Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2000, Qupperneq 35
LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000
47
leiðindi
I
1
i
l
I
l
:
„Veika konan“ er þekkt leiðindatýpa. Ef þú ert sérlega óheppinn þá fer hún
gefa þér skýrsiu um hægðir sínar í nútíð og fortíð.
er bara tímaeyðsla. Láttu hann frek-
ar masa og haltu honum gangandi
með nýjum og nýjum spumingum.
Þá verður frásögnin smátt og smátt
að umhverfishávaða, ems og suði í
flúrljósum, sem er vissulega pirr-
andi en hægt að leiða hjá sér.
Sniðuga barnið
Sniðuga barnið er á aldrinum 4-6
ára og foreldrum þess fmnst þaö svo
óbærilega sniðugt og elskulegt að
þeim ílnnst að allir hljóti að deila
þeirri skoðun með þeim. Þess vegna
er barninu sigað á alla sem koma i
færi við það. Það er látið tala við
fólk í belg og biðu, segja því frá deg-
inum á leikskólanum eða heimsókn-
inni í sveitina eða afa og ömmu.
Bamið sýnir þér teikningamar sín-
ar, vill fá þig til að leika við sig og
sérlega leiðinleg útgáfa af þessu
bami spyr þig í þaula um alls kon-
ar óþægilega hluti meðan foreldr-
amir sitja hjá flissandi af ánægju.
Við þessu er fátt að gera nema
sýna baminu einhverja þá hegðun
sem hræðir það beinlínis og það er
ekki hægt að mæla með því. Þess
vegna verður maður að umbera
með frosnu brosi kámuga fingur,
sleftauma og hávært barnamál
þangað til foreldramir gefast upp og
skella grislingnum í rúmið.
Gamalmennið í
fortíðinni
Gamalt fólk er yfirleitt geðþekkt
en þó er til alveg sérlega leiðinleg
útgáfa af því. Það er gamalmennið
sem liflr algerlega í fortíðinni og
fmnst að það hljóti að vera alveg
sérlega merkilegt af því það man
eftir torfbæjum, sjónvarpsleysi, haf-
ís, heimsstyrjöld og hestvögnum.
Því finnst
það vera skylda
sín að segja öll-
um sem það
kemst í tæri við
frá barnæsku
sinni í smáat-
riðum eins og
það sé einhver
merkilegasta
sagnfræðiupp-
götvun seinni
tíma. Á því sem
gerðist eftir að
hlutir eins og
hitaveita og raf-
magn komu
hefur það eng-
an áhuga. Það
sem ekki gerð-
ist í myrkum
torfbær er ekki
merkilegt og
það fyrirlítur
ungu kynslóð-
ina sem hefur
það svo andstyggilega gott og hefur
aldrei þurft að hafa fyrir neinu.
Þaö er í besta falli hægt að
skemmta sér við að slíta þráðinn í
frásögn þess aldraða og sjá í hvaða
króka þulan getur þvælst.' Þetta
verður best gert með snöggum
spumingum um næstum óskyld
efni en ef menn hafa ekki brjóst í
sér til að gera þetta þá verða þeir
bara að hlusta.
Leiðinlegar aðstæður
Það má segja með talsverðum
rétti að öll leiðindi séu hugarástand.
Af því leiðir að við ættum að geta
haft það í hendi okkar, eða huga,
hvort okkur leiðist raunverulega
eða ekki. Þetta er ekki svona einfalt
því utanaðkomandi áreiti getur
hæglega truflað okkur við að telja
kindur eða reikna lógaritma í hug-
anum eða hvað það er sem við ger-
um þegar okkur leiðist.
En sumar aðstæður fela í sér ein-
hvers konar innilokun, samfara
leiðinlegum aðstæðum, og þá getur
verið gott að grípa til einhverra
ráða til að stytta sér stundir.
Flugvélaleiðindi
Að sitja samankrepptur í stórri
málmdós í óþægilegri hæð, étandi
margupphitaðan mat sem bragðast
eins og barnamatur, horfandi á
mynd sem var á Stöð 2 í fyrra, upp-
fyllir skilgreiningu margra á leið-
indum - sérstaklega þegar þetta var-
ir í að minnsta kosti 3-4 tíma eða
þaðan af lengur. Ef maður er svo
sérlega óheppinn þá situr íslenskur
braskari á heimleið af vel heppn-
aðri pípulagningaráðstefnu við hlið-
ina á manni eða málgefinn Amerik-
ani eða kona með ofvaxið smábarn
sem hún getur varla setið með, eða
einhver sem hrýtur. Þarna er rnikið
svigrúm fyrir leiðindi og fáar und-
ankomuleiðir.
Skásta ráðið er
sennilega að gera
sér upp ofnæmi
fyrir ilmvatni
eða barnamat og
reyna að fá sig
fluttan eða hella
sig fullan og
hlusta á pípar-
ann eða Amerík-
anann.
Fermingar-
leiðindi
Af einhverjum
ástæðum hafa
fermingarveislur
verra orð á sér
fyrir leiðindi en
aðrar félagslegar
samkomur. Þetta
getur verið af
ýmsum ástæðum.
Flestum fmnst
„hin fjölskyldan" leiðinleg, flestum
finnst kaffi og majones fara illa
saman í maga, flestir eiga slæmar
minningar frá eigin fermingaraldri
og fmnst heldur mikið að borga
ígildi 5-7 þúsund króna til að taka í
sveittan spaðann á fermingarbami,
borða kransaköku og drekka of mik-
ið kaffl.
í rauninni eru fermingarveislur
ekkert miklu leiðinlegri en venjuleg
kokkteilboð. Kokkteilboðin hafa
vinninginn því þar er veitt vín sem
virðist vera harðbannað í ferming-
arveislum. Þeir sem leiðast ferming-
arveislur ættu auðvitað að gera sér
upp veikindi til þess að þurfa ekki
að mæta eða neita því alfarið. Neyð-
ist menn til að fara er hægt að leita
uppi afvikinn stað á heimilinu og
fela sig. Einhvers staðar í húsinu
finnst örugglega sjónvarp sem aðrir
álíka leiðir gestir eru að horfa á eða
bókahilla sem hægt er að setjast í
skjól við og blaða í reyfurum.
Gamalt fólk er yfirleitt geðþekkt en
þó er til alveg sérlega leiöinleg út-
gáfa af því.
Erfiðasta tegund leiöinda sem til er eru prívat og personuleg leiöindi.
Einkaleiðindi
Erflðasta tegund leiðinda sem til
er eru prívat og persónuleg leiðindi.
Þetta eru leiðindin sem hellast yfir
þig þegar þú situr heima hjá þér og
það er ekkert í sjónvarpinu sem þú
vilt horfa á, engin bók sem þú hefur
geð í þér til að lesa, enginn á heim-
ilinu sem þú vilt tala við, enginn á
heimilinu sem vill tala við þig og
ekkert sem þú nennir að gera. Þú
hatar tölvuna og Netið, kötturinn
forðast þig og þeir sem þú reynir að
hringja í eru ekki heima.
Þetta eru mjög alvarleg leiðindi
og ekkert hægt að ráðleggja þeim
sem þjást af þeim nema helst að fara
og þvo bílinn. Það er nefnilega svo
leiðinlegt að í samanburði verður
flest annað skemmtilegt. -PÁÁ
SJONVARPSKRINGLAN.IS
1
1
i
í
l