Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2000, Side 8
8
FÖSTUDAGUR 3. MARS 2000
Viðskipti_______________________________________________________
Umsjón: Viðskiptablaöið
Ársreikningar Eimskips:
1.436 milljónir í hagnað
- verðmætaaukning Burðaráss 5,6 milljarðar
Hagnaður af rekstri Hf. Eim-
skipafélags íslands og dótturfélaga
þess eftir skatta varð 1.436 milljónir
áriö 1999 samanborið við 1.315 miUj-
ónir króna árið 1998. Arðsemi eigin
fjár var 18%.
Samdráttur í tekjum
Rekstrartekjur Eimskips og dóttur-
félaga þess námu 15.370 milljónum
árið 1999 en voru 16.573 milljónir árið
áður. Samdráttur frá fyrra ári varð
einkum vegna minnkandi umsvifa í
Rússlandi og Eystrasaltsríkjunum þar
sem þyngst vegur aö Maras Linija
Ltd. hætti rekstri á fyrri hluta ársins.
Þá leiddi efnahagslægð í Austurlönd-
um fjær til samdráttar í flutningum
þangað.
AUs nam söluhagnaður félagsins
455 milljónum. Þar af nam söluhagn-
aður af Skógafossi og Reykjafossi 164
milljónum og söluhagnaður af hluta-
bréfum Burðaráss hf. varð 188 millj-
ónir.
Fjárfest var á árinu fyrir alls 6.442
DV-MYND GVA
Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips:
Afkoma Eimskips hefur veriö góö undanfarin ár og hagnaöur hefur veriö
stööugur. / fyrra var hann 121 milljón krónum meiri en áriö á undan.
milljónir. Annars vegar eru það fjár- 1.379 milljónir, og hins vegar voru
festingar í flutningastarfsemi fyrir fjárfestingar Burðaráss hf. í hlutabréf-
um fyrir 5.063 milljónir króna.
Heildareignir Eimskips og dótturfé-
laga hafa aukist um 5.408 miiljónir frá
árinu 1998 og voru bókfærðar á 25.275
milljónir i árslok 1999. Heildarskuldir
námu 15.562 milljónum og hafa aukist
um 3.792 milljónir króna frá árinu
1998. Eigið fé í árslok 1999 nam 9.713
milljónum og eiginfjárhlutfall var 38%
Verðmætaaukning
Buröaráss 5,6 milljarðar
Markaðsvirði skráðra hlutabréfa
var í ársbyrjun 9.657 milljónir og
keypt hlutabréf að frádregnum seld-
um bréfum 1999 var 4.236 milljónir.
Ávöxtun hlutabréfaeignar í skráðum
félögum 1999 var kr. 5.637 milljónir
Markaðsviröi skráðra hlutabréfa
Burðaráss þann 31.12.1999 var
kr.19.530 milljónir. Þessi hækkun á
markaðsverðmæti hlutabréfa kemur
ekki fram í rekstrar- og efnahags-
reikningi en er sundurliðuð í skýring-
um reikningsins.
tll Skífunnar.
Eftir kaupin á Sjörnubíó hefur Skífan
um þriöjung af bíómarkaöinum.
Skífan kaupir
Stjörnubíó
Skífan ehf., sem er í eigu afþrey-
ingarsamsteypunnar Norðurljósa
hf., hefur fest kaup á öllum hluta-
bréfum Stjörnubíós ehf. Kaupin á
Stjömubíói nú ásamt opnun á nýju
kvikmyndahúsi í Smáranum 1 lok
ársins 2001 eru liður í aukningu
hlutdeildar Skífunnar á þessum
markaði. Við kaupin á Stjömubíói
eykst hlutdeild Skífunnar í dreif-
ingu kvikmynda til kvikmyndahúsa
úr 20% í 32%, miöað við árið 1999.
Frjáls fjarskipti hf.:
Kæra Íslandssíma
Frjáls fjarskipti hf. hafa
kært Íslandssíma hf. til Sam-
keppnisstofhunar vegna rang-
færslna í auglýsingum sem
Frjáls fjarskipti segja að ein-
vörðungu séu til þess fallnar
að kasta ryki í augu fólks.
