Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Síða 6
6
LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 JjV
útlönd
stuttar fréttir
Hagnaöur hjá banka
Hagnaður varð af rekstri Fær-
eyjabanka í fyrra, fjórða árið í
röð. Að þessu sinni var gróðinn
rúmir tveir milljarðar íslenskra
króna, að sögn Sosialurin.
Chirac stórhrifinn
Jacques Chirac Frakklandsfor-
seti heimsótti í vikunni lítil há-
tækni- og tölvu-
fyrirtæki sem
hafa komið sér
fyrir í sex hæða
skrifstofubygg-
ingu í París.
Skemmst er frá
því að segja að
forsetinn var
| stórhrifinn af því sem fyrir augu
bar, enda hefur hann gert sér far
um að sýnast nútímamaður.
Nautakjöt úr hillum
Færeysk heilbrigðisyfirvöld
hafa bannað sölu á dönsku nauta-
kjöti í kjölfar kúariðutilfellisins
sem kom upp í Danmörku um
daginn.
Býflugur drápu konu
Býflugnager varð tæplega fer-
tugri konu i Ástralíu að bana á
fimmtudag og ungt bam hennar
var stungið meira en fimmtíu
sinnum. Atvikið átti sér stað í
heimilisgarðinum.
Enn hærri framlög
Bresk stjórnvöld verða að
hækka framlög sín til heilbrigðis-
kerfisins ef þau ætla að standa
við það yfírlýsta markmið að ná
öðrum þjóðum í Evrópusamband-
inu árið 2006.
Fékk 45 ár
Stríðsglæpadómstóllinn í Haag
hefur dæmt króatíska hershöfð-
ingjann Tihomir
Blaskic í 45 ára
fangelsi fyrir
stríðsglæpi sem
framdir voru í
átökunum á
Balkanskaga.
Þetta er þyngsti
dómur sem
kveðinn hefur verið upp hjá dóm-
stólnum og aldrei hefur jafnhátt-
settur liðsforingi verið dæmdur.
Blaskic átti þátt í dauða hund-
| raða múslima.
Gegn krabbameini
Dönsk yfirvöld hafa lagt fram
viðamikla baráttuáætlun gegn
| krabbameini. Fækka á dauðsfóll-
um af völdum sjúkdómsins með
því að fá fólk til að hætta að
reykja, með betri skurðaðgerðum
og meiri endurmenntun lækna,
svo eitthvað sé tínt til.
Loftbelgsmaöur lendir
Bandaríski ævintýramaðurinn
Kevin Uliassi, sem ætlaði að
verða fyrstur til að fljúga aleinn
umhverfis jörðina í loftbelg, lenti
óvænt í Burma í gær. Hann er
heill á húfi en ekki er vitað hvers
vegna hann lenti.
Gróft klám í steininum
Kynferöisafbrotamenn í
sænsku fangelsi eiga þess kost að
sjá gróft klám í sjónvarpinu í
klefum sínum á hverju einasta
kvöldi. Á daginn eru þeir hins
vegar í meðferð við kynferðisleg-
um ranghugmyndum sínum.
Sænska blaðið Aftonbladet
8 greindi frá þessu í gær.
Frambjóöendur á skjá
Vladímír Pútín, starfandi for-
seti Rússlands, ætlar ekki að
nýta sér ókeyp-
is tíma sem
frambjóðendur
til forsetaemb-
ættisins fá í
rússneska sjón-
varpinu.
Fyrstu auglýs-
ingamar birt-
ust í gær og í
einhverjum þeirra var hnýtt í
Pútín fyrir það að Borís Jeltsín,
fyrrum forseti, valdi hann sjálfur
: sem eftirmann sinn.
i ■
Grænlendingar
lítt hrifnir af
varnaráformum
Grænlendingar eru ekkert allt
of hrifnir af áformum Bills Clint-
ons Banda-
ríkjaforseta og
stjórnar hans
um varnir gegn
eldflaugaárás-
um þar sem
þau fela í sér
aukna starf-
semi á herstöð-
inni í Thule á Grænlandi. Þá eru
uppi efasemdir í Danmörku um
ágæti þessa.
