Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2000, Blaðsíða 12
Ekki eina einustu kúlu. Þau eru ekki beint uppörvandi skilaboðin frá írska lýðveldishernum á veggnum í Twinbrooke-hverfi í vesturhluta Belfast sem litla stúlkan gengur fram hjá á leið í og úr skola.
Friðarferliö á Norður-írlandi er í uppnámi eftir að heimastjórnin var leyst upp og IRA hætti þátttöku í afvopnunarviðræöum við alþjóölega nefnd undir forystu kanadísks hershöfðingja.
Friðarferliö á Norður-írlandi enn einu sinni í hættu:
Afvopnun jafngildir
uppgjöf í augum IRA
Gerry Adams var ekki skemmt
þegar hann kom út úr Down-
ingstræti 10 á miðvikudagskvöld.
Leiðtogi Sinn Fein, pólitísks arms
írska lýðveldishersins (IRA), hafði
setið fund með þeim Tony Blair og
Bertie Ahem, forsætisráðherrum
Bretlands og írlands, um friðarferl-
ið á Norður-írlandi.
Forsætisráðherrarnir tveir
ræddu einnig við fulltrúa mótmæl-
enda og hófsamra lýðveldissinna
um leiðir til að reyna að leysa hnút-
inn sem kominn er á friðarviðræð-
urnar. Eftir þriggja tíma fundahöld
þótti ljóst að ekki væri að vænta
skjótrar lausnar. Að minnsta kosti
sá David Trimble, leiðtogi Sam-
bandsflokks Ulster, stærsta flokks
mótmælenda, ekki ástæðu til að
fresta fyrirhugaðri ferð sinni til
Bandaríkjanna þar sem hann verð-
ur í heila viku. Deilendur lýstu þó
allir yfir stuðningi sínum við friðar-
samkomulagið frá 1998 sem kennt
er við föstudaginn langa.
Pólitískt tómarúm
írski lýðveldisherinn lýsti því yf-
ir á þriðjudag að hann væri hættur
öllum viðræðum um afvopnun við
alþjóðlega nefnd undir forystu
kanadíska hershöfðingjans Johns
de Chastelains. Ákvörðunin var
svar IRA við því útspili breskra
stjómvalda á föstudag í fyrri viku
að leysa upp tveggja mánaða gamla
heimastjóm og þing mótmælenda
og kaþólskra á Norður-írlandi, und-
ir forystu Trimbles, vegna tregðu
IRA í afvopnunarmálunum.
Gerry Adams sagði eftir fundinn
með Blair og Ahern á miðvikudags-
kvöld að hættulegt pólitískt tóma-
rúm væri fram undan á Norður-ír-
landi og að hætta gæti stafað af
vopnuðum klofningshópum.
„Stofnanirnar hafa verið rifnar
niður og samkomulagið frá föstu-
deginum langa hefur verið rifið í
tætlur. Ég held ekki að við getum
orðið að liði í afvopnunarmálinu
þegar okkur er hara hafnað og vísað
frá,“ sagði Adams.
Boltinn hjá IRA
David Trimble ítrekaði enn einu
sinni að ekki væri hægt að þoka
friðarferlinu fram
á við nema IRA
byrjaði að láta
vopn sin af hendi.
„Boltinn er hjá
þeim. Við höfum
gert allt sem við
getum. Við teygð-
um okkur of
langt,“ sagði
Trimble á mið-
vikudagskvöld.
Enda þótt hnút-
ur fljúgi milli manna eru litlar lík-
ur taldar á því að írski lýðveldisher-
inn rjúfi fjögurra ára gamalt vopna-
hlé sitt.
„Enginn vill hverfa aftur til tíma
ofbeldisverkanna, staðan hefur
breyst,“ sagði Robin Livingstone,
ritstjóri Andersontown News, dag-
blaðs í Belfast sem þykir hallt und-
ir málstað lýðveldissinna.
Margur kann að spyrja hvers
vegna Irski lýðveldisherinn afhendi
yfirvöldum ekki bara eina byssu-
kúlu, eina byssu eða fullar hjólbör-
ur af vopnun. Það er hins vegar
ekki rétta spumingin, segir Domin-
ic Murray, forstöðumaður rann-
sóknarmiðstöðvar
um frið og þróun-
armál við háskól-
ann í Limerick í
írska lýðveldinu.
