Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2000, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 25.04.2000, Blaðsíða 28
FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 Frábær kjör á bílaleigu- bílum Sími: 533 1090 Fax: 533 1091 E-mail: avis@avis.is Dugguvogur10 AVIS ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL 2000 Leigubflstjóri segir piltinn hafa beðið sig að skipta peningum: Hnífsblaðið lenti á rifbeini og brotnaði - drengurinn fékk sjokk þegar hann sá blaðið brotna Ég sá 15-17 ára strák koma að bíln- um. Mér leist ekkert illa á hann og opnaði hurðina. Hann var einlægur og spurði hvort ég gæti skipt. En allt í einu kom hann með hnif. Hann var íslenskt skófyrirtæki: Milljarða- samningur íslenska skófyrirtækið X-18 hefur gert milljarðasamning um skósölu í Bandaríkjunum. Fyrirtækið mun greina nánar frá samningnum í dag. X-18 er tveggja ára gamalt íslenskt fyrirtæki sem hannar og markaðssetur skó. Skómir eru aðallega framleiddir í Kína og era þeir seldir baeði í Englandi og Danmörku, sem og á íslandi. Markaðshópur þess hefur hingað til verið aðailega ungar konur á aldrinum 12 til 30 ára en nú er farið að framleiða annars konar skó líka, svo sem karl- mannaskó. „Þessum skóm hefur verið mjög vel tekið héma heima og þetta er orðin mjög þekkt vara hér,“ sagði Pétur Bjömsson, stjómarformaður X-18.-SMK DV-MYND S Vettvangur árásarinnar Atburöurinn átti sér staö á laugardagskvöld- iö á biöstaö fyrir leigubíla BSR norðaustan- vert viö Hvassaleiti. sneggri en ég og stakk mig nið- ur á við. Hnífurinn stöðvaðist í rifbeini á mér og svo brotnaði blaðið," sagði 54 ára leigubíl- stjóri sem varð fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu að pilt- ur lagði til hans með hníf klukkan um níu á laugardags- kvöldið við biðstöð BSR í Hvassaleiti. Bílstjórinn kveðst hafa verið i skyrtu og þunnum jakka. Hann segir hnífinn hafa stung- ist i gegn og lent á beini, síðan hafi blaðið í hníf árásarmanns- ins brotnað og brot úr því lent í sætinu hjá sér. „Pilturinn fékk sjokk þegar hann sá blaðið brotna og ég reyndi að „hjóla í hann“,“ sagði leigubílstjórinn sem sat enn í bílstjórasætinu þegar pilturinn tók skyndilega upp hriífmn. „Strákur- inn hljóp í burtu og ég hljóp á eftir honum. Þegar hann kom upp fyrir hom á húsi þama var hann horfinn," sagði leigubílstjórinn. Hann segir að maður á öðrum leigu- bil hafi séð til fjögurra annarra pOta bíða við raðhús í Hvassaleitinu stuttu áður en umræddur piltur gekk að bíl hans og tók upp hnífinn. Bílstjóramir telja pOtinn hafa verið á ferð í hverf- inu í hópi með öðrum. Þrátt fyrir að hnífur pOtsins hafi brotnað slapp bflstjórinn með skrámu. Það telst hhis vegar ekki pfltinum að þakka enda virðist hann hafa lagt það harkalega tfl bilstjórans að hnífsblaðið brotnaði. Bflstjórinn segir að vissulega sé alls óvíst hvemig hefði farið hefði hnífsblaðið ekki lent á beini. -Ótt Um 20 dagar eftir hjá Haraldi Erni: Skrifstofu Iridium lokað 30. apríl - þó óljóst hvort samband rofnar við Harald DV-MYND S Sinubruni. Þetta er nokkuö dæmigerö mynd af ástandinu í Reykjavík síöustu daga. Viöa