Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2000, Síða 28
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö I DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
MILLGNNIUM subaru
'^ACY
Kví Keikós opnuð
Kví Keikós í Klettsvík var opnuð
um níuleytið í morgun í björtu og fal-
legu en köldu veðri. Fjöldi gesta var í
bátnum Hamri úti á víkinni um það
leyti sem opna átti kvína, Barbara
Grifíiths, sendiherra Bandaríkjanna á
Islandi, og eiginmaður hennar auk
innlendra og erlendra sjónvarps-
.» manna. Ekkert var gert til þess að reka
Keikó úr kvínni og út í víkina en þess
beðið að hann tæki sjálfur af skarið.
Með opnun kvíarinnar stækkar at-
hafnasvæði háhymingsms til mikilla
muna en yfírborðsflatarmál Klettsvík-
ur er um 8 hektarar. Stórt og mikið net
á að tryggja að Keikó sleppi ekki úr
víkinni en opnun kvíarinnar er loka-
áfangi á leið hans út i frelsi á ný.
-ÓG/hlh
* Snýr aftur í rokkið
í Helgarblaði DV er viðtal við
söngvarann Pál Rósinkrans sem gerði
garðinn frægan með Jet Black Joe
fyrir nokkrum árum en hvarf síðan
af sjónarsviðinu um hríð. Hann
hyggst nú snúa aftur til rokksins.
í blaðinu er forvitnileg úttekt á
styrkveitingum tii íslenskra kvik-
mynda í 20 ár þar sem reynt er að
bera saman fjármagn og aðsókn að
kvikmyndum. Menningarheimur
samkynhneigðra i Reykjavík er kort-
lagður og kemur mörgrnn á óvart.
Einnig er viðtal við Hlín Baldvins-
dóttur sem er nýkomin heim frá írak
eftir tæplega ársdvöl við uppbygging-
arstarf á vegum Rauða krossins.
Hetja á heimaslóð
Kristinn Björnsson brá á leik með krökkunum í barnaskólanum á Ólafsfirði í gær og leiddist hinum ungu Ólafsfirðing-
um ekki að leika sér með hetju bæjarins í stórfiskaleik, fótbolta og fiölmörgu öðru sem skíðakappinn tók upp á.
Kristinn var á Ólafsfirði til að skrifa undir styrktarsamning við bæjarfélagið.
Blönduós:
Leikari slasaðist
- blindaður af hrútshaus
Leikari hjá Leikfélagi Blönduóss
slasaðist illa þegar hann datt niður
stiga á æfmgu í fyrrakvöld. Þurfti að
sauma 15 spor í sköflung hans. Þetta
óhapp kemur þó ekki í veg fyrir að
leikfélagið frumsýni verkið Frumsýn-
ingu eftir Hjörleif Hjartarson í kvöld
eins og fyrirhugaða hafði verið.
Að sögn Kristínar Guðjónsdóttur,
formanns leikfélagsins, varð óhappið
með þeim hætti að umræddur leikari,
sem leikur ungverskan píanóleikara,
er handjámaður við annan leikara og
er með hrútshaus á höfðinu. Leikar-
inn þarf að fara niður stiga i leik-
myndinni og hefur þá lyft upp hrúts-
hausnum til að sjá eitthvað. í fyrra-
kvöld lyfti hann hausnum hins vegar
ekki, sá ekki fótum sínum forráð og
þvi fór sem fór. Aðstoðarleikstjórinn
tekur að sér hlutverk leikarans, sem
mun væntanlega sitja á fremsta bekk
með fótinn uppi á skemli.
-JSS
Seðlabankinn greiddi starfsfólki bónus vegna 2000-vanda:
Skúringakonurnar
fengu ekkert
- Finnur Ingólfsson jákvæður á leiðréttingu
„Þetta var ákveðið um áramótin
og þá fengu aflir fastir starfsmenn
slíka greiðslu fyrst og fremst út af
álagi sem tengdist 2000-vandanum -
sem ekki varð,“ segir Finnur Ing-
ólfsson seðlabankastjóri um 20 þús-
und króna bónusgreiðslu til allra
starfsmanna Seðlabankans - nema
til þeirra sem sjá um að halda bank-
anum þrifalegum, skúringakvenn-
anna.