„Þetta er skilj-
anleg spurning,
einkum þegar ut-
anaðkomandi bera
hana fram, en hún
sneiðir hjá aðalat-
riöinu," sagði
Murray. „Spurn-
ingin snýst ekki um hvort maður
láti af hendi eitt tonn af vopnum
eða fimmeyringsvirði. Þetta er ekki
spurning um magn heldur grund-
vallaratriði.“
írski lýðveldisherinn lítur svo á
að afvopnun jafngildi uppgjöf. Hann
leggur áherslu á að hann hafi ekki
tapað stríði, hann taki þátt í friðar-
viðræðunum af því að hann kaus að
gera það en var ekki þvingaður til
þess. Og IRA-menn leggja áherslu á
að afvopnunin verði að vera að
þeirra eigin frumkvæði.
Vondu gæjarnir
Brian Feeney, höfundur bókar-
innar Lost Lives þar sem segir frá
þvi mikla mannfalli sem orðið hefur
í þriggja áratuga átökum á Norður-
Irlandi, sagðist skilja hvers vegna
IRA léti vopn sín ekki af hendi, ekki
einu sinni eitthvað lítið, bara til að
sýna lit.
„I þeirra augum væri það til
marks um að þeir væru vondu gæj-
arnir og að barátta þeirra væri ólög-
leg og röng,“ sagði Feeney.
Þegar við bætast gamlar hefðir,
tortryggni, ótti og goðsagnagerð
þjóðarinnar duga engin rök.
Þegar vopn eru annars vegar víl-
ar IRA ekki fyrir sér að eyðileggja
pólitískan frama leiðtoga Sinn Fein
sem virtust njóta þess að sitja í ráð-
herrastólum í hinni nýju heima-
stjórn. Og í febrúarbyrjun viður-
kenndi Gerry Adams að ekki væri
hlaupið að því að fá lýðveldisherinn
Erlent frétta-
Ijós
Þetta eru mennirnir sem heimsbyggöin lítur helst til vegna deilnanna á Norður-írlandi. Þeir eru Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, Bertie Ahern, forsætisráöherra írlands, Gerry Adams, leiötogi Sinn Fein, pólitísks arms írska lýð-
veldishersins, og David Trimble, leiðtogi stærsta flokks mótmælenda.
til að láta vopnin af hendi með
hraði. „Þannig er nú raunveruleik-
inn,“ sagði Adams.
Hvergi í Evrópu er að finna fleiri
vopn en einmitt á Norður-írlandi.
Lögregluþjónar hafast við í skot-
heldum byrgjum, þeir fara í eftir-
litsferðir um götur borga og bæja í
brynvörðum bílum og klæða sig í
skotheld vesti þegar þeir hætta sér
út fótgangandi.
Byssur hafa hvað eftir annað
komið til umræðu og í friðarviðræð-
unum hafa stjórnmálamennirnir
ávallt látið hjá líða að fara fram á
óhagganleg loforð í þeim efnum.
Fullt hús vopna
I friðarsamningnum frá föstudeg-
inum langa 1998 lofuðu fulltrúar
Sinn Fein og annarra flokka sem
höfðu tengsl við skæruliðahópa því
einu að beita „áhrifunum sem þeir
kynnu að hafa til að ljúka mætti af-
vopnun allra vopnaðra hópa innan
tveggja ára.“ Fresturinn rennur út
22. maí næstkomandi.
Vegna leyndarinnar sem hvílir
yfir starfsemi Irska lýðveldishers-
ins er erfitt að meta hversu miklu af
vopnum hann ræður yfir. Breska
fréttastofan Press Association hefur
greint frá því að í vopnabúri IRA sé
að finna þúsundir skammbyssna og
rifHa, rússneskar vélbyssur sem
vinna á brynvörðum bílum og AK-
47 hríðskotabyssur, svo eitthvað sé
nefnt. Að ógleymdu öllu sprengi-
efninu, allt að fjórum tonnum af
Semtexi. Megnið er sagt hafa komið
frá Líbýumönnum snemma á ní-
unda áratugnum en umtalsverðu
magni hefur einnig verið smyglað
frá írum í Bandaríkjunum, skamm-
byssum, vélbyssum og skotfærum
fyrir rifflana sem leyniskytturnar
nota. Vopnin eru falin beggja vegna
írsku landamæranna.
Byggt á BBC, Libération, New
York Times, o.fl.
I