Fyrr í vikunni sendi Lands-
simi íslands kröfu um bráða-
birgðabann á auglýsingar ís-
landssíma. Sú kæra var send
tO Fjarskiptastofnunar. Þetta
er til marks um þá hörðu
samkeppni sem ríkir á fjar-
skipamarkaðinum hér á
landi.
„Frjáls fjarskipti vekja at-
hygli á rangfærslum íslands-
síma í auglýsingu um verð á sím-
tölum til útlanda. Þar er staðhæft
að félagið bjóði „símtöl til útlanda
Eyþór Arnalds, framkvæmdastjóri Islandssíma.
/ þessari viku hafa bæöi Landssími íslands og Frjáls
fjarskipti lagt fram kvörtun vegna Íslandssíma.
á allt að 40% lægra verði en nú
þekkist". Þetta er rangt. Eftir að ís-
landssími birti verðskrá kemiu- í
ljós að verð á símtölum hjá
Frjálsum fjarskiptum eru
lægri í öllum helstu viðskipta-
löndum íslands. Frjáls fjar-
skipti bjóða þjónustu sína í
dag og hafa gert frá áramót-
um en Íslandssími getur ekki
boðið fólki símtöl til útlanda,"
segir í upplýsingum frá
Frjálsum fjarskiptum."
Bent er á að hjá Frjálsum
fjarskiptum kostar símtal til
Bretlands 23 krónur á mín-
útu, sama hvenær sólar-
hringsins er hringt, en 31
krónu hjá Landssímanum á
dagtaxta og kr. 26.35 á kvöld-
— og næturtaxta. Hjá íslands-
síma kostar símtalið til Bretlands
kr. 28.00 á mínútu á dagtaxta og kr.
26,35 á kvöld- og næturtaxta.
Víöa erfitt í flugrekstri
- farþegum á viöskiptafarrými
tekið aö fjölga hjá Flugleiðum
í Mogunkomi FBA í gær segir að
í kjölfar afkomu Flugleiða sé áhuga-
vert að skoða aðstæður í rekstri
flugfélaga en þær séu víða erfíðar
um þessar mundir og gengi hluta-
bréfa félaga hafi lækkað mikið. í
umhverfi lækkandi meðalfargjalda,
mikillar afkastagetu í fjármagns-
frekri grein með háan fastan kostn-
að, sé erfitt að glíma við hækkandi
eldneytisverð.
„Kostnaðarlega séö virðist helsta
leið flugfélaga til skjótrar rekstrar-
hagræðingar liggja í möguleikum til
lækkunar á sölu og dreifingarkostn-
aði með þróun Netsins sem við-
skiptavettvangs. Algengt er að þessi
kostnaður sé um 17-20% af heildar-
kostnaði flugfélaga," segir í Morg-
unkomi FBA.
Sigurður Helgason, forstjóri Flug-
leiða, sagði í samtali við Viðskipta-
blaðið í vikunni að hann hefði ver-
ið nokkuð ánægöur með milliupp-
gjör félagsins en frá þeim tima hafi
veriö nokkrar blikur á lofti vegna
hækkandi eldsneytisverðs og vax-
andi samkeppni og offramboðs á N-
Atlantshafsleiðinni. Þrátt fyrir það
kvaðst Sigurður ekki verða sáttur
fyrr en reksturinn tæki að skila
meiru og það sé ljóst að félagið hafi
ekki náð þeim markmiðum sem það
stefndi að í upphafi árs. Þó megi
segja að rekstur Flugleiða stefni í
rétta átt miðað við árið á undan, öf-
ugt við mörg evrópsku flugfélag-
anna.
Varðandi fjármagnsliðina segir
Sigurður ekki megi gera ráð fyrir
að fjármagnsliðir verði jafn hag-
stæðir á þessu ári, enda um óvenju-
góðan árangur á síðasta ári að
ræða.
