Dagblaðið Vísir - DV - 02.02.2000, Page 28
36
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000 DV
dags
onn
Ummæli
Alþingi með
hörðn yfirbragði
„Ég spái því að næstu vik-
umar verði með
afar hörðu yfir-
bragði á Alþingi
og við komum
inn á þing af
fullum þunga.“
Rannveig Guð-
mundsdóttir al-
þingismaður, í
Degi.
Siðferði
mannskepnuimar
„Ég lít svo á að í þessu máli
stangist svo heiftarlega á sið-
ferði mannskepnunnar og
Mammon að þetta gangi bara
ekki upp.“
Friðrik Vagn Guðjónsson
heimilislæknir um gagna-
grunninn, í Degi.
Hefðunum trú
„Enn gefst tækifæri til að
gleðjast yfir því
ð nýr ráðherra
'Yamsóknar-
Elokksins, Val-
gerður Sverris-
dóttir, er hefð-
unum trú með
því að búa til
nýtt starf
norður á Ak-
ureyri fyrir verðugan
framsóknarmann þegar á
fyrstu dögum ráðherradóms-
ins.“
Jón Sigurðsson, fyrrv. for-
stjóri, í Morgunblaðinu.
Reglur í ólagi
„Menn eru í raun að afsaka
það að þeir gerðu rangt en
vilja ekki viðurkenna það
beint. Ef reglumar em hins
vegar ekki í lagi þá hafa ein-
hverjir ekki unnið heima-
vinnu sína.“
Vilhjálmur Bjarnason við-
skiptafræðingur um við-
skiptasiðferðið á verðbréfa-
markaðinum, í Degi.
Þorrablót og norski
skerjagarðurinn f
„Það að spila á þorrablóti er
álíka og að sigla
skipi í norska
skerjagarðinum, i
það þarf að taka
tillit til gesta á
ýmsum aldri.“
Magnús Kjart-
ansson tónlist-
armaður, í DV.
Fyrirmyndar-
piltur
„Hann fær pepsí af og til og
snúð á fostudögum. Þetta er
fyr irmyndarpiltur. “
Friðbjörn Bóas Kristjánsson,
sem réð „pepsídrenginn" í
vinnu, i DV.
Jón Sigmundsson bóndi:
Lítið hefði orðið úr mér hefði
ég ekki fengið góða konu
„Líflð hefur verið ljómandi
skemmtilegtsegir bóndinn og
gleðimaðurinn, Jón Sigmundsson
á Einfætingsgili í Bitru sem á dög-
unum fagnaði með ættingjum og
fjölda vina 85 ára afmæli sinu. „Ég
fékk góðar gjafir sem ég er mikið
þakklátur fyrir. Það hefði orðið
eitthvað lítið úr mér ef ég hefði
ekki fengið þessa góðu konu og
eignast þessi yndislegu böm.“
Jón hefur alla tíð haft mik-
ið yndi af söng, sem og öðru,
enda lífsglaður maður og læt-
ur sig sjaldan vanta ef leiklist og
samkomur eru annars vegar og að-
stæður leyfa. Hann hefur sungið í
kirkju í yfir hálfa öld og gerir enn.
Börn hans og Elínar Gunnarsdótt-
ir hafa erft sönghæfíleikana og
kom það vel í ljós á afmælishátíð-
inni þegar söngur fimm sona
þeirra og tengdasonar fyllti húsið.
Með búskapnum hefur Jón gegnt
ýmsum störfum, þar á meðal var
hann verkstjóri hjá Kaupfélagi
Bitrufjarðar i fjölda ára við haust-
slátrun og rifjar hann upp með
blaðamanni ýmislegt sem þá gerð-
ist á þessum tímum þegar miklir
umbrotatímar fóru í hönd i þjóðlíf-
inu, umbrotatímar sem ekki einu
sinni lítil byggð á Vestfjörðum fór
varhluta af. Ungir íslendingar
fundu fyrir kraft-
inum í sjálfum sér DV-mynd
og breytingatímar voru aö halda
innreið sína. Að baki var tími
kyrrstöðu og stöðnunar sem varað
hafði um aldir: „Maður þurfti
stundum að takast á við þessa
stráka bæði með kjafti og klóm,“
segir þessi glaðværi maður og
hlær dátt þegar þetta er rifjað upp.
„Nokkrum sinnum kom fyrir
að menn sögðu upp í lok vinnu-
Maður dagsins
dags og sögðust aldrei ætla að
koma í vinnu aftur en það
brást ekki að þessi sömu
menn mættu alltaf til vinnu
fyrstir næsta daga. Þetta er nú
löngu liðið og allir urðu þessir
menn miklir vinir mínir
og eru enn, ekki
síst þeir sem
mest kvað
að á þess-
um
árum.“
Jón
segir að
fæstir
átti sig
á því
núna
hvem-
Guöfinnur
ig var aö standa í hans sporum
áður fyrr: „Þetta voru áhaldalausir
tímar, það vantaði nánast allt til
alls. Þau Jón og Elín standa enn
fyrir búi á Einfætingsgili þar sem
þau hafa búið allan sinn búskap.
