Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 4. MARS 2000
%>rgariíf*
Þorvaldur Kristinsson, formaður Samtakanna 78, segir gífurlega aukningu hafa orðið á áhuga erlendra homma og lesbía á Islandi.
„Viðtökurnar hafa verið frábær-
ar. Málningin á veggjunum var
varla þornuö þegar við byrjuðum
að hleypa inn og það hefur nánast
verið fullt hjá okkur síðan. Við
höfum verið með ýmsar uppákom-
ur í gegnum tíöina og reynum að
halda svokölluð þemakvöld reglu-
lega sem eru mjög fjölbreytileg,
allt frá því að allir starfsmenn
hússins setji hárið á sér upp með
teygju og yfir í svokölluð pornó- og
dragkvöld sem hafa mælst mjög
vel fyrir.“
„Hvað fer fram á pornókvöld-
um?“
„Þá koma starfsmenn staðarins
fram fáklæddir og sinna sínum
daglegu skyldum. Gestum staðar-
ins er þá einnig frjálst að mæta fá-
klæddir eða í búningi, s.s. í drag-
búningi eða öðru slíku.“
„Þurfið þið stundum að grípa í
leikinn ef gestir gerast of nær-
göngulir?"
„Það kemur auðvitað fyrir að
fólk er með tilburði hvað við ann-
að í „búrinu" en við stöðvum fólk
umsvifalaust ef við stöndum það
að verki. Ég vil líka taka það fram
að við erum í góðu samstarfi við
yfirvöld og lögreglu um að halda
eiturlyfjum og öðru slíku frá
staðnum," segir Hannes og bendir
á að undantekningarlítið fari allt
mjög vel fram innan veggja staðar-
ins.“
En það eru fleiri staðir en 22 og
Spotlight sem lýsa sig „gay-friend-
ly“. Einn af þeim sem vert er að
nefna í þessu sambandi er Nelly’s
Café í Þingholtsstræti. Nelly’s fór
af stað með pomp og prakt í upp-
hafi með frægum „drag“-kvöldum
og var látið í veðri vaka að staður-
inn væri „gay“-tegundar. Margir
telja þó að svo sé ekki í dag, stað-
urinn hafi fyrst um sinn haft mik-
ið af samkynhneigðum starfs-
mönnum á sínum snærum en það
sé ekki lengur og auk þess séu
ekki fleiri samkynhneigðir sem
sæki þennan stað frekar en ein-
hvem annan.
Þá má nefna MSC ísland i Þing-
holtsstræti á móti Óperunni sem
er einkaklúbbur fyrir „leður-
homrna" sem hafa smekk fyrir leð-
urföt og ýmis leðurunnin tæki og
tól, og er opinn öll laugardags-
kvöld.
Þegar heimasíða ferðaskrifstof-
unnar Rancho Mirage Travel er
skoðuð, en hún gefur sig út fyrir
að vera stærsta feröaskrifstofa fyr-
ir samkynhneigða ferðamenn í
heiminum i dag, kemur jafnframt
margt forvitnilegt í ljós. Þar segir í
umljöllun um „gay-friendly“ staði
á Islandi að Kaffibrennslan við
Austurvöll „sé rómuð fyrir mynd-
arlega „straight" karlmenn en að
staðurinn sé jafnframt vinalegur í
garð samkynhneigðra.“ Dubliners
í Hafnarstræti er einnig nefndur á
nafn, þá Ráðhúskaffi í Ráðhúsi
Reykjavíkur, grænmetisstaðurinn
Á næstu grösum við Laugaveg og
sömuleiðis Vitabarinn við Vitastíg
en um Vitabarinn er þess jafn-
framt getið að „hamborgarar stað-
arins séu þeir bestu í bænum“.
