Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2000, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.2000, Side 11
MIÐVKUDAGUR 16. FEBRÚAR 2000 enning „ Bláa lóniö. Mikilúðleg náttúra og manngert umhverfi mætast á listrænan hátt. DV-mynd PÖK ■ Viöbyggingin viö Melaskóla - í góðri sátt viö eldra skólahúsið. DV-mynd Teitur TilnefningaI• til Menningarverðlauna DV fyrir byggingarlist: Menn flýta sér um of Ekki fer fram hjá borgar- búum þenslan í húsbygging- um um þessar mundir. Þar sem áður var sakleysislegt opið svæði er allt í einu ris- ið stórhýsi - næstum því frá einum degi til annars! Dóm- nefnd Menningarverðlauna DV um byggingarlist skoð- aði um 20 hús sem tekin voru í notkun árið 1999 en ákvað að tilnefna aðeins fjögur þótt hún hefði leyfi fyrir fimm. Ekki bendir það til jafnmikillar grósku í list- inni að byggja. „Það er margt spennandi að gerast í byggingarmálum en of margt af því ber vott um að menn séu að flýta sér,“ segir dr. Maggi Jóns- son, formaður dómnefndar- innar. „Okkur fannst við nána athugun að menn væru að glata stórum tæki- færum til að gera raunveru- lega góð verk. Við tilnefnum til dæmis hús Málningar hf. í Kópavogi; þar í kring er að rísa heill borgarhluti en fátt reyndist þar um fina drætti." Eins sagði dr. Maggi að væri í nýjum íbúðarhverf- um - menn væru ekki að gera eins vel og þeir gætu og þó ætti að vera nægur mannskapur til að gera vel og enginn efast um hæfi- leika og getu íslenskra hönn- uða. Nú um stundir færist í vöxt að verktakar bjóði í m ....... — Islenska sendiráöiö í Berlín - nýtir íslensk byggingarefni með líparítklæöningu á veggi og grástein á gólf. hönnun og byggingu húsa fyrir opinbera aðila, eigi þau svo sjálfir og leigi þau út. Hætta er á að við þessar aðstæður fari hagsmunir not- enda og byggingarlistar ekki fyllilega saman við hagsmuni þess sem hannar og byggir. Með Magga í nefndinni sitja Guðmundur Jónsson arkitekt og Júliana Gottskálksdóttir listfræðingur. Eftirfarandi byggingar hlutu til- nefningu til Menningarverðlauna DV í bygg- ingarlist að þessu sinni: Bláa lónið við Svartsengi Vinnustofa arkitekta. Sigríður Sigþórsdóttir arkitekt. Á síðasta ári var lokið við gerð Bláa lónsins ásamt þjónustuhúsi og næsta umhverfi. Stað- arval og skipulag svæðisins hefur tekist með ágætum. Hið nýja lón og baðstaðir falla mjög vel að umhverfinu og mynda sterka listræna heild. Sama má segja um hús og önnur mann- virki. Mikilúðleg náttúra og manngert um- hverfi mætast þannig að úr verður áhrifamik- il samstæða náttúru og bygginga sem mótaðar eru eftir hugsaðri skipan og reglmn. Form hússins er einfalt en öflugt. Rými eru skýrt mótuð, stór, björt og hlýleg. Efnisval er hnit- miðað. Sérstök árvekni og gætni við vanda- sama framkvæmd í viðkvæmu, villtu umhverfi hefur tekist mjög vel. Stækkun Melaskóla Ögmundur Skarphéðinsson arkitekt. Höfundur velur að stækka skólann með nýrru byggingu sem tengist eldra húsi með gangi sem að hluta til er undir yfir- borði skólalóðar. Með þessu nýtist takmörkuð skólalóð og visst frelsi fæst um gerð nýja hússins. Nýbygg- ingin er sjálfstætt hús bæði að formi og efnisvali en í góðri sátt við eldra skólahúsið og umhverfi sitt. Samgöngurými eru vel formuð og skýr, og höfundi tekst að fella þau saman í rúmgott miðrými sem myndar sannfærandi miðkjarna í húsinu. Vel er vandað til innrétt- inga og deililausna. Islenskt sendiráð í Berlín PK hönnun. Pálmar Kristmundsson arkitekt. Bygging islenska sendiráðsins í Berlín er hluti af samstæðu sendi- ráða fyrir norrænu þjóðirnar. Sendiráðssvæðið er umlukt fjög- urra hæða vegg úr hreyfanlegum koparskermum, samkvæmt tillögu austurrísks arkitekts. íslenska byggingin er gerð samkvæmt 1. verðlaunatillögu Pálmars frá 1996. Heildarskipulag svæðisins sníður hverju landi mjög ákveðinn ramma. Höfundur velur að af- marka íslenska húsið skýrt frá hverfinu með lokuðum steinklædd- um flötum. Skipulag hússins er sér- lega einfalt og hagkvæmt. Arkitekt- inn nýtir íslensk byggingarefni með líparítklæðningu á veggi og grástein á gólf. Sérstök alúð er