Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2000, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2000, Blaðsíða 10
10 Útlönd ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2000 DV Sluppu naumlega Mary og James Murphy sluppu naumlega frá mannræningjunum er þeir skipuöu gíslunum um borö í báta. Dvalarstaður gíslanna fundinn Varnarmálaráðherra Malasíu, Najib Razak, sagði í gær að vitað væri um dvalarstað 22 gísla sem vopnaðir menn rændu frá ferða- mannaeyjunni Sipadan, skammt frá Borneó, á sunnudaginn. Meðal gísl- anna eru 10 erlendir ferðamenn. Hinir gíslarnir eru aðstoðarlög- reglustjórinn í Sabah, hótelstarfs- menn og starfsmenn í þjóðgarði. Bandarískum hjónum tókst að sleppa úr klóm mannræningjanna. Ekki er talið útilokað að mannræn- ingjamir tilheyri Abu Sayyaf- skæruliðasamtökunum sem haldið hafa tugum barna í gíslingu í mán- uð. Mannræningjarnir hálshjuggu tvo kennara bamanna í síðustu viku. Skæruliðasamtökin krefjast frelsis þriggja múslíma sem eru í bandarískum fangelsum. UPPBOÐ Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Bjarnarbraut 2, Borgarnesi, sem hér segir á eft- _______irfarandi eignum:______ Austurholt 4, Borgamesi, þingl. eig. Osk- ar Eggerts Sverrisson, gerðarbeiðendur Sparisjóður Kópavogs og Sparisjóður Mýrasýslu, fimmtudaginn 27. apríl 2000, kl. 10._______________________ Egilsgata 6, Borgamesi, þingl. eig. María Socorro Grönfeldt og Steinþór Grönfeldt, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn í Borgar- nesi, fimmtudaginn 27. apríl 2000, kl. 10. Hl. Sigmundarstaða í Borgarljarðarsveit, þingl. eig. Reynir Aðalsteinsson, gerðar- beiðendur Sparisjóður Mýrasýslu og sýslumaðurinn í Borgamesi, fmimtudag- inn 27. aprfl 2000, kl. 10.___ SÝSLUMAÐURINN í BORGARNESI STEFÁN SKARPHÉÐINSSON Janet Reno iðrast einskis Janet Reno, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, sagðist i gær alls ekki iðrast þess að hafa fyrirskipað vopnuðum mönnum að ná í kúbverska drenginn Elian Gonzalez til ættingja hans í Miami svo að hann gæti verið hjá föður sínum. Dómsmálaráðuneytið greindi frá því í gær að frænka drengsins, Marisleysis Gonzalez, hefði verið með hótanir nokkrum dögum áður en drengurinn var sóttur. Hafði hún tjáð embættismönnum ráðuneytis- ins að það væru „ekki bara mynda- vélar“ í húsi ættingja drengsins í Miami. „Sá sem heyrði þetta varð mjög óttasleginn og túlkaði það sem hótun og að átt væri við byssur," sagði talsmaður dómsmálaráðuneyt- isins, Carole Florman, í gær. Kúbverskir útlagar í Miami eru æfir vegna skyndiaðgerða banda- Fagnaðarfundir Elian litli Gonzalez er nú loksins í faömi fööur síns. rískra embættismanna þegar Elian var sóttur og hvöttu í gær til alls- herjarverkfalls í dag í mótmæla- skyni. Háttsettir repúblikanar á Bandaríkjaþingi hafa krafist rann- sóknar á aðgerðinni. Ættingjar Elians í Miami hafa ár- angurslaust reynt að komast inn á herstöðina í Washington þar Elian dvelur nú með föður sínum, stjúp- móður og hálfbróður. Lögmaður föður Elians segir drengnum líða vel. Hann leiki sér við litla bróður sinn og faðmi föður sinn. Ekki sé hægt aö merkja að hann hafi mátt þola miklar raunir. Fidel Castro Kúbuforseti sagði á fjölmennum fundi að Kúba væri reiðubúin til að gera allt til að fá Elian heim aftur nema heQa stríð. Hann hvatti menn til að sýna rósemi og fagna ekki strax. Særðír fluttir á sjúkrahús Bóndinn Craig White í Zimbabwe ekur særöum vinnumönnum sínum á sjúkrahús. Landtökumenn kveiktu í húsi vinnumannanna þegar þeir lágu þar í fastasvefni. Svartir vinnumenn hvítra bænda sæta nú ofsóknum vegna stuönings viö stjórnarandstööuflokkinn. Lagnamenn og hönnuðir athugö Geberit námsketð Tengi ehf og Geberit A/S munu halda kynningu og námskeið á vörum frá Geberit á Grand Hótel Reykjavík. -O Haldin verða 2 námskeið, hið fyrra miðvikudaginn 26. apríl og hið seinna fimmtudaginn 27. apríl. Þau hefjast kl. 18:00 báða dagana og standa til kl. 21:00 Kynntverða ýmis nýefni, þar á meðal "Geberit Silent” kerfi sem er ný tegund at hljóðeinangrandi frárennslisrörum. Einnig verða kynntir lagnaveggir, innbyggðar grindur fyrir