Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Blaðsíða 64
LAUGARDAGUR 4. MARS 2000
^ (kvikmyndir
ALVÖRUBIO! rapolby
STAFRÆNT
HLJQÐKERFI í
ÖLLUM SÖLUM!
Sýnd lau. kl. 3.50, 5.50,8,10.10 og 12.20. Sun. kl. 3.50, 5.50, 8 og 10.10.1
Tilnefpd til 4 Öskarsverðlauna
W;
TOM HAN
THE
Green Mile
Sýnd kl. 4.30, 8 og 11.30.
Tilnefnd til 7 Oskarsuerðlaun
AL PACINO RUSSELL CROWE
r Michael Mann nim
THE INSIDE
Sýnd kl. 5,8 og 10.45.
THF BOiE COLLECTOR
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.
Sýnd kl. 2,4 og 6.
lÖlfc^-iroaia Tölwuteiknaða
snilldarverkið
<HII al
★ ★★
DV
„Það þarf snillinga til að gera
niyndir sem þessar11.
Hll/2 SV Mb.
Aðalhlutverk íslenskt tal:
Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16.
Sýnd kl. 2.
Sími 551 9000
Sýnd lau. kl. 8 og
12ámiðn.
Sun. kl. 8.
B.i. 16.
Sýnd lau. kl. 2,4,6,8,10 og 12 á miðnætti.
Sun. kl. 2,4,6,8 og 10.
Sýnd kl. 8 og
10.15.
MasierCmd
2Jyr|r 1 me5 Eurocard
tjl on «6f 5. mars.
Frá leikstiöra
„The Engtish
Patient"
MATI DAMUN
íl\\ \ Mlll i’\l IIU )W
jllDl l V\\
ÍHB
TUF.NTED
MR-Rípley
CATl BiANdlinr
5 Óskarsverðlaunatilnefninqar
Q2>ÍM»p Trí.AF
Tö|yuteikna$a
snilldarverkið
'•fws Diímoy PIiííit smm Jtilí/
★★★★ Empire
SakEaus og
hjálparvana?
Ekld aldeiEis...
LiEIi
Man on the Moon væntanleg í bíó:
Hver var Andy Kaufman?
Þann 24. mars verður frumsýnd í Sambíóunum, Háskóla-
bíói, Akureyri og Keflavík, Man on the Moon, sem er nýjasta
mynd Jims Carreys. Carrey, sem nýlega fékk Golden Globe
verðlaunin fyrir leik sinn í myndinni, er i hlutverki leikar-
ans og grínistans, Andys Kaufmans sem lést um aldur fram
árið 1984 úr krabbameini, aðeins 35 ára aö aldri. Andy
Kaufman var reyndar orðinn svo þekktur fyrir sín furðulegu
uppátæki og hneykslanlega framkomu að fjölmargir héldu
andlát hans bara vera hrekk enda voru það hans ær og kýr
aö koma fram á sviði og ganga fram af áhorfendum, hneyskla
og oft á tíðum hrekja í burtu.
Kaufman varð frægur þegar hann fékk hlutverk Latka
Gravas í sjónvarpsþáttunum Taxi. í þeim þáttum
voru fjölmargir stórleikarar samtímans að stíga sín
fyrstu skref, þar á meðal Danny DeVito, Christoph-
er Lloyd, Tony Dansa, Judd Hirsch og Marilu
Henner. Latka var i raun persóna sem Andy hafði
skapaö áður og oft notað á sviði. Meðleikendur
hans segja reyndar að hann hafi verið svo djúpt
sokkinn í persónuna að enginn leið hafi verið að
ná sambandi við Andy sjálfan, hann hafi sífellt
verið í karakter, hvort sem slökkt hafi verið á
myndavélunum eður ei.
Tony Clifton var nafn á öðrum karakter
Andys. Sú persóna var frekar viðurstyggileg,
feitur, hallærislegur, barsöngvari sem fannst
ekkert skemmtilegra en að móðga konur og
klípa í þær. Eitt af furðulegri uppátækjum Andy
var aö heimta þaö við framleiðendur Taxi-þátt
Danny De Vito leikur umboösmann Kaufmans, en DeVito var einn
mótleikara hans í Taxi.
anna að Tony Clifton yrði ráðinn sem
leikari í einn þátt af Taxi. Andy
þóttist svo fara í frí og sagði með-
leikurum sinum ekki hvernig
væri í pottinn búið. Það er
skemmst frá því að segja aö
Tony Clifton lék svo hörmulega
og hegðaði sér svo illa við tökur
þáttarins að hann var rekinn og
hent út úr stúdíóinu af öryggis-
vörðum. Allar þessar uppá-
komur og margar fleiri
má sjá i mynd-
inni.
