Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Qupperneq 31
DV LAUGARDAGUR 4. MARS 2000
31
Hér er Hlín stödd í Kerala ásamt starfsmanni Rauöa hálfmánans en ein heilsugæslustööin sem hún sá um endur-
byggingu á er í Kerala.
bækur eða tímarit gefm út. Það
virðist vera útbreidd og almenn
skoðun að sú kreppa sem þjóðin er
í sé Vesturlöndum og þeirra við-
skiptabanni að kenna. Ég heyrði
engan gagnrýna forsetann vegna
þess.“
Höllin í fæðingarbæ
Saddams
Því er haldið fram að hann haldi
þjóðinni í gíslingu vegna viðskipta-
bannsins og svelti alþýðuna í áróð-
ursskyni meðan hann sjálfur efli
herinn og byggi yfir sig hallir. Sástu
einhver merki þess að þetta sé rétt?
„Hermenn eru talsvert áberandi
fyrir utan ýmsar byggingar sem til-
heyra þeim og einnig úti á lands-
byggðinni. Mér sýndist þeirra bílar
og farartæki vera í sömu niður-
níðslu og allt annað og íraskir her-
menn voru í snjáðum einkennisbún-
ingum sem er sérstakt því íraskir
karlmenn eru afar vandlátir í
klæðaburði og vilja helst alltaf vera
mjög snyrtilegir.
Við heyrðum oft þessar sögur um
að verið væri að byggja 48 hallir
yfir forseta landsins. Ég sá eina
þeirra í byggingu í fæðingarbæ
hans, Tikrít. Það var glæsilegasta
bygging sem ég sá í írak.“
Bensínið kostar næstum
ekkert
Er smygl mjög áberandi í við-
skiptabanninu?
„Það er mjög margt sem vantar í
samfélaginu fyrir utan mat. Þarna
eru varla til tölvur, engir farsímar,
ekkert Net eða neitt slikt sem við
teljum sjálfsagðan hlut hér á Vest-
urlöndum. Það er mjög miklu
smyglað þarna af alis konar varn-
ingi, sérstaklega í norðurhéruðun-
um við landamæri Tyrklands. Þar
fannst mér ég sjá þess dæmi að fólk
liði ekki eins mikinn skort og í
Bagdad.
Víða í Bagdad sá ég að verið var
að reisa glæsileg einbýlishús þó að
byggingarstarfsemi í landinu sé að
öðu leyti i lágmarki. Okkur var sagt
að þarna byggði fólk sem hefði efn-
ast á smygli.
Leigubílar ganga reglulega milli
Bagdad og Amman í Jórdaníu. Þeir
eru allir sérstaklega styrktir að aft-
an með risastóra bensíntanka sem
eru settir undir bílinn. Síðan er fyllt
á tankinn í Bagdad og bensínið selt
í Jórdaníu og smyglið skilst mér að
sé allt frá Pepsi og Mars-súkkulaði
yfir í nauðsynjavörur."
10 milljónir dollara á 5
dögum
írak er ekki aðeins vagga menn-
ingar heimsins heldur frá fornu fari
eitt ríkasta iand í heimi og óumdeil-
aniega meðal þeirra ríkustu í sínum
heimshluta þó að kreppi að um
þessar mundir. En Hlín sá að ríki-
dæmi og gjafmildi spyrja ekki um
stað eða stund.
„Þegar jarðskjálftamir urðu í
Tyrklandi síðasta haust fékk Rauði
hálfmáninn i írak leyfi til þess að
styrkja Tyrki í hörmungum sínum.
Þeir dældu yfir landamærin olíu að
verðmæti 10 milljónir dollara á að-
eins fimm dögum. Á sama tima
þurftum við að skríða á hnjánum til
að fá fé í okkar verkefni sem var þó
aðeins lítið brot af þessari upphæð.“
Hvernig er verðlag i landinu?
„Ég gat fyllt LandCruiserinn af
súperbensíni fyrir um 100 krónur
íslenskar, eða 1,5 dollara. íraskur
læknir á heilsugæslustöð hafði þá
upphæð í mánaðarlaun. Okkar
starfsmenn höfðu 10-15 dollara í
mánaðarlaun meðan verkfræðingur
okkar var með 30 dollara á mánuði.
íraskir verkfræðingar, sem unnu
fyrir Sameinuðu þjóðirnar,- fengu
horgaða 300 dollara á mánuði.
Ég gat farið út að borða fyrir 1 til
1,5 dollara.
Flestir voru hins vegar undir þá
sök seldir að hafa ekki vinnu og
hafa síðan striðinu lauk verið smátt
og smátt að selja allar verðmætar
eigur sínar til þess eins að eiga fyr-
ir mat.
Þarna eru mútur eða þjónustu-
gjald sjálfsagt mál og hluti af dag-
legu lífi. Maður „borgaði fyrir þjón-
ustu“ hvar sem maður kom þótt
bara væri verið að ná í pakka á
pósthúsið. Þessar mútur náðu þó
ekki til verktakanna og opinberra
embættismanna sem komu að end-
urbyggingarverkefnum okkar. Þar
er haldið fast um hverja krónu og
þarf að gera grein fyrir öllu sem
gert er.“
Víð búum í besta landi
heims
Hlín kom til íslands í stutta heim-
sókn í október og síðan alkomin fyr-
ir fáum vikum. Hvernig fannst
henni ísland eftir írak?
