Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Blaðsíða 32
32
LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 I>V
kvikmyndir
Hver er „styrkjahöfðin g i nn"?
- íslensk kvikmyndagerð og styrkir til hennar í 20 ár
Það sem hefur verið kallað „ís-
lenska kvikmyndavorið" hófst fyrir
réttum 20 árum, nánar tiltekið í lok
febrúar 1980 þegar kvikmynd Ágústs
Guðmundssonar, Land og synir, var
frumsýnd. Skömmu síöar birtist kvik-
mynd Hrafns Gunnlaugssonar, Óðal
feðranna, á hvíta tjaldinu og vorið stóð
í blóma.
Þetta hélst í hendur við stofnun Kvik-
myndasjóðs árið 1978 sem skaut fótun-
um undir þennan veikburða iðnað.
Það hefur áreiðanlega verið afskap-
lega gaman að vera kvikmyndagerðar-
maður á þessum vordögum. Bjartsýn-
in var slík að menn hikuðu ekki við að
veðsetja allar eigur sínar til þess að
geta gert kvikmynd drauma sinna.
Enginn hafði neina reynslu af því að
gera kvikmyndir svo allir voru jafn-
góðir. íslenskir bíógestir voru auðvit-
að vanir bíói en þeim fannst talsvert
nýnæmi í að sjá íslenska bíómynd og
flykktust þess vegna í bíó. Það var eins
Kvikmynd Styrkur á núvirði Fjöldi - milljónir áhorfenda
Með allt á hreinu 1,3 110 þús.
Land og synir 3,5 ÍOO
Óðal feðranna 2,9 95
Stella í orlofi 14,2 86
Útlaginn 10,0 85
Djöflaeyjan 27,7 85
Punktur, punktur 4,2 80
Englar alheimsins 27,4 80*
Nýtt líf 3,4 75
Hrafninn flýgur 13,9 70
Atómstöðin 16,3 70
Jón Oddur og Jón Bj. 3,1 60
Okkar á milli 3,3 60
Karlakórinn Hekla 25,1 57
Magnús 37,7 56
Börn náttúrunnar 33,2 45
Veggfóður 2,3 46
Foxtrot 28,6 45
Sódóma, Reykjavík 18,6 40
Bíódagar 29,9 32
Ungfrúin góða og Húsið 37,1 31
Gullsandur 9,2 30
Kristnihald undir Jökli 11,9 28-
Skilaboð til Söndru 4,2 25
Á jörðu sem á himní 7,6 22
Perlur og svín 13,0 22
Rokk í Reykjavík 0,8 20
Tár úr steini 37,0 20
Agnes 33,4 18
í skugga hrafnsins 49,3 16
Stikkfrí 21,0 16
Einkalíf 23,8 16
Blossi 11,9 15
Sporlaust 19,2 15
Skýjahöllin 11,5 14
Á hjara veraldar 7,5 13,5
Ryð 33,8 12
Dansinn 26,1 10
Skammdegi 8,0 10
Ingaló 17,7 10
Skytturnar 17,8 8
Myrkrahöfðinginn 50,1 6
Hin helgu vé 25,1 5
Draumadísir 13,6 4
Ein stór fjölskylda 2,2 3
* Enn i sýningu
Hrafn Gunnlaugsson er mikilvirkastur íslenskra kvik-
myndagerðarmanna. Hrafn hefur fengiö mest allra úr
Kvikmyndasjóöi, framleitt mest og gert dýrustu
myndina sem fáir vildu sjá.
og það skipti ekki öllu máli hvað var á
tjaldinu, bara ef það var íslenskt.
Þessara áhrifa gætti nokkuð fram
eftir niunda áratugnum en síðan hefur
meðalaðsókn að íslenskum kvikmynd-
um verið um 15-17 þúsund áhorfendur
sem er reyndar tvöfalt meiri aðsókn en
að bandarískum biómyndum en samt
dræm aðsókn miðað við fyrstu vordag-
ana.
Stefna Kvikmyndasjóðs hefur einnig
breyst á þessum 20 árum sem hafa lið-
ið. Það er áreiðanlega á engan hallað
þótt fullyrt sé að pólitísk hreppaskipt-
ing í anda kalda stríðsins hafi sett svip
sinn á úthlutanimar fyrstu árin. í dag
má halda því fram að faglegri vinnu-
brögð ráði ferðinni og meiri áhersla
lögð á að verkefni séu styrkhæf. Sjóð-
urinn setur skilyrði um að lána ekki
til framleiðslu mynda nema upp að
fjórðungi heildarkostnaðar og fram-
leiðendur fá vilyrði í fyrstu en síðar
styrk þegar fiármögnun er trygg að
öðru leyti. Þannig er sjóðurinn bæði
hvati og gæðastimpill á kvikmynda-
verkefni. Einnig er veittur styrkur til
framleiðslu handrita og þá gefst höf-
undum kostur á að fá ráðgjöf hjá sér-
fræðingum sem sjóðurinn útvegar.
Þetta tíðkaðist ekki í árdögum sjóðs-
ins.
Eins og sjá má í töflum og línuritum
hér til hliðar hefur lunginn af fiár-
framlögum Kvikmyndasjóðs í 20 ár far-
ið til nokkurra leikstjóra og bera þeir
Hrafh Gunnlaugsson og Friðrik Þór
Friðriksson höfuð og herðar yfir aöra
á því sviði en þeir hafa fengið meira en
100 milljónir á núvirði þótt Guðný
Halldórsdóttir fylgi fast á hæla þeim
með 97 milljónir rúmar. Allar upphæð-
ir eru framreiknaðar á núvirði miðað
við framfærsluvísitölu.
Hrafn og Friðrik hafa jafnframt
framleitt flestar myndir eða sex hvor.
Þar vantar reyndar Hvíta vikinginn
sem Hrafn gerði en sú mynd fékk ekki
framlag úr Kvikmyndasjóði og Hrafn
neitaði að lokum að leggja nafn sitt við
hana.
Er Lárus
„styrkjahöfðing-
inn 7
Þau þrjú sem eru
efst á listanum eru
öll nýbúin að senda
frá sér kvikmyndir
og er fróðlegt að sjá
hvemig þeim reiðir
af. Myrkrahöfðingi
Hrafns var mjög dýr
en fékk dræma að-
sókn, Ungfrúin góða
og Húsið eftir Guð-
nýju fékk sæmilega
aðsókn en Englar al-
heimsins eftir Frið-
rik Þór stefnir í að
slá öll met í aðsókn
íslenskra kvik-
mynda á seinni
árum en nú hafa
nærri 80 þúsund
manns séð myndina
og er ekkert lát á.
Myrkrahöfðing-
inn hefur gengið
undir gælunaftiinu
„Styrkjahöfðinginn"
manna á meðal og
er þá vísað til þess
að hún var mjög dýr
í framleiðslu. Ef ætti að færa þessa
nafngift yfir á höfund hennar væri það
sennilega ekki sanngjamt því þótt
Hrafn hafi fengið hæstu upphæðimar
þá hefur hann einnig skilað mörgum
myndum.
Sennilega á Láras Ýmir Óskarsson
leikstjóri helst skilið nafnbótina
Agúst Guðmundsson hóf íslenska kvikmyndavoriö með mynd sinni Land og synir. Tvær kvikmyndir Ágústs eru
þær sem hafa fengið mesta aðsókn allra íslenskra mynda.