Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2000, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2000, Blaðsíða 6
LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 JL>’\T e útlönd stuttar fréttir Sæðisbanki fyrir dúfur Dýralæknar í Belgíu hafa opn- að sæðisbanka til að efla æxlun meðal kappflugsdúfna, sem eru einkvænisfuglar. Belgískt dag- blað greindi frá þessu í gær. Ræddu við Nyrup Danski fjármálaráðherrann hefur viðurkennt að Poul Nyrup Rasmussen for- sætisráðherra ræddi ástandið í Austurríki eftir ríkis- sfjórnarmynd- unina á dögun- um við belgísk- an starfsbróð- ur sinn áður en Evrópusamband- ið tók ákvörðun um aðgerðir sín- ar gegn Austurríki. Belgíska stjómin hefur vísað á bug full- yrðingum um að Nymp hafi ekki verið látinn vita fyrr en á síðustu stundu. Bómull á sauðfé Bómull vex á sauðfé, bananar vaxa í Englandi og Hollendingar Iframleiða ólífuolíu. Svo halda að minnsta kosti mörg evrópsk skólaböm á aldrinum níu til tíu, ára að því er fram kemur í nýrri könnun. Lífstíð fyrir morðingja Fimmtiu og tveggja ára Dani var í gær dæmdur i lífstíðarfang- Ielsi fyrir að myrða tíu ára gamla stúlku í maí 1998. Málið vakti mikinn óhug á sínum tíma. Ákærði áfrýjaði dóminum til hæstaréttar. P Nasisti áfram í steini Eystri landsréttur í Kaup- mannahöfn úrskurðaði í gær að danski nýnasistaforinginn Jonni Hansen skyldi sitja áfram í gærsluvarðhaldi. Jonni var stungið inn í desember eftir að hann ók á hóp manna sem var að mótmæla hreyfingu hans. Pylsukúltúr reddað Sænsk pylsukeðja hefur áhuga á að bjarga pylsuvagnakúltúrn- um í Kaupmannahöfn og hefur í því skyni sótt um leyfi fyrir 100 pylsuvögnum í borginni. Milljónir í mútufé Rannsókn svissneskra yfir- valda á peningaþvætti Pavels Borodíns, fyrrum aðstoðarmanns Bórísar Jeltsíns, fyrrverandi j Rússlandsforseta, hefúr leitt í | ijós að milljónir dollara í meint- um mútum voru lagðar inn á svissneska bankareikninga emb- j ættismanna í Kreml. Þúsundlr við brúðkaup Þúsundir manna, þar á meðal Nelson Mandela, fyrrum forseti Suður-Afriku, voru viðstaddar brúðkaup konungsins i Lesótó og f suður-afrískrar unnustu hans. j Athöfnin fór fram á knattspymu- j leikvangi í höfuðborg landsins. ILofa rannsókn Rússneskir embættismenn lof- uðu í gær að rannsaka nýjar ásakanir um mannréttindabrot í Tsjetsjeníu. Rússar segjast núna j ætla að brjóta uppreisnarmenn múslíma endanlega á bak aftur innan eins mánaðar. Kristilegur klofningur Klofningur er kominn upp meðal kristilegra demókrata í Þýskalandi um hver eigi að taka við leið- togaemhættinu af Wolfgang Scháuble. Hann sagði af sér vegna tengsla við leynireikn- ingahneykslið. Andstaða hefur vaxið meðal erkiíhaldsmanna innan systurflokksins í Bæjara- landi við því að aðalritari flokks- ins, nútímakonan Angela Merkel, taki við leiðtogaembætt- inu. Bæjarar vega þungt þegar ákvörðun verður tekin. Skólabörn létu hótanir um refsingar ekki stöðva sig: Þúsundir mót- mæltu Haider Þúsundir skólanemenda í Vínar- borg skunduðu út úr kennslustofum sínum í gær við upphaf