Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2000, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2000, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000 7 I>V Fréttir Hverjir eru vinnuveitendurnir? Samtök tónlistarkennara í Reykjavík voru stofnuð í fyrrakvöíd en nokkurrar óánægju hefur gætt meðal tónlistarkenn- ara í borginni um kaup og kjör. Mikil óvissa hefur einnig ríkt um hverjir viðsemjendurnir séu, skóiastjórnendur eða borgin og eru samtökin stofnuð til að skerpa baráttuna. Samtök tónlistarkennara í Reykjavík stofnuð: Ovissa um viðsemjendur - verkfall eða uppsagnir þegar samningar renna út „Ástæöan fyrir stofnun samtak- anna er fyrst og fremst sú að við erum ekki sáttir við kaup og kjör,“ segir Jón Kristinn Cortes, tónlistarkennari og stjórnarmað- ur í Samtökum tónlistarkennara í Reykjavík sem voru stofnuð á fjöl- mennum fundi í fyrrakvöld. Tón- listakennarar í Reykjavík hafa um nokkurt skeið verið ósáttir við kjör sín og ekki virðist liggja ljóst fyrir hvort þeir eiga að leita til stjórnenda tónlistarskólanna eða Reykjavíkurborgar. „Reykja- víkurborg hefur á þessu menning- arári ekki séð ástæðu til þess að tala við kennara og það hefur þvi skapast umræða um hverjir séu í raun vinnuveitendur tónlistar- kennara," sagði einn fundar- manna við DV. í Reykjavík eru starfræktir um 15 tónlistarskólar og þar af eru 12 reknir sem sjálfseignarstofnanir á styrk frá Reykjavikurborg. Það er því undir borgaryfirvöldum kom- ið hversu mikið fé skólarnir fá til rekstursins en borgin tók við því hlutverki af ríkinu þegar grunn- skólarnir voru færðir yfir til sveitarfélaganna. Þeir sem DV ræddi við í gærkvöld voru þeirrar skoðunar að frá því að borgin tók við rekstrinum hafi fjárveiting- arnar verið skornar niður ár frá ári. Samkvæmt heimildum blaðs- ins áttu fulltrúar tónlistarkenn- ara fund með borgaryfirvöldum í september á síðasta ári en þar kom það skýrt fram að borgaryfir- völd hefðu ekki áhuga á að ræða við kennara um kjarabætur held- ur skólastjórnendur. Þetta var túlkað þannig að borgaryfirvöld litu ekki svo á að þau væru vinnuveitendur tónlistarkennara sem verður að teljast nokkuð furðulegt þegar litið er til þess að skólastjórnendur starfa í raun eft- ir sömu kjarasamningum og kennarar. Málið hefur því verið í nokkuð lausu lofti og vilja kenn- arar koma því í ákveðnari farveg með stofnun samtakanna. Reykjavíkurborg hefur ákveðið að ræða kjaramálin eingöngu við skólastjórnendur en skólastjórn- endur vilja hins vegar meina að þeir eigi engan hlut að máli þegar verið sé að ræða um kaup og kjör þar sem að tónlistarskólakennar- ar kenna samkvæmt kjarasamn- ingum sem eru gerðir við launa- nefnd Sambands sveitarfélaga. Kennaramir eru ósáttir og benda á að í sveitarfélögunum í kring sé um allt annað að ræða því þar sé búið að ganga frá ýmsum auka- samningum við tónlistarkennara. Þar séu reglurnar skýrari og kennarar ráðnir af sveitarfélög- unum sjálfum. Kjarasamningur tónlistarkennara í Reykjavík rennur út í lok nóvember í ár og töldu margir viðmælendur blaðs- ins að þá komi bara tvennt til greina, verkfall eða uppsagnir. -hdm Húsnæðimál lögreglunnar í Grundarfirði í brennidepli: Löggan í bágbornu húsnæði DV. GRUNDARFIRÐI:____________________ Aðstaða lögreglunnar í Grundar- firði er vægast sagt bágborin og hafa fulltrúar sveitarstjómar Eyrar- sveitar margoft í samtölum bent á það að þyrfti að byggja nýtt hús- næði því það eldra er ekki mönnum bjóðandi og auk þess er það í leigu- húsnæði. „Fulltrúar dómsmála- og fjár- málaráðuneytis og sýslumaðurinn í Stykkishólmi funduðu með okkur á dögunum um húsnæðismál lögreglu og sýslumannsembættis hér á staðn- um. Þetta var góður fundur, ákvörð- un verður væntanlega tekin mjög fljótlega um lausn málsins þannig að koma megi húsnæðismálunum í viðunandi horf,“ sagði Björg Ágústsdóttir, sveitarstjóri í Eyrar- sveit, við DV. -DVÓ Gólfmottur í miklu úrvali Gólfmotta 230 xl60 sm 7.485 kr. HUSASMIÐJAN Sími 525 3000 • www.husa.is afsláttur af öllum gólfefnum HJ0LS0G FESTO FESTO O Ármúli 17, IOB Reykjavik Síml: 533 1334 fax.- 55B 0499 ffyrir öll verkfæri og þú getur andað léttar! Hægt er að tengja FESTO-ryksuguna við öli verkfærin frá FEST0 ..það sem fagmaðurinn notar! þarf ekki að kosta meira Þú kemst að því þegar þú heimsækir okkur. Bf+354 5302800 • www.ormsson.is Með því að auka fjölbreytni í þjónustu okkar viljum við spara húseigendum dýrmætan tíma og fjármuni. Það hefur ótvíræða kosti að geta gengið að gæðunum vísum á sama stað - hvort sem um er að ræða heimilistæki, innréttingar - eða allt hitt sem Bræðurnir Ormsson hafa upp á að bjóða. Glæsilegur sýningarsalur í Lágmúla 8, 3. hæð - líttu við ELDHÚSINNRÉTTiNGAR - BAÐiNNRÉTTINGAR - FATASKÁPAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.