Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2000, Blaðsíða 30
42
MÁNUDAGUR 10. APRÍL 2000
Tilvera
*
Upplýsingar í síma 550 5000
Fýrstu lömb 21. aldar
Skagfirsk
lömb virð-
ast sigra í
„keppnicc um
fyrstu lömb aldar-
innar:
I. febrúar:
Tvö lömb í Kolgröf í Lýtingsstaöahreppi f
Skagafiröi, hjá Þorsteini bónda Björnssyni
sem búiö hefur í 30 Sr - aldrei fyrr hefur
lamb fæðst svo snemma hjá honum.
3. febrúar:
Þyrí heitir hún litla lambadrottningin að
Hrisum við Álftaflörö. Hún fékk nafniö f
fyrradag. Þá virtist hún veröa fyrsta lamb
aldarinnar. En svo kom í Ijós að svo er ekki.
10. febrúar:
Hrútur og gimbur borin á Hamri á
Baröaströnd, móðirin gabbaði frjótækninn.
II. mars:
Tvílembingar hjá Sigfúsi Andréssyni f Stóru
Breiöuvfkurhjáleigu viö Eskifjörð.
12. mars:
Marsibil á bænum Dæli f Víðdal ber
ævinlega f mars - einnig í ár og núna
svörtum hrút og lítilli gimbur.
19. mars:
Tömstundabóndi í Þorlákshöfn fékk tvö
lömb sem voru snemma á ferðinni.
20. mars:
Tvö lömb á Minni-Ökrum f Skagafirði.
20. mars:
I Múlakoti við Kirkjubæjarklaustur komu
tvílembingar.
23. mars:
3 lömb fæddust að Blöndubakka f
Hróarstungu.
25. mars:
Þá fjölgaði um tvo f fjárhúsunum á Dæli f
Sæmundarhlíð f Skagafirði.
26. mars:
Tvílembt á Staðarbakka f Miöfiröi.
26. mars:
Tvö lömb á Brimnesi á Árskógsströnd.
27. mars:
Tveir hvftir hrútar Kristínar bónda og
leiöbeinanda í Ólafsvfk - f fyrstu jafnvel
taldir fyrstu lömb aldarinnar, en reyndust
ekki vera það. En fallegirvoru þeir.
Þyrí fékk nafn í
gegnum
gemsann
- og snemmborin lömb fengu nöfn Guðna ráðherra og Ara Teitssonar
Blaðberar óskast
í eftirtalin hverfi:
Reykjavík:
Bogahlíð
Hamrahlíð
Hörgshlíð
Hátún
Nóatún
Sóleyjargata
Smáragata
Lindargata
Skúlagata
Garðabær:
Löngufit
Lækjarfit
Kópavogur:
Álfhólsveg
Digranesveg
Skólatröð
Hamraborg
Vallartröð
Lömbin hennar Kristínar Kristins-
dóttur, bónda og leiðbeinanda í Ólafs-
vík, voru ekki fyrstu lömb aldarinnar
enda höföum við vara á þegar við birt-
um fyrstu myndir af þessum fallegu
dýrum og eigendum þeirra. Gífurleg
viðbrögð voru við fréttinni af landinu
öllu og fréttum um lömb snjóað inn
alla vikuna. Kom í ljós að víða höfðu
lömb komið í heiminn nokkru áður en
Kristín fagnaði sinum failegu lömbum.
Fyrsta lambið á árinu og öldinni sem
við vitum af er í Kolgröf í Skagafirði.
Svo virðist sem annað lamb aldarinn-
ar hér á landi hafi séð dagsins ljós
skammt frá Ólafsvík þann 3. febrúar -
nánar tiltekið að Hrísum við Álftafiörð
sem er i Helgafellssveit, skammt frá
Stykkishólmi.
Skagfirðingar hafa
vinnTngínn
Þorsteinn Bjömsson í Kolgröf í Lýt-
ingsstaðahreppi hefur búið í meira en
30 ár. Hann fékk tvö lömb 1. febrúar,
þau em orðin stór og stælt í dag. „Ég
veit engin dæmi þess að lömb hafi
fæðst þetta snemma árs,“ sagði Þor-
steinn í gær.
Skammt frá Kolgröf, að Minni-
Ökrum, fæddust tvö góð lömb 20. mars
- kvöldið eftir var fundur með Guðna
Ágústssyni og Ara Teitssyni í Mið-
garði í Skagafirði. í tilefhi af komu
höfðingjanna sem kynntu nýja búvöru-
samninginn gaf Þormar bóndi lömbum
sinum nöfnin Guðni lambakóngur,
stór og sterkur eins og ráðherrann, en
gimbrin, sem er öll minni um sig, var
látin heita Aría!
Þyri litla, fyrsta lambið
Litla lambið sem heldur titlinum
„fyrsta lamb aldarinnar" hefur orðið
til við náin kynni hrúts og kindar um
20. september samkvæmt þessu, því
meðgangím er 20 vikur. Almennt er
sauðburður í gangi fyrstu dagana í
maí, en náttúran vill stundum hafa
sinn gang, svo út af getur brugðið. Svo
var í þessu tilfelli.
