Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2000, Side 27
m
ifljt
r -I
tr £L 1
MiÐVIKUDAGUR 29. MARS 2000
Áfengi gert burtrækt
Fyrir nokkuð mörgum árum síðan vildu
fermingarveislur fara illilega úr skorðum.
Séra Páimi segir slíkt sem betur fer heyra til
algjörra undantekninga í dag. Og ffæg eru
slagorðin: Með samstilltu átaki var áfengi
gert burtrækt úr fermingarveislum.
„Mér finnst foreldrar almennt orðnir
miklu rólegri í kringum fermingamar. Það er
ekki lengur nauðsynlegt að snúa öllu við.
Breyta öllu, bæta og laga. Þetta er meira
spumingin, hvemig gemm við nálgast bam-
ið?“
Tíminn
„Ég spurði nokkur fermingarböm í haust
að því hvað þau vildu helst í fermingargjöf.
Ég átti von á að heyra svör á borð við græjur,
tölvur, GSM-síma eða eitthvað i þeim dúr.
Þau horfðu hins vegar lengi á mig og komu
með mjög sérkennilegt svar og sögðu:
„Tima.“ Ég hváði við og spurði; hvað? Þá
sögðu þau. Við vildum gjaman eiga tíma
með foreldrum okkar. Að þau gæfit okkur
svolítið af sjálfum sér. Að þau gætu verið
saman án þess að stefna eitthvað, gera eitt-
hvað eða fara eitthvað. Bara að njóta nærver-
unnar hvert við annað. Þetta væri dýr-
mætasta fermingargjöfin. Þetta var mjög sér-
stakt svar, en mér þótti líka mjög vænt um að
heyra það.
Mér finnst fermingarbörn ekki eins upp-
tekin af gjöfum og þau vom fyrir þónokkmm
ámm síðan. Þá var metingur um hver hefði
fengið stærstu gjöfina og hver fengið mest.
Ég heyri þetta miklu sjaldnar í dag.
Ég segi við þau, GSM-sími er úreltur eft-
ir smátíma, tölvan verður úrelt og græjumar.
Það er alltaf að koma ný tækni. Því segi ég,
hvaða gjöf er hægt að gefa sem úreldist ekki.
Hún er kannski fyrst og síðast sú sem ekki
verður keypt.“ -HKr.
A 0
LEÐURV ÖRUR
Tih/atin
fermingargjöf
Ókeypis
nafngydittg
Laugavegi 58, sími 551 3311
í bíó. Fólk gat ekki skilið hvemig í veröld-
inni það gæti tengst fermingarfræðslunni.
Bömin skrifuðu hins vegar niður það sem
þau fundu í myndinni með boðorðunum tíu
og einnig þegar verið var að bijóta borðorð-
in. Þau leituðu að því og þurftu þá um leið að
kunna boðorðin tíu, skilja þau og hafa hæfi-
leika til að sjá hvemig þau virkuðu í um-
hverfinu."
Fermingarnámskeið í
Vatnaskógi
„í Reykjavíkurprófastsdæmum hefur stór
meirihluti fermingarbama úr sóknunum far-
ið á fermingamámskeið í Vatnaskógi á
haustin. Þar fær fólk bæði fræðslu og upplif-
un. Það kemur mjög sterkt ffam í viðtölum
við fermingarböm fyrri ára að samveran þar
er þeim mjög helg og mikilvæg í huga. Það
merkilega er að kyrrðarstund sem haldin er i
Friðrikskapellu í skóginum, kemur út sem
mjög dýrmæt stund í minningunni. Það að fá
að nálgast hvort annað sem persónur; að
deila svolítið hugsunum og tilfinningum
hvort með öðm; að átta sig ofurlítið á því að
jafhvel vinurinn og skólabróðirinn eða
skólasystirin býr kannski við aðstæður sem
maður vissi ekki um, en þekkir hjá einhveij-
um öðram. Þannig fær fólk nýja nálgun og
nýjan grandvöll til að standa á.“
Boðskapurinn er lif-
andi
„Það er líka alltaf mjög gaman að hafa
farið í svona ferð og fengið tækifæri til að
tuskast við prestinn og skemmta sér við leik
og keppni. Þegar lengra líður fara samt aðrir
þættir að rísa hærra. Það er því notalegt fyr-
ir prestinn að heyra það í samræðum sem ég
átti við nokkra krakka í tíunda bekk. Þau
sögðu; það var eitthvað sérstakt við þessa
samvera, hún er enn að geijast innra með
okkur. Það er kannski það notalegasta að
frnna að boðskapurinn er lifandi."
