Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Side 20
- hvað verður um hann þar?
Margir hafa velt því fyrir sér hvaö muni
gerast með Pinochet í heimalandi sfnu.
Hershöföinginn Augusto Pinochet
er nú kominn til heimalands síns,
Chile, eftir meira en 16 mánaða stofu-
fangelsi í Bret-
landi. Pinochet
var handtekinn
þar í október
1998 að beiðni
Baltazar Garzón,
dómara frá
Spáni, sem
ákærði hers-
höfðingjann fyr-
ir ýmsa glæpi,
m.a. þjóðar-
morð, árin eftir
stjómarbylting-
una 1973, en þús-
undir manna
hurfu á því
dökka tímabili í
sögu landsins.
Pinochet var
leystur úr haldi
vegna þess að heilsu hans hafði hrak-
að mikið og læknar töldu hann ekki
geta verið viðstaddan réttarhöld á
Spáni. Margir hafa velt því fyrir sér
hvað muni gerast með Pinochet í
heimalandi sínu, nú þegar nýr for-
seti, Ricardo Lagos, hefur verið kos-
inn; verður hann dæmdur þar fyrir
mannréttindabrot eða nýtur hann
friðhelgi í skjóli slæmrar heilsu og
gamalla valda?
Lagos hverfur frá sósíalisma
Ricardo Lagos, frambjóðandi mið-
vinstri kosningabandalags, vann ný-
lega sigur á Joaquín Lavín, frambjóð-
anda hægriflokksins, með 51,3% at-
kvæða gegn 48,6%. Lagos, sem er
menntaður lögfræðingur og hagfræð-
ingur, var stuðningsmaður og ráð-
gjafi í stjórn sósíalistans Salvador
Allende árin 1970-1973. Vegna bak-
grunns hans hafa ýmsir haldið því
fram að gömul sár, sem ekki virðast
fullgróin enn, verði ýfð upp. Lagos
var þó duglegur í kosningabaráttunni
að sannfæra þjóðina um að á meðan
fortíðin væri ekki gleymd heyrði hún
sögunni til og að nauðsynlegt væri að
horfa til framtíðar og styrkja lýðræð-
isþróunina í landinu. Síðan 1973 hef-
ur Lagos slakað á hinni gömlu sósial-
ísku hugmyndafræði sinni og nú
kennir hann sig við evrópska jafnað-
arstefnu. Eftir valdatöku herforingja-
stjómarinnar fór hann úr landi og
vann fyrir sér meðal annars sem
kennari viö háskóla í Bandaríkjunum
og sem efnahagsráðunautur hjá Sam-
einuðu þjóðunum áður en hann sneri
aftur til þess að taka þátt í lýðræðis-
þróun Chile.
Lagos hefur sagt að hann muni
fylgja svipaðri efnahagsstefnu og fyr-
ir er en beita sér einnig fyrir félags-
legum umbótum. Efhahagurinn er
sterkur um þessar mundir, um 5%
hagvöxtur, verðbólga er næstum eng-
in, atvinnuleysi fer minnkandi og rík-
isskuldir eru lágar. Chile er þó ekki
laust við þau fjölmörgu félagslegu
vandamál sem
hrjá Rómönsku
Ameríku og er
talið vera að und-
anskilinni Brasil-
íu, það land sem
hefur mesta félags-
lega misskiptingu,
en samkvæmt
Sameinuðu þjóð-
unum býr fimmti
hver íbúi þess
undir fátæktar-
mörkum, auk þess
sem yfir 70% af
íbúum þjóðarinnar
þurfa að lifa við af-
leitt heilbrigðis-
kerii. Atvinnuleys-
isbætur eru ekki
til og vinnulöggjöf-
inni, sem sett var á í tíð Pinochet í
fjarveru þings og verkalýðsfélaga, er
mjög ábótavant.
Lýðræðið ruddi Pinochet
úrvegi
Lýðræðisþróunin í Chile hóf göngu
sína í lok níunda áratugarins en Pin-
ochet vék fyrir lýðræðislega kosnum
forseta, Patricio Aylwin, árið 1990.
