Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 TIV
fjölskyldumál
Vetrarfrí grunnskólanna
Um þessar mundir eru að hefjast
vetrarfrí í mörgum grunnskólum
landsins. Er þetta vetrarfrí örugg-
lega flestum nemendum kærkomið.
Þau sleppa þá um stundarsakir út
úr skólastofunni og geti hvilt sig
vel áður en síðari hluti vorannar-
innar hefst. Slík vetrarfrí i skólum
eru haldin í flestum nágrannalönd-
um okkar og þar er reyndar löng
hefð fyrir því að gera hlé á skóla-
starfinu um miðjan vetur. En þar
er líka sú hefð ríkjandi að foreldr-
ar taka sér vetrarfrí um leið og
börnin fá fríið í skólanum. Vetrar-
frí er þannig vandlega skrifað inn í
vetraráætlun allrar íjölskyldunnar.
Margir nota tækifærið til þess að
fara í smá ferðalag, t.d. sækja Norð-
urlandabúar stíft í skíðalöndin í
Svíþjóð og Noregi. Þegar fríinu lýk-
ur mæta síðan allir endurnærðir
aftur til starfa, börnin í skólann og
foreldrarnir í vinnuna. Vetrarfríið
er þannig hugsað fyrir alla fjöl-
skylduna. Hér á landi eru aðstæður
aðrar. Það er engin hefð fyrir vetr-
arfríi á vinnumarkaðnum eða 1
skólunum. Og vetrarfríiö sem nú
er haldið, er ekki heldur upphafið á
slíkri hefð. Það er alls ekki haldið
vetrarfri vegna bamanna eða fjöl-
skyldnanna. Nei, vetrarfríið er
haldið til þess að uppfylla einhver
ákvæði í kjarasamningi kennara.
Það stendur bara þannig á núna í
vetur að það verður að bæta inn
nokkrum frídögum til þess að
kennarar fari ekki fram úr
kennsluskyldu sinni, samkvæmt
áðurnefndum kjarasamningum.
Ekkert sambærilegt vetrarfrí verð-
ur á komandi vetri. Næst verður
vetrarfrí í skólunum þegar álíka
aðstæður skapast á dagatalinu.
Af því að engin hefð ríkir hér á
landi fyrir vetrarfríi eiga fæstir
foreldrar möguleika á því að taka
sér auka frí um miðjan vetur. Ekki
stendur heldur til að setja vetrarfrí
á dagskrá í þeim kjarasamningum
sem nú standa yfir, eða hvað? Alla
vega hefur vetrarfrí ekki verið
hluti af kjarasamningum flestra
launamanna og -kvenna á íslandi
hingað til. Og þess vegna vandast
nú málið þegar vetrarfrí skólanna
byrjar. Hvað á að gera við blessuð
bömin í fríi grunnskólanna? Flest-
ir foreldrar eru útivinnandi og
þurfa að mæta í sína vinnu hvort
sem börnin eiga frí í skólanum eða
ekki. Margir foreldrar lenda
þannig í stökustu vandræðum. Það
er hætt við að mörg böm lendi líka
i vandræðum. Ef enginn getur ver-
ið heima hjá yngri börnunum, þá
verða þau bara að bjarga sér sjálf.
Og hvað á t.d. 6 ára barn að gera
eitt heima frá kl. 8.00-16.00? Hið
sama gildir að sjálfsögðu með ung-
lingana. í vetrarfríinu er enginn
sem hefur auga með þeim. Ætli
margir unglingarnir kjósa ekki
bara að eyða vetrarfríinu á göng-
um Kringlunnar eða í öðrum slík-
um stórmörkuðum, alla vega hér á
höfuðborgarsvæðinu? Ég er ekkert
viss um að allir foreldrar séu
ánægðir með það, en hvað er hægt
að gera í málinu? Skólarnir skella í
lás og einhvers staðar verða bless-
aðir unglingarnir að vera. Foreldr-
ar reyna auðvitað að „redda mál-
unum“ hver með sínum hætti. En
ekki verða þær reddingar til að
minnka stressið á heimilum lands-
ins sem er víst nóg fyrir.
Og þá læðist að manni spurning-
in: Er eitthvað sambandsleysi á
milli skólans og heimilanna í land-
inu? Skólinn er nefnilega í dag ekki
eingöngu fræðslustofnun, heldur er
hann líka staður sem annast um
„Þaö er alls ekki haldið
vetrarfrí vegna barn-
anna eða fjölskyldnanna.
Nei, vetrarfríið er haldið
til þess aó uppfylla ein-
hver ákvœði í kjara-
samningi kennara“.
börnin og unglingana á meðan for-
eldrarnir eru í vinnunni. Á flestum
heimilum er ekki lengur einhver
fullorðinn sem bíður heima eftir
börnunum og getur séð um þau þeg-
ar skólinn skellur í lás í miðri
vinnuviku. Það gerist reyndar oftar
að skólar loki en í þessu vetrarfríi
sem nú er að hefjast. Fræðsludagar,
foreldradagar og aðrir frídagar skól-
anna koma oft illa við fjölskyldurn-
ar. Auðvitað er gott ef öll fjölskyld-
an getur tekið sér vetrarfrí. En á
meðan svo er ekki og ef skólafríið er
eingöngu til vandræða fyrir börn og
foreldra, þá ættu skólayflrvöld að
hugsa sinn gang. Þetta var allt f lagi
hér áður þegar mamma var heima.