hefur veriö kveikt í sinu og borgarstarfs- menn og slökkviöliö hafa staöiö í ströngu. Harður árekstur Einn maður var fluttur á slysa- defld Landsspítalans í Fossvogi eftir tveggja bfla árekstur á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Háaleitisbraut- ar um klukkan hálfeOefu í gærkvöld. Lögreglan, sjúkrabOl og tækjabfll slökkvfliðshis mættu á svæðið og klippa þurfti annan bflinn tfl þess að ná mann- inum úr honum. -SMK Gullverðlaun Ungt íslenskt danspar, Ásta Bjarna- dóttir og Þorleflúr Einarsson, 11 ára að aldri. gerði sér lítið fyrir og sigraði í óopinberri heimsmeistarakeppni í Blackpool í Englandi í gær. Náðu þau þessum frábæra árangri við að dansa djæf en 70 pör hófu keppnina sem var mjög hörð og spennandi. -HKr. Samstarfsaðilar íslenskra um- boðsaðfla gervihnattasímafyrirtæk- isins Iridium, sem hefur annast símaþjónustu fyrir ýmsa pólfara frá Norðurlöndum að undanförnu, munu loka skrifstofum sínum í Þýskalandi um mánaðamótin. Jó- hann Bjamason, talsmaður Radíó- miðunar, segir hins vegar að fyrir- tækið hafi ekki fengið neinar dag- setningar staðfestar um það hvenær sjálfu kerfinu verður alveg lokað. Hann sagði á hinn bóginn í samtali við DV að Radíómiðun yrði látin vita með einhverjum fyrirvara þeg- ar slíkt gerðist. Aðspurður hvort samband myndi rofna við Harald Öm Ólafsson á næstunni sagðist hann ekkert geta sagt um slíkt. Hann benti hins vegar á að forsvars- menn Iridium hefðu fengið fremur harðort bréf nýlega þar sem lögð var áhersla á að loka ekki kerfinu á meðan íslenskur og aðrir pólfarar væru enn í leiðöngrum sínum. Iridi- um hefði tekið mið af þessu með hliðsjón af öryggi mannslífa - það segðist a.m.k. ætla að halda kerfinu opnu „takmarkaðan tíma“. Haraldur Örn Ólafsson á nú eftir um 20 daga af leiðangri sínum - hef- ur nú verið á gangi í samtals 46 daga eða frá 10. mars. Ólafur Öm Haraldsson, faðir Haraldar, sagði við DV að sonur hans hefði haft mikla ánægju af því að gæða sér á páskaeggi að heiman sem hann fékk í síðustu viku. Hins vegar hefði hann haft á orði að hann væri að plokka frosnar flygsur úr sellófan- pappírnum sem var utan um eggið - frostið hefði mélað umbúðimar. Á hinn bóginn var frostið hjá Ólafi Erni „ekki nema“ rúm 20 stig þegar hann lagði af stað í gær. Haraldur Örn hefur nú lagt að baki um 500 kflómetra en á þá eftir 270-280 kfló- metra. „Hann lét mjög vel af sér þegar ég talaði við hann,“ sagði fað- ir hans. -Ótt DV-MYND HILMAR ÞÓR Sumar og páskar á sama tíma Þrátt fyrir kulda í lofti er sól farín aö skína dægurlangt. Páskarnir hafa veriö skíöamönnum sem og sunddýrkendum hliðhollir. Flykktist fólk í laugarnar og brekkurnar til aö njóta geisla sólarinnar. Fengu sumir ókeypis flugferö í tilefni páskanna. Haraldur Orn nálgast norðurpólinn íslenski pólfarinn á nú einungis eftir tæplega þriggja vikna göngu þangað til hann veröur fyrsti íslendingurinn til aö ná þangaö gangandi. brother P-touch 9200PC Prentaðu merkimiða beint úr tölvunni Samhæft Windows 95, 98 og NT 4.0 360 dpi prentun 1 til 27 mm letur Strikamerki Rafport Nýbýlavegi 14 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.