Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2000, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2000, Qupperneq 23
r 20' %; LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 VÍðtdl 23 „Óperusöngur er lifibrauðið - en mig langar mest þessa stundina að einbeita mér meira að Ijóðasöng, óratorí- um og plötuupptökum," seg- ir Þóra. bærum söngvurum sem enn eru óþekktir og flestir þeirra verða alltaf óþekktir en fáir verða heims- frægir og á hvers manns vörum - þótt þeir séu ekkert miklu betri en hinir óþekktu. Þóra veltir vöngum andartak og segir síðan: „Söngvarar sem aliir þekkja eru söngvarar sem hafa mjög góða samninga við plötufyr- irtækin. Og það er plötufyrirtækj- unum í vil að auglýsa fáa söngv- ara. Þannig ná þau auðveldar markaði en að hampa mörgum nöfnum sem rugla vitund almenn- ings. Það er aldrei rými fyrir margar stjörnur í sömu grein. Þess vegna getur það verið slembi- lukka að detta i þann lukkupott að komast á góðan plötusamning. Þvi það getur þýtt að viðkomandi söngvari sé auglýstur upp í topp. Og stóru, alþjóðlegu plötufyrirtæk- in eru með risavaxna maskínu sem sér um að gera söngvarann heimsfrægan - þó það séu margir söngvarar sem eru alveg jafngóðir en enginn fær nokkum tímann aö frétta af. Þetta er fyrst og fremst markaðssetning: Þegar frægðinni er náð hjálpar hún söngvara til að viðhalda frægðinni." Syngjandi hjón sem bíða enn með barneignir Þóra er gift söngvaranum Birni Jónssyni. Hann er nú ráðinn við óperuna I Málmey í Sviþjóð. Þau hafa stundum sungið saman eins og nýlega í Málmey en eru öðrum stundum aðskilin. Eru þetta nauð- synlegar fórnir sem listin krefst? „Þar sem maðurinn minn er líka söngvari þá erum við á sama báti hvað vinnuna varðar. Og við höfum sama skilning á þvi hvers vinnan krefst og að fjölskyldulíf verði stundum að víkja. Það koma tímar sem við sjáumst ekki. Þess á milli erum við langtímum saman og við höfum verið heppin og feng- ið að syngja saman - eins og í vet- ur þegar við sungum í Málmey. Ég myndi ekki segja að fjölskyldulífið liði fyrir vinnuna, fremur að það gerði lif okkar beggja innihalds- rikara og meira spennandi. En við erum enn bamlaus, og sennilega yrði líf okkar meira krefjandi ef börn kæmu til sögunnar. Þá breyt- ist lífið auðvitað. Það er ailt í lagi að biða enn aðeins með bameign- ir,“ segir Þóra og hlær - og bætir við: „Ég er allavega enn þá ung.“ us? „Jú,“ svarar hún brosandi, „ það er lúxus.“ Svo bætir hún við ögn alvar- legri: „Það var skrýtin tilfinn- ing fyrst að hafna tiiboði. Maður vill auð- vitað geta gert allt og er hrædd- ur við að hafa ekki valið rétt.“ En hvað skyldi Þóru al- mennt langa mest til að fást við í framtíð- inni? „Mig lang- ar til að leggja meiri stund á ljóðasöng, ein- beita mér að upp- tökum og gefa út disk. Það hefur einfaldiega verið svo mikiö að gera hjá mér að undanförnu að ég hef ekki haft almennilegan Farin að hafna hlutverkum Þóra er enn ekki komin á stóran plötusamning - en þrátt fyrir ung- an aldm- er hún komin á eftirsótt stig í tónlistarheiminum: Að geta valið úr hlutverkum og blandað saman óperusöng, konsertum og ýmsum söngverkefnum. Ég spyr hana hvort hún sé farin að hafna hlutverkum? „Já,“ segir hún og skellihlær, „ég hef þurft að hafna þónokkrum hlutverkum. Það er nú stundum þannig að tilboðin virðast stund- um koma á sama tíma.“ Ke snvr hvnrt hað só ekki lúx- Stórfengleg sýning á Falstaff „Mig langar til að leggja meiri stund á Ijóðasöng, einbeita mér að upptökum og gefa út disk. Það hefur einfaldlega verið svo mikið að gera hjá mér að undanförnu að ég hef ekki haft al- mennilegan tíma til að einbeita mér að þessum verkefnum. tíma til að einbeita mér að þessum verkefnum. Mig langar einnig til að syngja meira af óratóríum. Lifi- brauð mitt er auðvitað að syngja í óperum. En að geta sungið ljóða- tónleika er auðvitað lúxus sem ég fæ mikið út úr sjálf. En mér finnst alltaf skemmtilegast það verkefni sem ég er að fást við hverju sinni,“ segir Þóra og brosir sínu geislandi brosi. Það er tekið að rökkva og stytt- ist í sýningu á Falstaff. Þóra und- irbýr mig fyrir sýninguna; ræðir um söguþráðinn, tónlistina og seg- ir mér frá æfingum á óperunni sem hún áréttar að sé að jöfnu leikrit sem ópera enda gerð eftir tveimur leikritum Shakspeares - The Merry Wives of Windsor og Henry IV - þar sem hinn aldni og ölkæri kvennabósi og hermaður Falstaff fær makleg málagjöld frá konum sem hann hyggst draga samtím- is á tálar. Þóra dásamar bandaríska stjómandann Steven Sloane sem enska leikstjórann Matthew Warchus og segir allt starfsliðið í heild hafa ver- ið stórkostlegt. Síðar um kvöldið, þegar ég sit í yfir- fullu leikhúsinu og horfi á Þóru og hið magnaða lið söngvara og leik- ara á sviðinu, sem og hina frá- bæru hljómsveit sem reyndar hef- ur innanborðs unga íslenska konu, víóluleikarann Móeiði Sigurðardóttur - er mér ljóst hvað gagnrýnandi The Times átti við. Þetta er skemmtilegasta og besta óperusýning sem ég hef séð um ævina - og ég verð að játa það sem gerist ekki allt of oft núorðið - ég var stoltur af því að vera íslend- ingur þetta kvöld. WAP er glæný tækni þar sem hægt er að tengjast Netinu í gegnum GSM-símann. íslandsbanki hefur fleiri virkar aðgerðir fyrir vefsíma en nokkur annar banki. ÍSLANDSBANKI www.isbank.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.