Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Page 26
26
LAUGARDAGUR 4. MARS 2000
... í prófíl
Hér stendur Ólafur við málverk eftir Pétur Friðriksson sem var gjöf frá tengdaforeldrunum og sýnir útsýnið sem blasti við húsinu hjá afa og ömmu á Odd-
eyrargötu.
„Yndisfagra Akureyri"
- Úlafur F. Magnússon, borgarfulltrúi og Umhverfisvinur, segir frá bíóútstillingum og fleiru
„Gakk þú með á brekkur brattar
/ beyg þín kné I djúpri lotning /
Fagur, víður fjallahringur / faðmar
Norðurlandsins- drottning / Yndis-
fagra Akureyri! / Ilmi’af gróðri er
nafn þitt bundið / Betra vig I volki
lífsins / verður eigi á jörðu fund-
ið“. Ekki er víst að Schiller hinn
þýski hefði komist svo að orði en
kvæðabúturinn að ofan er úr Óði
til Akureyrar eftir Stefán Ágúst,
1928 vikublaðið Víði, sem var um
tíma málgagn sjálfstæðismanna í
Vestmannaeyjum. Foreldrar móður
minnar voru aftur á móti Stefán
Ágúst Kristjánsson, forstjóri og
Ólafsfjörður
Dalvík i
AKUREYRIÖ
skáld og afa Ólafs F. Magnússonar,
borgarfulltrúa minnihlutans og Um-
hverfísvinar. Ólafur hafði einmitt á
orði að í kvæðinu væri dregin upp
heildarsýn af Akureyri, ekki ósvip-
aðri þeirri sem sést á málverkinu
við hlið hans hér að ofan.
Fæddur á Oddeyrargötu
„Ég er fæddur í húsi móöurfor-
eldra minna á Oddeyrargötu 24 á
Akureyri en foreldrar mínir eru
Magnús Ólafsson, læknir í Reykja-
vík sem lést árið 1990, og Anna
Gabríella," segir Ólafur aðspurður
um uppruna sinn.
„Faðir minn var sonur Ólafs
Magnússonar, læknanema úr Vest-
mannaeyjum, sem lést árið 1930, að-
eins 27 ára gamall og Ágústu Hans-
ínu Petersen. Ólafur stofnaði árið
skáld frá Glæsibæ í Eyjafirði, og
Sigriður Friðriksdóttir frá Kamb-
hóli í Arnarneshreppi en þaðan er
tengslin við Akureyri komin.“
Út á Gáseyri að veiða
Ólafur segist hafa búið fyrstu ár
ævi sinnar fyrir norðan en síðar
hafi hann jafnan dvalið part úr
sumri hjá afa og ömmu á Akureyri
fram til sextán ára aldurs. „Þetta
voru stórkostleg sumur fyrir norð-
an og svo má einnig segja um lífs-
viðhorf þeirra og þá sérstaklega
áhuga afa á lífi og náttúru landsins.
Hann var einn af þessum mönnum
sem var laus við þröngsýna efnis-
hyggju og langt frá því að vera
eignamaður á veraldlegan mæli-
kvarða heldur miklu fremur rikari
á öðrum sviðum," segir Ólafur um
afa sinn, Stefán Ágúst.
Um ömmu sína Sigríði segir Ólaf-
ur: „Hún var mjög trúuð og hafði
mikla ást á bamabömunum, en við
Stefán bróðir minn nutum svo sann-
arlega góðs af þvi. Sjálf hafði hún
misst pabba sinn og þrjá af fjórum
bræðrum langt fyrir aldur fram og
ég held að þetta hafi mótað lífsvið-
horf hennar."
Þegar Ólafur er beðinn um að
rifja upp minnisstæð atvik frá
bernskuárunum segist hann eink-
úm muna eftir veiðiferðunum sem
hann fór með afa sínum. „Yfir sum-
artímann fórum við eldsnemma á
morgnana norður með firði út á
Gáseyrina til að veiða silung. Þetta
voru ljúfar stundir og ég minnist
sérstaklega kríugargsins og fjöru-
hljóðanna. Einnig var ég þónokkuð
í sveit í Eyjafirði og nágrenni, m.a.
að Hálsi í Fnjóskadal sem var mjög
eftirminnilegur og skemmtilegur
tími.“
Hjálpaði til með
bióutstillingar
Ólafur segist hafa verið mikið í
fótbolta á sínum yngri árum og sér-
staklega marksækinn framherji.
Hann hafi leikið með Val fyrir
sunnan en Þórsurum fyrir norðan.