hreinlætistæki, rafeindastýrður skolbúnaður og ýmislegt fleira. Þeir sem hafa áhuga á að sækja námskeiðið eru vinsamlega beðnir að skrá sig sem fyrst hjá Tengi í síma 564-1088. Stúlkur frá A-Evrópu: Kynlífsþrælar í Kosovo Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna hafa bjargað úr vændishúsum í Kosovo um 50 konum sem fyrst og fremst þjónuðu hermönnum og hjálp- arstarfsmönnum. Þetta kom fram í bandaríska blað- inu Washington Post t gær. Grunur leikur á að hundruð kvenna, einkum frá A-Evrópu, séu kynlífsþrælar í Kosovo. „Þær hafa verið gerðar að þræl- um,“ segir Vincenzo Coppola, yfir- maður ítalskrar sérsveitar í Kosovo. Sveitin frelsaði nýlega 23 konur i skyndiárás á vændishús í Prizren í vesturhluta Kosovo og Pristina, höf- uðborg Kosovo. Stúlkurnar, allt niður í 15 ára, koma eftir skipulögðum leiðum glæpagengja til Makedóníu. Þar er þeim haldið á vegahótelum og þær seldar melludólgum, oftast Albön- um, á milli 70 og 170 þúsund krón- ur. Síðan eru stúlkurnar fluttar til Kosovo. Háttsettir menn i Kosovo, þar á meðal nokkrir með tengsl við fyrr- um Frelsisherinn, vernda glæpa- starfsemina í Kosovo. „Konurnar sem við ræddum við vissu, þegar þær yfírgáfu heimaland sitt, að þær yrðu vændiskonur. En þær ímynduðu sér að þær myndu græða tugi þúsunda dollara í fram- andi landi, eins og til dæmis Italíu eða Spáni, og síðan snúa heim. í stað- inn urðu þær fangar hér og fá enga peninga," segir lögreglumaður Sam- einuðu þjóðanna i viðtali við Wash- ington Post. Stúlkurnar koma einkum frá fátæk- ustu löndum fyrrverandi kommúnista- ríkja Evrópu. Yfirvöld í Moldavíu hafa nýlega fengið upplýsingar um hundr- að moldavískar stúlkur i Kosovo og reyna nú að fá þær heim aftur. nrii'i"i i Miiii Fyrirskipar aukið öryggi Madeleine Al- bright, utanríkis- ráðherra Banda- ríkjanna, fyrir- skipaði í gær nýj- ar öryggisaðgerð- ir eftir að ferða- tölva með leyni- legum upplýsing- um hvarf úr utan- ríkisráðuneytinu. „Þetta er óafsak- anlegt og óþolandi. Svona mistök stofna öryggi ríkisins í hættu,“ sagði Albright meðal annars. Viðurkenna mannfall Rússnesk yfirvöld sögðu í gær að 15 rússneskir hermenn hefðu fallið í umsátri tjsetsjenskra uppreisnar- manna á flutningabílalest. Tsje- tsjenar kváðust hafa fellt 80 Rússa. Sá barn sitt fyrir andlátið Bresk kona fékk lækna til að framkalla fæðingu hjá henni tveim- ur vikum fyrir tímann svo að eigin- maður hennar, sem var dauðvona, fengi að sjá barnið fyrir andlátið. Faðirinn lést úr krabbameini þrem- ur dögum eftir að hafa fengið ný- fædda dóttur sína í fangið. Microsoft líklega skipt Hlutabréf Microsoftfyrirtækisins snarlækkuðu í verði í kauphöllinni í New York í gær er það fréttist að bandaríska dómsmálaráðuneytið íhugaði að láta skipta fyrirtækinu í tvennt vegna einokunarstöðu þess. Ný fjöldagröf í Úganda Lögreglan í Úganda kvaðst í gær telja að fundin væri ný fjöldagröf sem leiðtogar dómsdagssafnaðarins, er myrtu um 900 stuðningsmenn sína, hefðu notað. Nornafundur í Stokkhólmi Alþjóðlegur nornafundur var haldinn í Stokkhólmi um páskana. Nornirriar, sem trúa á hamingjuna og að bót allra meina sé að finna í náttúrunni, skemmtu sér vel. Framtíð Jerúsalem óljós ísraelar sögðu í gær að deilan um framtíð Jerúsalem yrði ekki leyst fyr- ir september þegar opinber frestur til að semja frið við Palestínumenn rennur út. ísraelar lýstu þessu yfir daginn eftir að Abdullah Jórdaníu- konungur sagði það hugsanlega lausn að Jerúsalem yrði bæði höfuð- borg ísraela og Palestínumanna. Hengdi sig vegna mistaka Ungur maður, sem lék Júdas á páskasýningu á Ítalíu, hengdi sjálf- an sig vegna mistaka. Talið er að maðurinn hafi haft hengingarólina of stutta. Meðleikendur mannsins dáðust að frammistöðu hans. Þegar í ljós kom að eitthvað hafði farið úr- skeiðis var hann fluttur á sjúkrahús þar sem hann lést skömmu síðar. Loka dagblöðum í íran Alls tólf dagblöðum og tímaritum hefur verið lokað í íran. Tveir rit- stjórar hafa verið dæmdir í fangelsi. Timaritin og dagblöðin sem var lokað hafa stutt umbótasinnaðan forseta landsins, Mohammad Khatami.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.