Leikstjóri
Man on the
Moon er Milos
Forman en
meðal fyrri
mynda hans
má nefna
The People
Vs. Larry
Flynt, One
Flew over
the Cuckoos
Ama-
og
Hárið. Með-
al annarra
í
on
the Moon
er Courtn-
ey Love
og svo all-
ir meö-
leikarar
Andys úr
Taxi-þátt-
unum þar
á meðal
Danny
DeVito sem
ekki bara
leikur um-
boösmaður
Andys heldur
er einnig einn
framleiðenda
myndarinnar.
Andy Kaufmanna
varö fyrst þekktur
þegar hann lék í
hinum vinsælu
gamanþáttum,
Taxi.
mceáim/ me<£.
The Insider
★★★★ The Insider er einhver besta
kvikmynd sem gerð hefur verið um
fjölmiðlun og tekst leikstjóranum,
Michael Mann (The Last of the
Mohicans, Heat), að ná upp góðri
spennu í kvikmynd sem hefur sterkan
boðskap og mikið raunsæi. The Insider
er einnig kvikmynd um flölmiðlun,
baráttu um fréttir og baráttu við eig-
endur sem hugsa öðruvísi hpldur en
fréttamenn. Mann fær góða hjálp M
Mbærum leikurum, Russel Crowe og
A1 Pacino.
-HK
Bringing Out the Dead
★★★★ Hér erum við enn á ný komin
á slóðir hrelldra sálna þar sem neyðarópin
kveða við úr öllum áttum og helvíti sjálft
virðist i besta falli aðeins einni hæð neðar.
Myndir Scorsese lýsa kröftugum átökum og
birta okkur magnaðar sýnir þar sem leitin að
endurlausn og fyrirgefhingu syndanna
mynda grunntóninn. -ÁS
American Beauty
★★★ Til alirar hamingju fer American
Beauty vel með þetta margþvælda efni, gráa
fiðringinn, óttann við að eldast og lífsins ails-
herjar tilgangsleysi. Styrk og hljóðlát leik-
stjóm ásamt einbeittum leikarahópi lyftir
þessari mynd yflr meðahnennskuna og gerir
hana að eftirminnilegu verki. -ÁS
Magnolia
★★★ Hér er áherslan lögð á þau skemmdar-
verk sem unnin eru í skjóli fjölskyldunnar,
vanrækslu, misnotkun og skeytingarleysi.
Það sem heppnast afar vel er samspil þessara
þráða sögunnar svo úr veröur failegur sam-
hljómur og hjartnæm lýsing á eðii mannlegra
samskipta. Samkenndin með persónunum á
rætur sínar í þeirri vitneskju að við erum öll
tengd en það sem tengir okkur er sú stað-
reynd að öli erum við stök.
Three Kings
★★★ Það er ekki oft sem hægt er að segja
um stríðsmynd að hún sé skemmtileg en það
orð á svo sannarlega við um Three Kings
sem segja má að sé poppuð stríðsmynd þar
sem hefðum er fleygt fyrir borð og bryddað
upp á mörgu nýju sem ekki hefur áður sést 1
stríðsmyndum frá HoUywood. Three Kings
nær á mjög svo sérstakan máta að sameina
spennu og gaman og þótt sum atriðin séu
fúU- groddaleg og blóðug þá er um leið nokk-
urt raunsæi í myndinni, þar sem enn einu
sinni birtist okkur sá sannleikur að þeir sem
þjást mest í stríði eru þeir sem saklausastir
eru. -HK
The Talented Mr. Ripley
★★★Hér er okkur boðið að fmna tU sam-
kenndar með nær algerlega siðblindum morð-
ingja sem á yfirborðinu er hinn ljúfasti pUt-
ur, Médrægur, vingjamlegur og umhyggju-
samur. Afskaplega glæsUegt stykki og svipar
tU hinna rómantísku stórstjömumynda sem
HoUywood sendi frá sér í gamla daga. -ÁS
Toy Story 2
★★★Þetta Mmhald fyrstu LeUtfangasögunn-
ar er, líkt og fyrri myndin, fuU af fjöri fyrir
bæði böm og fuUorðna. Tölvutæknin, sem
notuð er í Toy Story, er undraverð, jafnraun-
veruleg og hún er gervileg en um leið fyrir-
heit um einstakar sýnir sem eiga eftir að
birtast okkur á næstu árum. Hinum fuU-
orðnu er því alveg óhætt að fylgja ungviðinu
á þessa mynd tU að rilja upp gamlan sannleUi
sem kannski hefur rykfaUið svolitið og næra
bamshjartað með ærlegri skemmtan. -ÁS
Anywhere but here
★★★ Styrkur Anywhere but here liggur í
því hversu persónusköpunin er sterk og hvað
leikur Susan Sarandon og Natalie Portman er
Mbær. Það er ekki annað hægt en að hrífast
af glannaskapnum í móðurinni. Wayne Wang
sýndi það í myndum sinum, The Joy Luck
Club og Smoke, að hann er góður sögumaður
kvikmynda þar sem mannlegur breyskleiki
er áberandi og nýtir hann þessa hæfileika vel
í mynd sem hefur mikla hlýju. -HK