En nú er víst öldin önnur. Þórhall-
ur Heimisson
Ifi/nm breytingar
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur er
að gáð kemur í ljós að á myndinni
til hægri hefur fimm atriðum ver-
ið breytt.
Finnir þú
þessi
fimm at-
riði
skaltu
merkja
við þau
með
krossi á
myndinni til hægri og senda okk-
ur hana ásamt nafni þínu og
heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigur-
vegaranna.
í
1. verðlaun:
United-sími með
símanúmerabirti frá
Sjónvarpsmiðstöðinni,
Síðumúla 2,
að verðmæti kr. 6.990.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur að verðmæti
kr. 1570, Sekur 'eftir Scott Turow og
Kólibrísúpan eftir David Parry og
Patrick Withrow.
Vinningarnir veróa sendir heim.
Merkiö umslagiö með lausninni:
Finnur þú fimm
breytingar? 557
c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík
Finnur þú fimm breytingar? 557
Ekki gleyma aftur aö nota mýkingarefnið í þvottinn!
Naf n:___________________________________■________
Heimili:__________________________________________
Vinningshafar fyrir getraun
númer 556 eru:
Dómhildur Glassford. Skúlagötu 46.101 Reykjavík.
Krístín M. Eggertsdóttir. Starengi 28.02-04.112 Reykjavík.
BRETLAND
SKÁLDSÖGUR - KIUUR:
1. Tom Clancy: Rainbow Six.
2. Danielle Steel: The Klone and I.
3. Dick Francis: Reld of Thirteen.
4. Ruth Rendell: A Sight for Sore
Eyes.
5. Sebastlan Faulks: Charlotte Grey.
6. James Patterson: When the Wind
Blows.
7. Elvi Rhodes: Spring Music.
8. Charlotte Bingham: The Kissing
Garden.
9. Nicholas Evans: The Loop.
10. Jane Green: Mr Maybe.
RIT ALM. EÐLIS - KIUUR:
1. Amanda Foreman: Georgina,
Duchess of Devonshire.
2. Chris Stewart: Driving over
Lemons.
3. Tony Adams o.fl.: Addicted.
4. Anthony Beevor: Stalingrad.
5. Frank McCourt: Angela's Ashes.
6. Bill Bryson: Notes from a Small
Island.
7. John Gray: Men Are from Mars,
Women Are from Venus.
8. Richard Branson: Losing My
Virginity.
9. Simon Winchester: The Surgeon
of Crowthorne.
10. Tony Hawks: Around Ireland with
a Fridge.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. Dick Francis: Second Wind.
2. Thomas Harris: Hannibal.
3. Danielle Steei: Granny Dan.
4: Roddy Doyle: A Star Called Henry.
5. Penny Vincenzi: Almost a Crime.
6. Ruth Rendell: Harm Done.
7. lain Banks: The Business.
8. Jill Cooper: Score!
9. Kathy Reichs: Death Du Jour.
10. Elizabeth George: In Pursuit of
the Proper Sinner.
INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS:
1. Alex Ferguson: Managing My Life.
2. John Humphrys: Devil’s Advocate.
3. Simon Singh: The Code Book.
4. Bob Howitt: Graham Henry;
Supercoach.
5. Brian Keenan o.fl.: Between
Extremes.
6. Lenny McLean: The Guv'nor.
(Byggt á The Sunday Times)
BANDARÍKIN
SKÁLDSÖGUR - KIUUR:
1. Anita Shreve: The Pilot's Wife.
2. Tom Clancy: Rainbow Six.
3. Penelope Fitzgerald: The Blue
Flower.
4. Arthur Golden: Memoirs of a
Geisha.
5 Judy Blume: Summer Sisters.
6. Patricia Cornwell: Point of Origin,
7. Rebecca Wells: Divine Secrets of
the Ya-Ya Sisterhood.
8. Margaret Truman: Murder at
Watergate.
9. Sidney Sheldon: Tell Me Your
Dreams.
10. Tami Hoag: Still Waters.
RIT ALM. EÐLIS - KIUUR:
1. Robert C. Atkins: Dr. Atkins’ New
Diet Revolution.
2. Frank McCourt: Angela’s Ashes.
3. John Berendt: Midnight in the
Garden of Good and Evil.
4. Michael R. Eades o.fl.: Protein
Power.
5. John E. Sarno: Heaiing Back Pain.
6. Jared Diamond: Guns, Germs and
Steel.
7. Sebastian Junger: The Perfect
Storm.
8. Adeline Yen Mah: Falling Leaves.
9. William L. Ury: Getting Past No.
10. Gary Zukav: The Seat of the
Soul.
INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR:
1. Patricia Cornwell: Black Notice.
2. Thomas Harris: Hannibal.
3. Melissa Bank: The Girl’s Guide to
Hunting and Fishing.
4. Jeffery Deaver: The Devil's
Teardrop.
5. Tim F. LaHaye: Assasins.
6. Catherine Coulter: The Edge.
INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS:
1. Suzanne Somers: Suzanne.
Somers'Get Skinny on Fabulous
Food.
2. Mitch Albom: Tuesdays with
Morrie.
3. Christopher Andersen: Bill and
Hillary: The Marriage.
4. Bill Philips: Body for Life.
5. H. Leighton Steward o.fl.: Sugar
Busters.
6. Sally Bedell Smith: Diana, in
Search of Herself.
(Byggt á The Washington Post)