Haildóra Baldursdóttir og Reynir
Guðlaugsson eru bændur að Hrísum
Halldóra segir að þetta sé óvenjulegt.
Lambið var lífvænlegt og er orðið stórt
og myndarlegt í dag. Á Hrísum er gott
fjárbú með á fjórða hundrað gripi í
húsi. „Auðvitað er maður stoltur af að
eiga fýrsta lamb aldarinnar þangað til
annað kemur í ljós, sem auðvitað get-
ur orðið,“ sagði Halldóra Baldursdóttir
á Hrísum í gær. Þau hjónin héldu síma-
fúnd í gemsanum ásamt dóttur sinni,
sem var á leið suður, og var þá ákveðið
nafii á þessa þorradrottningu lambanna
- hún hlaut nafnið Þyrí en það nafn þýð-
ir kona sem helguð var Þðr.
Skákaði ftjótækninum
Á Hamri á Barðaströnd fæddust
hrútur og gimbur 10. febrúar. Fyrir
nokkrum árum fæddist lamb þar á bæ
20. janúar. Þau Páll Jakobsson og Guð-
rún Jónsdóttir búa á Hamri. Guðrún
segir að ærin sem núna bar tveim
lömbum hefði látið í fyrravetur og var
ekki með lambi á fjalli í fyrrasumar.
Það segir hún að kunni að hafa haft
áhrif. Fenginn var í fyrsta sinni frjó-
tæknir að bænum í desember og þá
var kindin frjóvguð ásamt tíu öðrum. í
ljós kom nokkru síðar að ærin hafði
verið komin langt á leið, þegar sæðing-
in fór ffam. Hún hafði skákað frjó-
tækninum. Næstu lömb sem við fregn-
uðum af í gegnum lesendur okkar
voru tvílembingar 11. mars hjá Sigfúsi
Andréssyni, bónda í Stóru Breiðuvik-
urhjáleigu, rétt utan við Eskifjörð, vel
tveim mánuðum fyrr en bændur al-
mennt ætlast til.
Húnvetnsk voriömb
Ærin Marsibil, sem ber alltaf í
mars, bar núna 12. mars, kannski í síð-
asta skipti því hún er orðin gömul og
liðaveik. Marsibil er i stoltri hjörð
ferðaþjónustuhjónanna á Dæli í Víði-
dal í Vestur Húnaþingi, Sigrúnar og
Víglundar. Bóndi kom í fjárhúsin á
sunnudagsmorgni og þá var þar kom-
inn svartur hrútur og lítil gimbur í
burðarliðnum. Ekki langt frá Víðidaln-
um, að Staðarbakka i Miðfirði, komu
tvö lömb i heiminn 26. mars hjá þeim
Rafni Benediktssyni og Ingibjörgu Þór-
arinsdóttur sem þar búa. Ingibjörg
sagði að þetta væri óvanalegt hjá þeim,
það hefði ekki gerst fyrr að lömb fædd-
ust í mars og hefði hún þó 25 ára
reynslu af fjárbúskapnum. En þarna
hefði eitthvað brugðið út af eins og
stundum gerist. Þennan sama dag
komu fyrstu lömbin á Brimnesi á Ár-
skógsströnd hjá Amari bónda Gústafs-
syni. Ein kind bar tveim lömbum,
boldangshrút og gimbur, deginum á
undan Ólafsvíkurlömbunum. Daginn
áður, þann 25. mars, fjölgaði í fjárhús-
unum á Dæli í Sæmundarhlíð í Skaga-
firði. Þar búa Jón Baldvinsson og Stef-
anía Guðmundsdóttir. Sunnudaginn
19. mars fékk Garðar Karlsson fjár-
bóndi í Þorlákshöfh tvflembinga, tvo
snotra hrúta, annan svartan og hinn
hvítan. Um þetta sama leyti, eða 20.
mars átti ein kindin að Múlakoti við
Kirkjubæjarklaustur tvilembinga, en á
bænum búa hjónin Baldur Bjamason
og Helga Bjömsdóttir ásamt Bjama
syni sínum. -JBP
Glímukappi
Atvinnuglímukappinn Sable var
léttklædd er hún kom til
frumsýningarinnar á nýju
hasar- og gamanmyndinni
Ready To Rumble
í Hollywood.
Aðalfundur
Verslunarmannafélags Suðurnesja
verður haldinn að Vatnsnesvegi 14, Keflavík,
þriðjudaginn 18. apríl, kl. 20
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Önnur mál
Stjórn Verslunarmannafélags Suðurnesja
Ljosmyndastola Reykjavíkur
'’fw' j- Hverfisgötu 105-2. hæð 101 Reykjavík, Sími 562 1166-862 6636 E-mail: arnah@tv.is
br MggHE Finnbogi Marinósson Ljósmyndari
j§H Meðlimur í Ljósmynaarafélagi íslands