Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.2000, Qupperneq 51
JjV LAUGARDAGUR 19. FEBRÚAR 2000
afmæli
Jóhann Valdórsson
Jóhann Valdórsson, frá Þrándar-
stöðum 1 Eiðaþinghá, verður átt-
ræður á morgun.
Starfsferill
Jóhann fæddist að Hrúteyri við
Reyðarfjörð og ólst þar upp til sex
ára aldurs. Hann flutti þá með móð-
ur sinni að Sómastaðagerði við
Reyðarfjörð, ásamt Þorleifi Þórðar-
syni frá Neðra-Hóli í Staðarsveit, f.
17.04. 1891, d. 29.06. 1951, en hann
hafði komið sem ráðsmaður að
Hrúteyri 1925.
Að Sómastaðagerði bjuggu þau
til 1931 er þau fluttu að Dalhúsum í
Eyvindarárdal. Þau fluttu síðan að
Þrándarstöðum 1938. Þar hóf Jó-
hann búskap í samvinnu við móður
sína og Þorleif fóstra sinn.
Eftir að Jóhann kvæntist flutti
hann og kona hans að Stakkahlíð
vorið 1943 og hófu þar búskap í
samvinnu við tengdaforeldra Jó-
hanns og mág hans, Sigurð Stefáns-
son. Þau flutti aftur að Þrándar-
stöðum 1948 þar sem þau tóku að
mestu leyti við búskapnum en móð-
ir Jóhanns og Þorleifur fóstri hans
voru þar til heimilis til dauðadags.
Jóhann stundaði hefðbundinn
búskap en starfaði jafnframt mikið
utan heimilisins, bæði til sjós og
lands, einkum harðindaárin i
kringum 1950. Hann var jafnan
meðal bestu fláningsmanna meðan
hann var upp á sitt besta, var fljót-
ur að tileinka sér nýjungar og
óhræddur við að takast á við ný
verkefni. Kominn hátt á fimmtugs-
aldur settist Jóhann á skólabekk
með sonum sínum og félögum
þeirra og lauk sveinsprófi múrara
en hann hafði starfað við múrverk
i nokkur ár.
Árið 1972 brunnu
íbúðarhúsið og útihúsin
á Þrándarstöðum til
kaldra kola. Fjölskyldan
flutti þá til Seyðisfjarðar
þar sem þau festu kaup
á íbúðarhúsinu Elver-
hoj. Þar hafði Jóhann
næga atvinnu enda fjöl-
hæfur og afkastamikill
starfskraftur og eftir-
sóttur til allrar vinnu.
Þau hjónin fluttu sið-
an aftur að Þrándarstöð-
um og Jóhann byggðu
þar nýtt ibúðarhús 1980. Jóhann
hannaði hús sitt að mestu sjálfur og
fór þar nýjar leiðir í hönnun og
byggingaraðferð sem reynast vel.
Fjölskylda
Jóhann kvæntist 22.10. 1942
Huldu Stefánsdóttur frá Stakkahlíð
í Loðmundarfirði, f. 26.11. 1920, d.
26.4. 1989, húsfreyju. Foreldrar
hennar voru hjónin Stefán Bald-
vinsson, f. 9.1. 1883, d. 10.8. 1964, frá
Stakkahlíð, og Ólafía Ólafsdóttir, f.
12.11. 1885, d. 3.1. 1971, frá Króki á
Rauðasandi í Vestur-Barðastrandar-
sýslu.
Börn Jóhanns og Huldu: Eðvald,
f. 25.4. 1943, býr að Randabergi,
kvæntur Vilborgu Vilhjálmsdóttur,
f. 20.1. 1942, og eiga þau sjö böm;
Ólafía Herborg, f. 9.3. 1945, býr í
Fellabæ, gift Jóni Þórarinssyni, f.
30.6. 1943, og eiga þau þrjár dætur;
Stefán Hlíðar, f. 19.8. 1949, býr á
Þrándarstöðum, kvæntur Guðrúnu
Benediktsdóttur, f. 6.9.1951, og eiga
þau fjögur böm; Þorleifur, f. 24.2.
1951, lést af slysforúm 22.4. 1979, bjó
með Auði Garðarsdóttur, f. 2.6.
1953, og eignuðust þau einn son; Ás-
dís, f. 8.12. 1952, býr á
Egilsstöðum, gift Ragn-
ari Þorsteinssyni, f.
13.7. 1951, og eiga þau
fjögur böm; Valdór, f.
16.3. 1954, býr í Reykja-
vík, á fjögur börn; Jó-
hann Viðar, f. 31.3.
