Dagblaðið Vísir - DV - 29.03.2000, Qupperneq 31
MI.ÐVIKUDAGUR 29. MARS 2000
„Það verða um 30 sem fermast á sama tima og ég. “ DV-mynd Teitur
Skipta gjafirnar einhverju máli?
Jú, þær
hjálpa til
- sumir fá sjónvarp og video
Fannar Páll Aðalsteinsson verður í hópi
um 30 bama sem fermast í Grafarvogskirkju
á skírdag, 20. april. Hann segist eiga eitt
yngra systkini og annað á leiðinni og
kannski komið í heiminn áður en fermingin
verður.
Fannar Páll Aðalsteinsson er önnum kaf-
inn unglingur. Hann fann samt smáhlé á
dagskránni til að segja nokkur orð við blaða-
mann klukkan hálfþijú á miðvikudag. Hann
var þá nýkominn úr skólanum og átti að fara
á fúnd eftir hálftíma. Síðan var fótbolti á
dagskránni klukkan fjögur og tennisæfing
fyrir sjö. Ekki var aðgerðaleysinu heldur fyr-
ir að fara daginn eftir. Þá var skíðaferðalag í
skólanum og því nóg að gera.
„Fermingarundirbúningurinn er að mestu
búinn,“ sagði Fannar Páll. „Það eru bara eft-
ir einhverjar æfingar fyrir ferminguna. Þetta
er búið að vera alveg ágætt. Þau hafa skipst
á að kenna okkur, prestamir, Sigurður, Vig-
fús og Anna.“
- Em menn ekki famir að hlakka til?
„Jú, maður er orðinn svolítið spenntur.
Við emm 27 í bekknum og síðan bætast ein-
hveijir við. Það verða því um 30 krakkar
sem fermast á sama tíma og ég.“
- Hvemig er fatatískan hjá ykkur strákun-
um?
„Það em jakkafót og siðan er það auðvit-
að hátíðarbúningurinn. Ég verð í íslenska
hátíðarbúningnum."
- Skipta gjafirnar einhveiju máli I ferm-
ingunni?
„Jú, þær hjálpa til.“
- Hvað fær fólk þá í fermingargjafir?
„Það er sjónvarp og video, peningar, skíði
og snjóbretti," sagði Fannar Páll. Hann hafði
ekki haft spurnir af neinum sem hefði feng-
ið risagjafir á borð við vélsleða eða annað
þvíumlíkt. Að lokinni athöfninni verður
haldin veisla heima hjá honum en þangað
býður hann ættingjum og vinum, líkt og
skólasystkini hans gera.
-HKr.
—
Fox tölvuborð úr beyki/melamíni
með útdraganlegri plötu fyrir
lyklaborð. B120 x H74/88
Bk x D50 sm. 12.460,-
Allt fyrir
■tH
HUSGAGNAHOLLIfJ
ií: i i I
47
barn
þins iima
Þú færb
fermingarfötin
hjá okkur
KriKq(e<K
Þ H R 5EM,fHJRRTflfl S L (E R
M