Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2000, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2000, Blaðsíða 28
28 LAUGARDAGUR 1. APRÍL 2000 Helgarblað DV Táknmál ástarinnar - hvernig karlmenn eiga að lesa úr skeytum sem konur senda Stendur hún ein? Kona sem færir sig frá þeim hópi sem hún er með til þess að setja pening í sjálfsala eða panta sér drykk á bamum getur verið að koma sér á hlutlaust svæði svo karlinn geti nálgast hana án þess að ógna hópnum. B Snýr hún sér að þér? Kona sem snýr sér að karlmanni er að bjóða honum inn í sinn heim. Þetta merki er oft mjög óskýrt, getur verið handarhreyfing og lítið skref, og mörgum sjóndöprum lura getur hæglega sést yfir það og hann setið sem fastast. Er hún að tína kusk af peys- unni sinni? Snyrting er mikilvæg athöfn í öllum nánum sambönd- um og með þessu er hún að sýna að hún vilji vera eins fín og hún getur fyrir þig en um leið að fela taugaóstyrk sinn yfir því að vera að senda þessi skilaboð yfir- leitt. Snyrting af þessu tagi felur í sér löngun til nán- ari samskipta. Er hún að fikta í hár- inu á sér? Flest spendýr hafa einhver líkamsein- kenni sem eru fyrst og fremst til skrauts, s.s. hár, en glansandi og fal- legt hár gefur til kynna heilbrigði, hreysti og traust gen. Ef kona leikur sér að hárinu og kastar því til er hún að gefa til kynna að hún sé til í að leika sér. Baðar hún út höndunum? Kona sem er stödd á bar eða næturklúbbi getur ekki látið heyrast til sín og því er eðlilegt að nota ýktari handahreyfing- ar en venjulega til að ná at- hygli annarra - nánar tiltekið þinni athygli. Kastar hún hárinu frá hálsin- um? Kona sem sýnir karlmanni á sér hálsinn er að sýna honum kynörvandi svæði. Með slikri hreyfingu sýnir hún einnig á sér eyrað sem er afar erótískt svæði og gegnir lykilhlutverki í nánum samskiptum. Krossleggur hún fætuma og er í stuttu pilsi? Með því að sýna fagra leggi, sitjandi á háum barstól, er konan að senda skýr skilaboð um að hún sé kynvera og þú átt að taka eftir því. H Vætir hún varirnar eða sleikir út um? Mannfræð- ingar segja að þegar kona sleikir á sér varimar þeg- ar hún horfir á karlmenn þá sé hiin að minna þá á annan líkamshluta sem minnir um margt á munn en er ekki sýni- legur á almannafæri. Munnurinn er votur, heitur staður sem gott er að setja eitt- hvað í. Þarf að segja meira? Hvemig stendur á því aö karlmaður getur lent orrustuþotu á þilfari flugvélamóður- skips í myrkri við vasaljós en er algerlega ófær um að skilja einföldustu skilaboð sem konur senda körlum. Þessi skilaboð eru ekki gulir miðar á ísskápshurðinni heldur hið ævaforna hljóða táknmál sem konur og karlar geta ræðst við á án þess að segja neitt. Skilaboðin felast yfirleitt í hreyfingum, likamsstöðu og þess háttar tjáningu sem bæði kynin skilja á frumstæðan hátt. Þessi skilaboð eru yfirleitt send við aðstæður þar sem bæði kynin mætast og eru í veiðihug, t.d. á skemmtistöðum eða veitingahúsum. Þetta eru hlutir sem ætti ekki að þurfa að skýra út fyrir karlmönnum en við skulum samt renna okkur i gegnum fyrstu átta táknin í stafrófi daðursins. Og hvaö svo? Segjum nú sem svo aö þú sért einn á bamum og teljir þig greina skilaboö af einhverri gerð A-H sem lýst er hér að framan. Þú telur aö það gefi til kynna aö einhver sé til í tusk- ið. Hvað áttu að gera næst? Ekki fá hræðslukast og hvolfa i þig einum bjór í viðbót. Vertu rólegur. Fylgdu þessum ein- földu leiöbeiningum sem fara hér á eftir: Brostu þegar hún lítur til þín. Horfðu stutta stund í augun á henni. Vertu þolinmóður. Markmiðið er að vekja forvitni og áhuga. Líktu eftir skilaboðum hennar. Ef hún snýr sér að þér gerðu það sama. Horfðu ekki í augun á henni á meðan, ann- ars virðist það of úthugsað. Nálgastu hana frá hlið. Það er ekki eins ógnandi eins og að ganga beint framan að ókunnugum. Ekki horfa á hana fyrir neðan axlir. Ef þér gengur vel gef- ast góð tækifæri til þess síðar og hún vill ekki láta vega sig og meta eins og kjötstykki. Bíddu þangað til þér gefst færi á að ávarpa hana. Engar sniðugar línur duga. Spyrðu hana hvað hún heiti, segðu henni hvað þú heitir. Talaðu við hana eins og ættingja sem þér líkar vel við. Vertu þolinmóður þó hún sýni ekki áhuga strax. Flestar konur eru viðbúnar höfnun á þessu stigi og fara varlega. 6 Farðu örstutt í burtu og talaðu við vini þína. Lofaðu því ekki að koma strax aftur. Talaðu við vini þína eða einhvem annan smástund. Fylgstu ekki með henni en láttu hana sjá þig annað slagið. Það er mjög mikilvægt undir þessum kringumstæðum að hún sjái ekki nein merki þess að þú sért að tala við vini þína um hana. Það getur eyðilagt allt saman. 8 Farðu aftur til hennar. 9 Bjóddu henni í glas. Vertu rólegur þó einhver annar hafi gefið sig á tal við hana á meðan. Fylgstu með hvernig hún talar við hann. Hann á ekki séns í stöðunni því hann er ekki búinn að lesa þessa grein. 10 Hallaðu þér nær og talaðu við hana svo enginn annar heyri. 11 Segðu eitthvað sem er nógu persónulegt tO að hún skynji að þú hefur áhuga á henni einni. Hér duga vandaðir gull- hamrar mjög vel. Segðu eitthvað fallegt um útlit hennar, tennur, húð, hár eða fatnað. 12 Segðu: um?“ ,Þú ert sennilega að bíða eftir kærastanum þín- 13 Ef hún segir já þá ert þú á eigin ábyrgð. Ef hún segir nei og sýnir þar með að hún sé laus og liðug bjóddu henni þá að setjast hjá þér og veittu henni óskipta athygli þina. Fram- haldið er síðan í þínum höndum. Góða skemmtun. (Byggt á Men’s Health) -PÁÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.