Dagblaðið Vísir - DV - 10.04.2000, Blaðsíða 14
14
MÁNUDAGUR 10. APRÍL 2000
Skoðun DV
Spurning dagsins
Hver eru þín aðaláhugamál?
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir,
starfsm. NK-kaffi:
AO vera úti í góöu veöri.
Þrátt fyrir ummæli sumra
þekktra manna, þ.á. m. þingmanna,
um aö nýgenginn kvótadómur slái
ekki á deilumar hér innanlands og
að það veiki dóminn að Hæstiréttur
hafi „klofnað“ í málinu tel ég að
dómurinn muni einmitt styrkja al-
menning í þeirri trú að hér hafi
verið rétt að málum staðið
Sératkvæði tveggja hæstaréttar-
dómara sýnir að mínu mati þekk-
ingarskort þeirra sem lögmanna,
likt og svipað og veikleika lög-
manns verjanda útgerðarmannsins
„Kvótadómurinn kemur
ró á málin, styrkir
lýðrœðið og stuðlar að frek-
ari tœkniþróun í þeim
hluta sjávarútvegsins sem
skilar okkur mestum
tekjum í þjóðarbúið. “a
á Patreksfirði. En vöm þeirra var
fyrirfram dæmd til að mistakast.
Það má svo búast við endalaus-
um deilum og uppákomum þeirra
sem ekki þykjast una dómi Hæsta-
réttar. í þeirra hópi em þekktir efa-
semdarmenn um allt og ekkert. Það
yrði ógæfa þjóðarinnar færi hún að
leggja eyrun að tuði þeirra og hár-
togunum. Kvótadómurinn kemur
ró á málin, styrkir lýðræðið og
stuðlar að frekari tækniþróun í
þeim hluta sjávarútvegsins sem
skilar okkur mestum tekjum í þjóð-
arbúið.
Eyrún Arnarsdóttir, 10 ára:
Mér finnst skemmtilegast
aö passa börn.
Berglind Helga Bergsdóttir nemi:
Skemmta mér meö vinum mínum.
Anna Karen Sigvaldadóttir nemi:
Listir almennt og auövitaö
vinir mínir.
Kvótadómurinn
kemur ró á málin
Maignús Ólafsson
skrifar:
Ég tel það vera gæfumerki að
kvótadómurinn í Hæstarétti skuli
hafa fallið eins og hann féll. Bæði er
það að umræðan var orðin lýjandi
lesefni og fréttaefni í fjölmiðlum og
eins hitt að þjóðin er vel sett með
núverandi ástand í sjávarútvegi um
ókomin ár. Ég er einn þeirra sem
ekki geri út eða hef liflbrauð af sjáv-
arfangi. Ég hef lifibrauð af allt öðr-
um toga og skammast mín ekki fyr-
ir það. Það þýðir ekkert að telja al-
menningi trú um að allt standi eða
falli með sjávarútvegsmálunum.
Það er liðin tíð. Sem betur fer, má
líka bæta við.
Ástæðulaust er að vorkenna út-
gerðarmanninum sem dæmdur var
til greiðslu sektar eða fangelsis að
öðrum kosti. Hann var sjálfur einn
kvótaeigandinn og seldi kvóta eins
og hver annar. Um skipstjórann á
Vatneyrinni gegnir öðru máli, en
hann er fullveðja maður og sjálfráð-
ur sinna gerða og vissi hvað hann
var að gera með því að fara í hina
örlagaríku veiðiferð. Enginn dóm-
stóll, heldur ekki Evrópudómstóll,
dæmir afbrotamanni í vil.
Ástæðulaust að vorkenna útgerðarmanninum
- Enginn dómstóll, heldur ekki Evrópudómstóll, dæmir afbrotamönnum í vil.
Ragnheiður Ragnarsdóttir nemi:
Góöar bíómyndir.
Arnar Þór Brynjarsson nemi:
Spila á gítar og hlusta á músík.
Sóðaskapur í Reykjavík
Anna
skrifar:_________________________
Vorið virðist á næstu grösum,
páskar framundan. Reykjavík,
menningarborg árið 2000, er í tötr-
um eftir óvenjulega harðan vetur.
Borg sem getur verið svo falleg er
hreint og beint á kafi í rusli. Gang-
stéttir sandi orpnar, plastpokar,
flöskur, sælgætisbréf, sígarettu-
stubbar og áramótarusl hvert sem
litið er.