1955, býr í Keflavík,
kvæntur Ósk Trausta-
dóttur, f. 4.10. 1955, og
eiga þau þrjú böm; Vil-
hjálmur Karl, f. 16.9.
1957, býr að Þrepi,
kvæntur Svanfríði
Drifu Óladóttur, f. 7.10.1965, og eiga
þau þrjár dætur; Kári, f. 13.8. 1959,
lést af slysforum 9.7. 1961; Kári
Rúnar, f. 4.4. 1961, býr í Reykjavík,
hann á þrjú börn; Ingibjörg Ósk, f.
17.5. 1965, býr í Reykjavik og á einn
son.
Jóhann er yngstur í hópi ellefu
alsystkina sem voru Jónas, f. 1.2.
1908, d. 19.3. 1977; Sigurbjörg, f.
27.12. 1908, d. 1909; Guðrún Bjamey,
f. 24.12. 1909, d. 16.4. 1961; Bóas, f.
16.4. 1911, d. 23.10. 1983; Eðvald, f.
10.8. 1912, d. 12.8. 1942; Benedikt, f.
21.8.1913, d. 1913; Guðlaug Jóhanna,
f. 15.10. 1914, d. 1920; Óskar, f. 10.10.
1915, d. 5.12. 1981; Jóhann Björgvin,
f. 6.1.1917, d. 14.2.1991; Ragnheiður,
f. 19.12. 1918.
Auk þess átti hann eina yngri
hálfsystur, samfeðra, Valdóru, f.
30.9. 1927, d. 1929, sem móðir hans
tók að sér. Þá ólu móðir hans og
Þorleifur upp fimm fóstursyni sem
voru Jón Amfinnsson, f. 27.3. 1915,
d. 24.12. 1985; Guðjón Jónsson, f. 7.5.
1925; Jón Björgvin Ólafsson, f. 9.12.
1926, d. i október 1993; Ingólfur
Njálsson, f. 1.5. 1928; Magnús Hörð-
ur Magnússon, f. 27.7. 1935.
Afkomendur Jóhanns eru 64, 33
barnabörn og 20 barnabarnabörn,
þar af eru 62 á lífi.
Foreldrar Jóhanns voru Valdór
Bóasson, f. 24.6.1885, d. 22.4.1927, og
Herborg Jónasdóttir, f. 23.8. 1886, d.
22.8. 1964, en þau voru bræðrabörn.
Systir Valdórs var Hildur, móðir
Regínu Thorarensen, fréttaritara
DV. Valdór var sonur Bóasar Bóas-
sonar, b. að Stuðlum við Reyðar-
fjörð, og Sigurbjargar Halldórsdótt-
ur húsfreyju. Bóas á Stuðlum var
bróðir Bóelar, langömmu Geirs
Hallgrímssonar forsætisráðherra.
Bóas var sonur Bóasar, b. á Stuðl-
um í Reyðarfirði, Arnbjörnssonar.
Móðir Bóasar á Stuðlum var Guð-
rún, systir Páls á Sléttu, afa Páls,
afa Kjartans Gunnarssonar, fram-
kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins.
Guðrún var dóttir Jóns, gullsmiðs á
Sléttu í Reyðarfirði, Pálssonar,
bróður Sveins, læknis og náttúru-
fræðings. Móðir Guðrúnar var Guð-
ný Stefánsdóttir, b. á Sandfelli,
Magnússonar og Guðrúnar Erlends-
dóttur, b. á Ásunnarstöðum í Breið-
dal, Bjamasonar, fóður Þorbjargar,
langömmu Vilhelms, langafa Al-
berts Guðmundssonar. Móðir Hild-
ar var Sigurbjörg, systir Guðnýjar,
móður Huldu skáldkonu. Sigurbjörg
var dóttir Halldórs, b. á Geitafelli,
Jónssonar, pr. og læknis á Grenjað-
arstað, Jónssonar, langafa Ólafs
Friðrikssonar verkalýðsleiðtoga og
Haraldar Níelssonar prófessors.
Herborg var dóttir Jónasar Pét-
urs Bóassonar, b. á Geldingi í Breið-
dal, bróður Bóasar Bóassonar, og
Jóhönnu Jónsdóttur frá Eyri í Reyð-
arfirði.
Jóhann og fjölskylda hans taka á
móti gestum að Randabergi, Egils-
stöðum, frá kl. 15.00 á afmælisdag-
inn og eru allir velkomnir.
Jóhann Valdórsson.
Elín Elíasdóttir, húsmóðir og
verkakona, Höfðagrund 11, Akra-
nesi, verður áttræð á morgun.