„Það yrði hættulegt fyrir
Grænland að leyfa endurbætur á
ratsjánni í Thule. Óvinir Banda-
rikjanna myndu reyna að eyði-
leggja hana. Það þýðir að
sprengjum yrði varpað á Græn-
land,“ sagði Johan Lund Olsen,
áhrifamaður innan hins vinstri-
sinnaða Inuitaflokks, í græn-
lenska þinginu í vikunni.
Stjórnvöld í Washington hafa
greint dönsku stjórninni, sem fer
með utanríkismál Grænlands, frá
fyrstu áformum um endurbætur
ratsjárinnar ef Clinton ákveður
að farið skuli út í eldflaugavarn-
‘arkerfið.
Danski utanríkisráðherran
sagði um daginn að ekki mætti
nota Thule-stöðina í trássi við al-
þjóðasamþykktir.
Danskir skóla-
krakkar drekka
meira en aðrir
Dönsk skólabörn byrja fyrr að
drekka áfengi en jafnaldrar
þeirra í öðrum Evrópulöndum og
þau drekka jafnframt meira.
Heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið
1 að bregðast við þessum tíðindum
og ætla, í samvinnu við skólayfjr-
völd, að takmarka áfengisneyslu
j grunnskólanema.
Samkvæmt nýrri könnun
höfðu 82 prósent danskra nem-
enda í 9. bekk orðið full á síðasta
ári en í öðrum Evrópulöndum
var talan 48 prósent. Þá fóru 34
j prósent danskra drengja í 9. bekk
; að minnsta kosti tíu sinnum á
fyllirí á undangengnu ári. Aðeins
fjögur prósent franskra drengja á
| sama aldri höfðu hagað sér eins.
Skæruliðar í
Grozní drápu 20
rússneska dáta
Rússneski herinn upplýsti í
gær að tsjetsjenskir skæruliðar
hefðu drepið tuttugu menn úr úr-
valssveitum innanríkisráðuneyt-
isins í fyrirsát i útjaðri héraðs-
höfuðborgarinnar Grozní. Fyrir-
sátin var gerð á svæði sem Rúss-
ar töldu sig hafa tryggt.
Skæruliðarnir skutu ikveikju-
flaugum aö bílalest rússnesku
hermannanna og skutu að þeim
úr öllum áttum. Tugir hermanna
særðust í árásinni.
ígor ívanov, utanríkisráðherra
Rússlands, fundaði i gær með ut-
anríkisráðherrum ESB og Banda-
ríkjanna í Lissabon. Stríðið í
Tsjetsjeníu var á dagskrá og lof-
aði ívanov að bjóða yfirmanni al-
þjóðadeildar Rauða krossins
þangað í næstu viku.
Bush og Gore
sigurstranglegir
Ný skoðanakönnun sem gerð
var í nokkrum ríkjum Bandaríkj-
anna bendir til
að George W.
Bush ríkis-
stjóri og A1
Gore varafor-
seti muni nán-
ast tryggja sér
sigur I kapp-
hlaupinu um
að verða forsetaefni repúblikana
og demókrata á þriðjudag. Þann
dag verða haldnar forkosningar í
öðrum tug ríkja, þar á meðal í
mikilvægum ríkjum eins og Kali-
fomíu og New York.
Öldungadeildarþingmaöurinn John McCain, sem keppir aö því aö veröa forsetaefni Repúblikanaflokksins í kosning-
unum í nóvember, var í New York í gær til aö kynna sjónarmiö sín. McCain gerir sér vonir um aö hófsamir repúblikan-
ar í borginni veiti honum brautargengi í forkosningunum á þriðjudaginn kemur. Þó er Ijóst að mjótt verður á mun-
unum milli hans og Georges W. Bush, rikisstjóra i Texas.