Um er að ræða tíu til tólf konur
og snýst málið því um 200 til 240
þúsund króna aukaútgjöld fyrir
bankann - á að giska vikulaun
seðlabankastjóra.
Spígsporandi sérfræöingar
„Þetta var orðað þannig að þetta
ætti aðeins við um fastráðna starfs-
menn en skúringakonumar eru í
hlutastarfí. En málið er i skoðun og
. ,,, UV-IVIII'
Rnnur Ingolfsson:
„Greiðslan fyrst og fremst út af álagi sem tengdist 2000-vandanum
- sem ekki varð. “
Vestur-Skaftafellssýsla:
Rafmagni komið á í nótt
- tugir björgunarsveitarmanna hjálpuðu til
Björgunarsveitarmenn aðstoðuðu við afisinguna.
Rafmagnslaust var í Mýrdal og
austan Mýrdalssands í gær. I óveðr-
inu i fyrrinótt hlóðst mikil ísing á raf-
magnslínur sem sliguðu þær, slitu og
brutu staurastæður. Á annan tug við-
gerðarmanna frá RARIK voru að
störfum fram á nótt, auk fjölda björg-
unarsveitarmanna sem hjálpuðu til,
meðal annars við að berja ísingu af
línum. ísingin á línunum var geysi-
þykk, allt upp í tugi sentimetra.
Mýrdælskir mjólkurbændur og
kollegar þeirra austan Mýrdalssands
eru flestallir viðbúnir rafmagnsleys-
inu og eiga vararafstöðvar til að grípa
til á svona neyðarstundum. Það er
líka mikið í húfi því ef ekki er hægt
að mjólka kýmar, er það fljótt að
segja til sín í heilbrigði kúnna.
íbúar í Vík nutu þó ljósa og yls frá
varaaflsstöð í þorpinu. Hún er þó
ekki nógu stór til að geta samhliða
séð dreifbýlinu fyrir rafmagni þegar
aðflutningslínumar slitna
eins og í fyrrinótt. Loftlín-
ur era ef til vill ekki hent-
ugasta flutningsleið raf-
magns á þessum slóðum
þar sem andstæður í veðr-
inu era miklar og veður-
hamurinn oft ofsafenginn.
Það er algengt að raf-
magnslínur slitni þar og
stór svæði verði án raf-
magns um tíma. í fyrra-
vetur brotnuðu margir
staurar undir Eyjafíöllum
í fárviðri. Um jólin 1998
slitnuðu rafmagnslínur i
Skaftártungu vegna ísing-
ar. Og fyrir fimm áram slitnuðu lín-
ur og staurar brotnuðu i Mýrdal og á
Mýrdalssandi vegna ísingar. NH.
verður litið á það með jákvæðu hug-
arfari og það hefur ekkert verið úti-
lokað i þeim efnum,“ segir Finnur
um beiðni skúringakvennanna um
leiðréttingu. Seðlabankastjórinn
segir skúringakonumar hafa rætt
við sig um málið síðast fyrir viku og
ítrekar að umleitan þeirra hafi síð-
ur en svo verið hafnað þó ákvörðun
hafí enn ekki verið tekin.
Allir starfsmenn bankans, að
ræstitæknunum frátöldum, eru í
70% starfi eða meira hjá bankanum
og fékk hver þeirra 20 þúsund króna
bónusgreiðslu án tillits til starfs-
hlutfalls. Skúringakonumar vinna
hins vegar allar tiltölulega fáa tíma
í bankanum dag hvem og vora af
þeirri ástæðu skildar eftir úti í
kuldanum. Sjálfar munu þær telja
að hafi eitthvert starfsfólk bankans
orðið fyrir óþægindum og aukinni
vinnu vegna 2000-vandans þá hafi
það einmitt verið skúringakonurn-
ar vegna stöðugs ágangs spígspor-
andi tölvusérfræðinga um alla
ganga og sali bankans. -GAR
brother P-touch 9400
Stóra merkivélin sem þolir álagið
10 leturgerðir
margar leturstaerðir
16 leturstillingar
prentar í 10 línur
borði 6 til 36 mm
Rafport
Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443
Veffang: www.if.is/rafport
l—1
Skipholti 50 d
*