Kantsteinar og gangstéttarheOur
hafa skekkst í snjómokstri þungra
vinnuvéla og umferðaeyjar sem
hannaðar voru sem grasi grónir
blettir (hvort það nú var raunhæft
eða ekki) eru með ljótum hjólfórum,
drasli og rusli og frá þeim flæðir
„Eftir kattaátakið frœga er
ekki til of mikils mœlst að
fé verði varið til hreins-
unarátaks í menningar-
borginni, og ekki bara þeg-
ar skólar eru búnir í júní
heldur núna. “
moldin vatnsblönduð beint á göt-
urnar.
Eftir kattaátakið fræga er ekki til
of mikils mælst að fé verði varið til
hreinsunarátaks í menningarborg-
inni, og ekki bara þegar skólar eru
búnir í júní heldur núna. Það þarf
bíla með háþrýstibúnaði til að spúla
aOar stéttar, götur og aðliggjandi
grindverk - jafnvel hús. Lagfæring-
ar eru brýnar á kantsteinum, grasi
og gróðurblettum.
Þar sem ég bý geng ég oft göngu-
stíg í Fossvoginum þar sem snotur
rusladaOur hangir á staur. í aOt
fyrra sumar - og ennþá - vantar
botninn í daOinn en rusli er samt
kastað í hann. Þar er bingur af
rusli. Það er ekki nóg að hafa úrval
menningaratburða í svokallaðri
menningarborg ef umhverfið er lág-
menningarlegt, sóðalegt og mengaö
af lágkúrulegri ómenningu, klámi
sem virðist vinsælt afþreyingar- og
fjölmiölaefni um þessar mundir.
Dagfari
*rml
Viljalausar prímadonnur
Islenskar knattspymukonur eru aö eigin
mati í fremstu röð í heiminum, algjörir snOl-
ingar. TO að sýna það svo ekki yrði um
viOst ákváðu tíu prímadonnur landsliðsins i
vetur að lýsa frati á þjálfara sinn, mann sem
hefur mikla menntun og reynslu sem þjálfari
og hefur náð góðum árangri sem slíkur. Þær
sögðust hreinlega vera hættar að klæða sig í
íslenska landsliðsbúninginn ef þjálfarinn
yrði ekki rekinn.
Eggert Magnússon, formaður Knattspymu-
sambandsins, og hans menn lýstu yfir stuðn-
ingi við landsliðsþjálfarann en auðvitaö fór
svo að hann neyddist tO að segja starfí sínu
lausu því ekki var hægt að starfa án príma-
donnanna tíu. Stjóm Knattspymusambands-
ins fann annan þjálfara tO að þjálfa príma-
donnurnar tíu en þann þjálfara hafði Knatt-
spymusambandið einmitt rekið fyrir nokkmm
misserum úr starfi landsliðsþjálfara karla. Hinn
brottrekni þjálfari hafði reyndar áður starfað
sem landsliðsþjálfari kvenna og var ekki rekinn
úr þvi starfi, heldur hætti sjálfvOjugur tO að
taka við starfi landsliðsþjálfara karla sem hann
var síðan rekinn úr.
Prímadonnumar tiu létu ekkert í sér heyra
um þessi mál opinberlega, hvorki þegar þær
Eflaust hafa prímadonnumar tíu
eytt vetrinum í heljargreipum hins
fyrrum brottrekna þjálfara við
harðar œfingar.
ákváðu að lýsa frati á fyrram þjálfara sinn og
höfðu i hótunum við knattspymuforustuna né
heldur þegar hinn fyrram brottrekni þjálfari var
látinn taka við þjálfun þeirra. Báðir áhugamenn-
imir um íslenska kvennaknattspymu drógu
af þessu þá ályktun að prímadonnumar tíu
ætluðu að einbeita sér að knattspyrnunni en
láta Eggert Magnússon og hans menn í forust-
unni um þjálfaramálin.
Hinn fyrrum brottrekni þjálfari sagði lítið í
fyrstu en þó mátti skOja að hann ætlaði að
taka prímadonnumar tíu föstum tökum og
gera þeim ljóst hver réði feröinni, þær skyldu
sko beygöar í duftið. Eflaust hafa prímadonn-
umar tíu eytt vetrinum í heljargreipum hins
fyrrum brottrekna þjálfara við harðar æfing-
ar. Var svo haldið tO Bandaríkjanna tO
keppni gegn heimakonum þar, snOlingum
sem stýra þó ekki þjálfaramálum sínum.
