Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2000, Page 29
MIÐVIKUDAGUR 29. MARS 2000
Antonio Penalver Mondejar
Fermingar á íslandi komnar út i tómt rugl.
DV-MYND GS
Siglufirði, eða Dísu Dóru eins og hún er köll-
uð hvunndags, og Roger Cummings frá Dowl-
in i Suður-Devon á Englandi. Þau hjón starfa
bæði sem rútubilstjórar og leiðsögumenn í
Reykjavík. Þegar Dísa Dóra er beðin um að
rifja upp ferminguna sína kemur fjarlægur
glampi í augu hennar
Hallærisieg bók
„Ég man sérstaklega eftir tveimur ferming-
argjöfum sem ég fékk. Það voru eymalokkar,
sem ég á enn þá niðri í skúffú, og bók um Ís-
lenska þjóðhætti. Mér er enn minnisstætt þeg-
ar ég fór fyrst út með lokkana í eyrunum, ég
var svo feimin að vera með þessa gersemi að
ég hélt fyrir eyrun og reyndi að fela lokkana.
Bókin fannst mér afiur á móti hallærisleg
fermingargjöf og skildi ekki alveg til hvers
væri verið að gefa mér slíka gjöf. En með ár-
unum hefur bókin orðið mér hugstæðari og
um það leyti sem eymalokkamir hurfu ofan i
skúffú fór ég að kunna að meta íslenska þjóð-
hætti,“ segir Dísa Dóra og flettir upp á ýmsum
þjóðlegum fróðleik fyrir blaðamann.
Það var óvenjustór árgangur sem fermdist
á Siglufirði vorið 1952 þegar 64 böm vom
fermd í kirkjunni á staðnum. Ferming þá, líkt
og nú, hafði í för með sér heilmikið umstang
og varð til dæmis að sauma tvo fermingar-
kjóla á stelpumar, fermingarkjólinn sjálfan og
svo eftirfermingarkjól sem notaður var í veisl-
unni. „Ég fermdist í skautbúningi og þar sem
ég var fremur hávaxin Ieið mér illa og reyndi
að draga mig saman þegar ég var komin með
höfúðbúnaðinn og gnæfði yfir alla í kringum
mig en svo tók eftirfermingarkjóllinn við þeg-
ar að veislunni kom.“
Fermingarveislur hafa, líkt og annað sem
tengist fermingum, tekið vemlegum breyting-
um á undanfömum áratugum. Má þar minnast
áróðurs kirkjunnar manna fyrir áfengislausum
fermingarveislum. Um árabil var víndrykkja
tengd fermingum og sýndist sitt hveijum um
þann sið.
„A þessum ámm var það regla frekar en
undantekning að fermingarveislur væm
drykkjuhátíðir og ég man eftir því að ég
óskaði sérstaklega eftir því að veislan mín
yrði án áfengis og þar sem ekki var mikið um
víndrykkju á mínu heimili var það auðsótt
mál. En ég man að mér fannst sem sumu fólki
fyndist veislan hálfhallærisleg fyrir bragðið.
Það var sjálfsagt ekki í móð að hafa einungis
kaffiveislur á þessum ámm,“ segir Dísa Dóra.
Börnin voru blessuð
Roger, maður Dísu, hefúr fram að þessu
setið og fylgst með umræðunni án þess að
blanda sér inn í hana en þegar hann er inntur
eftir fermingarsögu sinni segist hann ekki
skilja glamúrinn hér á íslandi. Hann segist
fyrst hafa heyrt talað um fermingarveislur eft-
ir að hann flutti til Islands árið 1985.
„Á Englandi em böm blessuð án þess að
að þau komi heim og spytji um 29“ sjónvarp-
ið, stereogræurnar eða nýju tölvuna sem þau
ætluðu að fá. Fermingargjafir hér á Islandi er
orðnar tóm vitleysa. Þær em orðnar eins og
jólagjafimar. Þetta er orðið eins konar gjafa-
kapphlaup um hver gefúr mest og hver fær
stærst. Andinn á bak við gjafimar er löngu
gleymdur," segir Roger.
Sjálfur segist Roger búa til allar þær jóla-
gjafir sem böm og bamaböm fá og segir hann
það mikið tilhlökkunarefni hjá þeim að spá í
hvað verði í pakkanum í ár.
„Við Dísa búum til gjafimar fyrir krakkana
þannig að þetta em miklu persónulegri gjafir
en stóm Hagkaupsgjafirnar. Þetta eru gjafir
sem koma frá okkur sjálfúm og snerta hugar-
þel krakkanna, enda koma þær frá hjartanu."
En hefði Roger orðið trúaðri ef hann hefði
fengið eins og eina tölvu eða utanlandsferð í
fermingargjöf. „Nei, gjafir og peningaeyðsla
gera mann ekki trúaðan,“ segir Roger.
-GS
Teg. Bellamy
Ultima
Serta er leiðandi vörumerki á dýnumarkaðinum og ávísun á hágæða ameríska
lúxusdýnu. Það er ekki síður mikilvægt að fólk sofi vel á yngri árum, heldur
en þegar maður verður eldri. Það er ekki lengur hægt að líta fram hjá því að
dýnan í rúminu skiptir höfuðmáli og því ber aó vanda valið þegar ný dýna er
valin. Líttu við í Húsgagnahöllinni og fáðu ráðleggingar hjá fagfólki. <.
Twin
97x190.5 cm
Twin XL
97x203 cm
Full
135x190.5 cm
Millistif
Twin XL
97x203 cm
97x190.5 cm
135x190.5 cm
135x203 cm
Millistíf
Raógreiðslur i allt
að 36 mánuði
Handsmíðaðir slæðubaugar
úr nýsilfri.
Tilvaldir við hátíðarbúning karla.
Verð 4.500
Hönnun: Axel Eiríksson
Gullúrið
Axel Eiríksson,
Álfabakka 16
Mjóddinni
simi 587 0706
Aðalstræti 22
(safirði
sími 456 3023