Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2000, Side 10
10
FIMMTUDAGUR 23. MARS 2000
Útlönd
I>V
Kvöldmaturinn
veldur áhyggj-
um hjá ESB
Kvöldverðar-
ins á leiðtoga-
fundi Evrópu-
sambandsins,
sem hefst í Lissa-
bon í dag, er beð-
ið með mikilli
eftirvæntingu.
Allra augu munu
beinast að svarta
sauðinum í Evr-
ópufjölskyldunni, Wolfgang Schiis-
sel Austurríkiskanslara, og móttök-
unum sem hann fær.
Enginn vill kannast við Schtis-
sel, sem vann það sér til óhelgi að
mynda ríkisstjórn með Frelsis-
flokkinum, flokki hægriöfgamanns-
ins Jörgs Haiders, fyrir sex vikum.
Jacques Chirac Frakklandsforseti
og Lionel Jospin forsætisráðherra
og belgíski forsætisráðherrann
Guy Verhofstadt vilja ekki stilla
sér upp fyrir hina hefðbundnu fjöl-
skyldumyndatöku með Schussel.
Forsætisráðherra Portúgals reynir
nú að leysa vandann.
Schússel ætlar á fundinum í
Lissabon að fara fram á að Austur-
ríki verði tekið úr pólitískri ein-
angrun en er ekki vongóður.
Anfinn Kallsberg, lögmaður Færeyja:
Danir vanmeta
styrk Færeyja
Anfinn Kalisberg, lögmaður
Færeyja, telur að þjóðarfram-
leiðsla Færeyja muni þrefaldast
á næstu fimmtán árum, andstætt
því sem embættismenn í danska
fjármálaráðuneytinu halda fram.
Lögmaðurinn segir að dönsk
stjórnvöld vanmeti vaxtarmögu-
leika færeysks efnahagslífs og
geri sér því óraunhæfar hug-
myndir um kröfu landstjómar-
innar um áframhaldandi fjár-
stuðning.
Kallsberg sagði eftir fund með
leiðtogum danskra íhaldsmanna
í gær að ekki yrði þörf á beinum
fjárstyrk Dana til Færeyja eftir
tólf til fimmtán ár vegna vænt-
anlegs mikils hagvaxtar. Danir
héldu því fram á dögunum að
kröfur Færeyinga í viðræðunum
um sjálfstæði eyjanna þýddu
fjárhagsstuðning í 50 til 80 ár. í
Anfinn Kallsberg
Færeyski lögmaðurinn baunaöi enn á dönsk
stjórnvöld í gær.
útreikningum danskra embætt-
ismanna er gert ráð fyrir 1,5 til
2,5 prósenta hagvexti. Hagvöxt-
urinn í Færeyjum hefur verið
milli átta og níu prósent á ári
síðustu fimm árin eða svo.
Kallsberg sagði að enn meiri
vöxtur myndi færast í efnahags-
lífið eftir að boranir eftir olíu
hæfust. Hann sagði að verið
væri að undirbúa fyrstu útboð-
in. Háar hagvaxtartölur hefðu
ekki verið lagðar fyrir á fundin-
um í Kaupmannahöfn þar sem
þar átti fyrst að ræða tímaáætl-
anir og framgangsmáta við-
ræðnanna.
„Þess vegna var það fjarri öllu
lagi að leka þessum útreikning-
um til fjölmiðla. Tilgangurinn
getur ekki hafa verið annar en
að gera gys að okkur,“ sagði
Kallsberg.
50 brunnu til bana
Að minnsta kosti 50 létu lifið þeg-
ar eldur kviknaði í bensíni sem lak
úr leiðslu í Abia í Nígeríu í gær.
Talið er að þeir sem létust hafi ver-
ið að reyna að ná sér í bensín úr
leiðslunni því fötur og alls kyns ílát
voru við hlið líkanna. Yfir 700
manns létu lífið i svipuðu slysi 1998.
Þá tók það næstum því viku að
slökkva eldinn. Þrátt fyrir að Níger-
ía sé helsta olíuframleiðsluríki Afr-
íku ríkir þar stöðugt bensínskortur
vegna lélegs viðhalds á olíuhreinsi-
stöðvum í landinu. Langar raðir eru
við bensínstöðvar og mikið svarta-
markaðsbrask með oliuvörur.
UPPBOÐ Uppboö mun byrja á skrifstofu embættisins að Skógarhlíð 6, Reykjavík, sem hér segir á eftir- farandi eign: Kötlufell 5, 3ja herb. íbúð á 2. h.t.v. m.m., Reykjavík, þingl. eig. Linda Steinunn Rypkema, gerðarbeiðendur Ibúðalánasjóð- ur og Tollstjóraembættið, mánudaginn 27. mars 2000, kl. 15.30.