Mannréttindasamtök lofa áframhaldandi baráttu:
Pinochet fagnað
sem hetju heima
Björgunarsveitir í kapphlaupi viö tímann í Mósambík:
Óttast að tíu þúsund
hafl látist í flóðunum
Bamaböm Augustos Pinochets,
fyrmm einræðisherra í Chile,
kysstu afa gamla þegar hann kom
heim í gær eftir meira en hálfs ann-
ars árs vist í stofufangelsi í Bret-
landi. Stuðningsmenn hershöfðingj-
ans fögnuðu honum sem hetju en
mannréttindafrömuðir, sem gátu
ekki dulið hneykslan sína, hétu því
að halda áfram baráttu sinni fyrir
því að draga hann fyrir dómstóla í
heimalandinu.
Lúðrasveit lék hergöngulag og
hinn 84 ára gamli fyrrum harðstjóri
brosti og stóð stirðlega upp úr hjóla-
stólnum á flugvellinum til að faðma
yfirmann herafla Chile.
Flugvélin með Pinochet, sem
steypti rétt kjörnum forseta Chile,
Salvador Allende, af stóli í
valdaráni 1973 og stjórnaði með
harðri hendi í sautján ár, lenti á al-
Augusto Pinochet veifar til stuön-
ingsmanna sinna og velunnara viö
komuna heim til Chile í gær.
Björgunarsveitir eru nú í gífur-
legu kapphlaupi við tímann við að
bjarga fómarlömbum flóðanna
miklu í Afríkuríkinu Mósambikk.
Óttast er að allt að tíu þúsund
manns hafi týnt lífí í þessum mestu
flóðum í landinu í manna minnum.
Hundruð þúsunda hafa misst heim-
ili sín í hamförunum.
Um þrjátíu þyrlur og flugvélar
voru á fleygiferð i gær við að flytja
hjálpargögn á flóðasvæðin og bjarga
fólki sem hafði leitað skjóls uppi í
trjá eða á þökum húsa.
Bretar, Bandaríkjamenn, Frakk-
ar, Þjóðverjar og Spánverjar sögðu
að flutningavélar þeirra væru á
leiðinni til Mósambík með fleiri
þyrlur og báta sem ættu að vera
komin í gagnið á sunnudag.
Forráðamenn matvælastofnunar
Sameinuðu þjóðanna, sem hafa
Fórnarlömb flóöanna í Mósambík
veröa aö gera þaö besta úr öllu eins
og þessi kona sem eldaöi kjúkling
yfir eldi í leifum þorpsins Kari.
skipulagt hjálparstarfið undanfarn-
ar fjórar vikur, fóru fram á það við
þær þjóðir sem ekki heföu þegar
sent þyrlur sínar og flugvélar til
flóðasvæðanna að halda að sér
höndum að sinni. Kallað verður eft-
ir þeim ef aftur fer að rigna um
helgina.
Veðurfræðingar fylgjast nú
grannt með fellibylnum Gloríu úti á
Indlandshafi, austur af Mósambík.
Óttast er að hann geti farið yfir
landið og gert enn meiri usla,
einmitt þegar flóðin eru byrjuð að
réna.
íbúar Mósambík börðust við flóð-
in í þrjár vikur, með aðstoð Suður-
Afríkumanna, áður en þjóðir heims-
ins tóku við sér. Þá höfðu myndir af
fólki sem hafðist við uppi í trjám og
fæddi jafnvel börn þar verið sýndar
um allan heim.
þjóðaflugvellinum í Santiago
skömmu eftir hádegi í gær. Þyrla
flutti Pinochet síðan til hersjúkra-
húss í miðborg Santiago. Þungvopn-
aðir verðir fylgdu fyrrum þjóðar-
leiðtoganum eftir og fagnandi
mannfjöldinn fyrir utan sjúkrahús-
ið kyrjaði þjóðsönginn.
Hátíðahöldin vegna heimkomu
Pinochets stóðu stutt yfir og voru á
lágu nótunum vegna bágrar heilsu
hans. Jack Straw, innanríkisráð-
herra Bretlands, ákvað einmitt á
fimmtudag að Pinochet skyldu lát-
inn laus af heilsufarsástæðum.
Hann væri of heilsuveill til að koma
fyrir rétt vegna glæpa á stjómartíð
sinni, eins og Spánveijar og fleiri
þjóðir höfðu farið fram á. Um 3000
manns voru drepnir eða hurfu spor-
laust á sautján ára valdaferli herfor-
ingjastjórnar Pinochets.