Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2000, Síða 22
Þóra Einarsdóttir óperu-
söngkona hefur unnið mikla
söngsigra í Bretlandi á und-
anfórnum misserum. Hún
syngur þessa dagana eitt að-
alhlutverkið í óperunni
Falstaff eftir Verdi með
hinu virta breska óperu-
félagi Opera North. Það er
sýning sem stórblaðið The
Times segir vera eina þá
bestu í manna minnum í
Bretlandi. Ingólfur Mar-
geirsson hitti Þóru í
Theatre Royal í Nottingham
þar sem óperan hefur verið
sýnd fyrir fullu húsi.
Hún snarast léttstíg, lágvaxin
og grönn inn um þunglamalegar
dyrnar á Konunglega leikhúsinu í
Nottingham og stígur inn í and-
dyrið þar sem við höfum mælt
okkur mót. Þóra Einarsdóttir er
aðeins 28 ára en er þegar komin í
fremstu röð íslenskra söngkvenna
og á góðri leið að hasla sér völl
sem þekkt óperusöngkona í Bret-
landi og á meginlandi Evrópu.
Undanfamar vikur hefur Þóra
sungið eitt af aðalhlutverkunum í
hinstu óperu Verdis, Falstaff, sem
hið unga en virta óperufélag
Opera North hefur sett á svið. Sýn-
ingar hafa verið haldnar víða, m.a.
í Leeds, Newcastle og Manchester.
Uppsetningin og söngvararnir
hafa fengið einróma lof gagn-
rýnenda sem áhorfenda og óperu-
gagnrýn-
andi breska
stórblaðs-
ins The
Times sagði
einfaldlega
að þetta
væri ein
besta sýn-
ing sem
hann hefði
nokkurn
tímann séð.
„Þetta er
yndislegt
fólk og frá-
bærir
söngvarar
og það er
stórkostlegt
að fá að
vinna með
þeim,“ seg-
ir Þóra þeg-
ar við höf-
um sest
niður í víð-
feðmri
kaffistofu
leikhúss-
ins. Dauf
síðdegissól
vetrarins
lýsir upp
salinn. Það
eru aðeins
nokkrir
klukkutím-
ar í aö Þóra
standi á aðalsviði hússins og syngi
og leiki hlutverk Nanettu. Hún
virðist algjörlega afslöppuð og
kvíðalaus fyrir sýningunni og
heldur áfram aö tala um með-
söngvara sína af hlýju og heillandi
útgeislun. „Það er alveg sérstak-
lega gaman að vinna með Dame
Josephine Barstow," heldur Þóra
áfram. „Hún er búin að vera að
syngja stanslaust síðan 1965, mest
í Bretlandi en reyndar um allan
heim. Hún er orðin sextug en er
enn í toppformi og hefur mikið að
gefa. Það hefur enn fremur náðst
einstaklega góður samsöngur i
þessari sýningu og þaö er auðvitað
einnig mjög hvetjandi."
Opera North - óperufélag í
fremstu röð breskrar
menningar
Þóra hefur orðið talsverða
reynslu af þvi að vinna með þekkt-
um listamönnum víða um Evrópu.
Allt frá því að hún útskrifaðist úr
tónlistar- og leikhússkólanum
Guildhall School of Music and
Drama i London, (sami skóli og
einkakennari - Laura Sarti - og
Diddú nam hjá) hefur hún sungið
með þekktum aðilum eins og
Glyndbourne Festival Opera, ENO
og Opera Factory. Þóra söng ný-
verið hlutverk Luciu í The Rape of
Lucretia með Music Theatre
Wales, aðalhlutverkið í Dóttir her-
deildarinnar eftir Donizetti með
Óperunni í Málmey í Svíþjóð og
hefur haldið hljómleika með Út-
varpskórnum (Rundfunkchor) í
Berlín. Þá er Þóra þekkt heima á
íslandi, bæði fyrir söng sinn í Is-
lensku Óperunni og tónleika sem
hún hefur haldið.
