Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Page 14
14 LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 UV útlönd Rússneski blaöamaöurinn Andrei Babitskí flutti óþægilegar fréttir frá Tsjetsjeníu: Pyntingar og barsmíðar í illræmdum fangabúðum Rússneski blaöamaöurinn Andrei Babitskí hlýöir á spurningar kollega sinna á fundi i Moskvu í vikunni þar sem hann greindi frá varöhaldi sínu í Tsjetsjeníu í sex vikur eöa svo, fyrst í alræmdum fangabúöum Rússa og síöan á valdi ókunnra manna sem hann grunar aö tengdir séu rússnesku leyniþjónustunni. Rússneski blaðamaðurinn Andrei Babitskí kvartar ekkert undan meðferðinni í Tsjernokosovó-fanga- búðum rússneska hersins í Tsjetsjeníu þar sem mannréttinda- samtök segja að stundaðar séu pynt- ingar og barsmíðar á tsjetsjenskum föngum. „Ég var ekki barinn nema nokkra tugi sinnum með kylfu. Það er létt- væg og venjubundin meðferð sem allir nýliðar fá og öll merki um hana hverfa innan tveggja eða þriggja daga og valda ekki neinum varanlegum skaða innvortis," segir hinn 35 ára gamli Babitskí um tveggja vikna fangavist sína. „Það er þó ekkert í samanburði við það sem Tsjetsjenar mega þola. Þeir eru lúbarðir og pyntaðir." Tekinn viö Grozní Babitskí, sem starfaði fyrir út- varpsstöðina Radio Liberty, sem bandarísk stjórnvöld fjármagna, kom til Moskvu í vikubyrjun. Þá hafði litið sem ekkert spurst til hans frá því um miðjan janúar þeg- ar rússneskir hermenn handtóku hann við Grozni, héraöshöfuðborg Tsjetsjeníu. Hvarf blaðamannsins vakti mikla athygli um allan heim og lágu Rússar undir miklu ámæli fyrir að gera ekki hreint fyrir sín- um dyrum. Stjórnvöld þrættu lengi vel fyrir það að vita nokkuð um hvar Babitskí væri niðurkominn þótt sjónarvottar hefðu greint frá því að hann væri í haldi rússneskra her- manna. Það var svo ekki fyrr en 27. janúar að stjómvöld tilkynntu að blaðamaðurinn hefði verið handtek- inn og sakaður um aðild að vopnuð- um hópi, eins og það var orðað. Nokkrum dögum síðar var skýring- in á handtökunni sú að maðurinn hefði ekki farið að reglum þeim sem giltu um störf blaðamanna. Babitskí gat sér gott orð fyrir fréttaflutning sinn af stríðinu í Tsjetsjeníu á árunum 1994 til 1996. í átökunum nú var hann að baki víg- línunni og flutti fréttir úr búðum Tsjetsjena. Fréttir hans fóru mjög fyrir brjóstið á ráðamönnum í Kreml þar sem þær flettu ofan af áróðursvél stjórnvalda um gang mála í átökunum. Babitkí lýsti með- al annars skefjalausri eyðilegging- unni af völdum sprengjuárása Rússa, hörmungum óbreyttra borg- ara og sagði frá rússnesku her- mönnunum sem féflu og vori skild- ir eftir á vígvellinum. Birtingarform þjáninganna í viðtölum við fjölmiðla eftir heimkomuna til Moskvu greindi Babitskí frá þvi sem hann hafði séð og heyrt í Tsjemokosovó-fangabúð- unum. „Ég heyrði svo mismunandi birt- ingarform mannlegs sársauka, ekki bara venjuleg öskur, heldur alls konar tóna og tilbrigði. Mismun- andi pyntingaraðferðir, mismun- andi barsmíðar framköfluðu mis- munandi viðbrögð," segir Babitskí. Hann segist til dæmis hafa heyrt ópin 1 konu nokkurri og að greini- legt hafi verið að hún sætti frunta- legum pyntingum i langan tíma. Þá segist hann hafa heyrt varðmenn- ina hóta karli í búðunum að skera af honum útlim og drógu hann inn eftir gangi á sama tíma og gengið var í skrokk á öðrum manni. Svo var það Aslanbek Sjarípov í Tsjernokosovó. „Hann var laminn kvölds og morgna og áður en yfir lauk voru þeir búnir að brjóta í hon- um allar tennurnar. Þetta voru sadistar," segir Babitskí og á þar að sjálfsögðu við verðina i fangabúðun- um. Ofan á barsmíðamar máttu fang- arnir svo stundum þola það að táragasi væri sprautað inn í klefana þeirra. „Aflt sem við lesum um þrælkun- arbúðir Stalíns, allt sem við vitum um útrýmingarbúðir Þjóðverja er að finna þarna,“ segir blaðamaður- inn um Tsjernokosovófangabúðim- ar. í skiptum fyrir dáta Stjómvöld í Moskvu tilkynntu þann 3. febrúar að skipt hefði verið á Andrei Bab- itskí og nokkrum rússneskum her- mönnum sem uppreisnarmenn í Tsjetsjeníu höfðu á valdi sinu. Fréttinni frá Moskvu fylgdi mynd- bandsupptaka af fangaskiptunum sem tekin var af útsendara rúss- nesku