Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2000, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2000
5
Fréttir
Gísli Guð-
jónsson
orðinn
prófessor
í London
Gísli Guðjónsson réttarsál-
fræðingur hefur verið skipað-
ur prófessor (Professor of
Forensic Psychology) við
Lundúnaháskóla. Þetta er í
fyrsta skipti sem réttarsál-
fræðingur er skipaður pró-
fessor við háskólann. Skipun-
in gildir frá 1. janúar 2000 við
Institute of Psychiatry, Kings
College, University of
London.
Gísli, sem nú er staddur
hér á landi, sagði í samtali
við DV í gær að hann liti svo
á að Lundúnaháskóli hefði
verið að veita sér prófessors-
stöðuna sem viðurkenningu
fyrir störf hans ytra. „Þetta
er ekki staða sem ég sótti um.
Starf mitt mun ekkert breyt-
ast. Ég lít þvi nær einvörð-
ungu á þessa skipun sem við-
urkenningu," sagði Gísli.-Ótt
Gísli Guöjónsson í foreldrahúsum í Kópavogi í gær. Á myndinni heldur hann á skipun
arbréfi frá Lundúnaháskóla. DV-mynd HK
Félag hrossabænda:
Brestur kominn
í stjórnina
- segir Kristinn Guðnason formaður
„Ég er ákaflega ósáttur við þess-
ar málalyktir. Mér finnst vera kom-
inn brestur í stjórn Félags hrossa-
bænda,“ sagði Kristinn Guðnason,
formaður Félags hrossabænda,
vegna vals á fulltrúa úr stjórn fé-
lagsins í nefnd sem skipuð hefur
verið vegna fjárframlaga rikis-
stjórnarinnar til hestamennsku og
hrossaræktar.
Kristinn telur að formaður Fé-
lags hrossabænda eigi að sitja í
nefndinni og jafnframt sé eðlilegt að
hann stýri henni. Stjómin klofnaði
hins vegar um málið. Einn stjórnar-
maður, auk Kristins, vildi að for-
maðurinn tæki sæti í nefndinni en
þrir ekki. Niðurstaðan varð sú að
stjómin skipaði Ármann Ólafsson í
Litla-Garði i Eyjafirði í hana.
„Mér fmnst að formaður Félags
hrossabænda eigi að sitja í nefndum
af þessu tagi, ef hann á annað borð
hefur eitthvert traust. Um er að
ræða nefnd sem ráða á yfir pening-
um sem ríkið úthlutaði til áð efla
hestamennsku og hrossarækt í land-
inu. Nauðsynlegt er að formaður Fé-
lags hrossabænda hafi það mikið
traust að honum sé trúað fyrir störf-
um af þessu tagi. En þeir töldu að ég
sem formaður Félags hrossabænda
gæti ekki setið í nefndinni af því að
aðrir i henni væru af Suðurlandi.
Ég tek þau rök ekki góð og gild. Hafi
ég sýnt að ég hafl dregið einhverjum
landshluta meir en öðrum þá vil ég
fá það framan í mig. í þessu máli
a.m.k. er kominn upp klofningur í
stjórninni."
Kristinn sagði að málið biði nú
aðalfundar Félags hrossabænda.
Nefndin er þannig skipuð að for-
maður er Ágúst Sigurðsson ráðu-
nautur. I henni eiga einnig sæti
Ólafur Hafsteinn Einarsson, for-
maður Félags tamningamanna,
Haraldur Þórarinsson, varaformað-
ur Landssambands hestamanna, og
Ármann Ólafsson, stjórnarmaður í
Félagi hrossabænda, eins og áður
sagði. -JSS
á mánuði fyrir Renault Clio*
Grjótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1220
Renault Clio kostar frá 1.188.000 kr.
Hvemig væri að fá sér stærri bíl á frábæram kjörum. Það er ekki mikið að
borga 13.865 kr. á mánuði fyrir jafn góðan bíl* (Meðalgreiðsla á mánuði
með vöxtum og áföllnum kostnaði m.v. 84 mán. bílalán og 284.500 kr.
útborgun (t.d. bíUinn þinn)). Komdu og prófaðu Renault Clio á betri kjöram.
RENAULT