Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2000, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2000, Blaðsíða 37
vs .1 36_________ Helgarblað LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000 15V Helgarblað „Það hlýtur að hafa verið vitað um þessa afstöðu Gerrits frá upphafi og því er rétta nafnið á þessu máli ráðnmgarklúður en eklci ágreiningur milli starfsmanna. “ DV MYNDIR TEITUfi Brotthvarf listræns stjórnanda veldur ólgu: Uppnám í Óperunni - Bjarni Daníelsson, nýráðinn óperustjóri, berst áfram Það er lltið um að vera um þessar mundir en við reikn- um með að halda lokatón- leika í maí til að ljúka starfsárinu. í byrjun júní verður hér fræg sýning tékknesks brúðuleikhúss á óper- unni Don Giovanni í samstarfi við Listahátíð. Næsta óperusýning okk- ar er bamaópera eftir Þorkel Sigur- björnsson viö texta eftir Böðvar Guðmundsson sem verður frum- sýnd um miðjan október. Þetta verk er samið i tilefni af 50 ára afmæli Tónmenntaskóla Reykjavíkur og er samstarfsverkefni skólans, íslensku óperunnar og fræðsluyfirvalda. Þeg- ar hefur verið útbúið námsefni tengt þessu og reiknað er með að heill árgangur úr grunnskólum Reykjavíkur komi að sjá þessa sýn- ingu. Auk þess verða sýningar fyrir almenning. Flutningur á óperu eftir Atla Heimi Sveinsson við texta eftir Þorstein Gylfason um kristnitökuna er líka í undirbúningi." Þannig lýsir Bjarni Daníelsson óperustjóri starfsemi íslensku óper- unnar um þessar mundir. Nú líður að lokum fyrsta starfs- árs íslensku óperunnar undir stjóm Bjarna. Tvö verkefni voru mest áberandi á vetrinum. Annað var óperan Mannsröddin sem var í raun einleikur í flutningi Signýjar Sæ- mundsdóttur, hitt var Lúkretía sví- virt, kammerópera eftir Benjamín Britten. Tónleikar af ýmsu tagi heyrðu einnig til verkefnaskrár vetrarins. Sýningum á Lúkretíu er nú hætt en hvernig voru viðtökur áhorfenda? Afþökkuðu miöana „Áhorfendur tóku sýningunni mjög vel og það gerðu einnig gagn- rýnendur. Ég held að óhætt sé að segja að tónlistarheimurinn hafi tekið þessu fagnandi. Hins vegar voru viðbrögð styrktarfyrirtækja Óperunnar blendin, sum afþökkuðu jafnvel boðsmiðana sína. Og hinn almenni borgari keypti ekki miða í stórum stíl. Þessi sýning og raunar allt starfið í vetur staðfesti það sem mig reyndar grunaði að Islenska óperan er ekki í sambandi við neinn vel skilgreindan eða tryggan áhorf- endahóp. Það er eitt af verkefnum framtíðarinnar að vinna að því að svo verði. Við verðum að þekkja áhorfendur okkar betur og vita hvað þeir vilja. Það er ekki hægt að renna blint í sjóinn með hverja upp- færslu." Skuldir hafa hlaðlst upp Samkvæmt samningi milli ís- lensku óperunnar og stjórnvalda um framlög úr ríkissjóði skal færa upp tvær metnaðarfuilar óperusýn- ingar árlega. I samningnum eru ákvæði sem skilyrða framlag ríkis- ins sem ákveðið hlutfall af sjálfsaflafé óperunnar og frjálsum framlögum einstaklinga og fyrir- tækja. íslenska óperan velti á síð- asta starfsári um 100 milljónum króna. Þar af koma 60 milljónir úr ríkissjóði, 30 milljónir af útleigu hússins og aðgöngumiðasölu á óp- erusýningar og 10 milljónir frá styrktaraðilum. Báðar óperur vetrarins voru mjög smáar í sniðum, nánast eins liúar og mögulegt var. Ástæðan fyrir