Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Síða 22
22
LAUGARDAGUR 4. MARS 2000
1899 - 2000
7 Á íslandi fró 1925
UTSALA
Fiat Marea 2.0 20V 6/98,
"147 hesta fjölskyldusportbíll með öllu",
ek. 25 þús., 5 d., 5 g., ABS.Ioftpúðar, þokulj,
þjófavörn, álfelgur, viðarklæðning, spoiler.
Verð kr. 1.600 þús.
Fiat Marea Weekend 5/97
"Snyrtilegur ferða- og fjölskyldubíll",
ek. 50 þús., 5 d., 5 g., ABSJoftpúðar,
rafdr. rúður, samlæsingar o.fl.
Útsöluverð kr. 1.090 þús.
Toyota Touring 4x4. '94
"Tilbúinn til átaka í vetrarfærðinni",
ek. 140 þús., 5 d., 5 g.,
sumar- og vetrardekk.
Útsöluverð kr. 690 þús.
Fiat Punto 75SX '95
Daihatsu Charade 1,3 SR
"Gangviss sparibaukur á frábæru verði",
6/93, ek. 92 þús., 5 g., útvarp og segulband.
Útsöluverð kr. 350 þús.
"Einn mest seldi bíll Evrópu ár eftir ár",
ek. 60 þús., 5 d., 5 g.,
14" álfelgur, samlæsingar..
Útsöluverð kr. 640 þús.
Opel Astra st. 1,6 GL 5/97
"Skutbiil með kúlu",
ek. 49 þús., 5 d., 5 g.,
dráttarkrókur, vökvast.
Útsöluverð kr. 890 þús.
/**•
Istrakfor
Smiðsbúð 2 Garðabæ
Sími 5 400 800
www.istraktor.is
Opið laugardaga 13-17
Frá vinstri: Hallgrímur Egilsson, liðsstjóri og keppnismaður, Steingrímur Thorarensen, formaður ÍPF, og Sonja Viktorsdóttir keppniskona.
iföf:, %& i X 1 “ -i. 1 ■
m H * ■ .
Undirbúningur fyrir Norðurlandamót í fullum gangi:
Drekkum, köstum og verum glaðir
- á æfingu hjá landsliðshópi íslendinga í pílukasti
Pílukast er ein af þessum
íþróttagreinum sem allir þekkja en
fæstir stunda. Margir hafa eflaust
haft einhver kynni af sportinu í
bamæsku en það hefur lengi þótt
ómissandi í hverju barnaherbergi
að hafa píluspjald og pílur, eins
þótt fæstir hafi nokkurn tímann
leitt hugann að því að þessi sömu
börn myndu síðar á ævinni demba
sér út í pílukast af fullri alvöru og
jafnvel keppa fyrir íslands hönd á
erlendri grundu. Það er nú samt
svo I þessu eins og öðru að harður
kjarni keppnismanna kemur reglu-
lega saman og spilar og fram und-
an er Norðurlandamót í pílukasti
sem fram fer í Helsinki. Þar munu
keppa auk þeirra fulltrúar frá Pól-
landi, Rússlandi og Eystrasaltsríkj-
unum.
Islendingar hafa
staðið sig vel
Hallgrímur Egilsson, liðsstjóri og
keppnismaður, og Steingrímur
Thorarensen, formaður ÍPF, sem er
skammstöfun fyrir íslenska pílu-
kastfélagið, eru samankomnir á
ósköp venjulegu mánudagskvöldi á
Grandrokk við Smiðjustíg ásamt
liðsmönnum karla- og kvennalands-
liðsins til að æfa undir komandi
átök við Finnska flóa. Það er mikið
um að vera á efri hæð staðarins og
menn þegar farnir að hita sig upp
og skjóta á spjaldið á meðan
fastakúnnarnir láta lítið fyrir sér
fara á neðri hæð hússins. Bjórdæl-
urnar ganga og menn kneyfa mjöð-
inn á milli þess sem þeir skjóta á
spjaldið, ásamt hinum auðvitað sem
fara sér hægar og fylla glösin af ein-
hverju meinlausara.
