Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2000, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2000, Blaðsíða 31
UV LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000 helgarviðtalið «< fyrir umhverfismati fyrir kosningar en skipti svo strax um skoðun. Þetta og margt fleira sýnir á dapurlegan hátt að ísland er auðvitað hálfgert bananalýðveldi og þetta er ekki sú ímynd sem ég veit að við viljum hafa á alþjóðavettvangi. Það er merkilegt að það eru aðeins tveir Sjálf- stæðisþingmenn sem hafa kjark til að vera á móti flokknum i málinu og þau eru bæði læknar. Það er sennilega vegna þess að þau eiga starfsferil utan þingsins og eru í stjómmálum af hugsjón." Fríðrík hríngdi í fjölmiðia Því hefur verið haldið fram að þú hafir boðið Landsvirkjun aðstoð við að styrkja ímynd sina í umhverfismálum með því að bjóða þeim að styrkja Græna herinn. Er þetta rétt? „Það er al- veg rétt að ég bauð Friðriki Sophussyni og Lands- virkjun samstarf við Græna herinn til land- græðsluátaks. Fyrir það skyldi Landsvirkjun greiða eina milljón tO Ríkissjónvarpsins til að kosta gerð kynningarþátta um verkefhið. Af þessu varð ekki og íslandsflug greiddi Rikissjón- varpinu í staðinn. Friðrik sá hinsvegar ástæðu til að hringja i fréttamenn á Stöð 2 og segja þeim frá þessu til þess að reyna koma höggi á undirskrifta- söfnunina og mig persónufega. Þessi framkoma hans er í nokkm samræmi við önnur kynni sem ég hef afhonum.“ Jakob vísar þama tif þess þegar hann var árið 1991 að berjast fyrir hagsmunum tónlistarmanna og vildi fá stjómvöld til að fella niður virðisauka- skatt af tónlistarflutningi og plötusölu. Meðal hörðustu stuðningsmanna þessa máls í þinginu var einmitt Friðrik Sophusson. í stóran hríng á móti sól „Hann barðist eins og ljón og fékk alla Sjálf- stæðisþingmenn til að styöja málið. Það hfjóp síð- an kengur í afgreiðslu þess á síðustu stigum þeg- ar Ólafur Þórðarson framsóknarmaður vildi tengja það undanþágu fyrir flotgalla. „Frestun á sigri“ hugsuðum við og töldum að við ættum stuðning Friðriks vísan og eftir kosn- ingar þegar hann var orðinn fiármálaráðherra gengu fulltrúar okkar á hans fund og vildu taka málið upp að nýju. Þá hafði Friðrik algerlega skipt um skoðun og vildi ekkert tala við tónlistar- menn, þá né síðar. Þegar Friðrik kaflaði Umhverfisvini á sinn fund upp í Landsvirkjun var það einungis til að færa fram þau rök að með þessari virkjun og byggingu álvers værum við íslendingar að forða öðrum þjóðum frá því að menga náttúru sína með því að framleiða ál hér með vatnsorku. Þetta fannst okkur skrýtin ræða eins og reyndar flest í máiflutningi virkjunarsinna sem virðist skorta öll haldbær rök í þessu stóra og erfiða máli.“ Á krossgötum Það má segja að Jakob standi á krossgötum þar sem þessu verkefni er lokið, stærstu hljómleika- ferð Stuðmanna og Græna hersins lauk með alda- mótahátíð í Laugardalshöll og Jakob er nýkom- inn frá Indlandi þar sem hann vinnur að stóru tækniverkefni með íslenskum, breskum og ind- verskum aðilum og hyggst hann helga starfs- krafta sína því verkefhi að miklu leyti næstu misseri. En hvað verður þá um Stuðmenn, eru þeir eilífir? „Okkur hafði lengi langað til að ljúka öldinni með miklum stæl og ég tel að með tón- leikaferð okkar um landið og verkefiiinu um Græna herinn sem við hrintum í framkvæmd hafi okkur tekist það. Þessi rúmlega 30 ára gamla hljómsveit verður til meðan við lifum en á nýrri öld mun hún koma fram með