Jón segir að einstaklega gaman
hafi verið að fá
alla þessa gesti
á þessum
tímamót-
um, sú
minning
muni ylja
og ekki
gleymast.
-GF
Hvitt: Amar E. Gunnarsson
Svart: Róbert Harðarson
I 9. umferð á Skákþingi
Reykjavíkur, sem nú stend-
ur yfir, áttust við 2 skák-
menn sem
mikið hafa
látið að sér
kveða að und-
anfornu. Róbert hefur stað-
ið sig vel í landsliðsflokki
undanfarin ár og
Amar vann Haust-
mót T.R. 1999. Eftir
miklar sviptingar,
þar sem Róbert
hafði haft frum-
kvæðið lengst af,
sneri Amar taflinu
sér í vil. Síðasti
leikur svarts var
43.- Dg6-bl. 44.
Dd5! Db8+ 45. Kgl
Hxe3? (Dbl+ 46.
Ddl) 46. Dh5+ og
svartur gafst upp.
Staðan eftir 9 um-
ferðir af 11, Þröstur
Þórhallsson er efstur eftir 9
umferöir með 8 vinninga.
Sigurður Páll Stefánsson og
Stefán Kristjánsson
eru í 2.-3. sæti með
7 vinninga en næst-
síðasta umferð
veröur tefld í kvöld í Faxa-
feni 12.
Skák
Myndgátan
Fimm milljón króna samdráttur Myndgátan hér aö ofan lýsir orötaki.
Gísli Rúnar Jónsson leikur eitt að-
alhlutverkiö.
Sex í sveit
Sex í sveit, sem sýnt er í Borg-
arleikhúsinu, hefur notið mjög
mikilla vinsælda og eru sýningar
komnar á annað hundraðið og er
ekkert lát á aðsókninni. Sex í
sveit er dæmigerður flækjufarsi.
Hjónakomin Benedikt og Þórunn
eiga sín leyndarmál og þegar frú-
in hyggur á heimsókn til móður
sinnar sér eiginmaðurinn sér leik
á borði að bregða undir sig betri
fætinum í fjarveru konunnar.
Hann býður hjákonu sinni og vini
til helgardvalar í sumarhúsi
þeirra hjóna. Svo óheppilega vill
til að eiginkonunni snýst hugur
og hættir við að fara. Margfaldur
misskilningur verður til, allt
vindur upp á sig og ástandið verð-
ur vægt til orða tekið ískyggilegt.
Leikhús
Sex í sveit er eftir Marc Camo-
letti sem er af flestum talinn einn
helsti núlifandi gamanleikjahöf-
undur. í hlutverkunum em Bjöm
Ingi Hilmarsson, Edda Björgvins-
dóttir, Ellert, A. Ingimundarson,
Gísli Rúnar Jónsson, Rósa Guðný
Þórsdóttir og Halldóra Geirharðs-
dóttir. Leikstjóri er María Sigurð-
ardóttir. Næsta sýning á Sex í
sveit er í kvöld.
Bridge
í þessu spili sem kom fyrir í leik
heimsmeistara Bandaríkjamanna
og Frakka í riðlakeppni HM á
Bermúda eru 5 lauf óhnekkjandi
samningur á hendur NS. Hvoragt
paranna í NS náði þó þeim samn-
ingi en það voru þó Bandaríkja-
menn sem stórgræddu á spilinu. í
lokaða salnum enduðu Bompis og
Ste Mari í þremur laufum og unnu
þau að sjálfsögðu með tveimur yfir-
slögum. Sagnir gengu þannig í opna
salnum, austur gjafari og allir á
hættu:
♦ 654
* Á10982
♦ K97
* 63
* AG82
W K
+ G3
* ÁKG984
* D1097
* K3
•0 654
* Á1084
* 10752
Austnr Suður Vestur Norður
Mari Rodwell Multon Meckstr.
pass pass pass 1 *
pass 2 + páss 2 grönd
pass 3 grönd p/h
Tveggja tígla sögn Erics Rodwells
sýndi jákvæða hönd með tígullit og
stuðning við laufið. Meckstroth var
ekkert hræddur
við blankan kóng
sinn og bauð í
game með 2
gröndum og Rod-
well er ekki
þekktur fyrir að
passa niður
áskoranir í
game. Allt valt
nú á útspili austurs en því miður
fyrir Frakkana, þá valdi Mari að
spila út spaðatíunni. Meckstroth
fékk 11 slagi og Bandarikin græddu
11 impa í stað þess að tapa 6 impum.
Lánið er jú alltaf með þeim bestu -
eða hvað? ísak Öm Sigurðsson