Leirubakki 10,0202, 5 herb. íbúð á 2. hæð t.h., Reykjavík, þingl. eig. Kristján Friðrik Nielsen, gerðarbeiðendur Ibúðalánasjóður og Lífeyrissjóðurinn Lífiðn, mánudaginn 27. mars 2000, kl. 16.00.
Fiskakvísl 12 ásamt bílskúr, Reykjavfk, þingl. eig. Jón Öm Jakobsson, gerðarbeið- andi Tryggingamiðstöðin hf., mánudaginn 27. mars 2000, kl. 10.00.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þelm sjálf- um sem hér segir:
Seljabraut 82 ásamt stæði nr. 0104 í bíl- húsi, Reykjavík, þingl. eig. Þórir Ketill Valdimarsson, gerðarbeiðendur íbúðalána- sjóður, Landsbanki íslands hf., lögffæði- deild, Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Spari- sjóður vélstjóra og Tollstjóraembættið, mánudaginn 27. mars 2000, kl. 16.30. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Austurberg 34, 3ja herb. ibúð á 3. hæð (0301), Reykjavík, þingl. eig. Sigurlaug Jónsdóttir, gerðarbeiðandi Kreditkort hf., mánudaginn 27. mars 2000, kl. 13.30.
UPPBOÐ Framhald uppboðs á eftlrfarandi eignum verður háð á þeim sjálf- um sem hér segir: Helgubraut 6, þingl. eig. Valgerður Sam- sonardóttir og Haukur Vilbertsson, gað- arbeiðandi Lífeyrissjóðurinn Framsýn, þriðjudaginn 28. mars 2000, kl. 14.00. Hlíðarhjalli 64, 0301, þingl. eig. Sverrir Gíslason og Gísli Þórðarson, gerðarbeið- endur Hlíðarhjalli 64, húsfélag, og Ibúða- lánasjóður, mánudaginn 27. mars 2000, kl. 13.30.
Efstihjalli 25, kjallari, þingl. eig. Guð- björg Halldóra Ólafsdóttir og Þorvarður Einarsson, gerðarbeiðandi fbúðalánasjóð- ur, mánudaginn 27. mars 2000, kl. 16.30. Engihjalli 9, 3. hæð E, þingl. eig. Hulda Guðmundsdóttir, gerðarbeiðandi Lands- banki íslands hf., höfúðst., mánudaginn 27. mars 2000, kl. 15.30.
Hlíðarhjalli 65, 0202, þingl. eig. Björg Guðmundsdóttir, gerðarbeiðendur Lands- banki Islands hf., höfuðst., og Vátrygg- ingafélag Islands hf., mánudaginn 27. mars 2000, kl. 16.00.
Lyngbrekka 10, neðri hæð, þingl. eig. Byggingafélagið Kambur ehf., gerðarbeið- endur Ibúðalánasjóður og Sameinaði líf- eyrissjóðurinn, ntánudaginn 27. mars 2000, kl. 14.30.
Funaholt 6, austurendi, þingl. eig. Jón Gauti Birgisson og Byggingarfélagið Skjól ehf., gerðarbeiðandi íslandsbanki hf., útibú 545, þriðjudaginn 28. mars 2000, kl. 13.30.
Smiðjuvegur 14, austur- og vesturendi, þingl. eig. Veitingamaðurinn ehf., Kópa- vogi, gerðarbeiðendur Bæjarsjóður Kópa- vogs, Sjóvá-Almennar tryggingar hf., sýslumaðurinn í Kópavogi og Verðbréfa- sjóðurinn hf., mánudaginn 27. mars 2000, kl. 15.00.
Gnípuheiði 19, 030201, þingl. eig. Sigur- björg A. Símonardóttir, gerðarbeiðendur Bæjarsjóður Kópavogs, Gnípuheiði 15-21, húsfélag, Ibúðalánasjóður og Landsbanki Islands, mánudaginn 27. mars 2000, kl. 14.00.
SÝSLUMAÐURINN í KÓPAVOGI
"."T'g-
íM
|ls».. yffigSfcV ; \'a | fei& .8 1
S ' 7 f «
ip _ J :
Blll og Chelsea við Taj Mahal
Bill Clinton Bandaríkjaforseti og Chelsea dóttir hans, sem eru í opinberri
heimsókn á Indlandi, skoöuöu hina glæsilegu Taj Mahal höll. Þar meö rætt-
ist langþráöur draumur hans. Clinton lýkur Indlandsheimsókn sinni á laugar-
dag og flýgur þá til nágrannaríkisins Pakistans.