tveggja daga mótmæla gegn nýmyndaðri hægri- stjóm þar sem sæti eiga ráðherrar úr Frelsisflokki hægriöfgamannsins Jörgs Haiders. Nemendurnir létu hótanir um hirtingu og kalsaveður ekki aftra sér frá því að flykkjast út á götur austurrísku höfuðborgarinnar. Lög- reglan sagði að um fjögur þúsund skólakrakkar hefðu komið í mið- borgina til að láta í ljós óánægju sína með tveggja vikna gamla stjórn Wolfgangs Schússels kanslara. Skipuleggjendur mótmælanna sögðu að fjöldi þátttakenda hefði verið nær tuttugu þúsund. Austurríki hefur verið sett í ein- Austurrískir skólakrakkar mót- mæltu nýrri ríkisstjórn í Vín í gær. angrun innan Evrópusambandsins vegna þátttöku Frelsisflokksins í stjórninni. Mótmælaaðgerðimar í gær voru aðeins forsmekkurinn að því sem verður í dag þegar búist er við um tvö hundruð þúsund manns út á göt- ur Vínarborgar. Skólanemendumir dönsuðu í gær við ærandi tónlist sem útvarpað var úr hátölurum aftan á vörubílum. Á mótmælaspjöldum mátti lesa áletran- ir um að til samans jafngiltu Schús- sel og Haider einangrun og klofningi. Annars lýsti Schússel því yfir í við- tali við BBC í gær að hann væri far- inn að hafa efasemdir um Haider en landsmenn hans, svo og aðrar Evr- ópuþjóðir, geti treyst flokki kanslar- ans, Þjóðarflokknum. Margt stórmenni úr heimi kvikmyndanna var saman komið í Saint Tropez á Miðjarðarhafsströnd Frakklands i gær þar sem útför kvikmyndaleikstjórans Rogers Vadims var gerð. Á þessari mynd má sjá frönsku leikkonuna Marie- Christine Barrault og þá bandarísku Jane Fonda sem eitt sinn var gift Vadim. Brigitte Bardot mætti einnig. Skýrsla um falsanir veldur uppnámi: írar vilja að kjarnorkustöð- inni í Sellafield verði lokað írsk stjórnvöld hvöttu Breta 1 gær til að íhuga að loka kjamorkuend- urvinnslustöðinni i Sellafield tima- bundið eftir að öryggismál í stöð- inni voru gagnrýnd harðlega í nýrri skýrslu. Breska kjamorkueftirlitsstofnun- in sagði að starfsmenn Sellafield hefðu falsað gögn um kjamorku- eldsneyti sem sent var til Japans og að stjómendur versins hefðu á kerf- isbundinn hátt brugðist skyldum sínum. í skýrslunni segir að finna verði þá sem fölsuðu gögn í Sellafield og refsa þeim. Ekki hefur verið farið fram á að yfirmenn fjúki. írar hafa áhyggjur af öryggismál- um i Seflafield þar sem Írlandshafíð eitt skilur á milli þess og írlands. ís- lendingar og Norðmenn hafa einnig oft viðrað áhyggjur sinar vegna hugsanlegrar mengunar sjávar frá endurvinnslustöðinni. Kýr hafa þaö notalegt í nágrenni kjarnorkuendurvinnslustöðvarinnar í Selfafield á Englandi. Mikiö uppi- stand er nú vegna falsaðra öryggis- skýrslna fyrir kjarnorkueldsneyti sem sent var til Japans. Bresk stjórnvöld fyrirskipuðu í gær að stjómunaraðferðir í Sella- fleld skyldu teknar til rækilegrar endurskoðunar. Þá sögðu þau að áform um að einkavæða hluta kjamorkuendurvinnslunnar gætu verið í hættu. Ráðherrar í bresku stjórninni vonast til að aðgerðir þeirra dugi til að binda enda á ótta manna við ör- yggi í kjamorkustöðvum og til að endurheimta traust Japana, helstu