lögð við hlutalausnir sem gerðar eru af fagmennsku og fágun þar sem hús og búnaður skapa samofna heild. Skrifstofu- og verksmiðjuhús Málningar hf. Ingimundur Sveinsson arkitekt. Skrifstofu- og verksmiðjuhús Málningar hf. við Dalveg í Kópavogi er gott dæmi um hverju góð byggingarlist fær áorkað við gerð húsa fyr- ir sérhæfða atvinnustarfsemi og verksmiðjur. Skipulag hússins er rökrétt, einfalt og í sann- færandi samhengi við starfsemina. Höfundur leggur áherslu á tiltölulega fá atriði sem hann skilar með ferskum og afgerandi hætti. Létt- leiki útfærslu á ljósabrunni og samgöngurým- um í skrifstofuhluta ásamt litavali utanhúss bera vitni um áræðni og öryggi. Skrifstofu- og verksmiöjuhús Málningar hf. ber vitni um áræöi og öryggi. DV-mynd Teitur Tónlistardeildin kynnt í kvöld kl. 20.30 verður síðasti kynn- ingarfundur Félags um Listaháskóla ís- lands að sinni um framtíðarskipulag Listaháskólans. Þá munu Ámi Harðar- son og Mist Þorkelsdóttir kynna tillög- ur sínar að uppbyggingu tónlistardeild- ar skólans. Allt áhugafólk um list- menntun á háskólastigi er hvatt til þess að koma, einkum er þess vænst að tón- listarmenn láti sig málið varða og taki þátt í umræðum. Fundurinn fer fram í fyrirlestrasal Listaháskólans í Laugar- nesi. Hláturgas til Akraness Farandsýningin Hláturgas, sem sett verður upp á tíu sjúkrahúsum viðs veg- Iar um landið á árinu 2000, verður opn- uð á Sjúkrahúsi Akraness á fóstudag- inn kl. 15. Skrýtlur um lækna og skopmyndir frá sjúkrahúsum hafa löngum skemmt fólki en það er fyrst nú á siðustu árum að skilningur hefur vaknað á því að skop og gamanmál geta átt raunveru- legan þátt í lækningum, létt lund sjúk- linga og virkjað þann líkningarmátt sem í líkamanum býr. Hláturinn lengir lífið í raun og veru og er viðbúið að þáttur skopsins muni aukast á sjúkra- Shúsum og læknastofum í framtíðinni. Hláturgas er unnið 1 samstarfi við ís- landsdeild Norrænna samtaka um læknaskop (Nordisk Selskap for Medis- insk Humor) sem voru nýlega stofnuð, Iþau fyrstu sinnar tegundar. Á sýning- unni er að finna fjölda skopteikninga eftir innlenda og erlenda höfunda; af ís- lenskum teiknurum má nefna Þorra Hringsson, Hallgrím Helgason, Brian Pilkington, Gísla Ástþórsson og Halldór Baldursson. Efniö er ýmist gamalt eða unnið sérstaklega fyrir Hláturgasið. Jafnframt hefur verið gefin út 80 síðna bók með skopteikningum, bröndurum, íslensku rímnaskopi og spaugilegum læknaskýrslum sem dreift verður ókeypis á viðkomandi skjúkrahúsum. IiLíf í alheimi Á morgun kl. 13-17 verður fræðslu- stefnan Lif í alheimi í Norræna húsinu í tilefni af 400 ára ártíð ítalska heim- spekingsins Giordanos Bruno (f. 1548 - d. 17. febrúar 1600). Vilhjálmsson eðl- isfræðingur (sjá mynd) erindið „Hvenær var sól- miðjukenningin „sönnuð“?“ Gunn- laugur Björnsson stjarneðlisfræð- ingur talar um reikistjörnur í öðrum sólkerfum. Þorsteinn Þor- steinsson jarðeðl- isíræðingur segir frá kenningum um lif á Mars - fyrr og nú. Trausti Jónsson veðurfræðingur ; | segir brot úr loftslagssögu jarðar. Guð- mundur Eggertsson líffræðingur talar um hugmyndir um upphaf lífsins á jörðinni. Þorsteinn Þorsteinsson lif- efnafræðingur flytur erindið „Samstill- ing efnis í alheimi" en erindi Kristjáns Jónassonar stærðfræðings heitir „Loft- I steinar og lífið í fbrtíð og framtíð; rot- högg við árekstur?" Loks flytur Viðar Víkingsson kvikmyndagerðarmaður er- indið „Alheimur, líf og list“. Vinsæll vísindavefur í beinu framhaldi af frétt um Lif í al- heimi er gaman að geta þess að Vís- indavefur Háskóla íslands, sem Þor- steinn Vilhjálmsson eðlisfræðingur rit- stýrir og opnaður var menningarborg- ardaginn 29. janúar sl., hefur reynst ótrúlega vinsæll. Tugir spuminga koma inn á hann daglega frá almenn- ingi, börnum og fullorðnum og ekki all- ar auðveldar. Verða menn að bíða ró- legir eftir svörum við þeim sumum. Slóðin er www.opinnhaskoli2000.hi.is og aðstandendur vefsins lýsa sérstak- lega eftir spurningum um hugvísindi. Umsjón ---------- Siija Aðalsteinsddttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.