því er fjárþröng Óperunnar, en hún hef- ur verið mikU að undanfornu, m.a. vegna uppsafnaðra skulda. Kostnað- ur við óperuuppfærslur er mikiU og gkuldir fljótar að hlaðast upp ef út af ber miðað við áætiaðan kostnað eða tekjur. Vilja meiri penfng Samingurinn við stjómvöld er í gUdi út þetta ár og samningaviðræð- ur eru þegar hafnar um endurnýj- un. Hver em helstu markmið Is- lensku óperunnar í þeim viðræð- um? „Við fórum fram á aukin framlög úr ríkissjóði, en gerum um leið ráð fyrir að eigin tekjur og frjáls fram- lög aukist í sama hlutfalli. TUlög- umar ganga út á að fjölga óperu- uppfærslum í áföngum þannig að eftir þrjú ár verði hægt að setja upp þrjár óperur í frumuppfærslu og endurflytja eina til tvær frá árinu áður. Með því móti gætum við við verið með u.þ.b. 40 sýningarkvöld yfir veturinn. Þá fyrst er hægt að tala um að Óperan sé með nokkuð samfellda starfsemi, en það held ég að sé forsenda þess að hægt sé að byggja upp traustan og áhugasaman áhorfendahóp. TU að hægt sé að sýna 40 sinnum verðum við að geta reiknað með 15 þúsund óperugest- um á ári. Ég held að þessar tiUögur séu raunhæfar og vona að þeim verði vel tekið bæði af stjómvöldum og styrktarfyrirtækjum Óperunnar." Stöndum á krossgötum Bjami tók við starfi óperustjóra sumarið 1999 en tók tU starfa 1. október og hefur þvi aðeins gegnt starfmu í sex mánuði. Hann segir mikið starf fram undan. „Það er augljóst mál að íslenska óperan er á krossgötum. Brautryðj- endatímabUinu er lokið. Hér var unnið afrek í 20 ár með ómældu framlagi stórhuga einstaklinga, með sjálfboðavinnu og eldlegum áhuga. Þessi tími er liðinn og það er útUok- að að reka íslensku óperuna áfram á þessum grunni. Það verður að breyta henni í eitthvað sem líkist venjulegu fyrirtæki. Mitt verkefni er að reyna að gera þetta. Það felst m.a. í því að móta hugmyndir um samfeUda og íjölbreytta starfsemi, afla meiri tekna og vinna að endur- skipulagningu á stjómkerfi ís- lensku óperunnar. Innan Ópemnn- ar hafa í raun verið tvær stjómir með hvor sitt verksvið, stjóm Styrktarfélagsins og stjóm Óper- unnar, en meiningin er nú að yfir Óperunni verði aðeins ein fyrirtæk- isstjórn er samanstandi af fuUtrú- um styrktaraðUa Óperunnar og fuU- trúum óperuáhugafólks." Misstu menn af lestinni? íslenska óperan varð tU árið 1979 þegar óperan II Pagliacci var færð upp í Háskólabíói með Sinfóníu- hljómsveit Islands og kór Söngskól- ans í Reykjavík. Árið eftir arfleiddu Sigurliði Kristjánsson kaupmaður og Helga Jónsdóttir íslensku óper- una að verulegum fjárhæðum sem nota skyldi tU húsnæðiskaupa og varð Gamla bíó fyrir valinu þar sem óperan hefur verið tU húsa síðan. Þær raddir hafa heyrst að ís- lensku óperunni ætti að flnna stað í fyrirhuguðu tónlistarhúsi sem Reykjavíkurborg og ríkið hyggjast reisa við höfnina. Hvemig líst Bjarna á slíkar hugmyndir? „Það er orðið of seint - því miður. Þessi möguleiki var ræddur fyrir nokkrum árum og þá hafði Óperan ekki áhuga á því. Við höfum misst af lestinni í þeim efnum og sýnt að íslenska óperan verði í Gamla bíói um fyrirsjáanlega framtíð.