Runnavaxin hæð við
flugvöllinn
Fleiri ummæli í þessum dúr gef-
ur að líta á heimasíðunni en þar
segir m.a. um veitingastaðinn Þrjá
Frakka að hann sé „rómantískur
„gay“ staður sem sérhæfi sig í
hvalkjöti og fískréttum". Jómfrúin
í Lækjargötu er sagður vera „vin-
sæll á laugardagseftirmiðdögum
fyrir snarl og fyrsta bjór dagsins"
og um Humarhúsið er það sérstak-
lega tekiö fram aö staðurinn sé
„gay“-kyns en „þar megi þó einnig
fmna „straight" viöskiptavini."
Loks eru það gistihúsin en okk-
ur tókst að fmna tvö slík sem veita
hommum og lesbium sérstaka
þjónustu, þó eflaust séu þau fleiri.
Það eru gistihúsið Room with a
View á efstu hæð húss Máls og
menningar við Laugaveg og Guest-
house Luna á Spítalastíg en Flug-
leiðahótelin eru einnig nefnd á
nafn þar sem segir að þau veiti
„gay pörum“ á leið sinni til sér-
valinna borga í Evrópu sérstakan
afslátt af gistingu.
Þá eru ótaldir svokallaðir „cru-
ise“-staðir en „cruise" er alþjóðlegt
orð sem notað er meðal samkyn-
hneigðra um staði þar sem hægt er
að komast á séns. Samkvæmt
í Spartacus - the international gay guide er Öskjuhlíðinni lýst sem runna-
vaxinni hæð og fínum samkomustað fyrir homma sem vilja komast á séns.
Skyldi eitthvað leynast í runnunum í kringum þessa garðyrkjukonu?
Spartacus - the inernational gay
guide er aðeins einn slíkur staður
í Reykjavík en það mun vera
Öskjuhlíðin sem orðrétt er lýst
sem runnavaxinni hæð í nálægð
flugvallarins. Flestir sem rætt var
við staðfestu sögusagnir þess efnis
að í Öskjuhlíðinni væru hommar
teknir á löpp en gátu þess þó jafn-
framt að þar væri einkum um að
ræða gifta menn sem ekki væru
komnir út úr skápnum á meðan
flestir samkynhneigðir forðuðust
slíka staði.
Á öðrum stað er gufubaöið í
Sundlaug Vesturbæjar einnig
nefnt til sögunnar en þar segir að'-
það sé „very cruisey" eða með öðr-
um orðum mjög árennilegt á séns-
skalanum. Þónokkrir af þeim sem
rætt var við könnuðust við sánurn-
ar, sögðust reyndar aldrei hafa not-
að þær sjálfir, en þær væru helst
notaðar af samkynhneigðu fólki
sem ekki væru í fostu sambandi og
til skyndikynna.
„Pink money" eða
breytt viðhorf?
Augljóst er að flóran i menning-
arheimi samkynhneigðra er mikil
og hér hefur einungis verið drepið
á það helsta sem í boði er. Þegar^.
litið er til þess aö aöeins 22 ár eru
liðin frá því að Samtökin ‘78 voru
stofnuð, sem málsvari og leiðandi
afl í réttindabaráttu homma og
iesbía hér á landi, er með ólíkind-
um hversu margt hefur breyst í átt
að opnari umræðu á ekki lengri
tíma. Sé eingöngu horft til menn-
ingarheimsins, sem hér var til um-
ræðu, sést að mikil gróska virðist
vera komin í þjónustu- og afþrey-
ingariðnaðinn sem býður nú sam-
kynhneigðum upp á þjónustu við
þeirra hæfi. Hvort áhrifamáttur
peninganna ræður þar mestu um-
og hvort menn vilja þar meö næla
sér í sinn skerf af peningum sam-
kynhneigðra, svokölluðum „pink
money“ á leikmáli, eða hvort opn-
ari umræða og breytt viðhorf gagn-
vart hommum og lesbíum hefur
loks skOað sér inn í þjóðfélagið
skal hins vegar ósagt látið.
-KGP