Margir fræðimenn nú álíta að á þess-
um 11 árum hafi lýðræðiö styrkst til
muna og að erfiðasti hluti umbreyt-
inganna frá einræði herforingja-
stjórnarinnar sé að baki. Það er þó
nauðsynlegt að taka þá afstöðu með
fyrirvara því það virðist gjaman
gleymast hvemig staðið var að þess-
um umbreytingum. En það var
einmitt einræðisstjóm Pinochets sem
stóð að þeim. Hershöfðinginn réð þar
af leiðandi flestum ákvæðum um
hversu hraðar og sannar þær skyldu
vera. Herforingjastjórn hans missti
því aldrei réttmæti sitt. Lýðræðisþró-
unin í Chile var ekki eins og í Argent-
ínu þar sem herinn missti réttmæti
stjórnar sinnar eftir Falklandseyja-
stríðið í byrjun níunda áratugarins
með þeim afleiðingum að hann réð
ekki þróun umbreytinganna. Þar í
landi var því hægt að sækja til saka
ýmsa herforingja sem vom ábyrgir
fyrir dauða og hvarfi þúsunda
Argentínumanna, eftir að borgaraleg
stjórn komst á.
Herinn sterkur
Staða hersins í Chile er því mjög
sterk og er það þjóðinni enn í fersku
minni þegar Pinochet gaf út yfirlýs-
ingu í byrjun lýðræðisumbreytinga
þar, að ef einhver af sínum mönnum
yrði kallaður til yfirheyrslu til að
gera upp fortíðina myndi hann ein-
faldlega koma í veg fyrir frekari lýð-
ræðisþróun. Síðan em liðin nokkur
Augusto Pinochet er nú kominn til heimalands síns, Chile.
ár og margt hefur breyst, en þó að
hershöfðinginn sé orðinn eldri og
borgaraleg öfl sterkari skyldi enginn
efast um styrk og völd hersins sem
gerir það að verkum að erfitt verður
að sækja Pinochet til saka fyrir
mannréttindabrot án þess að stofna
lýðræðisþróun landsins í hættu. Auk
þess nýtur Pinochet friðhelgi þar sem
hann er meðlimur í öldungardeild
þingsins til lífstíðar. Til þess að af-
nema þennan rétt hershöfðingjans
þarf að breyta stjómarskránni sem
getur orðið ansi torsótt því meirihluti
öldungadeildarinnar, sem þarf að
samþykkja breytingu af þvi tagi, til-
heyrir stuðningsmönnum Pinochets. -
Ekki sjálfgefið að hlífa
Pinocnet
Þegar Lagos hefur verið spurður
um mál Pinochets og heimkomu hans
hefur nýkjörinn forseti svarað því að
mál hershöfðingjans heyri ekki undir
forsetaembættið heldur dómstóla
landsins. Lagos gerir sér grein fyrir
því hve sterk arfleifð hersins er og
hefur verið varkár að taka persónu-
lega afstöðu í málinu, bæði til að
ógna ekki andstæðingum sínum, sem
flestir eru stuðningsmenn Pinochets,
og særa ekki fjölskyldur þeirra
horfnu. Helsta verkefni Lagos er
einmitt að brúa bilið milli þessara
tveggja hópa Chilebúa, þeirra sem
telja Pinochet hafa verið hetju sem
frelsaði þjóðina undan hættum
kommúnismans og þeirra sem líta á
hann sem morðingja og ábyrgan fyrir
hvarfi þúsunda saklausra borgara.
Þjóðfélagið er því enn tvískipt, með
fýrri hópinn enn mjög valdamikinn,
og er því ekkert sjálfgefið að haida að
Pinochet verði látinn svara fyrir for-
tíðina, jafnvel þó að gamall sósíalisti
sé nú orðinn forseti.
Stefán Á. Guðmimdsson
magister í menningarsögu
Rómönsku Ameríku
B R Æ Ð U R N I R
þarf ekki að kosta meira
Þú kemst að því þegar þú heimsækir okkur.
Með því að auka fjölbreytni í þjónustu okkar viljum við spara húseigendum dýrmætan tíma og fjármuni. Það
hefur ótvíræða kosti að geta gengið að gæðunum vísum á sama stað - hvort sem um er að ræða heimilistæki,
innréttingar - eða allt hitt sem Bræðurnir Ormsson hafa upp á að bjóða.
Glæsilegur sýningarsalur f Lágmúla 8, 3. hæð - líttu við
0+354 5302800