 41
... af hornamönnum
Guðjón Valur Sigurðsson, KA ... 63
Ólafúr Sigurjónsson, ÍR.......50
Konráð Olavson, Stjörnunni .... 48
Flest varin skot:
Bergsveinn Bergsveinss., UMFA 216/10
Hlynur Jóhannesson, HK ....202/6
Birkir ívar Guðmundsson, Stj. . 196/4
Sebastian Alexandersson, Fram 172/9
Axel Stefansson, Val ......168/8
Reynir Þór Reynisson, KA .... 154/8
Egidijus Petkevicius, FH (12 leikir) 148/7
Hlynur Morthens, Vikingi . . . 141/9
Magnús Sigmundsson, Haukum 135/8
Gísli Guðmundsson, IBV (12 leikir) 133/9
Örvar Rúdólfsson, Fylki ...117/4
Hallgrímur Jónasson, IR....105/6
Hrafii Margeirsson, ÍR ....101/7
Liðsstyrkur til FH
Freyr Bjamason, 22 ára gamall knattspyrnumaður
sem lék með Skagamönnum I úrvalsdeildinni á síðustu
leiktíð, mun leika með FH-ingum í 1. deildinni í sumar.
Freyr, sem leikur í stöðu vamar- og miðjumanns,
lék flóra leiki með Akumesingum í úrvalsdeildinni í
fyrra og hefur alls spilað sex leiki í efstu deild en hann
hefur einnig leikið með Skallagrími og Þrótti
Neskaupstað. Þá á Freyr að baki 11 leiki með yngri
landsliðum íslands.
Freyr er fjórði leikmaðurinn sem bætist í
leikmannahóp FH fyrir sumarið en áður hafði
Hafnarfjarðarliðið fengið gömlu jaxlana Heimi
Guöjónsson og Ólaf Adolfsson og endurheimt
markvörðinn Daða Lárusson sem lék í Bandaríkjunum
á síðasta sumri.
-GH
Kristinn keppir um
næstu helgi
Sjöunda heimsbikarmótið í svigi verður haldið í
Todnau í Þýskalandi um næstu helgi. Kristinn Bjöms-
son verður þar á meðal keppenda en honum hefur ekki
gengið sem skyldi á tveimur síðustu mótum þar sem
hann hefur fallið úr leik.
Kristinn hefur náð að ljúka keppni á þremur mótum
af þeim sex sem búin eru og er í 15. sæti á stigalistan-
um. Kristinn er með 103 stig. Norömaðurinn Kjetil
Andre Ámodt er í efsta sætinu með 330 stig, Slóveninn
Matjaz Vrhovnik er annar með 296, Thomas Stangass-
inger frá Austurríki er þriðji með 287, Austurríkismað-
urinn Benjamin Raich er fjóröi með 252 stig og í
fimmta sæti er Norömaðurinn Ole Christian Furuseth
með 206 stig. -GH
en hef hugsað mér að
spila heima,“ sagði
Valdimar í samtali
við DV i gær.
Eftirsjá
Valdimar á langan og
farsælan feril með ís-
lenska landsliðinu.
Hann hefur um ára-
bil verið ein
styrkasta stoðin í
landsliðinu og það
verður mikil eftirsjá í
þessum snjalla
homamanni með
landsliðinu.
Valdimar er í fjórða
sæti yfir þá leikmenn
sem hafa leikið flesta
landsleiki fyrir ís-
land. Hann lék sinn
255. landsleik þegar
ísland mætti Úkraínu í leikn-
um um 11. sætið á Evrópu-
mótinu í Króatíu en gamlir fé-
lagar hans með Val hafa leik-
ið fleiri leiki. Geir Sveinsson
lék 328 leiki, Guömundur
Hrafnkelsson hefur leikið 302
leiki og Júlíus Jónasson lék
272 í búningi íslenska lands-
liðsins.
Annar markahæstur á
Evrópumótinu
Lengi var óvíst hvort Valdi-
mar gæti spilað með landslið-
inu á EM vegna langvarandi
meiðsla en með þrautseigju
tókst honum að ná sér í tæka
tíð. Þeir sem þekkja til Valdi-
mars sáu að hann var
kannski ekki í sínu besta
formi en engu að síður skilaði
hann hlutverki sinu með
sóma og varð annar marka-
hæsti leikmaður keppninnar.
Valdimar er að leika á sínu
öðru ári hjá Wuppertal en
hann þjálfaði og lék með
Stjörnumönnum áður en
hann hélt út í atvinnu-
mennskuna.