Starfsferill
Elín fæddist á Akranesi og ólst
þar upp á Melstað hjá fóðurbróður
sínum, Georg, og Vilborgu, konu
hans. Hún var í Barnaskóla Akra-
ness.
Elín bjó á Melstað til 1959 en
flutti þá ásamt fjölskyldu sinni að
Brekkubraut 29. Síðustu árin hefur
Elín búið á Höfðagrund 11 á Akra-
nesi.
Auk heimilisstarfa hefur Elín
stundað almenn verkamannastörf,
Elín Elíasdóttir
síðast í sokkaverksmiðjunni Trico á
Akranesi.
Fjölskylda
Elín giftist 22.6. 1940 Einari Magn-
ússyni, f. 26.8. 1917, verkamanni.
Hann er sonur Magnúsar Jónssonar,
skipstjóra á Flateyri, og Bjarneyjar
Steinunnar Einarsdóttur húsfreyju.
Börn Elínar og Einars eru Georg
Einarsson, f. 14.12. 1940, kvæntur
Aðalbjörgu Níelsdóttur og eiga þau
Qóra syni; Viðar Einarsson, f. 21.6.
1942, kvæntur Ólöfu Gunnarsdóttur
og eiga þau fimm börn; Bjarney
Steinunn Einarsdóttir, f. 13.6. 1943,
gift Páli Helgasyni og eiga þau þrjú
börn; Einar Einarsson, f.
4.8. 1944, kvæntur Hrafn-
hildi Pálmadóttur og eiga
þau þrjú börn;Dröfn Ein-
arsdóttir, f. 19.9. 1945, gift
Elíasi Jóhannessyni og eiga
þau einn son.
Systkini Elínar: Guðríður
Ósk, f. 1922; Vilhelmína Sig-
ríöur, f. 1923; Sigurður Ní-
els, f. 1924; Rannveig Jóna, f.
1925, nú látin; Hreggviður
Karl, f. 1927; Svavar, f. 1929;
Ársæll, f. 1931, nú látinn; Örlaugur, f.
1932, látinn; Örlaugur, f. 1934; Krist-
ín, f. 1935, nú látin; Georg Steindór, f.
1937; Hafsteinn Þór, f. 1939; Haraldur,
f. 1942, nú látinn.
Foreldrar Elínar voru
Elías Níelsson, f. 27.7.
1896, d. 24.5.1977, verka-
maður að Sandfelli á
Akranesi, og Klara S.
Sigurðardóttir, f. 17.6.
1899, d. 18.2. 1969, hús-
móðir.
Fósturforeldrar Elin-
ar voru Georg Sigurðs-
son, f. 28.6.1906, d. 14.12.
1935, og Vilborg Ólafs-
dóttir, f. 8.8. 1908, látin.
Þau bjuggu að Melstað á Akranesi.
Elín tekur á móti gestum í dag,
19.2., í samkomusal Verkalýðsfé-
lagsins, Kirkjubraut 40, Akranesi,
frá kl. 15.00-17.00.
Elín Elíasdóttir.
Christine Liselotte Jóhannesson
Christine Liselotte
Jóhannesson, f.
Rakoczy, salstjóri á
McDonald’s veitinga-
staðnum í Austur-
stræti, Ástúni 4, Kópa-
vogi, er fertug í dag.
Starfsferill
Christine fæddist i
Stratford í Ontario í
Kanada og ólst þar
upp. Hún stundaði
nám við North-
western Secondary
School i Stratford. Þá
stundaði hún nám á
píanó og orgel um nokkurra ára
skeið.
Christine hefur stundað verslun-
arstörf frá sautján ára aldri. Hún
hefur verið búsett á íslandi frá 1989
er hún giftist og starfar nú hjá
McDonald’s veitingahúsinu.
Christine var organisti í Nýju
postulakirkjunni frá
sautján ára aldri.
Fjölskylda
Christine giftist 6.8.
1989 Hákoni Jóhann-
essyni, f. 24.6. 1957,
matvælafræðingi hjá
Matvælatækni og
presti í Nýju postula-
kirkjunni. Hann er
sonur Jóhannesar Jör-
undssonar, sem er lát-
inn, og Höllu Þóreyjar
Skúladóttur húsmóður.
Maður hennar er Jón
V. Guðjónsson fram-
kvæmdastjóri.
Börn Christine og Hákonar eru
Helena Ruth Hákonardóttir, f. 14.6.
1990; Daníel Emil Hákonarson, f.
13.3. 1993.