Opera North er
talið hugmynda-
rikasta óperufélag
í Evrópu. Það hef-
ur notað ýmsar
framfaras innaðar
aðferðir til að
hasla sér völl, m.a.
víðfeðmt og sterkt
net styrktaraðila,
litla yfirbyggingu,
tíðar gestasýning-
ar um allt Bret-
land og fáa fast-
ráðna starfsmenn
(165 manns sem
teljast fáir í Bret-
landi miðað við umfang og sýning-
ar óperunnar) en leggur mikla
áherslu á úrvalsgestasöngvara
hvaðanæva úr heiminum. í fyrra
sáu um 200 þúsund leikhúsgestir
sýningar hjá Opera North og félag-
iö hefur á undanförnum árum
hlotið fjölda verðlauna og viður-
kenninga í Bretlandi og er talið í
fremstu röð breskrar samtíma-
menningar. Að fá að syngja aöal-
hlutverk með Opera North er mik-
il upphefð og viðurkenning.
Hörð barátta að komast á
toppinn
Þetta er í annað skipti sem Þóra
syngur með Opera North - áður
var hún ráðin til að syngja þar
hlutverk í nútímaóperunni „The
Nightingale’s to Blame“ eftir
breska tónskáldið Simon Holt.
Og það er margt á döflnni hjá
Þóru sem hún vill ekki enn ræða
um: „Fullt af skemmtilegum verk-
efnum sem ekki er hægt að segja
frá að svo stöddu," segir Þóra og
hlær. En hún upplýsir þó að hún
sé senn á leiðinni til íslands til að
syngja með drengjakór Laugames-
kirkju en kórinn á 10 ára afmæli í
ár og mun halda upp á það með
glæsilegum tónleikum í Langholts-
kirkju í marsmánuði nk.
Baráttan er hörð meðal góðra
listamanna í hinum stóra heimi:
Það eru margir kallaðir en fáir út-
valdir. Þóra er þegar komin lang-
leiðina í raðir fremstu sópransöng-
kvenna í Bretlandi og þótt víðar
væri leitað. En hvaöa kosti þarf
söngkona að hafa til að bera til að
komast meöal hinna bestu erlend-
is?
Þóra hugsar sig aðeins um og
segir svo: „Það þarf margt. í fyrsta
lagi þarf að vera pottþéttur söngv-
ari - fyrsta flokks söngvari. í öðru
lagi þarf aö passa í viðkomandi
hlutverk og hafa þá líkamlegu
burði sem hlutverkið krefst. í
þriðja lagi þarf að vera góður á
sviði, músíkalskur og heppinn -
vera á réttum stað á réttum tíma.
Og ef maður er ekki á réftum stað
þarf að leita að tækifærunum í
stað þess að bíða heima eftir að
þau komi upp í hendurnar á
manni."
samnmga
Talið berst að þeirri staðreynd
að hinn alþjóðlegi söngheimur er
fullur af góðum söngvurum - frá-
Þóra sem Nanetta í Falstaff eftir
Verdi ásamt breska söngvaranum
Wynne Evans sem syngur hlutverk
Fentons í sýningunni. Um þessa
sýningu sagði Rodney Milnes,
óperugagnrýnandi breska stór-
blaðsins The Times m.a.:.....ég
man fáar uppfærslur sem voru eins
og þessi - hér var heiðarleiki á
ferðinni, hvergi tilgerðarleiki eða
ærsl í sýningunni og hún sendi mig
að lokum út í kuldann og rigning-
una með það í huga að lífið sé
þess virði að lifa því þrátt fyrir allt.
Hvílík hlýja, hvílík viska, hvílíkur
tær mannleiki... ekki veikur hlekk-
ur... fyrsta flokks söngvarar sern
vinna saman af slíkri nákvæmni að
uppfærslan verður svo góð að
maður tekur vart eftir því að um
uppfærslu sé að ræða - meira hól
get ég ekki gefið einni sýningu."
Þóra Einarsdóttir er að komast í fremstu röð sópransöngv-
ara í Bretlandi. Til þess þarf marga kosti. Þóra segir að
maður þurfi ekki aðeins að vera pottþéttur söngvari og
passa í viðkomandi hlutverk. „Maður þarf einnig að vera
góður á sviði, músíkalskur og heppinn - vera á réttum stað
á réttum tíma.“
Þóra Einarsdóttir er aöeins 28 ára
en er þegar komin í fremstu röö ís-
lenskra söngkvenna og á góöri leiö
aö hasla sér völl sem þekkt óperu-
söngkona í Bretlandi og á megin-
landi Evrópu.
um vefinn
Vappaðu