Palme-morðið:
Svíi í gæsluvarð-
haldi á Spáni
Sænskur atvinnurekandi á Spáni
hefur verið handtekinn vegna gnms
um aðild að morðinu á Olof Palme,
fyrrverandi forsætisráöherra Sví-
þjóðar, 1986. Fyrrverandi eiginkona
mannsins afhenti lögreglunni þrjú
ólögleg skotvopn eftir að hann hafði
hótað henni lífláti. Sviinn var hand-
tekinn í Fuengirola fyrir rúmum
þremur vikum og situr nú í fangelsi
utan við Malaga. Opinberlega er
hann grunaður um gróft efnahags-
brot. Sænska lögreglan hefur þó
ekkert gert vegna þeirra mála fyrr
en eftir að henni barst vitneskja um
vopnin, að því er eiginkonan fyrr-
verandi greinir frá í sænska blað-
inu Aftonbladet.
Konan flýði með bömin sín frá
heimili þeirra hjóna á Spáni fyrir
rúmu ári og er nú skilin við mann-
inn.
Síðastliðið haust hafði eiginmað-
urinn fyrrverandi samband við kon-
una og bað hana að fleygja þremur
skotvopnum í Miðjarðarhafið sem
hann var með í geymslu hjá öðrum
aðila. Maðurinn greindi þá frá því
að hann hefði lánað byssuna aðila
sem hann treysti á þeim tíma sem
Palme var myrtur. Konan kveðst
ekki vita hvers vegna maðurinn
sagði frá þessu. ídesember afhenti
hún lögreglu vopnin. Maðurinn var
handtekinn en síðan sleppt. Hann
hóf þá að ónáða konuna og börnin.
Hinn 3. mars var maðurinn hand-
tekinn á ný að beiðni sænskra yfir-
valda. Vonast er til að hann verði
framseldur innan tíðar.
Segir af sér formennsku
Liklegt þykir að
Lee Teng-hui, frá-
farandi forseti Taí-
vans, láti undan
þrýstingi reiðs al-
mennings og þing-
manna og segi af
sér formennsku
Þj óðernisflokksins
á föstudaginn. Lee hefur verið
kennt um valdamissi flokksins í
kosningunum síðastliðinn laugar-
dag.
Sprengjuárás á Bagdad
Hundruð syrgjenda hvöttu í gær
Saddam Hussein íraksforseta til að
hefna meintrar sprengjuvörpuárás-
ar írans á hverfi Palestínumanna í
Bagdad í gær. Sex létu lífið í
árásinni.
Rasistar handteknir
Lögreglan í London handtók í
gær 100 meinta kynþáttahatara
vegna ofbeldis og dreifmgu á efni
með kynþáttafordómum.
10 þúsund mótmæla
Um 10 þúsund stjómarandstæð-
ingar mótmæltu í gær lokun sjón-
varpsstöðvar í Karljevo. Héldu mót-
mælendur á spjöldum með myndum
af Milosevic Júgóslavíuforseta og
eiginkonu hans sem búið var að
strika yfir með áletruninni: Fólkið
mun ákveða.
í ástarsorg og skaut fjóra
íbúi í Pasadena í Texas, sem var
hafnað af ungri stúlku, skaut hana
og þrjá aðra í kirkju í gær. Síðan
svipti hann sjálfan sig lifl.
Suha iðrast einskis
Suha Arafat, eig-
inkona Yassers
Arafats Palestínu-
leiðtoga, neitaði í
gær að draga til
baka fullyrðingu
sina um að ísrael
notaði gas til þess
að eitra fyrir palest-
inskum konum og börnum. Kvaðst
Suha í sjónvarpsviðtali ekki iðrast
orða sinna.
Mótmæla fátækt
Yfir 6 þúsund Búlgarar komu
saman í Sofiu i gær til þess að krefj-
ast hærri launa og mótmæla vax-
andi atvinnuleysi.
Rannsókn á sprengjuárás
Bandaríska
dómsmálaráðimeyt-
ið hefur á ný hafið
rannsókn á meintri
aðild Augustos Pin-
ochets, fyrrverandi
einræðisherra
Chile, á bíla-
sprengjuárás í Was-
hington 1976. Fyrrverandi sendi-
herra Chile, Orlando Letelier, sem
var harður andstæðingur stjómar
Pinochets, og bandarískur starfs-
bróðir hans, Ronni Moffitt, létust í
árásinni.
Hættulegt fyrir Serba
Embættismaður flóttamanna-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna
sagði í gær að ekki væri hægt að
mæla með því að Serbar sneru aftur
til Kosovo fyrr en öryggi heföi verið
bætt á svæðinu.