“ Klúður stjórnarinnar Bjami gegndi áður starfi skóla- stjóra Myndlista- og handíðaskól- ans, en starfaði sem yfirmaður menningarmálaskrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaup- mannahöfn síðastiiðin sex ár áður en hann kom heim aftur og tók við stjómartaumunum í íslensku óper- unni. Listrænn stjórnandi sem starfaði við hlið hans, Gerrit Schuil, sagði starfi sínu skyndilega lausu fyrir tveimur vikum og í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér mátti ljóst vera að hann sætti sig ekki við óskorað vald Bjama sem óperu- stjóra. Var þetta áfall fyrir íslensku óperuna? „Mér þótti þetta afar leitt mál, og ég er ósáttur við hvernig greint hef- ur verið frá því. Þetta er látið líta út eins og við Gerrit höfum ekki getað komið okkur saman um verkaskipt- ingu og sá ágreiningur hafi orðið til þess að Gerrit sagði upp. Þetta er ekki rétt og þetta er heldur ekki kjarni málsins. Við Gerrit gengum til þessara starfa af bjartsýni, vor- um samtaka og sammála um allt sem máli skipti. Það sem er kjami málsins er að þau skilyrði sem Ger- rit setti um ráðningu sína varðandi sjálfstætt ákvörðunarvald listræns stjórnanda rákust á við ákvæði í mínum ráðningarsamningi um um- boð til heildarstefnumótunar og verkstjórnar. Þegar við áttuðum okkur á þessu fáum dögum eftir að ég undirritaði minn ráðningasamn- ing, þá gerðum við stjórninni við- vart en málið var látið danka í marga mánuði. Það hlýtur að hafa verið vitað um þessa afstöðu Gerrits frá upphafi og því er rétta nafnið á þessu máli ráðningarklúður en ekki ágreiningur milli starfsmanna. Að láta það líta út eins og átök milli mín og Gerrits er útúrsnúningur á kjarna málsins og verður aðeins til þess að alls konar misskilningur og gróusögur fá vængi og það eigum við hvorugur skilið.“ Frændhygli og klíkuskapur Tónlistarheimurinn á íslandi er lítill og lokaður heimur þar sem grunnt er á flokkadráttum og ásök- unum um frændhygli, klikuskap og framapot. Sú staðreynd að sonur Bjama og tengdadóttir voru ráðin í aðalhlutverk einu óperusýningar vetrarins þar sem fleiri hlutverk voru en eitt hljóta að hafa ýtt undir slíkar sögur? „Val söngvara í hlutverk er svo klárlega á verksviði listræns stjórn- anda að ég þarf ekki einu sinni að hafa á því skoðun nema verið sé að setja fyrirtækið á hausinn eða fremja mannréttindabrot. Ég treysti Gerrit manna best til að velja sam- an réttar raddir í sýningu enda var það samdóma álit allra að sérlega vel hefði til tekist. Það hvarflaði ekki að mér að hafa áhrif á val söngvara í Lúkretíu og mér datt hreinlega aldrei í hug þessi ættar- tengslagildra sem þú nefndir. Það vill svo til að Finnur er í fremstu röð ungra íslenskra söngvara. Sama gildir um Emmu, hún er afburða- söngkona. En kannski hafa þau bara verið í klíkunni hjá Gerrit. Maður er varnarlaus." Samstarf eða samkeppni Margir telja að samstarf milli ís- lensku óperunnar og annarra aðila í íslensku tónlistarlífi eigi að vera meira. Bent er á að á sama tíma og íslenska óperan hjarir við þröngan kost setur Sinfóniuhljómsveit Islands upp einhverja viðamestu óperuuppfærslu seinni ára sem var Aida i Laugardalshöllinni. Þangað komu tæplega 4000 áhorfendur. Væri ekki nær að þessir aðilar störfuðu saman í stað þess að keppa um sömu áhorfenduma? „Samstarf um þessa sýningu var aldrei rætt en mér finnst að viðræð- ur um nánara samstarf Sinfóníu- hljómsveitarinnar og íslensku óper- unnar hljóti að vera á næsta leiti. íslenska óperan á í mikilli og vax- andi samkeppni á mörgum sviðum. Samkeppni er af hinu góða en vit- legt samstarf þarf lika að vera í okk- ar litia samfélagi. Auk Sinfóníunnar hef ég áhuga á nánara samstarfi við Þjóðleikhúsið.