Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Blaðsíða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Blaðsíða 58
70 afmæli LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 JjV lil hamingju með afmælið 4. mars 85 ára________________ Björg Ólöf Helgadóttir, Mýrargötu 18a, Neskaupstaö. 75 ára Sigurjón Sigurðsson, Syðra-Hvarfi, Svarfaðardal. 70 ára Elísabet A. Möller, Naustahlein 20, Garðabæ. Erla Einarsdóttir, Hólayegi 18, Sauðárkróki. Jón ísleifsson, Þverholti 10, Keflavík. 60 ára Bjarney Kristjánsdóttir, Miðvangi 157, Hafnarfirði. Egill Jónsson, Haukanesi 11, Garðabæ. Guðrún Traustadóttir, Norðurbraut 26, Hafnarfirði. Hilmar Hafstein Svavarsson, Stekkjarseli 5, Reykjavik. Jóhanna Jónasdóttir, Bárugötu 10, Reykjavík. Svanberg Einarsson, Mánahlið 1, Akureyri. Valgerður Kristjánsdóttir, Garðarsbraut 39, Húsavík. 50 ára______________________ Arnþór Árni Ström, Langholtsvegi llOa, Reykjavík. Birgir J. Halldórsson, Grensásvegi 60, Reykjavík. Halldór Sverrisson, Skeiðarvogi 79, Reykjavík. Haraldur Haraldsson, Stangarholti 36, Reykjavík. Hermann Bragason, Bakkahlíð 11, Akureyri. Jóna G. Þórðardóttir, Ljósheimum 14, Reykjavík. Pauline Jean Haftka, Fagurhóli 10, Grundarfirði. 40 ára Auður Eggertsdóttir, Skálatúni, Lönguhlíð, Mosfellsbæ. Friðrik Magnússon, Snægili 24, Akureyri. Kolbrún Bjömsdóttir, Undralandi 10, Reykjavík. Sigrún Birgisdóttir, Leiðhömrum 33, Reykjavík. Somjai Chotcharee, Lyngási 4, Hellu. Þóra Guðmundsdóttir, Kambaseli 81, Reykjavík. Notaðu vfsHlngurinn! Svanfríður Örnólfsdóttir Svanfríður Örnólfsdóttir húsmóð- ir, Blesugróf 8, Reykjavík, er áttræð í dag. Starfsferill Svanfríður fæddist á Suðureyri við Súgandafjörð og ólst þar upp í foreldrahúsum, að undanskildum fimm árum frá átta ára aldri er hún var hjá hjónunum Guðmundi Gils- syni og Sigríði Hagalínsdóttur í Hjarðardal í Önundarfirði. Eftir barnaskólanám var Svanfríður í fiskvinnu og aðstoðaði á heimilum. Svanfríður flutti til Reykjavíkur með foreldrum sínum 1943 og sinnti þar hússtörfum. Er Svanfríður gifti sig sinnti hún heimilisstörfum á eigin heimili en eftir aö bömin komust á legg vann hún nokkur ut- an heimilis við hreingerningar og á matstofum. Fjölskylda Svanfríður giftist 19.12. 1945 Ósk- ari Þórðarsyni, f. 5.6. 1920. Foreldr- ar hans voru Þórður Runólfsson, f. 18.9. 1896, d. 26.9. 1998, bóndi í Haga í Skorradal, og Halldóra Guðjóns- dóttir, f. 8.10. 1891, d. 13.5. 1982, hús- móðir. Börn Svanfríðar og Óskar: Arn- þór, f. 19.2. 1947, d. 26.5. 1994, skrift- vélavirki í Reykjavík, var kvæntur Hrönn Pálsdóttur, f. 1946, og eru börn þeirra Dagný, f. 1970, Berglind, f. 1973, Lilja Dögg, f. 1975, og Amþór, f. 1979; drengur, f. andvana 27.12. 1950; Svandís Ósk, f. 7.7. 1954, starfsmaður í íslands- banka, gift Steinari Jak- obi Kristjánssyni, f. 1950, verslunarmanni hjá Húsasmiðjunni og eru böm þeirra Auður, f. 1974, og Björgvin, f. 1980; Ársæll, f. 26.8. 1960, verslunarmaður hjá Jó- hanni J. Ólafssyni heild- verslun, kvæntur Eugeníu Björk Jósefsdóttur, f. 1961, starfsmanni við leikskóla, og er dóttir þeirra Ástrós Eva, f. 24.11. 