breyttar áherslur." Þau voru músikalskt par e Um aldamótin, eða síðustu áramót varð það einnig heyrinkunnugt að Jakob og sambýliskona hans og félagi í listinni til 17 ára, Ragnhildur Gísla- dóttir, hefðu ákveðið að slíta samvist- um. Þar stendur Jakob einnig á kross- götum. „Þetta átti sér aðdraganda langt á ' annað ár. Við höfum löngum stundum verið aðskilin og höfum vaxið hvort frá öðru. Við höfúm vaxið í sundur sem hjón og elskendur og ákváðum að stíga þetta skref í þeirri von að það myndi engu breyta um vinskap okkar eða samstarf. Flestir setja samasem- merki milli skilnaðar og mikilla harm- kvæla en hér hafa önnur lögmál ráðið ferðinni. ^ Við lifum einfaldlega á þeim tímum að í samanburði við afa og ömmu upp- lifir nútímamaðurinn 3-4 æviskeið. Við breytum um störf, búsetu, maka og viðhorf ef líf okkar krefst þess. Við sendum fiölskyldum okkar og nokkrum nánum vinum bréf um þessa ákvörðun í kringum áramótin til þess að þau vissu það rétta í málinu. Við settum okkur eina þumalfing- ursreglu í þessu og það var að standa að því með þeim hætti að bamið okk- ar bæri ekki af því neinn skaða. Ég vona að það takist.“ Ekki þykjustuleikur eða tilfinningaskylda Margir telja að skapandi listamenn geti ekki búið saman án þess að skyggja hver á annan. Á það viö um ykkar hjónaband og lok þess? „List- sköpun er í eðli sínu einstaklings- hyggja og listamaðurinn verður að vera hann sjálfur og trúr sinni list en ekki þóknast öðrum. í langvarandi og náinni sambúð geta myndast mynstur sem eru ekki endilega holl eða æskileg fyrir annars sjálfstætt og skapandi fólk. Við þessu verður að bregðast á heiðarlegan hátt. Fólk á að vera hreinskilið við sjálft •'* sig og aðra. Hjónaband á ekki að vera þykjustuleikur eða tilfmningaskylda. Væntumþykja og vinátta er eitt en ástríða og spennandi samband er ann- að og það er það sem alla dreymir um. Ragnhildur er einstakt hæfileikafyrir- brigði og ég hef alltaf trúað á hennar listrænu hæfileika frá því ég kynntist henni fyrst og mun vonandi sjá þá blómstra í framtíðinni. Ég mun eftir sem áður reyna að styðja hana og hvetja til dáða.“ Finnst þér erfitt að vita af þvi að al- menningur þekki einkamál ykkar af þessu tagi? „Sem betur fer er ekki hefð fyrir því að fiölmiðlar fialli hér um einkalíf fólks með þeim hætti sem tíðkast er- w lendis. En almannarómur er afar virk- ur í litlu samfélagi eins og þessu og þegar þjóðþekktir einstaklingar eiga í hlut spyijast hlutimir eðlilega og óhjá- kvæmilega út.“ Hvernig skyldi svo framtíðin horfa við Jakobi? „21. öldin er öld nýrra gilda, nýrra viðhorfa og viðmiðana. Síð- asta öld var öld ótrúlegra framfara og tæknibyltinga og efnahagslegra bóta a.m.k. á Vesturlöndum.Við Vesturlandabúar þurfum líka að taka alvarlega til endurskoðunar margt af því sem mætti flokka undir -4 hliðarverkanir tækninýjunga, iðn- byltingarinnar og þess sem fylgdi í kjölfarið. Með það i huga ber okkur skylda til þess að varðveita hrein- leika íslenskrar náttúru og vinna markvisst að útrýmingu mengunar af öllu tagi. Við getum, ef við viljum, verið öðrum þjóðum fyrirmynd á svo mörgum sviðum." -PÁÁ - \ “Vió höfum vaxið í sundur sem hjón og elskend- ur og ákváöum að stíga þetta skref í þeirri von að það myndi engu breyta um vinskap okkar eða samstarf. Flestir setja samasemmerki milli skilnaðar og mikilla harmkvæla en hér hafa önn- ur lögmál ráðið ferðinni.“ DV myndir Teitur V
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.