Ungt fólk er miklu
upplýstara
„Mér finnst ungt fólk í dag vera miklu
meðvitaðra um hvað það er að gera en ég var
t.d. á sínum tíma. Ungt fólk er miklu upp-
lýstara og spyr meira ákveðinna spuminga,
meðan ég og mínir jafhaldrar sátum kannski
frekar sem þiggjendur.
I tímum er nú miklu meira skipst á skoð-
unum. Þau spyrja af hveiju og hvers vegna
era hlutimir svona en ekki hinsegin? Hvað
þýðir athöfh eins og altarisgangan? Hvemig
á brauðið að vera, hvemig á vínið, blóð
Krists, að vera? Hvað merkir þetta hvemig
helgum við þetta? Þau spyija um sakramenti
og spurninga um kjarna trúarinnar, merk-
ingu ritningarversa og frasagna í Biblíunni."
Stundum á maður
engin svör
„Það er ekki alltaf auðvelt að vera prestur
og vera krafinn svara um alla hluti, því
stundum á maður engin svör. Maður verður
þá hreinlega að viðurkenna það að stundum
verður maður bara að trúa án þess að skynja
eða geta skilgreint.“
lifc
g . • ##
# ... "
Ert Hú á fermingaraldriP
Ef þú ert Vaxtalínufélagi eða skráir þig núna og leggur
3.000 kr. eða meira inn á reikning í Búnaðarbankanum,
sem bundinn er í lágmark 12 mánuði, færðu flottan
bakpoka að gjöf.
Hvað er í boði í Vaxtalínunni:
« Vaxtalínukort til að taka út peninga í bönkum og hraðbönkum hér
heima og í hraðbönkum erlendis
: *" Vaxtalínureikningur sem ber hærri vexti en almennir reikningar
* Afsláttarkort sem veitir góðan afslátt af vörum og þjónustu
• Skipulagsbók sem hægt er nota sem skóladagbók
• Ókeypis nettenging hjá binet.is
• í hverjum mánuði eru nöfn 2ja heppinna félaga dregin út og fá þeir
5.000 kr. inn á reikninginn sinn
* Nokkur hundruð félagar fá frían miða í bíó
* Nýir félagar fá nýjasta eintakið af Smelli sent heim til sín
Inngöngugjafir Vaxtalínunnar:
Við inngöngu í Vaxtalínuna er afhent skipulagsbók,
afsláttarkort og nýjasta eintakið af Smelli.
Nýir og núverandi Vaxtalínufélagar á fermingaraldri
sem eiga eða fá sér Vaxtalínukort* geta valið um flottan
bol eða skrúfblýant sem nýtist einnig sem penni.
Vaxtalínufélagar geta keypt bol og penna/skrúfblýant
á sérstöku Vaxtalínuverði.
Til að fá Vaxtalínukort þarf aö leggja lágmark 1.000 kr. inn á Vaxtalínureikning.
Það er alltaf eitthvað að gerast í Vaxtalínunni.
Ef þú ert ekki nú þegar félagi borgar sig að skrá sig.
Kíktu á vaxtalinan.is
® BÚNAÐARBANKINN
Traustur banki
vxLxtatLtuut
- á rótt-r! leia