Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2000, Page 4
4
MÁNUDAGUR 20. MARS 2000
I>V
Fréttir
Borgin kaupir land:
2.5 hektarar
á 13 milljónir
Borgarráð Reykjavíkur hefur
samþykkt kaup á tveimur land-
spildum í landi Reynisvatns, sam-
tals um 2,5 hektarar, fyrir rúmar
13 milljónir króna.
Annars vegar er um að ræða 2
hektara spildu i eigu Sigríðar Vil-
hjálmsdóttur í Reykjavík og hins
vegar 4.500 fermeta (0,5 hektara)
spildu í eigu Hólmars Braga Páls-
sonar sem búsettur er að Minni-
Borg í Grímsnesi.
Engin mannvirki er á spildun-
um en landslagsarkitekt hefur
metið trjágróður á landi Hólmars
tæplega 900 þúsund króna virði.
Land hans er keypt á 2.750 þús-
und krónur en land Sigríðar á
11.5 milljónir króna en þar mun
hins vegar enginn trjágróður vera
sem heitið getur.
-GAR
Slit Vesturbyggðar:
Ótímabært
að tjá sig
- segir bæjarfulltrúi
„Ég ætla ekkert að tjá mig um
hugmyndir félagsmálaráðherra á
þessu stigi, það er ótímabært," seg-
ir Jón Þórðarson, útgerðarmaður á
Bíldudal og bæjarfulltrúi Vestur-
byggðar, aðspurður um hugmyndir
sem Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra hefur sett fram um að slíta
samstarfi Bíldudals og Patreksfjarð-
ar undir merkjum Vesturbyggðar
og sameina Bíldudal þess í stað
Tálknafirði.
-GAR
DV-MYND S
Veittust að lögreglubíl
Tveir ungir menn létu heldur ófriöiega viö lögreglubifreiö á Laugaveginum á laugardagskvöldiö eftir aö kona, sem þeir
höföu haft samskipti viö, var komin inn í bílinn. Óskaöi konan eftir aöstoö og var henni hleypt inn í lögreglubifreiöina.
Lögreglan í Reykjavík varöist frétta af þessum atburöi í gærkvöld.
Ekki dregið úr fjölbreytni
- segir Björn Bjarnason menntamálaráðherra
Björn Bjamason menntamála-
ráðherra segir að ekki verði dreg-
ið úr fjölbreytni á framhaldsskóla-
stiginu með nýrri námskrá sem
verið er að kynna í framhaldsskól-
um landsins. í frétt DV síðastlið-
inn laugardag kom fram að mikil
ólga er í MR, MA og Verslunar-
skólanum vegna nýju námskrár-
innar. Menntamálaráðherra segist
hins vegar ekki hafa orðið var við
neina ólgu i heimsóknum sinum í
MR og MA, hvorki meðal nem-
enda né kennara. Nýja námskráin
geri markvissari kröfur varðandi
námið og með henni sé gert ráð
fyrir að nemendur hafi meira val
en áður. Námskráin byggist á nýj-
um lögum um framhaldsskóla en í
þeim er gert ráð fyrir að bóknámi
í framhaldsskólum sé skipt niður
í félagsfræðibraut, náttúrufræði-
braut og tungumálabraut.
Að sögn menntamálaráðherra
hafa ekki verið
teknar neinar
ákvarðanir um
fyrirkomulag sam-
ræmdra stúdents-
prófa í framhalds-
skólum. Stefnt sé
að því að slík próf
geti orðið á skóla-
Bjarnason árinu 2003/2004.
menntamála- „Með því að taka
ráöherra. upp samræmd
stúdentspróf í framhaldsskólum
viljum við bregast við þeirri ósk
nemenda og skóla að þeir geti bor-
ið sig saman varðandi námsárang-
ur,“ segir Björn Bjarnason
menntamálaráðherra. Hann bend-
ir einnig á að prófin muni ekki
verða eins og samræmd próf í
grunnskólum og ekki sé verið að
færa aðra skóla á fjölbrautastigið
með þeim.
mó.
Veörfd í kvöfdi
Léttskýjað austan til
Vestan 8-13 m/s veröa viö suðurströndina og
austan 8-13_á nyrstu annesjum en hægviðri
til landsins. Él verða á Vesturlandi en
léttskýjað austan til og 1 til 7 stiga frost,
kaldast norðvestanlands.
1’ í"'1 r
REYKJAViK AKUREYRI
Sólarlag í kvöld 19.42 19.26
Sólarupprás á morgun 07.27 07.13
Síödegisflóö 18.21 22.54
Árdegisflöö á morgun 06.34 11.07
Skýrfngar é vsðurtáJinum
^VINÐÁTT '^*SH,INDSTYRKUR í metmm á sekóntiu 10V-HITI 10“ -FR05T 3£ HEID5KÝRT
IÉTTSKÝJAÐ 30 HÁLF- SKÝJAÐ ö SKÝJAÐ ö ALSKÝJAÐ
Q RiGNING SKÚRiR ö SLYDDA SNJÓKOMA
Q ÉUAGANGUR X? ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNiNGUR ÞOKA
Færð
Ekkert lát á vetrinum
Á Vesturlandi er víðast
skafrenningur. Snjór er á vegum.
