Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2000, Síða 4
20
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 2000
Trúfélög eru ekki
tilkynningarskyld
- ný lög sett um skráð félög
Þann 1. janúar sl. tóku gildi ný lög um
skrað trúfélög á fslandi. í fyrstu grein lag-
anna, sem fjallar um trúfrelsi, segir að menn
eigi rétt á að stofna trúfélög og iðka trú sína
í samræmi við sannfæringu hvers og eins.
Eigi má þó fremja neitt sem er gagnstætt
góðu siðferði og allsheijarreglu.
A sama hátt eiga menn rétt á að stofha fé-
lög um hvers konar kenningar og lífsskoðan-
ir, þ.m.t. um trúleysi. Eigi er skylt að til-
kynna stjómvöldum um stofhun eða starf-
semi trúfélaga eða annarra félaga um lífs-
skoðanir. Óheimilt er að taka upp nafn á trú-
félag sem er svo líkt nafni annars trúfélags
að misskilningi geti valdið.
Annar kafli laganna fjallar síðan um
skráningu trúfélaga. Þar segir að heimilt sé
að skra trúfélög utan þjóðkirkjunnar. Með
skráningunni fær trúfélag réttindi og skyldur
sem lög ákveða. Dóms- og kirkjumálaráðu-
neytið annast skráningu trúfélaga. Þegar trú-
félag hefur verið skráð skal ráðuneytið láta
því i té vottorð um skráninguna og auglýsa
hana í Lögbirtingablaði. Réttaráhrif skrán-
ingar teljast frá birtingu tilkynningar í Lög-
birtingablaði.
Almennt skilyrði
skráningar
Skilyrði fyrir skráningu trúfélags er að
um sé að ræða félag sem leggur stund á
átrúnað eða trú sem tengja má við þau trúar-
brögð mannkyns sem eiga sér sögulegar eða
menningarlegar rætur. Enn fremur er það
skilyrði skráningar að félag hafi náð fót-
festu, starfsemi þess sé virk og stöðug og að
í félaginu sé kjarni félagsmanna sem reglu-
lega iðka trú sína í samræmi við kenningar
þær sem félagið er stofnað um og eiga til
sóknar að gjalda hér á landi samkvæmt lög-
um um sóknargjöld.
Aðild að skráðu
trúfélagi
í 8. gr. laganna segir að þeir sem eru orðnir
16 ára að aldri geta tekið ákvörðun um inn-
göngu í skráð trúfélag eða úrsögn úr trúfélagi.
Bam skal frá fæðingu talið heyra til sama
skráða trúfélagi og móðir þess. Það foreldri
sem fer með forsjá bams tekur ákvörðun um
inngöngu þess í eða úrsögn úr skráðu trúfélagi.
Ef foreldrar fara saman með forsjá bams taka
þeir ákvörðun sameiginlega. Hafi barn náð 12
ára aldri skal leita álits (tess um slíka ákvörðun.
Hafr forsjá barns verið falin öðmm en foreldr-
um á grundvelli laga tekur forsjáraðili ákvörð-
un um inngöngu þess í eða úrsögn úr skráðu
trúfélagi.
Enginn má samtímis heyra til þjóðkirkjunni
og skráðu trúfélagi utan þjóðkirkjunnar eða
fleiri en einu skráðu trúfélagi utan þjóðkirkj-
unnar.
Sóttur í beitningaskúrinn á fermingardaginn:
Fékk tveggja
ára reiðhjól í
fermingargjöf
• Mikið afl: 2x70 W RMS í stereo.
• Auðveldar stillingar með tveimur
snúningstökkum (jog control).
• Nýtt marglitt Ijósaborð.
• Extra bassi.
• Forstilltur jafnt sem stillanlegur
tónjafnari.
• Þrívíddarhljómur.
• Stafrænt RDS útvarp með
30 stöðva minni.
• Klukkurofi.
• Þriggja diska spilari með CD-text og
handahófsspilun.
• Tvöfalt kassettutæki.
• Útgangur fyrir sub-woofer.
• Stafrænn útgangur fyrir minidisc-
spilara.
þar sem gceðin heyrast
Ármúla 17, Reykjavík, sími 568 8840
„Ég fermdist vestur á Flateyri og þar hef-
ur verið hefð að ferma um hvítasunnuna og
þegar hún hefur verið seint að vorinu hafa
unglingamir gjarnan verið komnir í vinnu
þegar að fermingunni kom,“ segir Guðbjart-
ur Jónsson sem fermdist í Flateyrarkirkju
vorið 1968 og varð að sækja hann í beitn-
ingaskúrinn til að ferma hann.
„Ég var byrjaður að beita fullan skammt
þegar þetta var og vegna þess var undirbún-
ingurin eilitið gloppóttur en á laugardegin-
um fyrir ferminguna var æfing þannig að ég
náði ekki að klára beitninguna og fór því á
sunnudagsmorguninn til að klára og gleymdi
mér við það. Afi varð að koma í skúrinn og
sækja mig á síðustu stundu,“
En allt slapp þetta og Guðbjartur fermdist
með jafnöldrunum og hélt sina fermingar-
veislu og komst á ball um kvöldið. Aldurs-
takmark á dansleiki þar vestra var miðað við
fermingu og töldu margir þetta helsta ávinn-
ing fermingarinnar auk gjafanna að sjálf-
sögðu. „Ég man eftir því að sú gjöf sem ég
var montnastur af var tveggja ára gamalt
reiðhjól sem afi gaf mér. Hann hafði keypt
sér þetta hjól en aldrei notað það. Ég hafði
Guðbjartur Jcmsson
Gleymdi sér við beitningu á fermingar-
daginn
ágimst hjólið lengi þar sem það stóð ónotað
í geymslunni." -GS
Jrermmgargjö
Fjölbreytt úr\
ynrrumi