Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Qupperneq 18
26 MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000 Sport DV Nýi EJ10 Jordan-bíllinn er nokkuð útlitsbreyttur, bæöi í hönnun loftflæðis og einnig má sjá nýja styrktaraðila liðsins eins og Deuche Post. Slagurinn mikli í Formula 1 hefst eftir rúman mánuö: Frakkinn Jean Alesi og Þjóðverjinn Nick Heidfeld munu sjá um að aka nýja bílnum í formúlunni árið 2000. Þarna eru þeir ásamt Alain Prost við frumsýninguna á Montmelo-brautinni. Yahoo fyrir Prost - ný tryllitæki frá Prost og Jordan kynnt fyrir átökin sem nálgast óðum í Formula 1 C0 Woi Við frumsýningu nýja Jordan-bílsins var Eddie Jordan komið á óvart af sjónvarpsmanninum Michael Aspel. Þáttur hans heitir „This is your Life“ og byggir á að koma gestum sínum á óvart, stela þeim við einhverja uppákomu og fara yfir lífsskeið þeirra i beinni útsendingu. Reuter I gær var nýr bill frá Prost-liðinu í formúl- unni kynntur í Barcelona og við það tæki- færi var tilkynnt að styrktaraðili liðsins yrði netfyrirtækið Yahoo, sem er frægast fyrir leitarvél sína en fær aðaltekjur sínar í dag af netviðskiptum. Það mun taka við af tóbaksfyrirtækinu Gauloises sem aðalstyrktaraðili. Þetta er mikil breyting fyrir Prost-liðið sem hefur verið styrkt af tóbaksaðilum siðan ferill þess hófst í formúlunni árið 1976, en þá var það Ligier sem styrkti það. Styrktarsamningur- inn er 25 milljóna dollara virði og nær yfír þriggja ára timabil og er fyrsti styrktar- samningur í formúlunni við netfyrirtæki. Prost hefur ásamt Williams-liðinu losað sig við tóbaksfyrirtæki sem styrktaraðila og er það tímanna tákn um hvað gerast mun í AP03 Prost Peugeot-bíllinn er glæsilegur í útliti en hvort árangur hans verður jafn góður eigum við eftir að sjá. höfuðið á eiganda liðsins, Eddie Jordan, og ber töluna 10 fyrir árin tíu og fjölda strokka í vélinni. Kynningin fór fram í London á mánudaginn og við það tilefni gat Jordan ekki á sér setið að minnast á fyrstu kynn- ingu þeirra. „Þá vorum við 11 í liðinu, höfðum engan styrktaraðila og engan ökumann. Ég gleymi þvi seint.“ Núna er annað uppi á teningnum hjá Jor- dan og fyrirtækin slást um að fá að styrkja þá eftir best heppnaða ár þeirra í formúl- unni í fyrra, en Jordan varð í þriðja sæti í keppni framleiðenda árið 1999. Eddie Jordan segist ætla að halda áfram að reka liðið þar til það sitji öruggt í toppsætum formúlunn- ar. „Ég vil tryggja stöðu okkar og láta Ferrari og McLaren hafa fyrir því.“ Einn var sá sem hafði líka ástæðu til að brosa í morgun en það var Heinz Harald Frentzen. I fyrsta skipti sem pressan sér nán- ast ekkert af honum en einbeitti sér hins veg- ar að Damon Hill, sem Frentzen stakk af í næstum hverri einustu keppni ársins. „Hann vildi sýna gagnrýnendum fram á að þeir færu með rangt mál,“ sagði Jordan og bætti við: „Ég gæti ekki verið ánægðari með liðsmann, það er ánægjulegt að vinna með honum.