“ Gefst ekki upp Þegar þú horfír til baka yfir fyrsta hálfa árið í starfi og sérð litia aðsókn, erfiðan fjárhag og listrænan stjómanda á bak og burt, er einhver uppgjöf í þér? „Þetta eru reyndar ekki þær að- stæður sem ég bjóst við að starfa við. En svarið er nei. Við eram á fullri siglingu í breytingum og upp- byggingarstarfi og hvorki staður né stund til að hlaupa frá borði. Hvað síðar verður veit ég ekki - den tid, den sorg.“ -PÁÁ Garöar Cortes Stjórnaöi íslensku óperunni í 20 ár af eldmóöi. Eftir stendur Óperan í stjórnunarkreppu og fjárhagsvanda. íslenska óperan: Hveitibrauðsdag- arnir eru liðnir - stjórnunarvandi og fjárþurrð við Ingólfsstræti íslenska óperan er 20 ára um þess- ar mundir. Hún var stofnuð árið 1980 í kringum arf Sigurliða Kristjánsson- ar kaupmanns sem gerði henni kleift að eignast þak yfir höfuðið. Reyndar var félag um óperuflutning orðið til í kringum uppfærslu á II Pagliacci í Há- skólabíói 1979. Fyrstu 20 árin stjóm- aði Garðar Cortes söngvari, hljóm- sveitarstjóri og vinnuþjarkur íslensku óperunni og má segja að bjartsýni og eldmóður hafi einkennt starfið fyrstu árin. Fólk vann í sjálfboðavinnu, safn- aði peningum og allt í einu var hægt að setja upp ópemr á íslandi og gleð- in yflr því var folskvalaus. Á fyrstu árum Óperunnar vom settar upp vin- sælar óperur, s.s. Ástardrykkurinn, Töfraflautan, Aida, Lucia de Lammermoor og margar fleiri. Það var algengt að sýningar væm 20 fyrir fullu húsi. Erfitt að taka við af Garðari Nú hefur Garðar sleppt hendinni af óperunni og einbeitir sér að rekstri söngskóla og tónlistarlifmu á ýmsum sviðum. Bjami Daníelsson, fyrrver- andi skólastjóri, hefur tekið við starfi hans og eins og lesa má í viðtali við hann hér til hliðar er staða Óperunn- ar alls ekki góð og má segja að hún sé i ákveðinni kreppu. Samkvæmt samn- ingi við ríkið ber íslensku óperunni að setja upp tvær óperusýningar ár- lega en með veltufé upp á 100 milljón- ir sem að stærstum hluta fer í rekstr- arkostnað er litill afgangur til að setja upp sýningar. Það kostar á bilinu 35-40 milljónir króna að setja upp stóra „alvöru“-óp- em. Síðan getur kostað 2 milljónir á kvöldi að sýna herlegheitin. Það þarf því alltaf að vera uppselt ef einhver von á að vera til þess að hagnast á óp- emsýningum enda dettur sennilega engum í hug að það sé hægt að halda úti ópem án opinberra styrkja. Ekkert til þeirra að sækja Sinfóníuhljómsveit íslands hefur tvö ár í röð sett upp stórar ópemsýn- ingar í Laugardalshöll. I ár var það Aida en í fyrra Turandot. I ár var um næstum fullbúna óperusýningu að ræða sem tæplega 4000 áhorfendur komu að sjá en þrátt fyrir það mun hafa verið halli af sýningunni. Ekkert samstarf er milli íslensku óperunnar og Sinfóníuhljómsveitar ís- lemds þó allir sem skipa hljómsveit ís- lensku óperunnar séu úr Sinfóníu- hljómsveitinni. „Við höfum ekkert til þeirra að sækja. Allt sem okkur vantaði gátum við gert sjálflr," sagði Þröstur