Hálka er mjög víða og sums
staöar leiöinleg færð. Ekki er að
sjá að Vetur konungur sé neitt
aö lina tökin og því er vert að
benda vegfarendum á að vera
vel búnir þegar haldið er út á
þjóövegina.
Áfram kalt í veðri
Búist er við norðlægri átt með 8-13 m/s vindi. Snjókoma eða él verða
norðan- og austanlands en þurrt aö kalla suövestan til. Frost verður á
bilinu 2-7 stig.
npga
** Q
-3° tií -8° V»
O
Vindur:
5-10
Hiti -2° til -5°
Fostad!
Vindun
5-10,
Hiti -2° tii -5°
Gert er ráð fyrir
norðaustan og austan
8-13 m/s, éljum og
3 tll 8 stiga frosti.
Búast má vlð
norðaustlægrl átt með
éljum og talsverðu frosti
um allt land.
Búast má við
norðaustlægrl átt með
éljum og talsverðu frosti
um allt land.
Erlendir feröamenn:
Veltu bíl í
Kömbunum
Þrjú umferðaróhöpp urðu í um-
dæmi Selfosslögreglu í gær.
Fyrsta óhappið varð á Suður-
landsvegi í Flóa en þar ætlaði
ökumaður að beygja bíl sínum
inn á hliðarveg. Ökumaður sem
kom aðvífandi úr hinni áttinni
áttaði sig ekki nógu snemma á
fyrirætlan hins og lenti því inn í
hliðina á honum. Bilarnir
skemmdust nokkuð en báðir öku-
menn sluppu ómeiddir og gátu
ekið bifreiðum sínum af vettvangi
eftir skýrslutöku lögreglu.
Þá varð bílvelta í Kömbunum
klukkan rúmlega fimm í gær. Um
var að ræða erlenda ferðamenn
sem voru þrír saman í bílaleigu-
bil í Kömbunum. Leiðindaveður
hefur verið á þeim slóðum undan-
farið, hálka, skafrenningur og
snjór á veginum, og telur lögregla
að ökumaður bifreiðarinnar hafi
ekki ekið í samræmi við aðstæð-
ur. Allir voru í beltum og engin
slys urðu á fólkinu en bílinn
þurfti að fjarlægja af vettvangi
með dráttarbíl.
Þriðja óhappið varð svo í
Kömbunum í gærkvöld. Þá rákust
saman tveir bílar á veginum en
þeir voru á leiðinni í gagnstæðar
áttir og er sá árekstur einnig rak-
inn til slæmra akstursskilyrða.
Hann var þó minni háttar enda
fóru bílarnir hægt yfir. Ekki urðu
nein slys á fólki fremur en í hin-
um tveimur óhöppunum. -HG
Harður árekst-
ur á Vestur-
landsvegi
- fjórir á slysadeild
Harður árekstur varð á Vestur-
landsvegi við Skálatún um hálf-
þrjúleytið í gær. Fjórir voru flutt-
ir á slysadeild, þar af báðir öku-
mennirnir og einn farþegi úr
hvorum bíl. Vegna árekstursins
tepptist Vesturlandsvegur um
skeið og myndaðist mikill um-
ferðarhnútur. Lögregla beindi því
umferð um Úlfarsfellsveg í stað
Skálatúns en umferð var hleypt á
veginn á ný um 10 mínútur yfir
Qögur. Draga varð báða bílana af
slysstað með kranabíl enda voru
þeir illa farnir. Ekki er vitað hve
mikil meiðsl ökumanna og far-
þega eru að svo stöddu en lög-
regla segir þau ekki lífshættuleg.
-HG
vsmm
AKUREYRI alskýjað
BERGSTAÐIR rokur
BOLUNGARVÍK snjóél
EGILSSTAÐIR snjóél
KIRKJUBÆJARKL. snjóél
KEFLAVÍK snjóé
RAUFARHÖFN snjóél
REYKJAVÍK snjóél
STÓRHÖFÐI snjóél
-1
1
-1
-1
-2
-1
-1
0
BERGEN
HELSINKI
KAUPMANNAHÖFN
ÓSLÓ
STOKKHÓLMUR
ÞÓRSHÖFN
ÞRÁNDHEIMUR
ALGARVE
AMSTERDAM
BARCELONA
BERLlN
CHICAGO
súld
þokumóba
skýjaö
alskýjað
alskýjaö
rigning
mistur
léttskýjað
alskýjaö
léttskýjað
5
0
0
0
3
8
6
20
8
8
8
DUBLIN skýjaö 12
HALIFAX snjóél -7
FRANKFURT skýjað 6
HAMBORG skýjað 8
JAN MAYEN snjóél -6
LONDON léttskýjaö 9
LÚXEMBORG skýjað 4
MALLORCA alskýjað 14
MONTREAL heiðskírt -6
NARSSARSSUAQ heiöskírt -15
NEWYORK hálfskýjað -1
ORLANDO alskýjaö 20
PARÍS léttskýjaö 10
VÍN rigning 3
WASHINGTON alskýjaö 1
WINNIPEG léttskýjað -1