“ -NG formúlunni á næstu árum, en bann Evrópusambands- ins við sígarettuauglýsing- um tekur gildi árið 2006. Nýi AP03 bíllinn ók fyrst um helgina á Magny- Cours-brautinni og próf- unardagskrá hefst á morg- un í Barcelona. Ökumenn liðsins verða Nick Heid- feld og Jean Alesi. EJ10 frumsýndur Jordan-liðið í formúl- unni er að hefja sitt tíunda ár í keppninni og af því til- efni kynnti það nýja EJ10 bílinn, sem skírður er í HBA-DEILDIN Indiana-Boston............99-96 Smits 26, Rose 20, Miller 16 - Walker 27, Anderson 16, Pierce 16. Cleveland-Washington . . .112-108 Kemp 28, Ferry 18, Person 15 - Murray 23, Hamilton 22, Strickland 15. New York-Orlando .........77-98 Camby 23, Johnson 17, Houston 12 - Atkins 22, Williams 14, Doleac 14. SA Spurs-LA Lakers .......105-81 Duncan 29, Johnson 22, Porter 15 - O'Neal 31. Bryant 19, Green 8 . Dallas-Philadelphia......100-101 Cebellos 26, Finley 21, Bradley 17 - Iverson 29, Ratliff 25, Lynch 14. Houston-Charlotte..........99-83 Mobley 23, Francis 22, Williams 14 - Jones 20, Coleman 14, Davis 14. Utah-Seattle..............96-104 Malone 26, Russel 19, Stockton 15 - Payton 35, Baker 33, Williams 16. Portland-Chicago ..........92-81 Grant 19, Wallace 14, Smith 12 - Brand 22, Kukoc 12, Carr 9. LA Clippers-Golden State .76-107 Nesby 20, Taylor 16 - Jamison 24. Útbreiðsluátak Skíðasambands Islands: Loksins kominn snjór og gönguátakið af stað Nú er loksins kominn snjór og út- breiðsluátak Skíðasambands ís- lands er aftur komið af stað eins og verið hefur undanfarin ár. Þessa dagana er Skíðasamband íslands að leggja lokahönd á dag- skrá átaksins og mun hún birtast í DV sem og á textavarpi RÚV, síðu 369, um leið og línumar skýrast. Um næstu helgi verður átakið í Garðabæ þar sem almenningi gefst kostur á að læra á gönguskíði og mun kennslan fara fram á golfvell- inum við Vííilsstaði frá 13.00-16.00 á laugardag. Kennslan er samstarfsverkefni íþrótta- og tómstundaráðs Garða- bæjar og Skíðasambands íslands. Á sunnudag verður átak Skíða- sambandsins á ferð í Árborg frá klukkan 14.00-17.00. Viðtökur fyrirtækja og starfs- mannahópa hafa verið mjög góðar en Skíðasambandið getur enn bætt fleirum við og þeir sem eru áhuga- samir eru beðnir um að hafa sam- band við Skíðasamband íslands með tölvupósti: ski@toto.is. Einnig viljum við benda íþrótta- kennurum sem áhuga hefðu á að fá kennslu fyrir nemendur sína að hafa samband við Skíðasambandið. Nánari dagskrá er svohljóðandi: 5. febrúar, laugardag: Garða- bær við Vífilsstaði kl. 13.00-1600. 6. febrúar, sunnudag: Árborg kl. 14.00-17.00. 12. febrúar, laugardag: Blönduós. 13. febrúar, sunnudag: Sauðár- krókur. 19.-20. febrúar: Skíðahelgin í Laugardal. Við viljum benda fólki á að fylgj- ast vel með á þeim stöðum sem dag- skráin er aðgengileg því hún breyt- ist ört vegna veðurs. Bland i t»okei Preston, liðs Bjarka Gunnlaugs- sonar, sigraði Oxford, 0-4, i ensku 2. deildinni í knattspymu í gærkvöld. Með þessum sigri komst Preston í annað sætið með 58 stig en efst er Bristol Rovers með 59 stig. Bjarki lék ekki með Preston i leiknum. Stoke er í sjötta sæti með 48 stig. Bayern Miinchen sigraði Celtic, 2-1, í Glasgow í gærkvöid i upphitunar- leik fyrir slaginn í þýsku deildinni en vetrarfriinu fer senn að ljúka. El- ber og Thorsten Fink skoruðu fyrir Bæjara en Mark Burchill skoraði mark Celtic. Monaco heldur sínu striki i frönsku 1. deildinni en í gærkvöld sigraði lið- ið Paris St. Germain á heimavelli, 1-0. Auxerre sigraði Bordeaux, 1-0. Monaco hefur 52 stig í efsta sæti og Auxerre er i öðru sæti með 42 stig. Hinn þekkti búlgarski knattspymu- maður Hristo Stoichkov, sem lagði skóna á hilluna á síðasta ári, hefur verið ráðinn þjálfari hjá Universita- tea Craiova og mun skrifa undir samning í næstu viku. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.