1997. Langömmubörn Svanfríðar eru þrjú talsins, Sara Sif og Sveinn Ar- on, börn Dagnýjar Arnþórsdóttur og manns hennar, Sveins Stefánsson- ar, og Örlygur Elvar, sonur Lilju Daggar Arnþórsdóttur og Arnþórs Örlygssonar. Systkini Svanfríðar urðu fimmt- án talsins en tólf þeirra komust á fullorðinsár. Systkini hennar sem komust upp: Kristrún Þórlaug, f. 1902, d. 1978, húsmóðir í Súganda- flrði, gift Birni Guðbjörnssyni verkamanni sem einnig er látinn en þau eignuðust fimm börn; Ríkey, f. 1903, d. 1945, húsmóðir í Súgandafirði, var gift Einari Jóhannssyni, verkamanni og sjó- manni, sem er látinn en þau eignuðust fimm börn; Þorleifur Þorkels- son Örnólfsson, f. 1905, d. 1963, sjómaður á ísa- firöi, kvæntur Ástrúnu Þórðardóttur húsmóður sem er látin og eignuð- ust þau fjögur börn; Sig- ríður Guðmunda, f. 1907, d. 1988, húsmóðir á Akranesi, gift Ólafi Jóns- syni verkamanni sem er látinn en þau eignuðust þrjú börn; Kristjana Júlía, f. 1909, d. 1969, húsmóðir í Reykjavík, var gift Þorláki Jónssyni rafvirkjameistara sem er látinn og eignuðust þau þrjú börn; Jóna Ingi- björg, f. 1911, d. 1985, húsmóðir og verkakona á ísafirði og i Reykjavík, var gift Magnúsi Kristjáni Guðjóns- syni, verslunarmanni á ísafirði, sem er látinn og eignuðust þau þrjú böm; Guðrún Þórey, f. 1914, d. 1997, húsmóðir á Akranesi, var gift Sveini Kristjáni Guðmundssyni, kaupfélagsstjóra og bankastjóra, sem er látinn og eignuðust þau fjög- ur börn; Örnólfur Magnús, f. 1917, d. 1987, rafvirkjameistari í Reykjavík og á Húsavik, var kvæntur Stefaníu Ósk Guðmundsdóttur, húsmóður og verkakonu, og eignuðust þau sjö börn; Ámi, f. 1921, d. 1992, rafvirki og verslunarmaður í Reykjavík, var kvæntur Guðrúnu Jörundardóttur, húsmóður og verkakonu, sem er lát- in og áttu þau eina kjördóttur; Ólaf- ur Ágúst, f. 1923, d. 1990, útvarps- virki í Reykjavík, var kvæntur Kristínu Ingvarsdóttur húsmóður sem er látin og eignuðust þau þrjú böm; Helga Sigurbjörg, f. 1924, d. 1965, húsmóðir í Reykjavík, var gift Baldri Jónassyni, starfsmanni í Áburðarverksmiðjunni, sem er lát- inn og eignuðust þau átta böm; Að- alsteinn Finnur, f. 1927, vélstjóri og sjómaður, síðar húsvörður, kvænt- ur Elínu Eiríksdóttur, húsmóður og verkakonu, en þau eignuðust fimm böm, auk þess sem Aðalsteinn eign- aðist dóttur fyrir hjónaband. Foreldrar Svanfríðar voru Örnólf- ur Jóhannesson, f. 22.8. 1879, d. 5.7. 1955, verkamaður, sjómaður og fisk- matsmaður á Suðureyri, síðar verkamaður í Reykjavik, og k.h., Margrét Guðnadóttir, f. 11.11. 1883, d. 31.1. 1960, húsfreyja. Svanfriður tekur á móti ættingj- um og vinum í safnaðarheimili Bú- staðakirkju á afmælisdaginn milli kl. 16.00 og 20.00. Svanfríður Örnólfsdóttir. Stefán Jónsson Stefán Jónsson, læknir á á rann- sóknardeild Sjúkrahúss Reykjavík- ur, Prestbakka 11, Reykjavík, verð- ur sjötugur á mánudaginn. Starfsferill Stefán fæddist á Svertingsstöðum í Miðfirði. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1951, embættisprófi í læknis- fræði frá HÍ 1959, hlaut almennt lækningaleyfi hérlendis 1962 og í Svíþjóð 1971 og er viöurkenndur sérfræðingur í meinalífeðlisfræði frá 1972. Stefán stundaði nám í el- ektrokardiografi og vekt- orkardiografi við háskólann í Umeá í Sviþjóð 1969, í lungnalífeðlisfræði við háskólann i Gautaborg 1970, í lifeðlisfræði blóðrásar við lífeðlis- fræðistofnun háskólans í Gautaborg 1970-71 og í lungnasjúkdómum og lungnalífeðlisfræði við Cardiot- horacic Institude, Brompton sjúkra- húsið i Lundúnum 1977. Stefán var námskandidat við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri 1959, við fæðingardeild Landspítal- ans og Slysavarðstofuna í Reykjavík 1960, aðstoðarlæknir á Rannsóknar- stofu HÍ 1960-61, héraðslæknir í Ólafsfjarðarhéraði 1961-63, að- stoðaræknir við Borgarspítalann 1963-66, læknir og aðstoðaryfir- læknir við Sahlgrenska sjukhus í Gautaborg og síðan við Centrallasjukhus í Vanersborg - Trollhattan 1966-69, og sérfræðing- ur á rannsóknardeild Borgarspítala 1972-99. Hann starfar nú að hjartarannsóknum við Læknasetrið t Reykjavík. Stefán var lektor í lífeðlisfræði við læknadeild HÍ frá 1971, dósent þar frá 1980, og stundakennari í líf- eðlisfræði við líffræðiskor verk- fræði- og raunvísindadeildar HÍ, við námsbraut í hjúkrun við HÍ, Meina- tæknaskólann og Nýja hjúkrunar- skólann. Stefán var ritari Læknafélagsins Eirar 1973-75, sat í kennslunefnd læknadeildar 1972-73, í deildarráði læknadeildar 1974-76, í vinnu- skyldunefnd, í nefnd um breytingar á reglugerð læknadeildar, í nefnd um starfsreglur vegna stöðuveit- inga, í dómnefnd vegna lektorsstöðu í innkirtlasjúkdómum og í stöðu- nefnd læknaráðs Borgarspítalans frá 1973. Stefán hefur skrifað greinar í er- lend og innlend læknarit. Fjölskylda Stefán kvæntist 30.12. 1960, Esther Garðars- dóttur, f. 29.3. 1935, ljós- móöur. Hún er dóttir Garðars Kristjánssonar, útgerðarmanns á Búðum i Fáskrúðsíirði, og k.h., Guðbjargar Erlínar Guð- mundsdóttur húsmóður. Börn Stefáns og Estherar eru íris Alda, f. 20.12. 1957, kjördóttir, húsmóðir í Grafarvogi, gift Agli Þór Ragnarssyni, forstjóra í Garðabæ, og eru börn þeirra Pétur Ingi, f. 4.3. 1983, Ingibjörg Ragnheið- ur, f. 21.5. 1985, Stefanía Esther, f. 11.6. 1987, Atli Fannar, f. 24.1. 1992, og Hugrún Birta, f. 24.7. 1995; Pétur Hafsteinn, f. 26.3. 1962, kerfisfræð- ingur, kvæntur Áslaugu Sigurðar- dóttur en sonur þeirra er Jón Stef- án, f. 14.7. 1999, auk þess sem stjúp- dóttir Péturs og dóttir Áslaugar er Heiðrún Gissunn Karlsdóttir; Rúna Gerður, f. 23.11. 1964, bankastarfs- maður í Reykjavík, en sambýlis- maður hennar var Hjörtur flugmað- ur og er sonur þeirra Georg Helgi, f. 12.11. 1986. Systkini Stefáns: Guð- finna, f. 23.4.1917, fyrrv. húsfreyja á Stóra-Ösi í Miðfirði; Ingunn, f. 3.1. 1919, d. 3.1. 1979, klæð- skeri í Kópavogi; Þor- gerður, f. 14.8. 1920, hús- freyja og iðnverkakona í Reykjavík, nú í Garða- bæ; Eirikur, f. 27.2.1922, bóndi á Svertingsstöð- um, nú á Laugarbakka; Bjarni, f. 7.12. 1924, bóndi á Svertingsstöð- um, nú á Hvammstanga; Guðlaug, f. 22.6. 1926, húsmóðir og iðnverkakona í Reykjavík; Snorri, f. 15.5. 1928, fyrrv. yíirkennari og full- trúi í Hafnarfirði; Ólafur, f. 27.11. 1931, rafvirkjameistari og forstjóri Ljósgjafans á Akureyri; Gunnlaug- ur, f. 22.1. 