leyniþjónustunnar FSB, arf- taka hinnar sálugu KGB. Útsendar- inn ku hafa verið á staðnum fyrir tilviljun. Tveir grímuklæddir menn tóku við Babitskí eftir fangaskiptin leiddu hann að bíl, settu grímu yflr andlitið á honum og fóru með hann í þorp eitt þar sem honum var hald- ið í þrjár vikur, í gæslu tveggja manna. Þar var hann beittur líkam- legum og sálfræðilegum þrýstingi og hann fékk engar upplýsingar. Hugmyndina um fangaskiptin má rekja til manns sem kom að máli við Babitskí í Tsjernokosovó-fanga- búðunum. Sá sagðist vera fulltrúi nefndar sem hefði það að markmiði ao leysa rússneska stríðsfanga í Tsjetsjeníu úr haldi. Maðurinn sagði að Tsjetsjenar vfldu fá Babitskí og væru reiðubúnir að sleppa rússneskum hermönnum í staðinn. „Ég velti þessi fyrir mér í tíu mín- útur og komst að þeirri niöurstöu að ég væri tilbúinn í slaginn,“ segir Babitski. Hann lagði áherslu á að han yrði afhentur tsje- tsjenskum stríðs- foringja sem hann þekkti, Túrpal-ali Atgeríjev. Brögö í tafli Blaðamaðurinn Óleg Kúsov, sem hitti Babitskí í Dagestan í lok síð- ustu viku, sagði fréttamönnum í Moskvu að þegar Babitskí hefði séð grímuklæddu mennina við fanga- skiptin hefði hann vitaö að þetta væri ekki Atgeríjev. Hann hefði reynt að neita að taka þátt í skipt- unum en það hefði verið of seint. „Grímuklæddi maðurinn tók harkalega í höndina á honum og leiddi hann að bílnum. Þetta voru nauðungarskipti," segir Kúsov. Útsendarar stjórnvalda Babitskí telur að mennirnir sem tóku við honum 3. febrúar hafi ver- ið útsendarar rússneskra yflrvalda, þótt þau haldi því fram að þeir hafi verið tsjetsjenskir uppreisnarmenn. „Ég hef engar afgerandi sannanir en það er margt sem styður þessa kenningu," segir Babitskí. Hann segir að Tsjetsjenarnir hafi kynnt sig sem stuðningsmenn stríðsherrans Adams Deníevs sem fylgir stjórnvöldum í Moskvu að málum. Þeir neituðu að sleppa hon- um og einhverju sinni þvinguðu þeir hann til að krefja Radio liberty útvarpsstöðina um tveggja milljóna dollara lausnargjald. Hann segir að mennirnir hafi komið upp um tengsl sín við leyniþjónustuna með orðfæri sínu og ýmsu öðru. „Þeir þvinguðu mig einnig með byssum sínum til að sverja þess dýran eið að berjast við Rússa og Bandaríkjamenn og hótuðu að drepa mig og fjölskyldu mina ef ég gengi á bak orða minna," segir Babitskí. Alexander Zdanovítsj, talsmaður leyniþjónustunnar, segir ekkert hæft í því að rússneskir útsendarar hafl haft Babitskí i haldi. Á fóstudag í siöustu viku var Babitskí lokaður niðri í farangurs- rými á bifreið af Volgu-gerð og far- ið með hann til nágrannaríkisins Dagestans. Ekki reyndist neinum vandkvæðum bundið að komast í gegnum allar eftirlitsstöðvar á leið- inni. í Dagestan fékk Babitskí fals- aðan aserbaídsjanskan passa með mynd af honum í og var sagt að fara yfir til Aserbaídsjan. Handsamaður á hóteli Það tókst þó ekki þar sem ein- hvern stimpil vantaði. Þá var Babitskí fenginn fylgdarmaður sem átti að reyna að koma honum yfir landamærin. Babitskí tókst hins vegar að sannfæra manninn um að sleppa honum í bænum Makhat- sjkala. Hann var svo handtekinn þá um kvöldið á Kaspíahafshótelinu í bænum. Á sunnudag var hann ákærður fyrir að hafa fölsuð skil- ríki í fórum sínum og á mánudags- kvöld var hann fluttur fyrirvara- laust til Moskvu með sérstakri flug- vél frá innanríkisráðuneytinu. Ekki einu sinni eiginkona hans og lög- maður, sem komin voru til Dagestans, voru látin vita. Babitskí var svo látinn laus á mánudag, allþrekaður eftir atburði undangenginna vikna. „Ég tengi aflt sem kom fyrir mig einhverri hryllilegri sögu sem ég fæ engan botn í. Ég get aðeins getið mér til hann,“ segir rússneski blaðamaðurinn Andrei Babitskí, kvæntur tveggja barna faðir og textafræðingur að mennt. Byggt á Le Monde, Libération, Reuters, Washington Post, AP, o.fl. Hér má sjá mynd úr hinni frægu upptöku á fangaskiptunum í febrúarbyrjun. Þá slepptu rússneskir hermenn blaðamanninum Andrei Babitskí og fengu í staöinn nokkra úr eigin rööum sem höföu veriö á valdi uppreisnarmanna í Tsjetsjeníu. Ýmsum sögum fer af því hverjir tóku viö blaöamanninum. Erlent frétta- Ijós

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.