viðskiptavina Sellafield. Talsmaður Tonys Blairs forsætis- ráðherra viðurkenndi að ástandið væri alvarlegt. „Þetta er óásættanlegt. Enginn segir annað,“ sagði talsmaðurinn. Helen Liddell orkumálaráðherra sagði í viðtali við BBC að falsanirn- ar gætu orðið til þess að gera að engu áform stjórnvalda um að selja 49 prósent í ríkisfyrirtækinu sem á og rekur stöðina í Seflafield. NATO lætur æs- ingamann ekki reka sig burt George Robertson, fram- kvæmdastjóri NATO, sagði í gær að bandalagið léti ekki æs- ingamann frá Belgrad hrekja sig burt frá Kosovo, eins og hann orðaði það svo pent. Hann ítrekaði að hersveitir NATO yrðu áfram í héraðinu til að byggja þar upp mannvænt samfélag. Robertson var með yfirlýsing- um sínum að bregðast við orðum Slobodans Milosevics Júgóslavíu- forseta á fimmtudag um að stjórnvöld í Belgrad ættu að taka við stjóminni í Kosovo. „NATO verður í Kosovo þar til starfinu lýkur. Við erum í Kosovo til að koma á friði og stöðugleika og til að tryggja ör- yggi allra þegnanna,“ sagði Ro- bertson við fréttamenn í Tirana i Albaníu. Dönsk börn eru fákunnandi um Iumhverfismál Dönsk skólaböm vita svo lítið um umhverfismál að staða Dan- merkur sem forystulands á þeim sviðum er í hættu, að sögn | danskra vísindamanna. Þrír af hverjum fjórum nem- I endum í grunnskólum í Dan- mörku svöruðu því einfaldlega neitandi þegar þeir voru spurðir , hvort þeir hefðu fengið einhverja kennslu um umhverfið og vand- : ann sem að því steðjar. IÞannig hljóða niðurstöður rannsóknar sem vísindamenn við danska kennaraháskólann gerðu fyrir samtök danskra líf- fræðinga. Þar kemur einnig fram að aðeins 60 prósent mennta- skólanema hafi fengist við um- hverfísvandamál í skólanum. Liffræðingnum Lisbeth Bering þykir þetta áhyggjuefni, einkum í ljósi þeirra miklu umhverfís- , vandamála sem heimurinn, og þar | með Danir, standa frammi fyrir. Ericsson íhugar aö hafa eftirlit með netflakki Forráðamenn sænska símaris- ans Ericsson íhuga að hafa eftir- lit með tölvupósti og netnotkun | starfsmanna sinna ef þeir telja hættu á misnotkun. „Við áskiljum okkur réttinn til að kanna hvemig starfsmennim- I ir brúka Netið. Við ætlum að upplýsa starfsfólkið betur um hvað eigi við og hvað við viljum að eigi við á þessu sviði,“ segir Lars A. Stálberg, forstöðumaður | upplýsingadeildar Ericsson, í -- viðtali við sænska Aftonbladet. Aðspurður sagði Stálberg að til misnotkunar teldist notkun á Netinu og tölvupósti sem ekki tengdist vinnunni. Umbótamenn í íran bjartsýnir ÍUmbótamenn í íran voru bjart- sýnir á að þeir myndu fara með sigur af hólmi í þingkosningun- um í landinu í gær, sem litið er á sem þjóðarat- Íkvæðagreiðslu um umbóta- stefnu Mo- { hammads Khata- mis forseta. Umbótamenn könn- uðu hug kjósenda við um 100 kjördeildir í höfuðborginni Teheran og samkvæmt því mega þeir eiga von á góðri kosningu. Kjörsókn var svo mikil í gær að kjörfundur var framlengdur um tvær klukkustundir. Góður sigur umbótasinna myndi styrkja umbótastarf forsetans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.