DV
Þetta helst
Wm
HEILDARVIÐSKIPTI 1.721 m.kr.
- Spariskírteini 649 m.kr.
! — Hlutabréf 246 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
i0Flugieiðir 28 m.kr.
iQíslandsbanka 24 m.kr.
|©Opin kerfi 21 m.kr. !
MESTA HÆKKUN
QOIÍS 8,38 %
Qísl. hugbúnaöarsjóðurinn 7,66 %
QLyfjaverslun íslands 2,82%
MESTA LÆKKUN
QLoðnuvinnslan 17,20 %
QÖssur 3,92%
QHaraldur Böðvarsson 3,77%
ÚRVALSVÍSITALAN 1.740 stig
- Breyting Q -0,29 %
Loðnan lækkar gengið
Fyrirtæki sem
byggja afkomu sína
á loðnuvinnslu lækk-
uðu nokkuð mikið í
gær. Loðnuvinnslan
lækkaði mest en ný-
lega sendi félagið
neikvæða afkomu-
viðvörun en SR-mjöl
nlöurstööum. °S Haraldur Böðv-
arsson lækkuðu
kannað.
Markaöurinn
bíöur eftir
einnig talsvert. Ástæðan gæti verið
sú að nú eru deilur milli sjómanna
loðnubræðslna um skiptahlutfall
sjómanna. Ef sjómenn hafa betur
minnkar hagnaður verksmiðja og
bréfin lækka.
MESTU VIÐSKIPTI 9 síöastlibna 30 daga
Q Landsbanki 1.743.841
Q islandsbanki 817.454
Q FBA 768.874
Eimskip 740.760
Flugleiðir 703.199
síöastlibna 30 daga
Q ísl. hugb.sjóðurinn 99 %
Q Opin kerfi 39 %
Q Eskmarkaður Breiðafjaröar 37 %
Q Pharmaco 36 %
Q Samvinnusj. íslands 32 %
%é síöastliöna 30 daga
Q Jarðboranir -18%
Q Rugleiðir -17%
Q Nýherji -16%
Q Samvinnuf. Landsýn -14%
Q Samherji -13 % ■
Hækkun í Evrópu
í Evrópu fóru hlutabréf almennt
hækkandi í gær - þó ekki mikið.
Markaðir í Evrópu og Bandaríkjun-
um eru á margan hátt tengdir og er
hækkunin rakin til væntinga um að
bandaríski markaðurinn sé að
hækka lítillega eftir nokkra lækkun
undanfarnar vikur. Nasdaq-tækni-
vísitalan heldur áfram að setja met
og var eitt slikt sett í gær.
rcmTrin;?:Trrramfi'wiii;í
EJÍdow jones 10164,92 00,27%
1 © Inikkei 19933,14 Q 0,66%
BIils&p 1381,76 Q 0,19
F ‘NASDAQ 4754,51 00,62%
SSftse 6432,10 Q 1,06%
r“.DAX 7945,77 02,82%
1 l'CAC 40 6477,55 03,54%
ÞidMdÞl 3.3.2000 kl. 9.15
KAUP SALA
F J Dollar 73,250 73,630
SSjPiind 115,620 116,210
1*1 Kan. dollar 50,280 50,590
| : nlÍDönak kr. 9,5040 9,5570
n}~iNorsk kr 8,7630 8,8110
g Ssænsk kr. 8,3480 8,3940
ilHHn. mark 11,9028 11,9744 |
JÍFra. franki 10,7890 10,8538
1 'lBelg. franki 1,7544 1,7649 j
[3 Sviss. franki 44,050 44,2900
QhoII. gyllini 32,1145 32,3075
—,|Þýskt mark 36,1847 36,4021
1«. líra 0,03655 0,0367
LfcjAusL sch. 5,1431 5,1740
jPort. escudo 0,3530 0,3551
futlSpá. peseti 0,4253 0,4279
| • |Jap. yen 0,6799 0,6840
|írskt pund 89,860 90,400
SDR 98,1500 98,7400
Hecu 70,7711 71,196 :