Og svo bárust úrslit leiksins heim á klak-
ann, bandaríska liðið skoraði átta mörk en
prímadonnumar tíu ekkert. Fyrrum brottrekni
þjálfarinn hafði skýringamar á reiðum höndum
eftir ósigurinn, prímadonnumar tíu vora út-
haldslausar, vOjalausar, ekki tObúnar líkamlega
- og þær gáfust upp. Þetta var útkoman og heyr-
ast nú kröfur frá báðum áhangendum íslenskrar
kvennaknattspymu þess eðlis að prímadonnum-
ar tíu hætti i landsliðinu, að öðrum kosti verði
aldrei leiknir landsleikir aftur. _ p .
Frá Vestmannaeyjum
Þar er vísir aö sædýrasafni,
en ekki hér.
Sædýrasafn
vantar
Ragnar hringdi:
Ég var að lesa þarfa ábendingu í
HeimOispósti Grundar sem Friðrik Á.
Brekkan skrOaði í blaðið. Hann furð-
ar sig á að hér, á sjálfu fiskOandinu,
skuli ekki vera sædýrasafn í höfuð-
borginni. - Almennilegt „aquarium". í
Vestmannaeyjum er þó vísir að slíku
safni í náttúrugripasafninu þar sem
er mikið sótt af ferðamönnum. Á Nátt-
úrugripasafni íslands við Hlemm er
afar merkOegt safn og það ættu flestir
að heimsækja. En sædýrasafn vantar
tilfinnanlega.
Inneign í RKÍ-
kassa
Borgarbúi skrifar:
Stundum slæðist maður inn á ein-
hverja sjoppuna tO að ná sér í eitt og
annað. Þar eru líka spOakassar, sem
menn taka gjarnan í ef lausar krónur
íþyngja manni. Nýjar og nýjar tegund-
ir kassa koma í umferð. Nýlega lenti
ég í því að ná ekki inneign sem birtist
á skjá RKÍ-kassa. Ég ýtti á staflna en
ekkert gekk. Afgreiðslustúlka sagðist
ekki kunna á apparatið. Ég lét kyrrt
liggja og fór mina leið. Hvað um aðra
sem ekki kunna á þetta, t.d. unglinga?
Svona viðskiptahætti kaupi ég ekki.
Þéttbýlisvegir
eda jarðgöng?
Gu&mundur Óskarsson skrifar:
Maður á
bágt með að
skOja hvernig
þingmenn
Reykjavíkur
(sem maður
þekkir nú
varla í sjón
lengur, svo
sjaldan sér
maður þá
koma fram op-
inberlega) geta
legið undir því ______
ámæli kjósenda, að þeir séu að tapa
stríðinu í uppbyggingu samgöngu-
mála á höfuðborgarsvæðinu. Þing-
menn Reykjaneskjördæmist gera þó
tOraun tO að halda hlut sinum í jarð-
gangasíbylju þingmanna dreObýlis-
ins. Nú verða þingmenn Reykjavíkur
að taka á með kjósendum og krefjast
uppstokkunar í þróun samgangna í
sínu kjördæmi. Samgöngu- og gatna-
kerfi borgarinnar er í molum, viðhald
htið sem ekkert og helstu æðar tO og
frá borginni bíða endurhönnunar.
Sameinum stjórn-
málaflokkana
Sigtryggur skrifar:
Mér finnst gráupplagt að á meðan
þessi alda og áhugi endist um að sam-
eina hvaðeina sem hreyfist - eða
hreyfist ekki verði skipuð nefnd á
vegum forsetaembættisins, Hæstarétt-
ar eða einhverra enn annarra afla
sem kunna að reynast þess megnug aö
sameina aOa íslensku stjórnmála-
flokkana. Þá er komin fákeppni í
stjómmálin eins og aOt hitt. Er það
ekki tilhneigingin og megintilgangur-
inn í sæluvímu sameiningarferOisins?
IDV Lesendur
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eöa sent tölvupóst á netfangiö:
gra@ff.ls
Eöa sent bréf til: Lesandasi&a DV,
Þverhotti 11, 105 ReyKJavik.
Lesendur eru hvattir til aö senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.
Gatnakerfiö í molum
- Og þingmenn
Reykjavíkur horfa á
sljóum augum.