Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2000, Síða 29
Nítjánda Bridgehátíð Flugleiða,
BSÍ og BR hófst í gær með því að
forseti Alþingis, Halldór Blöndal,
setti hátíðina. Mjög góð þátttaka er
en 130 pör eru í tvímenningskeppn-
inni og 80 sveitir.
Auk þeirra gesta sem frá var sagt
í síðasta þætti koma gestir víðs veg-
ar að úr heiminum á eigin vegum, s.
s. Bandaríkjunum, Noregi og Fær-
eyjum. Einnig kemur bridgefólk
viðs vegar að af landinu. Hinn nýi
landsliðseinvaldur, Guðmundur
Páll Arnarson, mun áreiðanlega
hyggja gott til glóðarinnar og fylgj-
ast með nýjum og gömlum lands-
liðsefnum. Áætlað er að velja lands-
liðið í fyrstu viku marsmánaðar.
Tvímenningskeppnin hófst i gær-
kvöld og er henni framhaldið í dag
en lýkur í kvöld, um kl. 19,30.
Áhugamenn um góðan bridge ættu
ekki að láta þetta tækifæri ónotað
og líta inn á Hótel Loftleiöum um
helgina og á mánudaginn. Góð að-
staða er fyrir áhorfendur og verða
valdir leikir sýndir á sýningartöflu.
Einnig verður hægt að fylgjast með
stöðunni á textavarpinu, siðu 326,
svo og heimasiðu BSÍ. Sænska
landsliðið, sem spilar á Bridgehátíð
2000, hafnaði í öðru sæti á Evrópu-
mótinu á Möltu í fyrra. Þeir félagar,
Gullberg og Anderson, stóðu sig frá-
bærlega og við skulum fylgjast með
þeim í vörninni í spilinu í dag.
A/Allir
* D7
«* A732
4 KG62
* AG10
* G965
V K96
* A9743
* D
* 1043
1054
* 5
* 865432
* AK82
«* DG8
•f D108
* K97
Með Gullberg og Andersen í a-v
gengu sagnir á þessa leið:
Austur Suður Vestur Noröur
Pass 1 grand pass 3 **
Pass 3 4 pass 4 4
Pass pass pass
*Þriggja lita hönd með stuttu laufi
Anderson fann magnað útspil
þegar hann lagði af stað með
spaðasjö. Sagnhafí lét
lítið úr blindum og drap
tíu austurs með ásnum.
Síðan spilaði hann tígli
á ás, spaðagosa og varð
nokkuð hissa þegar
Anderson drap á drottn-
inguna. Hann tók síðan
Bridge
Stefán Gudjohnsen
laufás, tígulkóng og gaf
Gullberg tígulstungu.
Það voru tveir niður og
13 impa gróði.
Á hinu borðinu voru
einnig spilaðir fjórir
spaðar og vestur hitti
líka á að trompa út. Það
var hins vegar drottn-
ingin og sagnhafi var
ekki í vandræðum með
að vinna spilið
Frá bridgehátfö í fyrra.
Það er eitthvað meira við Mégane Break
Grjótháls 1
Sími 575 1200
Söludeild 575 1220
Mégane Break Grand Comfort
Break hefur nú aukið forskotið. Hann státar ekki aðeins af
meiri öryggis- og þægindabúnaði og stærra farangursrými
en aðrir skutbílar í sama flokki heldur fæst nú í sérstakri
Grand Comfort útgáfu; enn betur búinn.
Komdu og prófaðu stærri og betur búinn bíl.
RENAULT