Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2000, Blaðsíða 25
JLlV LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000
25
veiðivon
Árshátíð Stangaveiðifálagsins:
Gull- og silfurflugan fyrir 10 kg lax
Hún var fjörleg og fjölmenn árshá-
tíð Stangaveiðifélags Reykjavíkur um
síðustu helgi og voru þar veitt verð-
laun fyrir stærstu laxana síðasta sum-
ar í veiðiám félagsins. Við skulum
kíkja aðeins á hverjir fengu verðlaun-
in.
Afreksbikar kvenna er til eignar og
er gefinn af Prentsmiðjunni Litrófi, út-
gefanda Stangaveiðiárbókarinnar, og
er veittur þeirri konu sem veiðir
stærsta laxinn á flugu. Bikarinn fékk
María Anna Clausen fyrir 7,4 kg hæng
sem hún veiddi á fluguna Maríu á
Stokkhylsbrotinu í Norðurá í júní. En
flugu þessa hnýtti Kristján Guðjóns-
son, formaður Stangaveiðifélag
Reykjavíkur.
Skóstofubikarinn er gefmn af Skó-
stofunni Dunhaga og er veittur þeirri
konu sem veiðir stærsta laxinn. Odd-
ný Elín Magnadóttir fékk þennan bik-
ar fyrir 9 kg hæng sem hún veiddi á
iðunni í Stóru Laxá á svæði þrjú á
maðk í júlí. Útilifsbikarinn er gefinn
af versluninni Útilifi og veittur þeim
veiðimanni sem veiðir stærsta laxinn
á flugu í Elliðaánum. Ásmundur Krist-
insson fékk þennan bikar fyrir 4,2 kg
hæng sem hann veiddi í teljarastreng,
á eðal-flugna-Monicu í ágúst.
Norðurárbikarinn er gefinn af kaffi-
húsinu Mílanó og er veittur þeim sem
veiðir stærsta laxinn á flugu í Norð-
urá. En Viðar Daníelsson veiddi i júlí
8,7 kg hæng á bryggjunum í Norðurá á
svarta franses. Ron Thompson-styttan
er gefm af versluninni Veiðihominu
og er það í fyrsta sinn. Hún er veitt
þeim veiðimanni sem veiðir stærsta
laxinn á flugu i Stóru-Laxá í Hreppum.
En í júlí veiddi Hlöðver Már Brynjars-
son 10 kg hæng á Hólmabreiðu á
svæði fjögur á fluguna Mary Mary
númer 8. En fyrir þennan lax hlaut
Hlöðver líka Gull- og silfurfluguna,
sem núna var afhent í 19. sinn. „Þetta
var í 19. skipti sem við afhentum Gull-
og silfurfluguna, ég er viku að vinna
svona flugu og manni finnst vera kom-
in hefð fyrir henni,“ sagði Sigurður G.
Steinþórsson gullsmiður rétt eftir að
hann afhenti Hlöðver fluguna.
Gull- og silfmflugan er metin á um
200 þúsund og alls ekki fluga sem
nokkur maður myndi kasta fyrir laxa
í veiðiánum.
Veiðivonarbikarinn er gefinn af
versluninni Veiðivon og er veittur
þeim sem veiðir stærsta laxinn á flugu
í Soginu. Runólfur Maack veiddi I
ágúst 9 kg hrygnu á Landaklöpp fyrir
landi Syðri-Brúar á rauða franses.
Cortlandsbikarinn er gefinn af Sport-
vörugerðinni þeim sem veiðir stærsta
laxinn á flugu í Hítará á Mýrum. Stór-
laxbaninn Viðar Daníelsson veiddi 7,5
kg hæng á svarta franses í Kverkinni
í júlí. Viðar fékk því tvo bikara á þess-
ari árshátíð.
ABU-CARCIA-bikarinn er gefinn af
ABU-umboðinu og er veittur þeim sem
veiðir stærsta fiskinn á leyfilegt agn í
Tungufljóti. Ingibjörg Hafsteinsdóttir
veiddi í september 7,5 kg sjóbirting i
Festarfor í Tungufljóti á fluguna
Snældu.
Vesturrastarbikarinn er gefinn af
versluninni Vesturröst og er veittur
þeim sem veiðir stærsta laxinn á
veiðisvæðum Stangaveiðifélagsins.
Halldór Ólafsson hlaut þennan bikar
fyrir 10 kg hæng sem hann veiddi í
Ósatanga í Stóru-Laxá á svæði eitt og
tvö á maðk í september.
Hlööver Már Brynjarsson tekur við
Ron Thompson-styttunni en hann
hlaut líka Gull- og silfurfluguna fyrir
10 kg lax í Stóru-Laxá í Hreppum.
Verölaunahafar meö verölaunin sem veitt voru fyrir stærstu laxana í veiðiám Stangaveiöifélagsins. DV-myndir Hari
Vandaðar, fallegar.
Ótrúlega hagstætt verð.
-MIKIÐÚRVAL-
PFAFF
cHemiilisUekjaierslim
Grensásvegur 13 -108 Reykjavík - Sími 533 2222
omba Evrópu:
| www.evropa.is [
Ford Ranger crew cab. XL.skr. 10/99,
ek. 3 þús. km.
Vel búinn bill m/plasthúsi
Verð kr. 2.490.000,
áhvílandi hagstætt bílalán.
Toyota Landcruiser VXdísil
turbo.skr. 12/98,
ek. 9 þús. km.rafdr. + leður.
Verð kr. 3.580.000.
Nissan Patrol GRdísil turbo,
skr. ‘98, ek. 41 þús. km.allt rafdr.,
leður o.m.fl.
Verð kr. 3.790.000,
skipti möguleg á ódýrari.
Subaru LegacyGL 2,0 Wagon,
skr. 10/99, ek. 6 þús. km.
Verð kr. 2.250.000,
áhvílandi hagstætt bílalán.
Mætum snjó og ófærð
með sölusýningu
á nýjum og notuðum
fjórhjóladrifsbílum.
EVRÓPA
,TÁKN UM TRAUST '
Faxafen 8
Sími 581 1560
Fax 581 1566