Hefur áhyggjur
Valdimar hefur eins og
fleiri áhyggjur af handbolta-
íþróttinni á íslandi og reynar
fleiri íþróttagreinum.
„Iþróttirnar heima á ís-
landi eiga yfir höfuð mjög
erfitt og fjárhagslega eru þær
í molum ef knattspyman er
undanskilin,“ sagði Valdimar
sem er þessa dagana að þreifa
fyrir sér með atvinnu heima á
íslandi.
-GH
- mjög harður slagur blasir við í 1. deildinni
Islandsmótið í 1. deild karla í hand-
knattleik hefst að nýju í kvöld að loknu
sjö vikna fríi sem gert var á deildinni
vegna þátttöku íslenska landsliðsins á
Evrópumótinu í Króatíu. Fyrsti leikur
14. umferðar hefst með leik ÍBV og FH
í Eyjum. Langstærsti hluti leikmanna í
deildinni gat einbeitt sér að undirbún-
ingi með sínum liðum hér heima því
undirstaða landsliðsins var i mönnum
sem leika meö erlendum félagsliðum.
Það skiptir mestu hvernig liðin nýttu
sér fríiö og hvemig þau mæta til leiks
í einu lengsta hléi sem gert hefur verið
á deildinni. Hér í opnunni má sjá
ýmsar tölulegar staðreyndir um liðin á
mótinu fram til þessa.
Afturelding fór í fríið í efsta sætinu
og má ljóst vera aö ekki verður létt
verk að ýta liöinu af þeim stalli. Liðiö
hefur sjö stiga forystu á KA sem er í
öðm sæti. Afturelding vann þrjá leiki í
röð fyrir fríið. Liðsheild Aftureldingar
er sterk og Bjarki Sigurðsson, sem átti
við meiðsli að stríða, mætir eflaust af
fuUum styrk nú til leiks og það gerir
liðiö enn sterkara en ella.
KA og Fram munu örugglega veita
Aftureldingu hvað harðasta keppni.
KA-liðið tapaði aðeins einum leik í síð-
ustu sex umferðum mótsins. Atli Hilm-
arsson og lærisveinar hans mæta sterk-
ir til leiks og verða örugglega í einu af
efstu sætunum þegar kemur að úrslita-
keppninni undir vorið.
Framarar eru til alls líklegir og segja
kunnugir að liðið mæti beittara til
leiks en það var fyrir áramótin.
Haukamir hyggjast ömgglega bæta
sinn hag en liðið tapaði þremur leikj-
um í röð fyrir fríið. Víkingur og ÍR töp-
uðu bæði í síðustu þremur umferðun-
um fyrir áramót. Ef fríiö hefur veriö
nýtt vel mæta þau sterkari nú til leiks.
Eyjamenn verða aö snúa við blaðinu
í útileikjunum en þar hafa þeir einung-
is unnið einn leik. FH-ingar vaxa alltaf
þegar líður á mót og miklu meira býr í
liðinu en það sýndi í fyrri hluta móts-
ins. HK-liðið hefur átt undir högg að
sækja og er ekki langt frá botnbarátt-
unni.
Það á mikið eftir að ganga á
„Þau lið sem nýttu hléið best koma
til með að standa sig best núna í síðari
hluta mótsins. Heyrst hefur að gamlir
jaxlar hafi tekið þátt í undirbúningi hjá
sínum liðum og því ljóst að allt verður
lagt undir til aö ná sem bestum ár-
angri. Afturelding er með góða stöðu
en spurningin er hvort leikmenn sem
áttu í meiðslum hafi náð sér. Stjaman
var á miklu skriði fyrir fríið og það er
aldrei aö vita nema að liðið hafi bætt
sig enn frekar,“ sagði Þorbjöm Jensson
landsliðsþjálfari í samtali við DV.
„Ég ætla að fylgjast vel með seinni
hluta mótsins því það vantar menn í
landsliðið og mun ég þvi leita logandi
Ijósi af mönnum. Ég á von á spenanndi
og skemmtilegu móti og það á mikið
eftir að ganga á,“ sagði Þorbjöm.
-JKS/ÓÓJ
Ragnar Oskarsson er annar af
markahæstu leikmönnum
Nissan-deildarinnar í hand-
bolta en engfnn leikmaður
deildarinnar hefur skorað
Ekkert verður af því að handknattleiksmaðurinn
Páll Þórólfsson gangi i raðir þýska A-deildarliðsin:
Lemgo frá Essen.
Lemgo vildi kaupa Pál, sem á eitt ár eftir af samnin
sínum við Essen, en Claus Schom, eigandi Essen, ne
aði því en bauð Lemgo að fá Pál leigðan. Það vi!
