Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2000, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2000
DV
7
Fréttir
Hafrannsóknaskipið loks á heimleið frá Chile:
ASMAR greiðir 140
milljónir í bætur
- skipið væntanlegt til landsins um miðjan maí
DV, AKUREYRI:____________________
Árni Friðriksson RE-200, hið
nýja skip Hafrannsóknastofnunar,
er væntanlega lagt af stað til ís-
lands frá Chile sjö mánuðum á eft-
ir upprunalegum áætlunun. Upp-
haflega átti að afhenda skipið í
september á síðasta ári, síðan var
samið um afhendingu í janúar og
það stóðst ekki heldur en loks hef-
ur verið séð fyrir endann á þeim
erfiðleikum sem staðið hafa í vegi
fyrir afhendingu skipsins.
Það hefur áður komið fram að
tafir á smíði skipsins má m.a.
rekja til flókinnar uppsetningar og
frágangs framdrifsbúnaðar sem
knýr skipið og galla í skrúfubún-
aði. Þá er ljóst að skipasmíðastöð-
in hefur ekki staðist ýmsa aðra
þætti smíðaáætlunar.
Að undanförnu hafa prófanir á
búnaði skipsins þó staðist ýtrustu
kröfur sem gerðar hafa verið til haf-
rannsóknaskips af fullkomnustu
gerð þar sem m.a. eru gerðar kröfur
um hljóðlátt skip til bergmálsmæl-
inga fiskistofna.
Hafrannsóknastofnun hefur orðið
fyrir ýmiss konar vandræðum
vegna seinkunar á afhendingu
skipsins um 7 mánuði og varð m.a.
að leigja skip til rannsóknarleið-
angra í vetur. Með samkomulaginu
sem Hafrannsóknastofnun hefur
gert við ASMAR-skipasmíðastöðina
í Chile er hins vegar tryggt að hún
verður ekki fyrir beinu flárhagslegu
tjóni af völdum tafa eða annarra
vanefnda við smíði skipsins, s.s.
vegna aukins eftirlitskostnaðar. Þar
með eiga fjárhagsáætlanir um smíði
skipsins einnig að standast en þær
námu á bilinu 1,6 til 1,7 milljarða
króna. Skipið er væntanlegt til
landsins um miðjan næsta mánuð.
Haft hefur verið á orði að óskyn-
samlegt hafi verið að taka tilboði
stöðvarinnar í Chile á sínum tíma
en lægra tilboð barst í smíðina frá
Kína. Því var ekki tekið þar sem
Kínverjum var ekki treyst fyrir
verkinu. Þá hefur verið á það bent
að Brynjólfur Bjarnason, stjórnar-
formaður Hafrannsóknastofnunar,
sé jafnframt ræðismaður Chile á ís-
landi en hann er einnig fram-
kvæmdastjóri Granda sem er með
talsverð umsvif í Chile. Tala menn
um „óheppilegar tengingar" í þessu
sambandi en ekki náðist i Brynjólf í
gær til að bera þennan orðróm und-
ir hann. -gk
DV-MYND GUNNAR KRISTJANSSON
Félagsheimili hestamanna í Grundarfirði rís:
Laghentir hestamenn komu
upp húsi á einni helgi
DV. GRUNDARFIRDI:_________________
Enn er hægt að finna gamla ung-
mennafélagsandann því hestamenn
í Grundarfírði tóku sig til og reistu
hús fyrir starfsemi félagsins um
eina helgi fyrir skemmstu.
Hestamenn búa svo vel að eiga
meðal félagsmanna útlærða húsa-
smíðameistara og íjölda laghentra
manna svo það vafðist ekki fyrir
þeim að koma upp einu húsi í sjálf-
boðavinnu. Verkið hófst eftir hádegi
á föstudag og seinnipart laugardags
var húsið risið og komið undir súð.
Veðrið var frekar hryssingslegt.
Þótt vel hafi gengið þessa helgi eru
nokkur handtökin eftir, að sögn
smiðanna, en þetta á að vera búið
fyrir vorið.
DVÓ/GK
Grjóthálsi 1
Sími söludeildar 575 1210
www.bl.is
FREELANDER HEFUR LÆKKAÐ I 2.340.000
(VERÐ ÁÐUR 2.490.000, VERÐLÆKKUN KR. 150.000)
FREELANDER XEI HEFUR LÆKKAÐ í 2.590.000
(VERÐ ÁÐUR 2.750.000, VERÐLÆKKUN KR. 160.000)
VERÐI ÞÉfí AÐ GÓÐU!
FREELANDER