Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2000, Qupperneq 8
24
IAMY
MIÐVIKUDAGUR 29.
ívAARS 2000
I m js.
Lögmál
tísku
nnar
- lætur ekki að sér hæða
Fermingarfötin taka breytingum sam-
kvæmt lögmálum tískuheimsins ekki síður
en föt fullorðna fólksins. Það sem er vinsælt
í dag þykir hinsvegar „lummó" á morgun.
Tískan fer þó gjarnan í hringi og endur-
tekur sig í sífellu með smávægilegum til-
brigðum. Hippatiskan sem var við líði seinni
hluta sjöunda- og í byrjun áttunda áratugar-
ins er nú að ná vinsældum á ný. Heldur er
hippatíska nútímans þó með fágaðri stíl en
sást í fatnaði blómabamanna. Meira segja
svo að þau þykja fúllboðleg við jafn hátíðleg
tækifæri og fermingin vissulega er. Það eru
einna helst skærir litir og skraut sem hafa
skilað sér inn í nútímann, en grófleikinn hef-
ur verið skilinn eftir í fortíðinni. Ekkert er þó
heilagt í þessum efnum og hjá stúlkunum
eru líka enn í tísku að vera í fallegum hvit-
um kjólum. Strákamir era gjaman í jakka-
fötum, en meira að segja hjá þeim er breidd-
in þó mun meiri en oft áður. Sígild föt em þó
einnig t fullu gildi, eins og jakkaföt og ís-
lenski hátíðabúningurinn.
-HKr.
Ferming 2000:
Jakkaföt og kjólar
Fermingartiska straka 1986
Jakkaföt hjá strákunum.
Fermingartiskan 1986
Langerma kjólar fyrir
stelpurnar.
DV-mynd ÞÖK
Fermingartískan 1995
Þarna var Jjölbreytnin orðin
meiri en áður.
Svava Johansen hjá tískuversluninni
Sautján segir að hjá strákunum séu jakkaföt
allsráðandi þetta vorið. Gráir tónar em vin-
sælastir í flannel-ullaijakkafötum. Jakkarnir
em einhnepptir, með 3 tölum, buxurnar em
beinar, þó nokkuð víðar.
Skyrtumar em vinsælastar í rauðu, fjólu-
bláu og gráu og einlit bindi í sama tón tekin
við. Skómir em grófir og svartir. Hátíðar-
búningurinn hefur líka verið tekinn við þetta
tækifæri.
Hjá stelpunum em skokkar og kjólar í
ýmsum litum mjög vinsælir. Rautt, bleikt,
beige, hvítt og grátt hafa verið vinsælir litir.
Buxur eru teknar við skokkana og eins við
kjólana, þó seljast kjólarnir líka stakir. Hné-
siðar kápur hafa verið teknar mikið, þá aðal-
lega í gráu, rauðu, svörtu og jafnvel bleiku.
Stelpurnar geta valið hvort þær vilja litað
plötukögur neðst á kjólana eða buxumar,
eða ekki. En það hefúr þó verið mjög vin-
sælt.
Skómir eru bandasandalar í hvítu, rauðu,
og bleiku og er þykktin á botninum mjög
mismunandi. Sumar vilja alveg flata skó á
meðan aðrar kjósa fyllta sóla og em þeir
báðir mjög finir við þennan fatnað. Það fer
meira eftir týpunni hvort hana klæðir flatir
eða þykkbotna skór.
Krossaspennur í hárið í ýmsum litum em
teknar og lítil fiðrildi. Krossamir em líka
vinsælir enda er það alltaf við hæfi að vera
með fallegan kross.
Fermingarfatnaðurinn á stelpurnar kostar
í heild með skóm og öllu á milli 20 og 30
þúsund krónur. Á strákana kostar alfatnaður-
inn i jakkafötum með öllu um 25 þúsund og
með hátíðarbúningi er kostnaðurinn um
8000 krónum meiri.
Fermingartískan 2000
Litagleði hippatískunnar hefur haldið inn-
reið sína á nýjan leik, en með öllu fágaðra
yfirbragði en hjá hippum fortíðarinnar. Sí-
gild föt eru þó einnig í fullu gildi eins og
jakkafötin á strákana.
Nú skiptir engu hvar
þú ert.
Það er komin
veiðibúð í tölvuna þína.
Fermingargjafirnar eru líka á Netinu.
Veíðihjól frá kr. 2.995.
Flugustangir frá kr. 5.995.
Fluguveiðihjól frá kr. 2.995.
Fluguveiðisett frá kr. 9.995.
Veiðijakkar frá kr. 7.995.
*
Urval af öllu til fluguhnýtinga.
Gjafabréf.
VEIÐIHORNIÐ
Hafnarstræti.
Opið alla daga.
Sími 551 6760
www.veidihomid.is