1931, framhaldsskóla- kennari, býr í Hafnarfirði; Ragn- heiður, f. 20.11. 1935, kennari og bókasafnsfræðingur, býr í Reykja- vík. Foreldrar Stefáns voru Jón Ei- ríksson, f. 22.6. 1885, d. 10.2. 1975, bóndi á Svertingsstöðum í Miðfirði, og k.h., Hólmfríður Bjarnadóttir, f. 13.10. 1891, d. 24.4. 1981, húsfreyja. Stefán og Esther eru að heiman. Stefán Jónsson. Gizur Gottskálksson Gizur Gottskálksson læknir, Ægisgrund 20, Garðabæ, er fimmtugur í dag. Starfsferill Gizur fæddist að Hvoli i Ölfusi og ólst þar upp. Hann lauk stúd- entsprófl frá ML 1970, embættisprófi i læknis- fræði frá HÍ 1976, var námskandidat við Borg- arspltalann og á Landa- koti 1977-78, og stundaði sérnám i lyflækningum í Örebro og í hjartalækningum í Gautaborg í Svíþjóð 1978-85. Gizur var sérfræðingur í hjarta- lækningum við Borgarspítalann 1985-96, yfirlæknir við hjartadeild Akademiska sjúkrahússins í Upp- sölum í Svíþjóð 1996-97 og er sér- fræöingur við hjartadeild Landsptt- alans frá 1997. Gizur sat i stjórn Fé- lags ungra lækna 1977-78, í stjóm Félags íslenskra lækna 1 Sví- þjóð 1982-84. Hann var bæjarfulltrúi í Garðabæ 1992-98, sat í fjölmörgum nefndum á vegum Garðabæjar 1990-2000, og var varaþingmaður Alþýðuflokkins í Reykja- nesi 1993-95. Gizur hefur skrifað sérfræðigreinar í inn- lend og erlend læknatímarit og greinar um þjóðfélagsmál í innlend dagblöð. Fjölskylda Gizur kvæntist 1.1. 1974 Elínu Kristjönu Sigfúsdóttur, f. 16.5. 1951, bankastarfsmanni. Hún er dóttir Sigfúsar Einarssonar, sjómanns í Neskaupstað, og Ragnhildar Þor- geirsdóttur húsmóður. Börn Gizurar og Elínar Kristjönu eru Sigfús Örn Gizurarson, f. 8.1. 1973, læknir í Reykjavík, í sambúð með Rúnu Guðmundsdóttur og er sonur þeirra Gizur, f. 16.7. 1998; Gottskálk Gizurarson, f. 24.5. 1974, læknanemi í Kaupmannahöfn; Jó- hann Grétar Gizurarson, f. 10.6. 1986, grunnskólanemi. Systkini Gizurar: Guðmundur Gottskálksson, búsettur í Hvera- geröi; Jórunn Gíslína Gottskálks- dóttir, búsett í Hveragerði, en mað- ur hennar er Friðgeir Kristjánsson; Salvör Gottskálksdóttir, búsett í Hafnarflrði, en maður hennar er Vilhelm Adolfsson; Guðrún Ásta Gottskálksdóttir, búsett á Selfossi, en maður hennar er Kristján Jóns- son. Foreldrar Gizurar voru Gottkálk Gizurarson, f. 4.7. 1902, d. 16.9. 1964, bóndi og organisti á Hvoli í Ölfusi, og Gróa Jónsdóttir, f. 8.9. 1907, d. 30.11. 1992, húsfreyja. Ætt Gottskálk var sonur Gissurar, b, og organisti á Hvoli, Gottskálkssonar, b. á Sogni, Gissurarsonar. Móðir Gissur- ar á Sogni var Guðrún Sigurðardóttir, systir Bjarna riddara Sívertsen. Móð- ir Gissurar organista var Salvör Ög- mundsdóttir frá Snæfoksstöðum. Móðir Gottskálks var Jórunn Snorradóttir, b. á Þórustöðum, Gísla- sonar, b. á Kröggólfsstöðum, Eyjólfs- sonar, ættfóður Kröggólfstaðaættar, Gíslasonar. Móðir Jórunnar var Kristín Oddsdóttir, b. á Þúfu, Bjöms- sonar. Gróa var dóttir Jóns, b. í Króki í Ölfusi, Björnssonar, í Vétleifsholts- helli, Björnssonar, og Þuríðar Jóns- dóttur. Móðir Gróu var Guðrún, syst- ir Gissurar á Hvoli. Gizur Gottskálksson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.