Þegar spurt er um gengi íslenska
landsliðsins undanfarin ár kemur á
óvart að þrátt fyrir litla umfjöllun
hér heima hefur Islendingum tekist
ágætlega upp miðað við nágranna-
þjóðirnar. Fyrir tveimur árum lenti
Óli Á. Sigurðsson í 5.-8. sæti á
Norðurlandamótinu og á stóru Evr-
ópubikarmóti þá um haustið sigraði
Óli þáverandi heimsmeistara og
árið 1994 báru íslendingar sigur úr
býtum í tvímenningskeppni á Norð-
urlandamóti. „Við höfum staöið
okkur vel og förum að sjálfsögðu á
þetta mót með því hugarfari að
vinna,“ segir Hallgrímur en hann
segir töluverða endurnýjun hafa átt
sér stað í landsliðinu og bendir á að
af átta körlum og fjórum konum
sem keppa fyrir íslands hönd séu 3
nýir að keppa í fyrsta sinn í karla-
flokki og 3 i kvennaflokki.
Ekki fyllirí á
pílukastkvöldum
En hverjar skyldu svo leikregl-
urnar í pílukasti vera og út á hvað
gengur leikurinn - fyrir þann sem
ekki veit það?
„Það eru ótal afbrigði en sá leik-
ur sem venjulega er leikinn í keppni
fer þannig fram að keppendur byrja
með 501 stig og síðan eiga þeir að
komast niður í 0 með því að skjóta
pílunum á reiti á spjaldinu sem gefa
mismunandi mörg stig,“ segir Stein-
grímur og bætir við að síðasta skot-
ið, sk. útkast, sé jafnframt það erfið-
asta því þá ríði á að fara ekki niður
fyrir núllið.
Þegar blaðamaður spyr um ástæð-
ur þess að bjórdrykkja sé svo samof-
in íþróttinni og hvort það sé ekki
rangt og beinlínis hættulegt að hafa
áfengi um hönd þegar keppt er með
oddhvassar pílur, aukin heldur sem
íþróttir og áfengi fara ekki saman, er
greinOegt að komið er við viðkvæm-
an og klisjukenndan punkt. „Það er
algengur misskilningur að halda því
fram að menn séu á einhverju fylliríi
á pílukastkvöldum. Hér eru menn
fyrst og fremst samankomnir í þeim
tilgangi að kasta pílum. Hitt er svo
annað mál að það er algengara en
hitt að menn fái sér nokkra bjóra, þó
svo að það séu líka alltaf þeir sem
láti slíkt vera. Á mótum á vegum iPF
er það nú samt svo að öll áfengs-
neysla er hönnuð og auk þess eru tó-
baksreykingar ekki leyfðar í keppnis-
sal,“ segir Hallgrímur.
Bandarískir
pílukastarar slappir
„Hvernig kom það til að menn
fóru að skjóta pílum af einhverri
alvöru á Islandi?“
„Þetta byrjaði allt saman úti á
Keflavíkurflugvelli fyrir um tutt-
ugu árum,“ segir Steingrímur sem
er Suðumesjamaður og búsettur í
Grindavík. „Kaninn fór að bjóða
íslendingum að koma og keppa úti
á Velli og í framhaldi af því skap-
aðist áhugi fyrir íþróttinni og lið
fóru að myndast," segir hann og
bætir við hálflúmskur að þetta hafi
verið á þeim árum sem bjórinn var
ekki leyfður og því hafi það þótt
mikið sport að komast út á völl því
þar hafi jafnan verið boðið upp á
bjór.
Þeir félagar, Steingrimur og
Hallgrímur, segja ástandið í dag
allt öðruvísi en það var í árdaga
því þá hafi keppnin að mestu farið
fram á Vellinum en nú sé hins veg-
ar keppt á fleiri stöðum og liðin
jafnframt mun fleiri, eða tíu tals-
ins, auk þess sem bandarískir pílu-
kastarar af Vellinum séu mun
slappari í dag en þeir voru fyrir
nokkrum árum á meðan íslensku
spilurunum fleygir fram.
Sæmundur Sigurösson mundar hér píluna en hann er einn af þremur sem komust í fyrsta sinn í landsiiðshópinn.