„Við búum í besta landi í heimi.
Það er hvergi betra að vera en
einmitt hér. Það eru ágæt frí í þessu
starfi og nauðsynlegt að taka þau
því álagið getur verið mikið. Ég fór
einu sinni í frí til Jórdaníu og börn-
in mín komu þá i heimsókn og við
ferðuðumst um.
Fyrst eftir að ég kom heim var ég
að óskapast yfir öllu sem við kaup-
um og hvernig við sóum öllu og
hvað er mikill matur í ísskápnum
og fleira sem ég lét fara í taugarnar
á mér. Ég finn að ég er aö gera rétt
og vil halda áfram i þessu hjálpar-
starfi og hef farið i nokkur viðtöl
vegna næsta verkefnis en veit ekk-
ert hvert það verður."
Hvað fær maður í staðinn fyrir að
hjálpa öðrum?
„Maður leggur af stað með það í
huga að afreka mikið, hjálpa mörg-
um og bjarga mannslífum, helst á
hverjum degi. Svo kemur í ljós að
þetta er bara venjuleg skrifstofu-
vinna með stjórnunarvandamálum,
skriffinnsku og öllu sem því fylgir.
Oft var ég þreytt og fannst ekkert
miða áfram og ég engu koma í verk
og spurði sjálfa mig hverjum ég
væri eiginlega að hjálpa með öllum
þessum bréfaskriftum.
En svo verður manni ljóst að þó
ekki væri nema með návist sinni þá
getur maður látið öðru fólki líða
betur i þeirri eymd sem það lifir í.
Og það gerir þetta starf hverrar
mínútu virði.“ -PÁÁ
I
1
|
á
sviðsljós
Disney sýnir
ekki Duets
Heyrst hefur að nýjustu kvik-
mynd Gwyneth Paltrow’s, Duets,
sem leikstýrt er af foður hennar,
Bruce, hafi verið hafnað af Disn-
ey-fyrirtækinu. Áætlaður frum-
sýningardagur í Bandaríkjunum
var 5. maí næstkomandi en mynd-
inni var hafnað af fyrirtækinu á
þeim forsendum að hún væri of
ofbeldisfull. Disneymenn leita nú
logandi ijósi að kvikmyndafyrir-
tæki sem er reiðubúið að taka
myndina að sér en þess er vænst
að þau verði fleiri en eitt og fleiri
en tvö þar sem það er ekki á
hverjum degi að fullunnin mynd
með óskarsverðlaunahafa er færð
mönnum á silfurfati. Þetta mun
einkum þykja vist þar sem flestir
i heimi kvikmyndanna setja sig
ekki upp á móti ofbeldi á hvíta
tjaldinu eins og Disney gerir. Eru
það einkum tvö atriði sem eiga að
hafa farið fyrir brjóstið á Disney-
samsteypunni en það er annars
vegar atriði þar sem afgreiðslu-
maður er skotinn til bana og hins
vegar atriði þar sem karaoke-
keppnismaður er „gatasigtaður"
af byssumanni, ef svo mætti segja,
eftir að hafa fengið sig fullsaddan
af flutningi hans á laginu l Will
Survive.
Julianna
Margulies neitar
að koma til hjálpar
Sá orðrómur er á kreiki að Juli-
anna Margulies, sem leikur
fröken Hathaway á Bráðavakt-
inni, sé að hætta í þáttunum og
renni nú hýru auga til kvik-
myndabransans í Hollywood. Þótt
leikkonan hafi ekki átt góðu gengi
að fagna í kvikmyndaborginni
enn sem komið er er ljóst að hún
hefur þegar tileinkað sér stjörnu-
stæla eins og þeir gerast verstir.
Að sögn ónafngreinds aukaleik-
ara á Bráðavaktinni á Julianna
að hafa hundsað starfsfélaga sinn
og neitað að rétta honum hjálpar-
hönd á ögurstundu. Aukaleikar-
inn segist hafa verið boðinn í
gleðskap sem haldinn var af tíma-
ritinu InStyle en þegar á staðinn
var komið hafi hann uppgötvað
að hann hafði gleymt boðskortinu
heima. I boðinu voru saman
komnir allir helstu fyrirmenn og
konur úr kvikmynda- og skemmt-
anaiðnaðinum og var þess vand-
lega gætt að enginn kæmist inn
án passa. Aukaleikarinn prísaði
sig því heldur betur sælan þegar
hann sá glitta í Juliönnu bak við
fíleflda öryggisverði. Á hann að
hafa kallað til hennar og beðið
hana að staðfesta hver hann væri
en hún neitað að hjálpa honum og
meira að segja sagt öryggisvörð-
unum að hún kannaðist ekkert
við kauða.
Auðvelt í uppsetniugu
Margar lengdir
Verð frá kr 2.990,-
HUSASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is