Lemgo ekki enda vildi Essen fá háa íjárhæð fyrir le
una sem forráðamenn Lemgo sættu sig ekki við.
Páll hefur ekki mikið fengið að spreyta sig með Ess
á þessari leiktíð en í æflngaleikjum sem Essen hef
spilað að undanfomu hefur Páll staðið sig vel og þ
ætti að hjálpa honum að fá fleiri tækifæri með liðinu
Guðjón óhress
Guðjón Þórðarson, knattspyrnustjóri hjá Stoke City, er
allt annað en ánægður með frammistöðu dómaranna sem
dæma í ensku C-deildinni. „Enska knattspyrnusamband-
ið þarf að fara skoða þessi dómaramál og taka þau til rækilegrar endurskoðunar. Ef knattspyrnusambandið sætt-
ir sig svona frammistöðu verð ég fyrir miklum vonbrigðum," sagði Guðjón í samtali við The Sentinel en hann
var afar óhress með dómarann í leik Stoke og Burnley um síöustu helgi og taldi hann hafa sleppt tveimur aug-
ljósum vítaspymum á lið Bumley á meðan Bumley fékk vítaspymu á silfurfati. „Það er gríðarlegur munur að
koma úr alþjóðlegri knattspymu og sjá muninn á dómgæslunni þar og í þessari deild,“ segir Guðjón. -GH
Páll ekki
Bjarki feigtfrðsson og
Bergsveinn Bergsveins-
son hafa átt mikinn þátt í
góðu gengi Aftureiding-
ar í vetur, Bjarki er
markahæstur í deildinni
og Bergsveinn hefur var-
ið flest skot.
■
ͻ1
IR
Árangur: ...........46,2% (8. sæti)
Skemmtun: . 6,0 í meðaleinkunn (6.)
Sóknarleikm-: ......24,1 mörk (8.)
Vamarleikur. ... 24,5 mörk á sig (8.)
Markvarsla:............39,5% (6.)
Vltanýting: ...........82,4% (3.)
Vítamarkvarsla: .......19,0% (6.)
Prúömennska:.......7,4 mínútur (1.)
1© HK
Árangur: ...........42,3% (9. sæti)
Skemmtun: . 5,6 í meðaleinkunn (9.)
Sóknarleikur: ......24,2 mörk (7.)
Vamarleikur: . . . 24,2 mörk á sig (6.)
Markvarsla:............40,3% (3.)
Vítanýting:...........66,7% (10.)
Vítamarkvarsla: .......16,7% (9.)
Prúðmennska:.......7,8 mínútur (3.)
IBV
Árangur: 45,8% í 12 Ieikjum (10. sæti)
Skemmtun: 5,3 í meðaleinkunn (11.)
Sóknarleikur: ....23,6 mörk (9.)
Vamarleikur: ... 24,3 mörk á sig (7.)
Markvarsla:..........35,4% (11.)
Vltanýting: ..........81,4% (4.)
Vítamarkvarsla: .....23,9% (4.)
Prúðmennska: .......9,2 mín (3.)
rfr-
Víkingur
Árangur:.........26,9% (11. sæti)
Skemmtun: . 5,6 I meðaleinkunn (8.)
Sóknarleikur: ....24,5 mörk (5.)
Vamarleikur: .. 27,3 mörk á sig (11.)
Markvarsla:..........35,9% (10.)
Vítanýting: .........75,4% (7.)
Vítamarkvarsla: .....27,1% (2.)
Prúðmennska: ........9,1 mín (4.)
I Fylkir
Árangur:..........7,7 % (12. sæti)
Skemmtun: 4,8 i meðaleinkunn (12.)
Markaskorun:......21,3 mörk (12.)
Vamarleikur: .. 27,7 mörk á sig (12.)
Markvarsla:...........31,0% (12.)
Vítanýting: ..........71,4% (9.)
Vitamarkvarsla: ......13,6% (12.)
Prúðmennska:........9,2 mín (11.)
IkvöM
Nissandeild karla í handbolta:
ÍBV-FH.....................20.00
Nissandeild kvenna i handbolta:
ÍR-Valur...................20.00
Stjaman- Haukar............20.00
Fram-Afturelding ..........20.00
Grótta/KR-FH...............20.00
Víkingur-ÍBV ..............20.00
Tölfræöi handboltans
íslandsmótið í handknattleik karla hefst að nýju í kvöld:
Hvaða lið kemur
best úr friinu?
Valdimar hættur?
- hefur í hyggju að koma heim í vor og spila á íslandi á næsta tímabili
+
A
*