Ólafs- son, framkvæmdastjóri Sinfóníu- hljómsveitarinnar, í samtali við DV. Hann vildi ekkert segja um formlegt samstarf en mörgum fmnst að í svo litiu samfélagi ætti að vera hægt að samnýta þessar tvær stofnanir. Kórinn lifir sjálfstæðu lífi Kór íslensku óperunnar varð til á fyrstu árum hennar upp úr Kór Söngskólans í Reykjavík. Kórinn hefur alla tíð tekið þátt í sýningum Ópemnnar þegar þess þarf og á fyrstu árunum aflaði kórinn umtals- verðs fjár fyrir Óperuna með söng sínum á öðrum vettvangi og ekki var greitt sérstaklega fyrir söng kórsins í Óperunni. Þaó fyrirkomu- lag breyttist fyrir nokkram árum og i dag er kórinn sjálfstæð stofnun með sinn eigin fjárhag þó hann kenni sig við Óperuna. Þann vetur sem nú er að líða eru þrjú stór verk- efni fyrir Sinfóníuhljómsveitina á dagskrá kórsins en hann hefur ekk- ert sungið í Óperanni. „Við eigum okkar rætur þama og við látum íslensku óperana og hennar þarfir alltaf ganga fyrir,“ sagði Garðar Cortes í samtali við DV. Þegar Gerrit Schuil, listrænn stjómandi íslensku óperunnar, gekk á dögunum út í fússi vegna valdabaráttu við Bjama Daníelsson og sagði af sér starfi sagði hann í yf- irlýsingu sem hann sendi frá sér: „Það er sorglegt að verða vitni að því að meirihluti stjómar íslensku óperunnar telur ráðlegt að fela allar lokaákvarðanir manni sem vissu- lega býr yfir mörgum góðum kost- um en hefur hvorki menntun á sviði tónlistar né faglega þekkingu á söng, óperu eða leikhúsi.“ Stjórnunarkreppa I þessum orðum felst sú stjóm- unarkreppa sem íslenska óperan er stödd í. Núverandi óperustjóri hefur ótvíræð völd þvi stjóm Óper- unnar hafði látið undir höfuð leggj- ast að ganga frá ráðningarsamn- ingi við Gerrit Schuil svo mánuð- um skipti og hann virðist hafa staðið í þeirri trú að hann væri óp- erustjóri eða fengi að verða það. Bjami Daníelsson hefur, eins og Gerrit bendir á, ekki þann list- ræna bakgrunn sem nauðsynlegur er til að stjóma alveg einn svo hann þarf einhvem eða einhverja sér við hlið. Þetta var ekki vandamál þegar Garðar Cortes réð við Ingólfsstræti því hann er menntaður tónlistar- maður og einsöngvari sem hafði listrænt samráð við stjóm Óper- unnar en var einnig framkvæmda- stjóri. I nágrannalöndum okkar eru dæmi um að óperastjórar séu ekki menntaðir tónlistarmenn. Þannig er óperustjórinn í Ósló fyrrverandi ritstjóri. Gerrit Schuil vildi ekkert tjá sig um þetta mál við Helgarblað DV, utan það að hann sagðist vera á leið úr landi. Stjóm íslensku óperunnar á eft- ir að fjalla run málið en augljóst er að erfitt verður að ráða einhvem listrænan stjómanda upp á þau kjör að hafa ekki nema ráðgjafar- vald. Reyndar hefur DV það eftir traustum heimildum að ekki verði ráðið i starfið. Guðrún Pétursdótt- ir, formaður stjómar, er erlendis næstu mánuði og vísaði á aðra stjómarmenn til umsagnar. „Það eru ýmsir kostir í stöð- unni. Þetta eru ekki „akút“ vand- ræði og ég tel að Óperan sé ekki í neinni sérstakri kreppu," sagði ' Orri Vigfússon, varaformaður stjómar, sem mun stýra fundi um málið á mánudag. „Óperan er sterkari eftir en áður. Hafi verið ágreiningur er hann úr sögunni," sagði Garðar Cortes, sem er meðstjómandi, um brotthvarf Gerrits Schuil. -PÁÁ '
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.