Systkini Christine eru Renate St.
Denis, búsett i Stratford i Ontario í
Kanada; Frank Rakoczy, búsettur í
Christine Liselotte
Jóhannesson.
Stratford; Hardy Rakoczy, búsettur
í San Diego í Kaliforníu í Bandaríkj-
unum; Harold Rakoczy, búsettur í
Sarnia í Ontario i Kanada.
Foreldrar Christine eru Emil
Rakoczy, f. 18.9. 1925, fyrrv. prestur
og síðar fagnaðarboði í Nýju post-
ulakirkjunni, og Frieda Rakoczy, f.
13.2. 1925, húsmóðir.
Emil fæddist í Tékkóslóvakíu en
Frieda í Þýskalandi. Þau fluttu til
Kanada með þrjú börn árið 1957.
Leikskólastjórar og leikskólakennarar, athugið
Leikskólastjóri óskast á einkarekinn leikskóla á
höfuðborgarsvæðinu.
Um er að ræða 50-100% stjórnunarstöðu.
Leitað er að jákvæðum einstaklingi með stjórnunarmenntun
eða reynslu í stjórnun.
Viðkomandi þarf að hafa mikið frumkvæði, skýrar áherslur og
geta starfað sjálfstætt.
Einnig er óskað eftir leikskólakennurum eða fólki með
uppeldismenntun með mikinn áhuga á börnum og
leikskólastjórnun.
í boði eru góð laun, skemmtileg starfsaðstaða og fallegt
umhverfi með góðum útivistarsvæðum.
Áhugasamir leggi inn umsókn hjá DV
fyrir 28.02.00, merkt L-211.
63 <
V
711 hamingju með afmælið 20. febrúar
90 ára
Helga Bjarnadóttir, Hlíðarbyggð 37, Garðabæ.
80 ára
Erlendur Stefánsson, Vallargötu 6, Vestmeyjum. Geir Austmann Björnsson, Víðimel 32, Reykjavík. Guðfinna Hinriksdóttir, Hringbraut 50, Reykjavík. Hildur Kristjánsdóttir, Furulundi 6, Varmahlíð. María Stefánsdóttir, Hrafnagilsstræti 32, Akureyri. Oddný Þórormsdóttir, Skólavegi 46a, Fáskrúðsfirði.
75 ára
Aðalsteina Magnúsdóttir, Grund I, Akureyri. Guðmundur Hjartarson, Grænhóli, Selfossi.
70 ára
Guðmimdur Guðmimdsson, Fossum, Blönduósi. Hann verður að heiman. Halldór Karl Karlsson, Byggðavegi 140, Akureyri. Helga Gröndal Björnsson, Skúlagötu 20, Reykjavík. Valgerður Samsonardóttir, Mýrum 1, Patreksfirði. Vilhjálmur Guðnason, Kleppsvegi 44, Reykjavík. Þóra Guðnadóttir, Kirkjustíg 4, Eskifirði. Hún verður aö heiman.
60 ára
Gunnlaug Jakobsdóttir, Lindarflöt 40, Garðabæ.
50 ára
Aldís Guðmundsdóttir, Birkihlíð 10, Reykjavík. Ásgerður Haraldsdóttir, Hólabraut 10, Höfn. Einar Sigxu-bjömsson, Fannafold 180, Reykjavík. Friðbjöm Ólafur Valtýsson, Smáragötu 2, Vestmeyjum. Jóhann Þórisson, Réttarholti 7, Selfossi. Sigurbjöm Sveinsson, Hæðarseli 28, Reykjavík.
40 ára
Árni Sigurbjömsson, Laugarbrekku 21, Húsavík. Guðjón Ragnar Svavarsson, Norðurvöllum 52, Keflavík. Hermann Óli Finnsson, Selbrekku 36, Kópavogi. Margrét B. Theódórsdóttir, Hjallabraut 19, Hafnarfirði. Marsibil Erlendsdóttir, Dalatanga, Mjóafirði. Oddný Þóra Sigurðardóttir, Ásvallagötu 17, Reykjavík. Ólafur Als, Hringbraut 113, Reykjavík. Ólafur Sveinsson, Fögrukinn 6, Hafnarfirði. Ragnar Hjörleifsson, Stillholti 3, Akranesi.
Gyðberg Hall-
dórsson mat-
sveinn, Svalbarð
14, Hafnarfirði, er
sextugur í dag,
laugard. 19.2. Hann
tekur á móti vin-
um og ættingjum i
sal Blindrafélagsins, Hamrahlíð 17,
laugard. 19.2i kl. 15-17.