„Þegar afi og amma fluttu á
Eiðsvallagötuna, sem var í næsta
nágrenni við knattspyrnuvöllinn,
skapaðist gott færi á að fylgjast með
leikjum frá húsinu.“
Ólafur eyddi miklum tíma með
afa sínum þegar hann dvaldist þar á
sumrin og fylgdi honum nánast við
hvert fótmál. „Afi var í hótelrekstri
og var einnig með kvikmyndasýn-
ingar. Ég var af þeim sökum mikið
að snattast fyrir hann og man til
dæmis vel eftir að hafa hjálpað hon-
um að skipta um bíóútstillingar. Ég
fór oft í bíó en átti mér engar sér-
stakar hetjur úr röðum kvikmynda-
leikara heldur miklu fremur úr fót-
boltaheiminum."
Sá Ashkenazí á sviði
Ég minnist þess að hafa verið
viðstaddur og heyrt flutning afa á
ljóði hans Óður til Akureyrar á
100 ára afmæli bæjarins árið 1962.
Mér finnst einnig ljúft að rifja upp
Fullt nafn: Þorvarður Tjörvi
Ólafsson
Fæðingardagur og ár: 2. 5.
‘77
Maki: Anna Margrét Bjama-
dóttir
Böm: Engin böm, bara heim-
iliskötturinn
Skemmtilegast: Að ferðast og
koma á nýja staði
Leiðinlegast: Vaska upp
Uppáhaldsmatur: Kjúklinga-
bringur á danska vísu a la
Anna Margrét
flutning Sigurveigar Hjaltested á
lagi £tfa Angan bleikra blóma við
ljóð Davíðs Stefánssonar frá
Fagraskógi á tuttugu ára afmælis-
tónleikum Tónlistarfélags Akur-
eyrar í Borgarbíói sumarið 1963.
Sigurveig var í miklu uppáhaldi
hjá afa mínum og því skemmtilegt
að hún skuli syngja lagið á geisla-
diski með lögum hans,“ segir Ólaf-
ur og á við geisladisk með lögum
Stefáns Ágústs sem fjölskylda
hans gaf út í aldraminningu hans
árið 1997.
Ólafur segist yflrleitt hafa verið
hlýðinn og samviskusamur dreng-
ur og grallaraeðlið hafl hann mest-
megnis skilið eftir í Reykjavík þeg-
ar hann fór norður til Ákureyrar á
sumrin. „Eins og áður sagði var ég
ætíð mikið með afa enda gott að
vera í kringum hann og þ.a.l.
deildi ég mörgum áhugamálrun
með honum. Ég minnist þess einu
sinni að hafa séð Ashkenazí á
sviði sem var ógleymanlegt. Ég
lærði enga tónlist sjálfur en kann
vel að njóta hennar. Læknisfræðin
var þó eitthvað sem ég vissi að ég
myndi taka mér fyrir hendur enda
var það ríkt í mínu uppeldi að
vilja feta í þau fótspor.“
Akureyri breyst mikið
Ólafur segist sjaldan fara norður
á Akureyri núorðið en að hann hafi
þó verið viðloðinn Norðurland eftir
að hann komst á fullorðinsár og
t.a.m. hafi hann starfað um skamma
hríð sem læknir bæði á Hvamms-
tanga, í Dalvík og á Blönduósi þar
sem hann var lengst eða í þrjú ár.
Um Akureyri segir Ólafur að lok-
um: „Mér flnnst Akureyri hafa
breyst mikið í timans rás, sérstak-
lega í ljósi þess að byggð í norður-
bænum var varla til þegar ég var al-
ast þar upp.“
-KGP
Uppáhaldsdrykkur: Bjór.
Nokkuð sem ég tileinkaði mér
þegar ég bjó í Danmörku
Fallegasta manneskja (fyrir
utan maka): Elizabeth Hurley
Fallegasta röddin: Bono
Fallegasti líkamshluti:
Fætumir. Er svona lappa-
maður.
Hvaða hlut þykir þér vænst
um? Trúlofunarhringinn
Hvaða teiknimyndapersóna
myndirðu vilja vera? Homer
Simpson
Uppáhaldsleikari: Seæ
Connery
Uppáhaldstónlistarmaður:
Bono
Sætasti stjórnmálamaður?
Bryndís Hlöðversdóttir
Uppáhaldssjónvarpsþáttur:
Vinir
Leiðinlegasta auglýsing-j
in:Tóbaksauglýsingamar
Besta kvikmyndin: GuðfaðirJ
inn, allar þrjár
Sætasti sjónvarpsmaðurinnj
Stelpan sem sér um Sjáðu
Uppáhaldsskemmtistaður:
Sólon íslandus
Besta „pikk-öpp“ línan: H^
enga.
Hvað ætlaðir þú að verða?|
Kúreki
Eitthvað að lokum: Dagurir
í dag getur verið besti dagur-l
inn í lífinu ef þú nýtir hannj
rétt
Þorvarður
Tjörvi Ólafs-
son 22 ára
nemi við HÍ